Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 2. ÐESEMBER 1990 31 AUGL YSINGAR 30% starf Óskum eftir barnfóstru. Hún þarf að vera hörkudugleg, þolinmóð og vön börnum. Þarf að geta byrjað strax. Upplýsingar veittar á staðnum. ýteUo stúdíó jónInu & Agústu Skeifunni 7, sími 689868. Starfsmaður óskast í tölvuverslun Góð þekking á tölvu-vélbúnaði, ásamt góðri framkomu eru skilyrði. Æskileg menntun: Tölvuður eða sambærilegt. Um er að ræða framtíðarstarf. Umsóknir sendist á auglýsingadeild Mbl., merktar: „TS - 9011“. Tölvusalaixi he BORGARSPÍTALINN Geðdeild Borgarspítala Hjúkrunarfræðingar Við þurfm nú þegar á liðsauka að halda: 1) Hjúkrunarfræðing á fastar næturvaktir á A-2, Borgarspítala. Um er að ræða 40% vinnu. 2) Hjúkrunarfræðing í afleysingar á nætur- vaktir á Arnarholt, Kjalarnesi. Einnig um að ræða 40% vinnu. Verið velkominn að leita upplýsinga hjá Guðnýju Önnu Arnþórsdóttur, hjúkrunar- framkvæmdastjóra geðdeilda, í síma 696-355. Uppeldisfulltrúar Meðferðarheimilið á Kleifarvegi óskar eftir uppeldisfulltrúum til starfa fljótlega. Spenn- andi en krefjandi starf. Uppeldismenntun æskileg. Upplýsingar gefur deildarstjóri í síma 82615. S4S Fjármálastjóri Við höfum verið beðin að útvega réttan starfsmann í stöðu fjármálastjóra hjá SAS á íslandi. Leitað er að starfsmanni, sem hefur við- skiptafræðipróf eða aðra sambærilega menntun. Einnig er nauðsynlegt að viðkom- andi hafi góða undirstöðu í notkun tölva. Starfsreynsla ífjármálastjórnun er nauðsynleg. Viðkomandi aðili þarf að vera lipur í allri umgengni, nákvæmur og tilbúinn til að leggja mikið á sig þegar þörf krefur. í boði er stjórnunarstarf hjá traustu og fram- sæknu fyrirtæki. Starfið er laust eftir nánara samkomulagi. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu okkar í Hafnarstræti 20, 4. hæð. Þar eru einnig veittar allar frekari upplýsingar um starf þetta. Með umsóknareyðublaðinu skal fylgja Ijósmynd af umsækjanda, ásamt afriti af prófskírteinum. Umsóknarfrestur er til 10. des. 1990. TEITUR lÁRUSSON STARFSMANNAÞJÓNUSTA HAFNARSTRÆTi 20. VIÐ LÆKJAF .ORG, 101 REYKJAVÍK. SÍMl 624550 Aðstoð vantar vegna veikinda á lítið heimili í Seljahverfi. Vinnutími frá kl. 16.00-23.00 einu sinni til tvisvar í viku. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „F-13535" fyrir 5. desember nk. HAGKAUP Verslunarstörf Hagkaup vill ráða starfsfólk í eftirtalin störf í matvöruverslun fyrirtækisins í Kringlunni: Afgreiðsla á kassa Heilsdagsstörf og hlutastarf eftir hádegi. Upplýsingar um störfin veitir deildarstjóri kassadeildar á staðnum (ekki í síma). Starf á lager Heilsdagsstarf. Upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri á staðnum (ekki í síma). Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Staða forstöðumanns nýrrar stoð- deildar við Landsbanka íslands - Útlánastýringar - er laus til umsóknar Meginverkefni deildarinnar verða eftirfar- andi: 1. Samning og endurskoðun á útlánareglum bankans. 2. Áhættumat útlána og útlánaeftirlit. 3. Umsagnar- og álitsgerð fyrir lánanefnd bankans. 4. Stjórn vanskilainnheimtu. Nauðsynlegt er að umsækjandi þekki vel til rekstrar fynrtækja og hafi góða þjálfun í áætlanagerð. Bankareynsla, einkum á sviði útlánamála, er gagnleg. Laun samkvæmt kjarasamningi SÍB og bank- anna. Umsóknarfrestur er til 10. desember nk. Umsóknir sendist til Ara F. Guðmundsson- ar, framkvæmdastjóra starfsmannasviðs, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, Reykjavík, sem gefur nánari upplýsingar. Forstöðumaður viðurkenningar- deildar Löggild- ingarstofunnar Vegna aukinna og breyttra verkefna Löggild- ingarstofunnar er nú unnið að endurskipu- lagningu hennar, en stofnuninni er nú m.a. ætlað að taka að sér viðurkenningu (accredit- ation) á vottunar- og prófunarstofum f sam- ræmi við Evrópustaðla EN 45 Oxx. Leitað er eftir starfsmanni til þess að byggja upp og veita forstöðu viðurkenningardeild Löggildingarstofunnar. Hánn þarf að hafa háskólapróf í verkfræði eða skyldum greinum auk reynslu í skipulagningu og stjórnun á gæðakerfum. Leitað er að manni, sem hefur góða framkomu og á auðvelt með samskipti við aðra, jafnt innanlands sem utan. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal senda til viðskiptaráðuneyt- isins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, eigi síðar en föstudaginn 14. desember nk. Upplýsingar um starfið veitir Finnur Svein- björnsson, viðskiptaráðuneytinu, í síma (91)609436. Viðskiptaráðuneytið, 30. nóvember 1990. Hafnarfjörður Afgreiðslumann vantar í vefnaðarvörubúð í desember. Upplýsingar í síma 51092. Pöstur og sími Laust starf bréfbera í Kópavogi. Um fullt starf er að ræða. Upplýsingar veitir stöðvarstjóri í síma 91-41225. FWC iPF C X, fV'ONINCV'fí Vantar þig vinnu? Hlutastörf Við leitum nú að fólki í eftirtalin störf. 1. Almenn skrifstofustörf hjá opinberri stofnun eftir hádegi. Um er^að ræða starf við símavörslu, móttöku ög ritvinnslu. Vinnutími frá kl. 12.15-16.20. 2. Afgreiðslustarf í söluturni í Vesturbæn- um. Vinnutími þrjú kvöld í viku frá kl. 19-24. 3. Afgreiðslustarf í sérhæfðri húsgagna- verslun. Æskilegur aldur 35-45 ára. Vinn- utími frá kl. 13-18. Nánari upplýsingar veitir Einar Páll Svavarsson hjá ráðningaþjónustu Ábendis. Ábendi, Engjateigi 9, sími 689099. Opið frá kl. 9-12 og 13-16. Ritari forstjóra (657) Inn- og útflutningsfyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða ritara til framtíðarstarfa. Hér er um nýtt starf að ræða og því áhugavert tæki- færi fyrir reyndan ritara. Starfsmannafjöldi um 30 manns. Starfssvið: Sérhæfð ritarastörf er tengjast starfi forstjóra og helstu stjórnendum fyrir- tækisins. Við leitum að ritara, sem hefur gott vald á ensku (tala/skrifa), því erlend samskipti eru mikil. Tölvukunnátta, ásamt góðri reynslu í almennum skrifstofustörfum, nauðsynleg. Sjálfstæði, skipulagshæfileikar og frumkvæði eru nauðsynlegir eiginleikar. í boði er áhugavert, sjálfstætt framtíðar- starf, sem krefst frumkvæðis, dugnaðar og getu til að vinna að krefjandi verkefnum. Lögmannsstofa (640) Þekkt lögmannsstofa óskar að ráða einkarit- ara fyrir einn af lögmönnum sínum sem fyrst. Heilsdagsstarf. Við leitum að ritara, sem getur skrifað texta eftir handriti og segulbandi á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli, auk margs konar verkefna er snerta dagleg störf á lögmanns- stofu. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að axla ábyrgð í starfi og takast á við krefjandi verkefni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.