Morgunblaðið - 22.08.1991, Blaðsíða 42
Asgeir Sig. Asgeir El.
ínémR
-FOLK
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 22. AGUST 1991
Pétur Guðmundsson
Átta íslendingar til Tokýó
Þórdís Gísladóttir náði sér af meiðslum og verður meðal keppenda á heimsmeistaramótinu
■ SIGURJÓN Arnarsson úr GR
og Úlfar Jónsson úr GK taka þátt
í Evrópumeistaramóti áhugamanna
sem haldið er á Hillside golfvellin-
um norðan við Liverpool.
■ ÞAÐ eru 140 kylfingar sem
taka þátt í mótinu. Eftir 36 holur
verður skorið niður þannig að 80
halda áfram keppni og eftir 54
lýfíhr verða 60 bestu eftir. Mótið
hefst í dag og lýkur á sunnudag.
■ ÞETTA er í þriðja sinn sem
íslendingar taka þátt í mótinu.
Sömu menn kepptu _þar í fyrra en
árið áður voru það Úlfar, Hannes
Ey vindsson og Ragnar Ólafsson.
■ KYLFINGAR virðast ætla að
lengja gott keppnistímabil hér
heima með því að fara til útlanda
og leika golf þar. Uppselt er í ferð
tii Mallorka með Samvinnuferð-
um Landsýn 8.-17. október, en þar
mun Kjartan L. Pálsson halda um
stjórntaumana og Sigurður Pét-
ursson kenna golf. Ónnur ferð er
fyrirhuguð 1.-8. október en ekki er
enn ljóst hvort af henni getur orðið.
IT*-TVÆR ferðir verða til Florida.
Uppselt er í ferð þangað 2. nóvemb-
er en örfá sæti laus í ferð 21. októ-
ber til 5. nóvember.
■ DIEGO Maradona hefur skrif-
að Fidel Castro, forseta Kúbú,
bréf og boðist til að koma til Kúbú
og kenna ungum knattspymumönn-
um í tvo mánuði, án þess að taka
greiðslu fyrir.
Pétur Guðmundsson landsliðsmaður í körfuknattleik. Líkur eru á að hann
komist á ný í NBA-deildina í vetur.
ÁTTA íslenskir frjálsíþrótta-
menn eru komnir til Tokýó í
Japan en þar hefst heims-
meistaramótið ífrjálsum á
laugardagínn.
Það var lengi vel óvíst hvort
Þórdís Gísladóttir gæti farið
vegna meiðsla. Hún sagði sjálf eft-
i’'_j)ikarkeppni FRI 17. ágúst að
íikiega væri Tokýóferðin fyrir bí.
Þá tóku sig upp gömul meiðsli í hæl
og stökk hún aðeins 1,60 þá. Þórdís
fór engu að síður til Tokýó og telur
sig vera í góðu formi.
„Þórdís virðist hafa náð sér góðri
á skjótan hátt. Hún æfði um helg-
ina og gekk vel,“ sagði Magnús
Ja^tobsson formaður Frjálsíþrótta-
sámbandsins sem er í Tokýó ásamt
Hreini Halldórssyni og Þráni Haf-
steinssyni, sem fór sem þjálfari
íþróttafólksins.
Spjótkastararnir Einar Vil-
hjálmsson, Sigurður Einarsson og
Sigurður Matthíasson og íris Grön-
feldt keppa á mótinu auk Péturs
Guðmundssonar í kúluvarpi, Vé-
steins Hafsteinssonar í kringlu-
kasti, Mörthu Ernstdóttur í 10.000
m hlaupi og Þórdísar í hástökki.
Hver þjóð má senda einn kepp-
enda í hveija grein svo fremi að
hann nái B-lágmarki. Ef keppendur
eiga að vera fleiri þá þurfa þeir
allir að ná A-Iágmarki. Lágfmarkinu
þurfti að ná á tímabilinu 1. janúar
1990 og 14. ágúst 1991. Margar
þjóðir leggja þó áherslu á að vænt-
anlegir þátttakendur sýni góðan
Pétur Guðmundsson
Þórdís Gísladóttir
árangur skömmu fyrir HM, en ekki
ári áður. Það er reyndar ekki gert
hér á landi.
Pétur segist ætla á verðlauna-
pall í Tokýó og hugsanlega gæti
einhver spjótkastaranna náð langt.
Aðrir eiga varla möguleika á að
komast í úrslit.
Búið er að ákveða lágmörkin til
að komast í úrslitakeppnina á HM,
en keppendur verða aldrei færri en
12.1 spjótkasti þurfa menn að kasta
82 metra til að ná í úrslit og konur
62 metra. Kúluvarparar verða að
varpa 19,60 m og kringlan verður
að svífa 64 metra. I hástökki
kvenna verða stúlkurnar að stökkva
1,92 metra til að komast í úrslit. í
10 km hlaupi komast 25 bestu
áfram í úrslit.
■ FRAMARAR höfðu samband
við Asgeir Sigurvinsson og vildu
fá hann til að taka við þjálfun meist-
araflokks félagsins næsta sumar í
stað Asgeirs Elíassonar, sem tek-
ur við íslenska landsliðinu í haust.
Þar sem Ásgeir Sigurvinsson er
samningsbundinn þýska félaginu
VfB Stuttgart hafði hann ekki
möguleika á að gefa kost á sér í
starfið.
■ SIGURÐUR Hallvarðsson,
sóknarleikmaður Þróttar R., leikur
ekki með liðinu gegn Tindastóli á
föstudaginn. Hann tekur þá út eins
Jeiks bann vegna fjögurra gulra
spjalda. Guðjón Þorvaðarson, Sel-
fossi, er einnig í leikbanni - í leik
gegn Þór.
til Philadelphia 76ers?
PÉTUR Guðmundsson, lands-
liðsmaður í körfuknattleik, fer
í æfingabúðir hjá hinu kunna
félagi Philadelphia 76ers í
haust, og svo gæti farið að
hann léki með því í NBA-deild-
inni ívetur.
im Lynam, þjálfari Philadelphia
76ers, hefur hug á að fá Pétur
til liðs við félagið fyrir næsta keppn-
istímabil í NBA-deildinni. Lynam
þekkir Pétur vel, en þegar íslend-
ingurinn lék með Portland Trail
Blazers fyrir nokkrum árum var
Lynam aðstoðarþjálfari hjá féiag-
inu.
„Ég er búinn að fá boð frá félag-
inu um að koma í æfingabúðir í
haust og hef sagt þeim að ég komi.
Þangað bjóða þeir 18 manns,“ sagði
Pétur við Morgunblaðið í gær.
„Þetta lítur vel út. Ég held þeir
hafi ekki boðið mörgum „senterum"
og veit að þá vantar stóra menn,“
sagði hann. Æfingabúðirnar hefjast
3. október. Pétur sagðist einnig
hafa verið í sambandi við önnur
félög en talið þetta besta kostinn.
Pétur hefur algjörlega náð sér
af meiðslunum sem htjáðu hann sl.
vetur og æfir nú af kappi í San
Antonio, þar sem hann býr.
Pétur hefur leikið með þremur
liðum í NBA-deiIdinni; Portland,
Los Angeles Lakers og San An-
tonio Spurs.
KR leikur á Nesinu
KR-ingar leika heimaleiki sína í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi, eins og þeir gerðu keppnistímabil-
ið 1989-1990, þegar þeir urðu íslandsmeistarar. Síðasta keppnistíma-
bil léku KR-ingar heimaleiki sína í Laugardalshöllinni.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Pétur
Ormslev
Fram (5)
Ólafur
Gottskálksson
KR (4)
Qrmarr
Örlygsson
KA (3)
Þorvaldur
Örlygsson
Fram (5)
Kristinn R,
Jónsson
Fram (3)
Atli
Helgason
Víkingi (3)
Þormóður
Egilsson
KR(7)
Jón Erling
Ragnarsson
Fram (3)
Pótur
Pétursson
KR (2)
Heimir
Guðjónsson
KR (2)
Atli
Einarsson
Víkingi (5)
UÐ 15. UMFERÐAR
FRJALSIÞROTTIR
KORFUKNATTLEIKUR