Morgunblaðið - 25.05.1993, Page 19

Morgunblaðið - 25.05.1993, Page 19
Hógværð, sem forðar frá lær- dómshroka, valdahroka, ofmetn-- aði og græðgi, má ekki vanta, ef vel "á að fara. En síðast en ekki síst byggist heilbrigt samfélag á miskuimsemi eins og þeirri, sem kemur fram í sögunni af samverj- anum miskunnsama. Slíka menn töldu gyðingar óhreina, að ósekju. „Traustir- skulu homsteinar hárra sala.“ Éigi að standa há- timbruð fijáls og fögur menning á íslandi um framtíð, verður hún ekki á traustari hornsteinum reist en þessum. „Island er einstakt“ er eftir Efraím haft í umræddri grein. Einstakur mun hann og sjálfur vera, nefniléga einstaklega þrá- kelkinn, þegar hann bítur eitthvað í sig. Seigla og ósérhlífni geta þó þróast út frá þrákelkni. Komu þeir eiginleikar okkar þjóð sérlega vel á harðindaárum. Annars vær- um við tæplega hér til að fara í fínu taugarnar á Efraím hinum vígreifa. Þeirri orðsendingu mætti að ósekju beina til Efraíms og stofnunar hans, að tímabært sé fyrir þá að snúa sér að eflingu friðar á jörð, en hætta að slíta sér út á því vonlausa verkefni að reyna með dulbúnum hótunum að snúa þrákálfunum á þessu landi frá miskunnsömu réttlæti, fullri skyn- semi og einlægum friðarvilja. Höfundur er læknir sem numið hefur ðjúpsálarfræði við sálfræðistofnun C.G. Jungí Ziirich. Námstefna um sljórnunarstíl kvenna KVENRÉTTINDAFÉLAG ís- lands stendur miðvikudaginn 29. maí fyrir námstefnu um stjórnunarstíl kvenna í Korn- hlöðunni við Bankastræti kl. 18-21. í inngangserindi stefnunnar mun Anna K. Valdimarsdóttir, sálfræðingur, fjalla um mismun- andi eiginleika og aðferðir sem konur og karlar beita við stjórnun. Um reynslu kvenna sem stjórn- enda á ólíkum stöðum fjalla þær Hrafnhildur Guðmundsdóttir, for- stöðumaður Droplaugastaða, en erindi hennar nefnist: Hvernig er að stjórna á kvennavinnustað?, Hildur Petersen, forstjóri Hans Petersen hf., í erindinu: Hvernig er að vera kona í forsvari fyrir einkafyrirtæki? og Rannveig Rist, stjómardeildarstjóri hjá ISAL, í erindinu: Hvernig er að koma inn sem stjórnandi á karlavinnustað? Að erindunum loknum eru fyrir- spurnir og umræður. Fundarstjóri verður Lilja Ólafsdóttir, aðstoðar- maður forstjóra SKÝRR, fundar- ritari er Elsa Þorkelsdóttir, fram- kvæmdastjóri Jafnréttisráðs. (Úr fréttatilkynningu) -----* * *---- Lögreglan skoöar hjól viö skólana LÖGREGLAN í Reykjavík gengst fyrir reiðhjólaskoðun við grunnskóla borgarinnar frá 27. maí til 7. júní. Tímasetning hefur verið auglýst í skólunum. Lögreglan stefnir að því að kanna búnað reiðhjóla sem flestra barna og hvetur þau til að mæta til hjól sín til skoðunar. 3M Plástrar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAI 1993 19 Styrkveitingar úr Vísindasjóði Landspítalans ÚTHLUTUN styrkja úr Vísinda- sjóði Landspítalans fór fram á aðalfundi læknaráðs Landspítal- ans þann 14. maí sl. Alls bárust 46 umsóknir og var sótt um sam- tals 29 milljónir króna. Ráðstöf- unarfé sjóðsins var 6,6 milljónir í ár. Veittur var 31 styrkur til 30 umsækjenda. Vísindasjóður Landspítalans styrkir fyrst og fremst rannsóknir sem gerðar eru við spítalann af starfsmönnum hans. Tekjur sjóðs- ins hafa aukist til muna síðustu tvö árin þar sem læknar greiða nú 0,5% af fastalaunum sínum til sjóðsins en á móti kemur 1% framlag Rík- isspítala. (Fréttatilkynning) ÞARFAÞING FRÁ MÚLALUNDI FYRIR RÁÐSTEFNUR, NÁMSKEIÐ OG FUNDI. Stendur fyrir dyrum ráðstefna,námskeið eða fundur? Fundarmöppurnar og barmmerkin (nafnmerkin) frá Múlalundi eru einstakt þarfaþing sem auðvelda skipulag og auka þægindi og árangur þátttakenda. Allar gerðir, margar stærðir, úrval lita og áletranir að þinni ósk! Hafðu samband við sölumenn okkar i síma 68 84 76 eða 68 84 59. Múlalundur Vinnustofa SÍBS - Hátúni 10c - Símar: 68 84 76 og 68 84 59. I 1 1 ’ V _ Með Motorola færðu attt þetta oq meira ttt s Lítill, sterkur og kraftmikill Langlínulæsingar valdar af eiganda Mæling á viðtökustyrk Góðir takkar oq stór skjár auðveldar notkun Valmyndir einfalda notkunina Endurval 99 númera minni fyrir sfmanúmer og nöfn. 10 númera endurvalsminni. 10 númera skammvalsminni Styrkstillir fyrir hringingu talfæri og hátalara Tengi (sígarettukveikjara, loftnet á burðartækið og 220 volta hleðslutæki fylgir með burðarsímanum. Takki til að loka hljóðnema Innbyggður hátalari og hljóðnemi fyrir notkun ag nyoonen hanafrjálsa Tónval Þjófavörn Associate 2000 frá Motorola er einn fjölhæfasti farsíminn sem fæst á markaðnum. Þú getur haft símann í bátnum eða bílnum, heima og á skrifstofunni. Raforku má fá frá bíla- eða bátarafgeymi, eða frá rafhlöðu símans. Síminn er í níðsterkum stálkassa sem tryggir að hann endist árum saman, jafnvel við hinar erfiðustu aðstæður. Hönnun og framleiðsla Associate 2000 er í hæsta gæðaflokki. Sendiorkan er 15 vött og hægt að lækka hana niður í 1,5 vött þegarsíminn er notaður með rafhlöðunni til að spara orkuna. Spennar fyrir 220 volt eru fáanlegir. MOTOROLA — traustur tengiliður STUR OG SÍMI VERNDUM VINNU - VELJUM ISLENSKT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.