Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 Tudjman, forseti Króatíu. Króatía Ustasi- mynt end- urvakin Zagreb. The Daily Telegraph. HART er nú deilt í Króatíu um þá ákvörðun þings landsins að taka upp sama gjaldmiðil og notaður var í leppríki nasista í seinni heims- styrjöldinni. Gjaldmiðillinn heitir kuna og var tekinn upp í valdatíð Ante Pavelics, leiðtoga Ustasi-hreyfíngarinnar. Sú hreyfíng bar ábyrgð á hryllilegum glæpum gegn samfélagi gyðinga og Serba í Króatíu á stríðsárunum. Kuna, sem leysa mun dínarinn af hólmi, er nefnt eftir dýri sem svipar til minks. Sagnfræðingar segja að skinnið af kuna hafí verið notað í vöruskiptum fyrir þúsund árum. Þeir sem vildu taka kuna upp aftur vísuðu til þessa og sögðu þama kominn fyrsta gjaldm- iðilinn í Króatíu. Ágreiningur á þingi Stjómarandstæðingar segja að með þessu sé verið að færa þeim sem vilja ófrægja Króatíu vopn í hendur. Er þetta í fyrsta sinn sem verulegur ágreiningur verður á þingi um mál er snertir svo mikilvæga þjóðarhags- muni. Franjo Tudjman forseti Króatíu var hlynntur því að innleiða kuna á ný. Segir hann að þetta val endur- spegli sjálfstæði ríkis og þjóðar. Prófessor Zarko Puhovski, sem oft hefur gagnrýnt forsetann, segir að ákvörðunin sýni hve kaldrifjaðir króa- tískir ráðamenn séu orðnir. „Þeir sjá að þeir eru ekki lengur eftirlætisböm vestrænna fjölmiðla og ríkisstjóma og þess vegna vilja þeir sýna sjálf- stæði sitt með því að taka ákvörðun sem þeir vita að verður illa séð.“ Tyrkland Sendiherra Sviss rekinn Atilrarii Ppntor TYRKNESKA stjómin hefur skip- að sendiherra Sviss og tveimur sendimönnum að hverfa úr landi og jafnframt tilkynnt, að sendi- herra Tyrklands í Bera snúi ekki aftur til Sviss. Svisslendingar hafa krafist þess að fá að yfirheyra sendiherrann vegna skotárásar, sem gerð var á Kúrda, sem efndu til mótmæla fyrir framan tyrk- neska sendiráðið. Svissneska stjómin mótmælti í gær ákvörðun Tyrkja um að reka svissneska sendiherrann í Ankara og tvo sendimenn úr landi og sagði hana út í hött og ástæðulausa. Svisslend- ingar hafa krafíst þess, að friðhelgi tyrkneska sendiherrans í Bem yrði afnumin til að unnt væri að yfír- heyra hann um skotárásina á Kúrd- ana en á það hafa tyrknesk stjóm- völd ekki viljað fallast. Sl. föstudag kölluðu þau sendiherrann, Kaya To- peri, heim og segja nú, að hann hafí settur í annað embætti. Árásin á Kúrdana áti sér stað 24. júní sl. en þá efndu þeir til mótmæla við tyrknesk sendiráð og ræðis- mannsskrifstofur víða í Evrópu. Skotið var á þá frá tyrkneska sendi- ráðinu í Bem og féll einn þeirra. Innanhússskýrsla ANC um mannréttindabrot Fang’ar voru pyntaðir og myrtir í útlagabúðum Jóhannesarborg. The Daily Telegraph og Reuter. SÉRSTÖK rannsóknarnefnd á vegum Afríska þjóðarráðsins, ANC, öflugustu samtaka blökkumanna í Suður-Afríku, segir í nýrri skýrslu að framin hafi verið alvarleg mannréttindabrot í útlagabúðum ANC undanfarna áratugi. Sagt er að 22 hafi látið lífið og jafnframt eru nokkrir nafngreindir menn í forystunni sagðir hafa tekið þátt í glæp- unum. Cyril Ramaphosa, aðalritari samtakanna, segir að fram- kvæmdastjórnin muni koma saman um næstu helgi til að ræða skýrsluna. Forseti ANC, Nelson Mandela, kom rannsóknarnefndinni á lagg- irnar 5 janúar sl. en svipaðar ásak- anir hafa m.a. áður verið bomar fram af alþjóðlegu mannréttinda- samtökunum Amnesty Intemation- al og hægrisinnaðri, bandarískri stofnun, International Freedom Fo- undation. Skýrsluhöfundar segja að í mál- um þeirra sem taldir hafi verið brot- legir á einhvem hátt hafí verið beitt pyntingum, ólöglegum fangelsun- um og aftökum án dóms og laga í búðunum sem vom í Angóla og Tanzaníu. Meðal 14 pyntingarað- ferða hafi verið ein sem nefnd var „Beirut". Þá var fórnarlambið látið liggja allsnakið á grúfu og síðan var það húðstrýkt. Sem fyrr segir vom sumir teknir af lífí, stundum höfðu þeir gerst sekir um uppreisn, nauðganir, skemmdarverk eða liðhlaup. I öðr- um tilvikum létust fangar vegna „skorts á mat og sól“ aðrir „köfn- uðu í gámum" eða dóu vegna þess að þeir fengu ekki lyf og mat, sum- ir fyrirfóm sér. Sumir þeirra sem sakaðir era um pyntingar eru nú við störf í öryggisgæslu ANC í aðal- stöðvunum í Jóhannesarborg. Leiðtogar nafngreindir Meðal þeirra sem em nafngreind- ir era Joe Modise, leiðtogi svo- nefndrar hernaðarfylkingar ANC, og Jacob Zuma, aðstoðarfram- kvæmdastjóri en gert er ráð fyrir að hann taki við valdamiklu emb- ætti eftir kosningamar sem fyrir- hugaðar eru í apríl á næsta ári. Zuma, sem var í haldi á Robben- eyju í áratug vegna baráttu sinnar gegn minnihlutastjóm hvítra, er sagður hafa vanrækt að tryggja sómasamlegan aðbúnað fanga. I skýrslunni segir ennfremur að fangabúðir á vegum ANC hafi orð- ið eins konar „mslahaugar" fyrir þá sem með einhveijum hætti lentu í andstöðu við yfirmenn öryggis- mála samtakanna og gefíð er í skyn að sum fómarlambanna hafí verið saklaus af ásökunum um svik og njósnir fyrir andstæðingana. Nefndin hvatti ANC til að biðja alla þá sem urðu saklausir að sæta fangelsi afsökunar, einnig að greiddar yrðu skaðabætur og lækn- ishjálp fyrir þá sem sætu pynting- um. Cyril Ramaphosa sagði nefndina hafa unnið gott starf, í skýrslunni væri gætt stillingar og málsatvik sett í rétt samhengi. ANC gæti hins vegar eingöngu refsað hinum seku með brottrekstri. „Við emm sam- tök, ekki ríkisstjóm". Fiskurinn lifði björg- unina af London. Reuter. BRESKUR lífeyrisþegi, Jessie Rayner að nafni, vann það afrek nýlega að bjarga gulifískinum sínum, honum Grumpy, með því að beita munn-við-munn-aðferð- inni og hressti hann síðan við með fersku vatni og aspiríni. Talsmaður breskra dýravernd- unarsamtaka hefur sitthvað við „björgunina" að athuga. „Hann gat varla hreyft litlu ugg- ana sína og tálknin bærðust eigin- lega ekki,“ sagði frú Rayner, sem er 74 ára gömul. „Ég blés því var- lega upp í munninn á honum og gaf honum dálítið hjartahnoð með fingranum. Hann tók þá að hjarna við og til frekara öryggis setti ég hann í ferskt vatn með súrefnis- töflu og aspiríni. Nú er hann eins og nýsleginn túskildingur." „Fiskurinn lifði þrátt fyrir með- ferðina en ekki vegna hennar," sagði talsmaður breskra dýravernd- unarsamtaka í gær. „Fisktálkn era gerð til að taka súrefni úr vatni, ekki lofti.“ Samsærískenningarnar um morðið á John F. Kennedy Ráðamenn hjá CIA sökuðu kommúnista um rógsherferð Washington. The Daily Telegraph. BANDARÍSKA leyniþjónustan, CIA, hafði miklar áhyggjur af því að rætt var opinberlega um hugsanlegan þátt liðsmanna stofnunarinnar í morðinu á John F. Kennedy Bandaríkjaforseta í nóvember árið 1963. í skjölum sem nú hafa verið gerð opinber kemur fram að þrem árum síðar reyndu ráðainenn CIA að út- skýra þessar sögusagnir með þvi að um „áróður kommúnista" væri að ræða. í skjölunum er að finna ásakanir um að yfírlýsingar af hálfu CIA um morðið hafi oft verið ruglingslegar og mótsagnakenndar en tekið fram að „engar traustar vísbendingar" séu um þátttöku í glæpnum. Fimm dögum eftir morðið ritaði Morðvopnið MYND af byssunni, sem Lee Harvey Oswald notaði, var birt nú í vikunni. Niðurstaða umfangsmestu einkarannsóknar á morðinu á John F. Kennedy er sú, að Oswald hafí verið einn að verki. Peter Deryabin, fyrrverandi njósn- ari sovésku leyniþjónustunnar KGB er strauk úr vistinni og síðar varð ráðgjafí hjá CIA, skýrslu þar sem hann leiddi að því rök að KGB hefði staðið fyrir morðinu. Deryabin lést í fyrra. Hann leggur ekki fram nein sönnunargögn, kenningum sínum til stuðnings, aðeins rök. Á átta blaðsíðum rekur Deryabin hvemig morðið gæti meðal annars hafa gagnast Sovétríkjunum og heldur hann því fram að KGB gæti hafa fengið Lee Harvey Oswald, meintan morðingja Kennedys, til að vinna verkið en Oswald fluttist á sínum tíma til Sovétríkjanna og bjó þar í nokkur ár. Hann fékk að snúa heim aftur, þótt hann væri orðinn sovéskur borgari, og eigin- kona hans fór með honum. Oswald

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.