Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 FRJALSAR Öldungameistara- , mótið um helgina Öldungameistaramót íslands í fijáls- íþróttum fer fram á Laugardalsvelli n.k. föstudag og laugardag, 27. og 28. ágúst. Keppni hefst kl. 18 á föstudag og keppt verður í tveimur greinum (stangarstökki og sleggjukasti) kl. 10.30 á laugardag, en aðalhlutinn hefst kl. 13. GOLF Golfmót hand- knattleiksmanna Golfmót handknattleiksmanna verður haldið á Strandavelli föstudaginn 27. ág- úst. Ræst verður út frá kl. 13. Punkta- keppni, 7/8 forgjöf. Hámark 1 pt. á holu. Þriggja manna sveitakeppni, þar sem tveir bestu telja auk einstaklingskeppni. Nánari upplýsingar hjá Hilmari Bjömssyni (s. 814389) og Karli Jóhannssyni (s. 675554). ÚRSLIT Hjólreiðar íslandsmót í fjallahjólreiðum Haldið sunnudaginn 15. ágúst í Heiðmörk. Meistaraflokkur: (35,1 km) klst. Sigurgeir Hreggviðsson, Mong.1:37.24 Marinó Siguijónsson, Mongoose.1:38.40 Óskar Páll Þorgilsson, Icefox.1:46.41 16 - 18 ára: (23,4 km) Sighvatur Jónsson, Mongoose..1:08.44 G. Amar Ástvaldsson, TREK.....1:11.34 " Kristmundur Guðleifsson, Specil.1:12.27 Kvennaflokkur: (11,7) mín. Sigríður Ólafsdóttir, TREK.....39.40 Svala Sigurðardóttir, TREK.....50.08 Gerður Guðlaugsdóttir, Mong....54.17 Opinn flokkur 19 ára og eldri: (23,4 km) Guðmundur Eyjólfsson, Mong....1:10.23 Guðmundur Vilhjáimsson, TREK..1:10.26 Hans Gústafsson, Mongoose.....1:14,28 13 - 15 ára: (11,7) Helgi Berg Friðþjófsson, Scott.39.29 Gissur Þorvaldsson, Mongoose...39.44 Hjalti Finnsson, Mongoose......39.45 HANDKNATTLEIKUR Fjáröflunin kemur niður á undirbúningi liðsins - segirÓlafurSchramformaðurHSÍ. Unglingalandsliðsmennaflafjárvegnaferðará HM LANDSLIÐ ieikmanna 21 s árs og yngri í handknattleik stendur í ströngu þessa dagana, því auk þess að æfa á fullu fyrir heims- meistaramót U-21 s árs landsliða sem haldið verður í næsta mán- uði f Egyptalandi, þarf liðið sjálft að safna fyrir hluta af því sem kostar að senda það á mótið. Ólafur Schram formaður HSÍ sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta væri neyðarúrræði, því þetta kæmi óneitanlega niður á undirbúningi liðsins fyrir mótið. Að sögn Ólafs kostar um 2,4 milljónir króna að senda liðið á mótið, en um 1,1 milljón vantar enn upp á. „Við eigum ekki fyrir þessu,“ sagði Ólafur í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að fjáröfl- un væri í fullum gangi, fyrirhugað væri að halda ball á föstudagskvöld- ið, í skemmtistaðnum Casablanca, LYFJAMAL þar sem strákamir yrðu með skemmtiatriði. Þá verða þeir í pizzu- útkeyrslu hjá Pizzahúsinu í þrjá daga yfir helgina, og liðið mun síðan leika 2. september gegn úrvalsliði landsl- iðsþjálfaranna Þorbergs Aðalsteins- sonar og Einars Þorvarðarsonar. Ókeypis verður á leikinn en tekið við framlögum við innganginn. Leikur- inn verður á vegum Umferðarráðs, en HSÍ og Umferðarráð/Fararheill hafa tekið upp samstarf og mun landsliðið aðstoða ráðið í baráttunni fyrir bættri umferðarmenningu. Aðspurður sagði Ólafur að þetta kæmi niður á undirbúningi liðsins. „Það dregur úr æfingatíðni og kemur niður á undirbúningnum að þurfa að vera að standa i þessu,“ sagði Ólaf- ur. Hann sagði að enn væri ekki búið að borga ferð liðsins á Norður- landamótið fyrr í þessum mánuði, tekið hefði verið lán upp á 300 þús- und krónur sem ætti eftir að borga. Að sögn Jóhönnu Á. Sigurðardótt- Fjármagn lyfjaeftirlitsnefndar ISÍ á þrotum að sinni Ekkert athugavert fundist við 42 próf GUCCIOPEN opið golfmót á Grafarholtsvelli laugardaginn 28. ágúst Keppt verður í karla- og kvennaflokki með forgjöf (hámark gefið 24). Ræst verður út frá kl. 9.oo. Skráning keppenda fer fram hjá Golfverslun Sigurðar Péturssonar s. 68 22 15 fyrirkl. 16.oo27/8. Fjöldi glæsilegra verðlauna m.a. frá Borgarkringlunni Niko HF Engjateigur 5 s. 680945 LYFJAEFTIRLITSNEFND ISI hefur tekið 42 lyfjapróf á ís- lenskum íþróttamönnum frá síðustu áramótum og hafa þau öll verið neikvæð, þ.e. ekkert athugavert hefur komið í Ijós. Jón Erlendsson, starfsmaður nefndarinnar, segir að það fjár- magn sem nefndin hefði haft til ráðstöfunar væri búið, en reikn- að væri með að aukafjárveiting fengist f rá menntamálaráðu- neytinu á næstu dögum svo hægtyrði aðtakafleiri sýni. Hvert lyfjapróf kostar lyfjaeftir- litsnefndina 18 þúsund krónur, svo framarlega sem það reynist nei- kvætt. Ef rannsaka þarf sýnið enn frekar má tvöfalda þá upphæð og rúmlega það. Lyfjaeftirlitsnefndin hafði 1,2 milljónir krónur til ráðstöf- unar og eru þeir peningar nú á þrot- um eins og áður segir. Jón Erlendsson sagði a.ð lyfjapróf hefðu m.a. verið tekin af nokkrum leikmönnum karlalandsliða í knatt- Ikvöld Knattspyrna - kl. 18.30 1. deild kvenna: Akureyri.......ÍBA - KR AkraneS.....ÍA - Stjaman spymu, handbolta og körfubolta á árinu. Eins var U-21s árs liðið í hand- knattleik prófað nokkru fyrir Norð- urlandamótið. Tólf sýni voru tekin á meistaramóti íslands í frjálsíþrótt- um. Hann sagði að lyfaeftirlit með íþróttamönnum hér á landi væri hlut- fallslega mjög svipað og gerist í ná- grannalöndunum. Stefnt er að því að taka sýni frá íþróttamönnum i sem flestum grein- um, m.a. golfi, en kylfingar hafa aldrei veri lyfjaprófaðir hér á landi. Ef aukið fjármagn fæst verða tekin lyfjasýni úr boltagreinunum og skið- um í kyrrþey á næstu vikum og mánuðum. Jón sagði að allir íþrótta- menn gætu átt von á því að vera kallaðir í lyfjapróf. Hann sagði að gott samstarf væri við menntamálaráðuneytið, löggæslu og tollgæslu um þessa hluti. Að sögn Jóns liggja nú fyrir breytingar á reglugerð um innflutning steralyfja. Sem dæmi um það voru teknir átta þúsund skammtar af sterum, svo- nefndri „Rússa-fímmu“ að sögn Jóns, af Islendingi við komuna til landsins á Keflavíkurflugvelli á dögunum. Tollgæslan lagði hönd á lyfin í fyrstu en varð að láta ferðamanninn hafa þau aftur þar sem hann sagði þau vera til eigin nota og væru ekki á bannlista, en eftir að reglugerðin tæki gildi yrði leyfilegt að leggja hald á slík lyf. ur gjaldkera HSI eru heildarskuldir sambandsins 29 milljónir króna, en það væru mest skuldir sem styrkta- raðilar sæu um að greiða. Hún sagði að skuldirnar hefðu verið um 34 milljónir króna fyrir ári síðan, tekist hafi að lækka þær niður í 26 milljón- ir í vor, en þær hefðu aukist aftur í sumar vegna keppnisferðalaga ungl- inga- og kvennalandsliða. Jóhanna sagði að sumarið væri erfíðasti tíminn, þá kæmu litlar tekjur inn í sjóði sambandsins. Það batnaði alltaf með haustinu, og þá mætti búast við að skuldir lækkuðu aftur. HLAUP Reykjalundarhlaupið Reykjalundarhlaupið 1993 verður haldið laugardaginn 28. ágúst. Hlaupið hefur ver- ið haldið fimm síðústu ár og tekist vel. t fyrra tóku hátt í þúsund hlauparar þátt í þessu trimmi. Hér er um almennigshlaup að ræða sem Reykjalundur gengst fyrir í samvinnu við SÍBS, Búnaðarbankann og íslandsbanka í Mosfellsbæ. Reykjalundarhlaupið er ætlað að höfða til sem flestra, fatlaðra sem ófatlaðra, keppnisfólks sem skemmtiskokkara. Fjórar vegalengdir eru f boði. Sú lengsta er 14 km, síðan er hægt að hlaupa 6 km eða 3 km og einnig 0,5 - 4 km leið sem gæti t.d. hentað fólki í hjólastólum og með önnur hjálpartæki. Hlaupið hefst kl. 11, nema hjá 14 km hlaupurunum sem verða ræstir örlítið fyrir eða kl. 10.40. Ekki þarf að skrá sig í hlaup- ið en þátttakendur mæti tímanlega upp að Reykjalundi í Mosfellsbæ á hlaupadaginn sjálfan. Þátttökugjald er kr. 400 en innifalið í því eru hlaupahanskar eða húfa fyrir yngri þátttakendur, verðlaunapeningur þegar í mark er komið og eftir hlaup er boðið upp á léttar veitingar. Leiðrétting Leiknir vann 11:0 Úrslitin í leik Hvatbera og Leiknis í B-riðli 4. deildar snérust við í blaðinu í gær. Það rétta er að Leiknir vann Hvatbera 11:0, en ekki öfugt. Mörk Leiknis gerðu: Gísli Þor- steinsson 3, Jón Hjálmarsson 3, Sigurður Friðleifsson 2, Pálmi Guðmundsson 2 og Steinn Kári Steinsson 1. Lokastaðan f riðlinum er því þessi: B-RIÐILL LOKASTAÐA Fj. leikja U J T Mörk Stig ÆGIR 12 10 2 0 61: 11 32 NJARÐVÍK 12 8 2 2 49: 15 26 LEIKNIRR. 12 7 2 3 69: 15 23 ÁRMANN 12 7 1 4 35: 21 22 ERNIR 12 4 1 7 32: 37 13 HAFNIR 12 1 0 11 7: 65 3 HVATBERAR 12 1 0 11 10: 99 3 NYUA BILAHÖLLIN FUNAHÖFÐA 1 S:6Y2277 Mazda B 2200 árg. ’92, diesel, vsk-bíll, ek. Ford Aerostar árg. ’91, V6 3000, 5 g., ek. 15 þ. km. Verð kr. 1.130.000, skipti á ód aóeins 5 þ. km. Verð kr. 1.580.000, skipti á ód. Hyundai Pony 1500 GLSI árg. '92, ek. 5 þ. km. Verð 850.000, engin skipti. BMW 520i árg. '90, sjélfsk., sóllúga, rafm.- rúður, ek. 64 þ. km., vínrauðsans. Verö kr. 2.200.000, skipti á ód. MMC Colt EXE árg. '92, ek. 17 þ. km., svartur. Verð kr. 850.000, athf skipti á ód. 1 S: npr ' i’/'f' .T' ^. | Range Rover Vouge árg. '87, grænsans, sjálfsk., ek. 119 þ. km. Gott eintak. Verð kr. 1.800.000, sk. á dýrari jeppa. Vofvo 740 GLT árg. '90, blásans, sjálfsk., ek. 62 þ. km. Verð kr. 1.570.000, skipti á ód. Ford Econollne Club Wagon árg '91, grár, 12 manna, 7.3 diesel, sjálfsk., ek. 40 þ. km Verð kr. 2.500.000, skipti. MANUDAGA TIL FIMMTUDAGA F R A K L . I O TIL 2 I Ford Ranger STX árg. '92, blásans, upp- hækkaöur, 33" dekk, ek. 15 þ. km. Verð kr. 1.850.000, skipti - skuldabróf. VW Golf CL árg. '91, rauöur, vökvastýri, ek. 21 þ. km. Verð kr. 850.000.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.