Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 33 IDÍMDtOIWUIf SVEITIINI » Lou Diamond Phillips (Young Guns, La Bamba) - Scott Glenn (Hunting for Red October, Silence of the Lambs) Toppspennumynd sumarsins Þegar lögreglumaðurinn Powers var ráðinn í sérsveit lögreglunnar, vissi hann ekki að verkefni hans væri að framfylgja lögunum með aðferðum glæpamanna. Hvort er mikilvægara að framfylgja skipun- um eða hlýða eigin samvisku? Mynd, sem byggð er á sannsöguleg- um heimildum um SIS sérsveitina í L.A. lögreglunni. Sýnd í A-sal kl. 5,7,9 og 11 Stranglega bönnuð innan 16 ára Verðlaunagetraun é Bíólínunnl 991000. Hrlngdu í Biólínuna í síma 991000 og taktu þátt í skemmtlleg- um og spennandi spurningaleik. Boðsmiðar á myndina í verðlaun. Verð 39,90 mlnútan. Bfólínan 991000. HELGARFRÍ MEÐ BERNIEII „WEEKEND AT BERNIE’S 11“ Frábær gamanmynd Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. HERRA FÓSTRI Hulk Hogan er Herra Fóstri Hann er stór. Hann er vondur. Hann er í vandræöum. Mynd fyrir alla fjölskylduna. Sýnd kl. 5 og 7. Bönnuð innan 12 ára. FEILSPOR ONE FALSE MOVE ★ ★★★ EMPIRE ★ ★★MBL. ★★★7*DV Einstök sakamálamynd, sem hvarvetna hefur fengið dúndur aðsókn. Sýnd kl. 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára. Samkeppni um viðvörunar- merkingar á tóbaksvörur HEILBRIGÐIS- og tryggingamálaráðuneytið hefur í samvinnu við menntamálaráðuneytið, Landlæknis- embættið, Tóbaksvarnarnefnd og fleiri aðila ákveðið að stofna til samkeppni í grunnskólum landsins 15. september til 15. nóvember í haust, þar sem nemend- um á aldrinum 6 til 12 ára gefst kostur á að taka þátt. í gerð nýrra viðvörunarmerkinga á tóbaksvörur. í frétt frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu segir m.a.: „Þess er skemmst að minnast, hve áhrifarík forvörn var unnin af íslenskri æsku fyrir nokkrum árum þegar átak var gert til að draga úr tób- aksnotkun landsmanna. Það sýndi sig þá, að börnin mynduðu þann þrýstihóp, sem dugði til að margir létu af tóbaksnotkun. Þetta unga fólk býr að þeirri fræðslu sjálft um alla fram- tíð. Góðan árangur má þakka skólum, sem stóðu einhuga að baki nemendum sínum meðan á átakinu stóð ásamt jákvæðri umfjöllun fjölmiðla. Undirbúnings- nefndin reiðir sig á, að skól- ar og fjölmiðlar láti nú ekki sitt eftir liggja fremur en þá og hvetji æsku landsins til þátttöku. Vegleg verð- laun verða veitt fyrir bestu úrlausnir í hverjum aldurs- flokki. Allir fá viðurkenn- ingarskjal, þannig að öllum verði umbunað." Gögn hafa verið send í alla grunnskóla um tilgang keppninnar ásamt upplýs- ingum, sem kennarar geta notað til að fræða börnin um skaðsemi tóbaks og um leið að efla áhuga á þessu brýna viðfangsefni innan skólanna. SÍMI: 19000 ÞRIHYRIMINGURINN Vegna vinsælda færum við þessa frábæru gaman- mynd í A-sal kl. 9 og 11. ★ ★ ★ ★ Pressan ★ ★★ i/2 DV Ellen hefur sagt upp kærustu sinnl (Connie) og er farin að efast um kyn- hneigð sína sem lesbíu. Til að ná aft- ur í Ellen ræður Connie karlhóruna Casella til að tæla Ellen og koma svo illa fram við hana að hún hætti algjör- lega við karlmenn. Frábær gamanmynd. Aðalhlv.: William Baldwin („Silver", ,,Flatliners“), Kelly Lynch („Drugstore Cowboy“) og Sherilyn Fenn („Twin Peaks“). Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 12 ára. Fór beint á toppinn í Bretlandi STÓRMYND SUMARSINS SUPER MARIO BROS. Vegna vinsælda færum við þessa stórmynd í A-sal kl. 5 og 7. Aðalhlutverk: Bob Hoskins, Dennis Hopp- er og John Leguizamo. „Frumleg saga sem gengur upp, góðu karlarnir vinna og allt og allt. Myndin er skemmtileg, fyndin og hentar flestum meðlimum fjölskyldunnar." ★ ★ ★ G.Ó. PRESSAN Sýnd kl. 5,7,9 og 11. MEIRIHÁTTAR GRÍN- OG SPENNUMYND Aðalhlutverk: Nicolas Cage og Samuel L. Jackson „Amos & Andrew er sannkölluð gamanmynd. Henni tekst það sem þvi' miður vill svo oft misfarast í Hollywood, nefnilega að vera skemmtileg." G.B. DV. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. TVEIR ÝKTIR 1 Sýnd ki. 5,7, 9og 11. LOKASÝNING LOFTSKEYTAMAÐURINN ★ ★★GE-DV ★★★Mbl. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Lélegri grásleppu- vertíð að ljúka Stykkishólmi. NÚ ER grásleppu- vertíðinni að ljúka í Stykkishólmi. Þessa dagana eru siðustu bát- arnir að taka upp net sín. Vertíðin hefur al- veg brugðist í ár og er aflinn miklu minni en í fyrra. Menn höfðu von- að að grásleppan myndi láta sjá sig í ár þar sein veiðin hefur verið slök síðustu vertíðir og einnig að gott verð hef- ur fengist fyrir grá- sleppuhrognin. Oftast hefur það verið þannig að veiðisvæðin hafa gefið misjafnt, gott á sumum svæðum en verra á öðrum. En á þess- ari vertíð var alveg sama hvar var lagt að veiðin var léleg. Frá Stykkishólmi voru gerðir út í sumar á milli 20 og 30 smábátar á grá- sleppu og eru á hverjum báti einn til þrír menn. Það eru því margir sem hafa vinnu af þessum veiðum. Netafjöldi bátanna fer eft- ir því hve margir eru á hverjum bát. Hver maður má hafa 100 net í sjó og þar sem þrír menn eru á bát mega þeir hafa um 300 net. Þeir bátar sem hafa náð mestum hrogn- Morgunblaðið/Ami Helgason Trillukarlar á Karli Þór SH 110 eru að þrífa eftir að hafa tekið upp grásleppunetin. um á vertíðinni hafa land- að um 60 tunnum. Flestir grásleppubát- arnir hafa lagt upp hjá kavíarverksmiðjunni Noru hf. sem starfar i Stykkis- hólmi. Verksmiðjan Nora hefur tekið á móti 550 tunnum en í fyrra tók hún á móti 1.100 tunnum svo að aflinn er nærri helm- ingi minni en í fyrra. - Árni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.