Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 37 A LGJ t ST PA Borðar reiðhjól, byssu kúlur og rakvélablöð Vikublaðið The Sun greindi fyrir skemmstu frá Michel Lotito alætu og sagði hann vera draumabarn hverrar móður. Það er sama hvað er sett á diskinn hans, hann borðar það. í gegnum árin hef- ur hann gleypt í sig ýmislegt sem ekki er hægt að flokka undir hefð- bundinn hádegisverð. Michel er þekktur í heimalandi sínu Frakklandi fyrir þetta óvenjulega mataræði og hann er skráður í heims- metabók Guinness sem heimsins mesta alæta. Michel uppgötvaði þennan stór- kostlega hæfíleika sinn þegar hann var 16 ára gamall. Hann var að drekka íste á veitingahúsi í París þegar glasið brotnaði í þúsund mola í munni hans. í stað þess að spýta brotunum út úr sér tuggði hann þau og kyngdi. Eftir það fór hann að hakka í sig aðra illmeltanlega hluti eins og rakvélablöð, leirmuni, byssu- kúlur, pijóna, smápeninga, bjórdósir, glerflöskur og jafnvel reiðhjól. Michel setti á svið átsýningar í ýmsum klúbbum í heimabæ sínum Grenoble. Áhorfendur kunnu vel að meta þessar sýningar en fjölskyldan hafði miklar áhyggjur af heilsufari hans. Hann hefur ferðast víða um heim með sýningu sína og árið 1978 öðlaðist hann heimsfrægð eftir að hafa borðað tveggja sæta Cessna- flugvél. Stutt hlé varð á þessum óvenjulega frama Michels þegar vinur hans stakk hann með hnífi í kviðinn fyrir að renna hýru auga til eiginkonu sinnar. Það tók Michel þó ekki nema mánuð að verða stálsleginn og öðlast matarlyst- ina á ný. Michel segir leyndarmálið á bakvið fæmi sína vera einbeitingu. Hann viðurkennir þó að hann sé oft ör- þreyttur eftir að tyggja þessa tor- meltu hluti. „Þetta er verulega erfíð vinna“ sagði Michel Lotito að lokum. Anna Maria, 13 ára: >.Um hundraðkall."- Framundan Ársel: Opið hús á mánudags- og miðvikudagskvöldum kl. 20-23. Fellahellir: Opið hús á þriðju- dags- og fímmtudagskvöldum kl. 20-23. Tónabær: Opið hús á mánu- dags- og fimmtudagskvöldum kl. 20-23. Þróttheimar: Opið hús á þriðju- dags- og fimmtudagskvöldum kl. 20-23. Siglingaklúbburinn: Opið starf á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum kl. 17-19, fimmtu- dögum kl. 17-22 og laugardögum kl. 13-16. M.a. eru leigðir út ára- bátar, kanóar og seglbátar. Gjald kl. 150 fyrir hvem mann. A leið til Englands Nafn: Pétur Örri Heiðarson. Heima: Álftanesi. Aldur: 13 ára. Skóli: Var í Álftanesskóla en fer í einhvem skóla í Surrey í Englandi. t Sumarstarf: Ég gat enga vinnu fengið, hér er engin unglinga- vinna. Helstu áhugamál: Fara á skíði og hestbak, spila körfu- bolta og fótbolta, hlusta á tónlist og bara allar íþróttir. Hvaða félagsmiðstöð stundar þú? Það er auðvitað engin félagsmið- stöð hérna á Álftanesinu, en ég hef farið nokkrum sinnum í Vitann í Hafnarfírði. Uppáhalds hljómsveit: Race against the machine. Uppáhalds kvlkmynd: Terminator 2. Besta bókin: Mitt er þitt eftir Þorgrím Þráinsson. Hver myndir þú vilja vera ef þú værir ekki þú? Ég myndi vilja vera ríkasti maður í heimi eða söngvarinn í Race against the machine. Hvernig er að vera unglingur í dag? Það er alveg geggj- að, geðveikt, frábært, mjög gott. Hverju myndir þú vilja breyta í þjóófélaginu? Það ættu að vera lægri körfur hérna. Svo mætti vera meiri atvinna fyrir fólk og það á ekki allt að vera svona dýrt héma. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Spila körfu-, bolta, fara á böll og bara vera með vinum mínum. Hvað er það lelðinlegasta sem þú gerir? Að læra og taka til. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég ætla að verða söngvari eða gítarleikari í einhverri rosalegri hljóm- sveit. Vinsælustu hljómsveit allra tíma. Hvað gengur þú með í vösunum? Það er bara allskonar dótarí í vösunum hjá mér. Oftast tíkallar eða einhverjir pening- ar, lyklar, bréfmiðar og stundum kassettur. Viltu segja eitthvað að lokum? Ekki byija að reykja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.