Morgunblaðið - 07.01.1994, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 07.01.1994, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FOSTUDAGUR 7. JANUAR 1993 URSLIT Knattspyrna Ítalía 1. DEILD: Udinese - AC Milan...............0:0 25.000. ■AC Milan hefur náð þriggja stiga forskoti. BIKARKEPPNIN 8-liða úrslit, fyrri leikir: Piacenza - Torínó................2:2 Ferazzoli (52.), Piovani (58.) — Annoni (21.), Venturin (45.). 6.000. Sampdoria - Inter Mílanó.........1:0 Lombardo (33.). 18.000. Spánn Bikarkeppnin, fyrri leikir í 3. umferð: Tenerife - Valencia.............3:1 Badajoz - Real Zaragoza.........1:0 Real Betis - Merida.............3:1 Körfuknattleikur NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Cleveland - Boston........... 96:101 ■Robert Parish skoraði átta af sextán stig- um sínum á síðustu fimm mín. til að tryggja Boston sinn annan sigur í síðustu tiu leikj- um. Dee Brown skoraði 25 stig, en Chris Mills setti 21 stig fyrir heimamenn. New Jersy - Milwaukee........ 91:100 ■Vin Baker skoraði 29 stig og tók 12 frá- köst fyrir Milwaukee, en Kevin Edwards skoraði 19 stig fyrir heimamenn. Washington - Indiana......... 97: 95 ■Tom Gugliottas (17 stig) skoraði sigur- körfu heimamanna þegar 1,1 sek. voru eft- ir og tryggði Washington sinn þriðja sigur í sautján leikjum. Rex Chapman skoraði 25 stig, en Dale Davis skoraði 28 stig og tók 12 fráköst fyrir gestina. Minnesota - Denver...........109: 95 ■Micheal Williams skoraði 22 stig og Christian Laettner 20 stig og tók 12 frá- köst fyrir heimamenn. Mahmoud Abdul- Rauf skoraði 25 stig fyrir Denver. Orlando - Chicago............105: 90 ■ Shaquille O’Neal skoraði 28 stig fyrir Orlando og tók 12 fráköst, en næstur á blaði kom Hardaway með 20 stig. Scottie Pippen skoraði 20 stig fyrir gestina, sem tapaði aðeins sínum þriðja leik af síðustu 18. Dallas - Houston............102:114 ■Hakeem Olajuwon skoraði 37 stig fyrir Houston og tók 14 fráköst. Otis Thorpe skoraði 25 stig. Jamal Mashburn skoraði 37 stig fyrir Dallas. Utah-Phoenix................. 91:107 ■ Dan Majerle skoraði 25 stig og Charles Barkley 23 stig og tók ellefu fráköst fyrir Phoenix, en félagið hefur unnnið fjórtán leiki af sfðustu 17. John Stockton skoraði 17 stig fyrir Jazz og átti 14 stoðsendingar. Leikmenn Jass höfðu unnið fimm leiki I röð fyrir þennan leik og síðustu tíu heimaleik- ina. LA Clippers - Seattle........ 98:106 ■Shawn Kemp skoraði 22 stig og tók 15 fráköst og Ricky Pierce skoraði 18 stig fyrir Seattle. Loy Vaught skoraði 20 stig og tók 14 fráköst fyrir heimamenn og Danny Manning skoraði 18 stig’og tók 15 fráköst fyrir Clippers, sem tapaði sinum þriðja leik í röð og þeim sjöunda af síðustu níu. Sacramento - LA Lakers.......106:98 ■Mitch Richmond skoraði 23 stig fyrir heimamenn og Spud Webb skoraði 21. Sed- ale Threatt skoraði 20 stig fyrir Lakers. Ikvöld Handknattleikur Landsleikur Höllin: fsland-Hvít-Rússl...kl. 20.20 2. deild karla: Húsavík: Völsungur - fBK.....20.30 Körfuknattleikur Úrvalsdeild: Njarðvík: UMFN-KR.........kl. 20 1. deild karla: Egilsstaðir: Höttur - Reynir.19.30 HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA Slæmt að þurfa að leika báða leikina í Reykjavík sagði Spartak Míronovich, þjálfari Hvít-Rússa SPARTAK Mironovich, Þjálfari Hvft-Rússa, segist hræðast ís- lenska liðið. „íslendingar eru með mjög gott lið og sýndu það með sigrinum gegn Króötum að heimavöllurinn er gffurlega sterkur. Það er mjög slæmt að þurfa að leika báða leikina hér í Reykjavík. Við stefnum að þvf að vinna annan leikinn," sagði þjálfarinn fsamtaii við Morgun- blaðið í gærkvöldi. Aðspurður um það hvers vegna þeir hafi samþykkt að leika báða leikina hér á landi sagði hann: „Það var ákveðið strax eftir að dreg- ið var í riðla fyrir ári síðan. Við vorum þá ný þjóð sem hafði ekki mikla peninga og vissum að það væri dýrt að ferðast til Islands. Þess vegna var tilboði íslendinga tekið um að leika báða leikina hér gegn því að þeir greiddu allan kostnað. í dag hefði ég aldrei tekið það í mál að spila báða leikina hér, en það er ekki aftur snúið,“ sagði Mironovich. Hann sagðist þekkja vel til ís- lenska liðsins og þar væri valinn maður í hverri stöðu. Hann nefndi Geir Sveinsson, Júlíus og Valdimar sérstaklega. „Það er erfitt að finna veikan hlekk í íslenska liðinu og það leikur með hjartanu. Leikmenn liðs- ins leggja sig fram fyrir stuðnings- menn sína. Þetta verða því erfiðir leikir fyrir okkur. En það er mikið í húfí og við höfum ekki enn tapað leik og það er ekki ætlunin að gera það hér.“ Mironovich sagðist ekki vera al- veg nógu ánægður með samkomu- Stúlkumar áförum til Ítalíu „Ekkert annað en sigur kemurtil greina," segir Erla Rafnsdóttir, landsliðsþjálfari „ISLENSKA liðið er sterkara og með eðlilegum leik eigum við að vinna ítali. Við gerðum jafntefli hér heima í haust en þá brást markvarslan og vörn- in. Það er mikill hugur í stelp- unum og þær ætla sér sigur,“ sagði Erla Rafnsdóttir, landsl- iðsþjálfari kvenna. Islenska kvennalandsliðið í hand- bolta mætir liði Ítalíu í Evrópu- keppni landsliða, sunnudaginn 9. janúar á Italíu. Möguleikar íslands til að komast áfram í keppninni eru góð- ir. Islenska liðið á eftir tvo leiki í riðlinum gegn Ítalíu Guðrún R. Kristánsdóttir skrifar ítcilski boltinn -1. leikvikci LciðréttiriQ! leikur nr. 5 ó stöðubioðinu ó oð vera: 5« Romci - Genoo (ekki 5. fíomo - Derby) fv 'OIjTÆJV/V ísíðustu viku vor einn ís/endingur með ollo 13 /e/k/no rétto og fékk 3.188.610 kr. ívlnn/ng blenskar getrounir Ath. oð ollir ensku lelklrnlr eru bikorleikir Fj. leikja U J T Mörk Stig RÚSSLAND 6 6 0 0 179: 88 12 ÍSLAND 4 1 1 2 68: 83 3 PORTÚGAL 5 1 1 3 76: 111 3 ITALÍA 5 0 2 3 79: 120 2 Morgunblaðið/Sverrir Spartak Mironovich, Þjálfari Hvít-Rússa, er hæfilega bjartsýnn fyrir leikinn í kvöld. lagið sem hann gerði við Þorberg Aðalsteinsson þjálfara íslenska liðs- ins. „Ég útvegaði honum myndband af heimaleik okkar gegn Króatíu, sem hann reyndar sá sjálfur og hann lofaði að láta mig hafa myndband af heimaleik íslands gegn Króatíu í staðinn. En hann lét mig hins vegar hafa myndband með leik Króata og íslands í Zagreb,“ sagði þjálfarinn og glotti. „Ég fæ myndbandið kannski í lok janúar — betra seint en aldrei." Þjálfarinn sagðist vera með sitt sterkasta lið ef frá er talinn Alex- andr Tutschkin, sem meiddit í leik með þýska liðinu Essen gegn FH í Kaplakrika í nóvember. Eins hafði hann nokkrar áhyggjur af því hvort Konstantin Sharovarov.sem leikur með félagsliði í ísrael, kæmist til Islands í tæka tíð fyrir leikinn í kvöld. STAÐAN Úrslit í leikjum sem Island og Hvít- Rússland hafa leikið: FINNLAND- ÍSLAND.............23:23 HVÍT-RÚSSLAND- KRÓATÍA.......23:23 HVÍT-RÚSSLAND - BÚLGARÍA.....43:14 BÚLGARÍA- HVlT-RÚSSLAND......22:31 HVÍT-RÚSSLAND - FINNLAND.....37: 25 (SLAND- KRÓATÍA..............24:22 ÍSLAND - BÚLGARÍA ...........30: 15 BÚLGARÍA- ÍSLAND ............17:28 FINNLAND - HVÍT-RÚSSLAND.....26: 29 KRÓATÍA- ÍSLAND..............26: 18 Fj. leikja u j T Mörk Stig KRÓATÍA 7 5 1 1 187: 142 11 HVÍT-RÚSSL. 5 4 1 0 163: 110 9 ÍSLAND 5 3 1 1 123: 103 7 FINNLAND 5 0 1 4 115: 150 1 BÚLGARÍA 6 0 0 6 104: 187 0 og Portúgal og þurfa tvö stig til að komast áfram. Island vann Port- úgal ytra með 5 marka mun og gerðu svo jafntefli við Italíu hér heima í leik sem þær áttu að vinna. Vömin og markvarslan í þeim leik var mjög léleg og er ótrúlegt að það endurtaki sig. Ef íslensku stelp- umar mæta með réttu hugarfari í leikinn og leika að eðlilegri getu þá ætti sigurinn að vera vís. Leikmennimir sem fara út em; Hjördís Guðmundsdóttir, Víkingi, Fanney Rúnarsdóttir, Gróttu, Inga Lára Þórisdóttir, Víkingi, Herdís Sigurbergsdóttir, Stjöm- unni, Svava Sigurðardóttir, Víkingi, Una Steinsdóttir, Stjömunni, Halla M. Helga- dóttir, Vikingi, Auður Hermannsdóttir, Vi- mm, Andrea Atladóttir, ÍBV, Heiða Erlings- dóttir, Víkingi, Guðný Gunnsteinsdóttir, Stjörnunni og Hulda Bjarnadóttir, Vlkingi. EM KVENNA PORTÚGAL- (SLAND..........11:16 (TALÍA- RÚSSLAND..........16:34 RÚSSLAND- (TALÍA..........31: 10 RÚSSLAND- I'SLAND.........26: 16 ÍSLAND- RÚSSLAND..........14:24 ÍTALÍA- PORTÚGAL..........14:14 ISLAND - ITALÍA...........22:22 PORTÚGAL- ÍTALÍA..........19: 17 PORTÚGAL- RÚSSLAND........15:26 RÚSSLAND- PORTÚGAL........38:17 ST0RMAL Leikurinn gegn Hvít-Rússum á fjölum Laugardalshallar- innar í kvöld er einn sá mikil- vægasti í áraraðir, _____________ því í honum fæst úr því skorið hvort möguleiki á sæti í úrslitakeppni Evr- ópumótsins í Portúg- al í vor er enn fyrir hendi. ísiendingar verða reyndar helst að sigra í báðum leikjunum, gegn þessum hæfileikamiklu gestum, til að eiga möguleika á sæti í úrslita- keppninni — sigur og jafntefli gæti dugað, ef úrslit leikjanna sem eftir eru verða hagstæð; það er því full ástæða til að hvetja alla sem vettlingi geta valdið að styðija við bakið á strákunum. Margsannað er hve stuðningur áhorfenda er mikil- vægur; hve „góður" heimavöllur skiptir miklu máli og er mikils virði. Eins og Þorbergur Aðal- steinsson, landsliðsþjálfari, hef- ur bent á er úrslitakeppnin í Portúgal gífurlega mikilvæg í undirbúningi landsliðsins fyrir HM 1995, sem vonandi (!) fer fram hérlendis. Króatar eru sig- urstranglegastir í riðlinum, en Hvít-Rússar eiga vissulega enn von um sigur; tveir sigrar hér, eða sigur og jafntefli og síðan sigur gegn Króatíu í Zagreb í næstu viku færir þeim efsta sætið, og Króatía yrði þá í öðru sæti. Þess vegna er stórmál að Gífurfega mikilvægt fyrir landslidið ad komast til Portúgals ná hagstæðum úrslitum í leikj- um helgarinnar. Aukaleikirnir gætu orðið gegn sterkum and- stæðingum, en ekki þarf að hafa áhyggjur af því strax; fyrst er að komast yfir þá hindrun sem Hvít-Rússar eru. Segja má að enn meira sé í húfi fyrir Hvít-Rússa en íslend- inga, því komist þeir ekki til Portúgals eiga þeir hvorki möguleika á taka þátt í HM á íslandi 1995 né Ólympíuleikun- um í Atlanta 1996. Þeir leggja því allt í sölurnar til að sigra í Laugardalshöll. Það yrði góð byrjun á 50. afmælisári lýðveldisins að lands- liðið í handknattleik — sem oft hefur verið nefnd þjóðaríþrótt okkar — héldi lífi í voninni um að ná sæti í úrslitakeppni fyrsta Evrópumóts landsliða. Áfram ísiand! Skapti Hallgrímsson Svisslendingar boða svar í næstu viku LJeimi Steinssyni, útvarps- ■ ■ stjóra, barst í gær svar sviss- neska fyrirtækisins CWL við boði hans um samningaviðræður vegna sjónvarpsútsendinga frá heimsmeistarakeppninni í hand- knattleik 1995. Svarið var á þá leið, að þar sem sumir forráða- manna fyrirtækisins væru enn í fríi, væri ekki hægt að ræða út- sendingarmálin fyrr en í næstu viku, en þess jafnframt getið að þá muni berast svar við boði RUV um samningaviðræður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.