Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994 BJORGUNARAFREKIÐ I VOÐLAVIK Kristbjöm Guðlaugsson einn skipbrotsmannanna af Goðanum Lífsmatið gjörbreytt eftir þessa reynslu Á leiðinni heim Morgunblaðið/Ámi Sæberg MENNIRNIR sex sem björgnðust af Goðanum komust til Reykjavíkur í gærkvöldi. Myndin var tekin þegar þeir biðu eftir áætlunarflugvélinni í flugstöðinni á Egilsstöðum, þeir eru f.v.: Níels Hansen vél- stjóri, Omar Sigtryggsson 2. vélstjóri, Sigmar Ægir Björgvinsson háseti, Marijan Marino Krajacic mat- sveinn og Kristbjörn Guðlaugsson háseti. Þá sést í Kristján Sveinsson skipstjóra á bak við Omar. FYRSTA holskeflan reið yfir Goð- ann um sexleytið. Eg var þá sof- andi niðri í koju en hrökk upp við höggið sem kom á skipið og ljósin duttu út. Eg reyndi að fálma eftir einhveijum fötum í þessu kol- svarta myrkri til að troða mér í en það sást ekkert eða fannst og ég fór út á nærbrókinni og upp í brú. Goðinn hafði lagst á bakborða við fyrsta brotið.“ Þannig lýsir Kristbjörn Guðlaugsson atvikum á björgunarskipinu Goðanum sem strandaði í Vöðlavík á fyrradag. Kristbjörn var háseti á Goðanum í þessari einu ferð en gegnir ann- ars stöðu rannsóknarlögreglu- manns hjá Lögreglunni í Reykja- vík. „Eg var hálfnakinn en vildi bara komast upp til að bíða eftir fyrirmælum skipstjórans um hvað ætti að gera og ég hugsaði að þar myndi maður að minnsta kosti finnast ef illa færi. Þegar ég kom upp var áhöfnin þar; skipstjóri, stýrimaður, matsveinn og háseti, allir nema vélsfjórarnir sem voru niðri í vél að reyna að koma ljósa- vélinni í gang.“ Kristbjöm segir að við fyrsta brot- ið hafi flestar rúðumar í brúnni og hurð bakborðsmegin ásamt karmi og öðru hrokkið út. „Hallinn var gríðar- legur í fyrstu," segir Kristbjöm. „Stuttu síðar skall annað brotið á skipinu. Ég komst ekki fram í stýris- húsið en gægðist inn og sá að stýri- maðurinn hélt sér í stýrið og reyndi að stýra uppí. Síðan kom fylla og þá missti hann tökin og féll niður í átt að tómri dyragættinni. Matsveinninn og hinn hásetinn reyndu að teygja sig eftir honum. Hann sagði „ég er fastur" og síðan ekki meir. Aðalvélin mallaði áfram Þegar allt var afstaðið leit Kristján skipstjóri á útganginn á mér og sagði að blautbúningamir væra niðri í vist- arveranum. Ég kom auga á peysuna hans á borði þama og spurði hvort ég mætti fara í hana. „Gjörðu svo vel,“ sagði hann rólega. Við sóttum búningana niður, vélstjóramir klæddu sig í þá niðri og þeir vora síðan handlangaðir upp til hinna. Ég stóð þama á nærbuxum og hálf- blautri peysu og tróð mér í gallann. Sjálfur var ég orðinn votur vegna gusanna sem komu inn um mölvaðar rúðumar í brúnni og fór því blautur í gallann eins og við gerðum allir, en hlýnaði fljótlega eftir að ég komst í hann. Síðan rétti skipið sig við að mestu leyti Annar vélstjóri var þá þegar orðinn máttminni en honum er eðlilegt vegna skorts á insúlíni og við hjálpuðum honum fyrstum upp í brú en vélstjóranum að því loknu. Matsveinninn tók á móti þeim en ég rak lestina. Við héldum til í klefa skipstjórans bakvið brúna næstu §óra tíma við birtu af vasaljósum. Hann skaut upp neyðarrakettu ef ske kynnj að skip væru á siglingu fyrir utan. Öll stjóm- tæki, neyðartalstöðvar og annað var óvirkt þannig að ekki var hægt að senda út neyðarkall eða koma nokkr- um boðum til lands. Það var allt dautt nema aðalvélin sem mallaði í góða stund eftir fyrsta brotið, eða þar til sjór eða annað þaggaði niður í henni. Um sjöleytið — að ég held, því ég fylgdist ekki með tímanum og gerði mér ekki fulla grein fyrir hvemig honum leið — skaut skip- stjórinn upp annarri rakettu. Rúmum tveimur tímum síðar fór sjórinn að skella gegnum brotinn glugga þar inni. Nokkra seinna sáum við ljósa- gang í landi og settum neyðarblys á loft. Um sama leyti klifraðum við upp á þakið á brúnni. Þá var allt komið á kaf í brúnni og stöðugt gaf á skipið sem hafði snúist og rak með stefnið á undan í átt til Bergvíkur. Hefði skipið rekið öfugt hefði það ekki farið jafn langt og það gerði og við hefðum verið fjær landi og brotið miklu meira á okkur. Þegar við komum upp settumst við og héld- um okkur óbundnir í brúarþakið. Kristján stóð upp og færði sig að skorsteininum og í sama bili kom fylla." Líflínur áfastar göllunum í blautgöllunum sem skipveijamir á Goðanum klæddust era línur sem ganga jrfir bijóstkassann, undir handveginn og niður að aftan, og era ætlaðar til þess að festa í krók úr björgunarþyrlu. Þessar línur telur Kristbjöm að hafi orðið þeim til lífs. „Þegar fyllan skall á brúnni læsti skipstjórinn sig við járn sem gengur út úr reykháfinum niður í brúarþak- ið og myndar þríhyming. Þegar Kristján hafði fest sig í þetta rekk- verk færðum við okkur allir að og festum okkur á sama hátt,“ segir Kristbjöm. „Við snerum að reykháf- inum og stóðum umhverfis hann hálfa vegu, en reyndum þó að hafa auga með sjónum til að fylgjast með þegar fyllurnar kæmu. Sumar vora það miklar að maður missti fótanna og hékk á línunni og skall síðan á reykháfinn. Ef að línurnar hefðu ekki verið til staðar hefðum við ör- ugglega farið í sjóinn. Brotin komu aftan á mig en vélstjórinn stóð bak- borðsmegin og gat ekki snúið sér undan brotunum og fékk því sjóinn stöðugt framan í sig. Saltið brenndi okkur og olian seinna meir, þegar gulir flekkir af henni fóra að sjást á sjónum.“ Skipveijamir héldu í fyrstu að olían kæmi úr Goðanum þrátt fyrir að þeim fyndist það ósennilegt, en í raun barst hún frá ísfirska togar- anum Hálfdáni frá Búð sem dældi út olíu á þessum tíma í von um að lægja öldurnar. Kristbjöm kveðst halda að olían hafi borið einhvem árangur. „Við sáum margoft þessu stóra brot úti á víkinni en þau virt- ust ekki ná til okkar, hvort sem þau stöðvuðust vegna olíunnar eða vegna þess að eitthvað annað stýrði þeim fram hjá okkur. Þessir stóru skaflar virtust bara deyja út. Stundum fóram við þó í kaf, en þegar færi gafst reyndum við að stappa í hvem annan stálinu, hreyfa okkur eftir megni og halda þannig á okkur hita.“ Þyrlurnar koma Kristbjörn og félagar á Goðanum horfðu á tilraunir björgunarsveitar- manna til að skjóta til þeirra línu frá fjöranni, en um 50 metra vantaði á að hún næði til þeirra. „Þeir áttu aðra línu sem þeir skutu ekki og sögðu við okkur seinna að ef öll önn- ur úrræði hefðu þrotið hafi þeir ætl- að að freista þess að komast út í Bergvíkina og skjóta línunni þaðan. Það var síðasta von þeirra,“ segir Kristbjörn. Brimið útilokaði að skip- veijar syntu eða reyndu að láta haf- ið bera sig til lands, auk þess sem i sjónum veltust trossur og ýmislegt brak sem þeir töldu líklegt að yrði þeim líka að fjörtjóni. „Einhver spurði þá Kristján hvort hann héldi að það yrði hægt að nota þyrlu og hann svaraði játandi. Hann mat ástandið þannig að þær hlytu að koma. Um þijúleytið sáum við að mennimir á ströndinni fóra að baða út öllum öngum og gefa okkur ein- hvers konar merki. I fyrstu héldum við að þeir væru að segja okkur að beija okkur og viðhalda líkamshita, en rétt áður en þyrlumar komu tók einn þeirra upp á því að snúa sér í hringi í fjörunni með hendumar teygðar frá sér. Þá skildum við að þyrlur væra á leiðinni." Kristbjöm kveðst aldrei hafa fyllst ótta þá tíma sem áhöfnin beið út í Goðanum upp á von og óvon, en það hafi samt sem áður verið ólýsanlegur léttir að sjá þyrlurnar birtast fyrir víkurmynnið. „Þeir unnu hratt og af stórkostlegu öryggi, slökuðu sín- um mönnum niður með hraði og ákváðu í hvaða röð við værum hífðir um borð. Þeir unnu frábært verk sem maður fær aldrei fullþakkað, með öflugum verkfæram sem við verðum að eignast," segir Kristbjöm. „Ég veit nú hversu stutt er á milli lífs og dauða og eftir þessa reynslu breytist lífsmat manns algjörlega. Allt það hjóm sem maður er að velta sér upp úr daglega er ekkert til að hafa áhyggjur af lengur. Ég lít lífið allt öðram augum í dag en fyrir tveimur dögum síðan.“ Morgunblaðið/Kristinn Heimkoman ÓMARI Sigtryggssyni og Mary- an Marino Krajacic fagnað með blómum við komuna til Reykja- víkur í gærkvöldi. Bjartsýnir á björgun Bergvíkur VARÐSKIPIÐ Týr er væntan- legt til Vöðlavíkur í dag. Skip- herrann mun ákveða í samráði við fulltrúa tryggingafélags Bergvíkur á staðnum hvort reynt verður að draga skipið á flot á flóðinu í dag eða á morg- un. Jóni Trausta Guðjónssyni, björgunarsveitarmanni frá Eskifirði, sem var í fjörunni í gær að undirbúa björgun skips- ins, leist vel á að hægt yrði að ná því út. Bergvíkin hefur lítið haggast í óveðrinu að undanförnu. I gær lægði fyrir austan og var komið ágætis veður í Vöðlavík að sögn Jóns Trausta en enn talsvert brim. Björgunarsveitarmennimir komu jarðýtunni í gang sem þeir lentu í vandræðum með í björgunarað- gerðunum í fyrradag og ætluðu þeir að koma taug í Bergvíkina á fjörunni í gærkvöldi. Stærsti straumur er í dag. í gær sást aðeins í brú Goðans upp úr briminu og brak innan úr skipinu rak á sandinn. Talið er að lítil verðmæti séu eftir í skipinu og í gær voru ekki taldar líkur á því að reynt yrði að bjarga því. Sjóprófin í Reykjavík Útgerð Goðans mun fara fram á það við Héraðsdóm Reykjavíkur að sjópróf vegna strands björg- unarskipsins Goðans í Vöðlavík í fyrradag fari þar fram. Héraðs- dómari Austurlands féllst á þetta í gær til þess að skipverjarnir gætu fyrr komist heim til sín og komu þeir til Reykjavíkur í gær- kvöldi. Í gær gáfu skipveijarnir sex sem björguðust af Goðanum skýrslu hjá lögreglumönnum á Eskifirði og Neskaupstað. Skýrslur vegna rannsóknar málsins verða einnig teknar af björgunarmönnum í landi og fleirum sem ástæða þykir til. Ekki liggur fyrir hvenær sjóprófin verða haldin. VIÐ KOMUM TIL MOTS VIÐ ÓSKIR ÞÍNAR...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.