Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 38
HVlTA HÚSIO / SÍA 38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1994 EGLA bréfabtndi KJÖLFESTA ÍGÓÐU SKIPULAGI Við sendum þér bækling óskir þú þess með myndum af fjölbreyttu úrvali okkar af þessum vinsælu bréfabindum okkar. Síðan getur þú pantað það sem hentar fyrirtæki þínu og færð sendinguna. Hafðu samband við sölumenn okkar í síma 68 84 76 eða 68 84 59. fólk i fréttum AFMÆLI Valfríður Guðmunds- dóttir 100 ára Valfríður Guðmundsdóttir frá Heimaskaga á Akranesi varð 100 ára laugardaginn 8. janúar. Hún býr á Droplaugarstöðum við góða heilsu og safnaðist fjölskyldan þar saman til að halda upp á dag- inn með henni. Var meðfylgjandi mynd tekin við það tilefni. Þó svo að Valfríður hafi náð hundrað ára aldri eru afkomendur hennar einungis sjö. Valfríður var gift Jóni Guðmundssyni útgerðar- manni frá Eyri í Ingólfsfirði, en hann lést árið 1983. Dóttir þeirra er Guðrún Möller og á hún tvö börn, Valfríði sem á þijár dætur og Jón sem á tvo syni. Valfríður starfaði mikið á árum áður með Sjálfstæðiskvennafélag- inu Hvöt svo og kvennadeild Slysa- varnafélags íslands. Afmælisbarnið Valfríður Guðmundsdóttir ásamt dóttur sinni Guð-1 rúnu Möller (önnur f.h.). Við hlið hennar er Jón S. Möller sem bú- settur er í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni, en kom í sólarhringsheim- sókn til að halda upp á afmæii ömmu sinnar. F.v.: Jón Karl Olafsson sem kvæntur er Valfríði Möller. Börn þeirra eru, f.v.: Guðrún, Edda Björg og Anna Sigrún. HAMINGJA Lothar Matthaeus í það heilaga Knattspyrnusnillingurinn Lothar Matthaeus, sem spilar með Bayem Munchen og er fyrirliði þýska landsliðsins, gekk í það heilaga laugardaginn 8. janúar í Sviss. Sú heittelskaða heitir Lolita Mor- ena og er fyrrverandi Ungfrú Sviss. Margir fylgdust með brúðkaupinu. Hér kemur brúðurin, Lolita Morena, til kirkjunnar. Lothar Matthaeus á leið inn i bílinn eftir athöfnina. I TIZKAN LAUGAVEGI 71 2. HÆÐ SÍMI 10770

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.