Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 51
■ TERRY Butcher, fyrrum fyrir- liði enska landsliðsins í knatt- spymu, hefur kært Coventry og farið fram á meira en 400.000 pund (um 43,5 millj. kr.) í skaðabætur fyrir að hafa verið látinn fara sem stjóri áður en samningurinn var úti. ■ COVENTRY viðurkennir að ekki hafi verið rétt staðið að málum, en segir að Butcher hafi ekki tapað neinu og eigi ekki samkvæmt samn- ingnum rétt á meiri greiðslum. ■ BUTCHER gerði samning til þriggja og hálfs árs, sem gerði ráð fyrir 200.000 punda árslaunum, en hann var látinn fara fyrir tveimur árum eftir 14 mánuði í starfi. Butc- her gekk til liðs við Sunderland og lék með og stjórnaði liðinu, en var rekinn í nóvember sem leið. ■ TORINO er undir smásjá Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, vegna meints fjármála- svindls í tengslum við leikmanna- skipti og ásakanna um að hafa reynt að „kaupa“ dómara fyrir Evrópuleik gegn AEK Aþenu fyrir tveimur árum. Reynist grunur á rökum reist- ur getur UEFA vikið félaginu úr EM bikarhafa. I UEFA hefur hugleitt að hleypa Júgóslavíu aftur inní Evrópukeppni landsliða, en Alþjóða Knattspymu- sambandið, FIFA, segir það ekki tímabært fyrr en samskiptabanni Sameinuðu þjóðanna verði aflétt. Knattspymusamband Júgóslavíu sótti um aðild og verður málið tekið fyrir á föstudag, en dráttur í EM verður 22. janúar. H WANG Junxia, hlaupadrottn- ing frá Kína, hefur verið útnefnd til að taka við Jesse Owens verð- laununum fyrir besta íþróttaárang- urinn á síðasta ári. I WANG Junxia sigraði í 10.000 m hlaupi á HM í Stuttgart og setti heimsmet í greininni skömmu síðar. Hún tvíbætti heimsmetið í 3.000 m hlaupi og náði besta tíma kvenna í maraþonhlaupi á árinu. H HELSTU keppinautar kín- versku stúlkunnar vom grinda- hlauparinn Gail Devers frá Banda- ríkjunum, millivegahlauparinn Morceli frá Alsír, hjólreiðamaður- inn Miguel Indurain frá Spáni, Shann Miller (fimleikar) frá Bandaríkjunum og Franziska van Almsick (sund) frá Þýskalandi. I LIU Dong, sem sigraði í 1.500 m hlaupi á HM í Tokyo er hætt keppni, eftir að hafa lent í útistöðum við þjálfara sinn. H KÍNVERSKA stúlkan, sem er 20 ára, var sögð hafa brotið reglur með því að verða ástfangin og neita að slíta sambandinu. Þjálfarinn Ma Junren sagði að ástarsamband hennar kæmi niður á liðsheildinni og framtíð stúlkunnar sem hlaup- ara. Hann hótaði henni öllu illu, en stúlkan tók saman föggur sínar og flutti heim til móður sinnar. Stjóm- endur fijálsíþrótta í Kína standa með þjálfaranum í þessu máli. B ABEDI Pele Ayew var kjörinn knattspyrnumaður ársins 1993 í Afríku þriðja árið í röð. Hann er 32 ára fyrirliði Ghana og leikur með Lyon í Frakklandi. B PELE Ayew fékk 119 atkvæði, en Anthony Yeboah hjá Frankfurt í Þýskalandi kom næstur með 117 atkvæði. Franska íþróttablaðið France Football stendur að kjörinu, en íþróttafréttamenn í Afríku kjósa, og er þetta í fyrsta sinn, sem leik- maður fær gullboltann þrjú ár í röð. KNATTSPYRNA Firma- og félaga- HópakeppniFH Firma- og félagahópakeppni FH í knatt- spyrnu verður í íþróttahúsinu við Kapla- krika n.k. laugardag, 15. janúar. Skráning stendur yfir (s. 53834 eða 652534). LeiArétting Unnur Pálmarsdóttir, íslandsmeistari í þol- fimi kvenna, var ranglega feðruð í umfjöll- un blaðsins um Islandsmótið í þolfimi í gær. Hún var sögð Pálsdóttir, eins og hún var skráð í leikskrá mótsins. MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994 51^ KORFUKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ UMFG vann eftir framlengingu GRINDVÍKINGAR gefa hvergi eftir í baráttunni um sæti í úr- slitakeppni úrvalsdeildarinnar í körfuknattieik, en þeir lögðu Njarðvíkinga að velli á heima- veili, 91:89, eftir framlengdan leik í gærkvöldi. Stemmningm er engu lík þegar þessi tvö nágrannalið mætast og áhorfendur sem fjölmenntu, bæði heimamenn og Frímann „sk°Puðu Ólafsson goða umgiorð um skrifar leikinn sem var æsi- spennandi á loka- mínútum venjulegs leiktíma og framlengingar. Þeir hreinlega sprungu þegar Wayne Casey skor- aði sigurkörfuna og aðeins tvær sekúndur eftir af leiktímanum. „Ég er alveg í skýjunum yfir þessum sigri sem var sigur liðs- heildar,“ sagði Guðmundur Braga- son, þjálfari Grindvíkinga og leik- maður. „Við bökkuðum hvetja aðra upp og ungu strákarnir stóðu sig frábærlega. Baráttan var mikil og það sýnir kannski karakterinn í lið- inu að þetta er þriðja framlengingin sem við lendum í í vetur og við höfum unnið þær allar. Við ætlum ekkert að géfa eftir og stefnum ótrauðir að því að tryggja okkur sæti í úrslitakeppninni." Njarðvíkingar voru yfir mestall- an seinni hálfleikinn og virtust vera með sigurinn í sínum höndum en gáfu eftir undir lokin og töpuðu Morgunblaðið/Bjami Marel GuAlaugsson lék vel með Grindvíkingnm í gær. Létt hjá Haukum UMFG-UMFIM 91:89 Grindavík, úrvalsdeildin í körfuknattleik, þriðjudaginn 11. janúar 1994. Gangur leiksins: 3:0, 5:4, 5:12, 13:14, 25:23, 32:32, 39:39, 39:46, 41:52, 45:56, 56:59, 56:64, 66:69, 71:71, 74:74, 77:78, 78:78, 81:83, 83:85, 89:85, 89:89, 91:89. Stig UMFG: Wayne Casey 20, Marel Guð- laugsson 18, Nökkvi Már Jónsson 13, Hjört- ur Harðarson 12, Guðmundur Bragason 11, Pétur Guðmundsson 9, Unndór Sigurðsson 6, Bergur Eðvarðsson 2. Stig UMFN: Rondey Robinson 23, Teitur Örlygsson 19, Valur Ingimundarson 18, Frið- rik Ragnarsson 9, Rúnar Ámason 8, Jóhann- es Kristbjömsson 7, ísak Tómasson 5. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Helgi Bragason sluppu vel frá leiknum. Áhorfendur: Um 500. UMFT - Haukar 59:79 Sauðárkrókur: Gangur leiksins: 0:2, 7:8, 16:14, 16:24, 33:40, 36:46, 39:57, 42:61, 49:68, 59:79 Stig UMFT: Robert Buntic 16, Ingvar Orm- arsson 16, Páll Kolbeinsson 11, Ómar Sigm- arsson 5, Ingi Þór Rúnarsson 3, Garðar Halldórsson 3, Lárus Páisson 3, Hinrik Gunnarsson 2. Stig Hauka: Pétur Ingvarsson 20, John Rhodes 18, Jón Öm Guðmundsson 12, Jón Amar Ingvarsson 8, Tryggvi Jónsson 8, Rúnar Guðjónsson 7, Sigfús Gizurarson 6. Dómarar: Bergur Steingrímsson og Krist- ján Möller. Haukar áttu ekki í teljandi erfið- leikum á Sauðárkróki, unnu 59:79 í frekar daufum leik þar sem heimamenn virtust þreyttir og áhugalitlir í síðari hálfleik er Hauk- ar gerðu út um leikinn. Páll og Ingvar léku ágætlega í fyrri hálfleik og hjá Haukum voru Pétur og Rhodes bestir. Sóknarleik- urinn var ekki góður en vamarleik- urinn þokkalegur hjá báðum liðum. Nokkur barátta var á upphafsmín- útunum og mikill hraði en í síðari hálfleik voru Haukar mun ákveðn- ari og mega Tindastólsmenn teljast heppnir að fyölga á í úrvalsdeildinni. FRJALSIÞROTTIR Martha varð tólfta - er komin í sjötta sæti í stigakeppninni Martha Ernstsdóttir, hlaupakona úr ÍR, hafnaði í 12. sæti á Alþjóð- legu stigamóti í víðavangshlaupum sem fram fór í Belfast á írlandi á laugardaginn. Hún hljóp 4,8 km á 16,47 mínútum, en sigurvegarinn Paula Radcliffe frá Bretlandi hljóp á 15,40 mínútum. Martha er nú í sjötta sæti í stigakeppninni, hefur 28 stig. Catherina McKiernan frá írlandi er efst með 69 stig, Albetina Dias, Portúgal, kem- ur næst með 47 stig og Farida Fates, Frakklandi, í þriðja sæti með 38 stig. SKIÐI Loks sigraði Aamodt Norski skíðakappinn, Kjetil- Andre Aamodt, vann fyrsta heimsbikarmótið á þessu keppnis- tímabili í Hinterstoder í Austurríki í gær. Hann náði besta brautartím- anum í báðum umferðum í stórsvigi og tryggði með því enn frekar stöðu sína í efsta sæti stigakeppninnar. Aamodt, sem er heimsmeistari í svigi og stórsvigi og ólympíumeist- ari í risasvigi, hefur beðið eftir sigri í allan vetur — oft verið í öðru og þriðja sæti, en í gær gat hann loks fagnað. „Það var kominn tími til að vinna mót,“ sagði Aamodt. „Ég var ekki ánægður með útkomuna í Kranjska Gora um síðustu helgi, en nú er ég í góðum málum. Ég tel að þessi sigur sýni að það hafi verið rétt ákvörðun að æfa heima í Noregi um áramótin í stað þess að keppa í Bormio." Christian Mayer frá Austurríki, sem sigraði í stórsviginu í Val d’Is- ere í desember, v(arð annar tæpri sekúndu á eftir Aamodt. Mayer hélt upp á 22ja ára afmælið sitt á mánudaginnin. Landi hans, Richard Kröll, varð þriðji. ítalska goðið, Alberto Tomba, náði sér ekki á strik frekar en í mótunum um síðustu helgi. Hann varð að sætta sig við 21. sætið eft- ir fyrri umferð og mætti ekki upp í start í síðari umferð — sagðist meiddur. Marc Girardelli náði ekki að vera á meðal 30 fyrstu eftir fyrri umferð og fékk því ekki að fara síðari umferðina. öðrum leik sínum í vetur. „Þetta -—1 var lélegt hjá okkur, við misstum marga bolta, hittum illa og tókum léleg skot. Þá náðum við ekki að leika okkar leik og hraðinn datt niður. Ætli við höfum ekki verið komnir með hugann að bikarleikn- um við Grindvíkinga á laugardaginn kemur sem við ætlum okkur ekki að tapa,“ sagði ísak Tómasson fyr- irliði Njarðvíkinga eftir leikinn. Liðsheildin var góð hjá Grindvík- ingum og þó Guðmundur Bragason fengi sína 5. villu í lok seinni hálf- leiks létu þeir það ekki á sig fá,- — Wayne Cayse var hreinlega tekinn úr umferð allan leikinn og hafði hitt illa framan af en sýndi styrk sinn í lokin þegar hann skoraði sig- urkörfuna úr erfiðri aðstöðu. Marel átti einnig mjög góðan leik. Ronday var góður hjá Njarðvík- ingum og er gríðarlega sterkur undir körfunum. Teitur átti góða spretti í leiknum og Valur sem spil- aði lítið í fyrri hálfleik átti góða spretti í þeim seinni. ÚRSLIT Körfuknattleikur NBA-deildin Orlando — Houston..........115:100 ■ Shaquille O’Neal hjá Oriando hafði betur f risaslagnum gegn Hakeem Olajuwon hjá Houston. O’Neal gerði 28 stig, en Olajuwon 26 stig og tók 11 fráköst. Anfernee Hardaway gerðu 28 stig fyrir Oriando sem náði að gera 29 stig gegn 18 í fjórða og síðasta leikhluta. Houston náði ekki að skora utan af velli f sjö mfnútur í síðasta ieikhluta — vamarleikur Oriando var þá mjög góður. Þess má geta að Vemon Max- well lék ekki með Houston annan leikinn í röð. Pliiladelphia — Boston......99:94 ■Jeff Homacek setti persónulegt met í vetur með því að gera 31 stig fyrir Philad- eiphiu gegn Boston og Clarence Weather- spoon náði tvöfaldri tvennu — gerði 20 stig og tók 12 fráköst. Kevin Gamble var at- kvæðamestur í liði Boston með 26 stig. Boston hefur tapað 11 af sfðustu 13 leikjum sfnum. Íshokkí NHL-deildin Leikir aðfararnótt þriðjudags: Boston - Toronto....................0:3 Montreal - Winnipeg.................4:2 NY Rangers - Tampa Bay..............2:5 Ottawa - NY Islanders...............3:3 ■Eftir framlengingu. Anaheim - Detroit...................4:6 SkíAi Hinterstoder, Austurríki: Stórsvig karla: Kjetil Andre Aamodt (Noregi).........2:49.63 (1:22.33/1:27.30) Christian Mayer (Austurríki)......2:50.47 (1:23.04/1:27.43) Riehard Kröll (Austurríki)........2:50.86 (1:23.32/1:27.54) Michael von Grunigen (Sviss)......2:50.95 (1:23.20/1:27.75) Achim Vogt (Lichtenstein).........2:51.03 (1:23.61/1:27.42) Mitja Kunc (Slóveníu).............2:51.20 (1:23.74/1:27.46) UrsKaelin (Sviss).................2:51.40 (1:23.99/1:27.41) Tobias Bamerssoi (Þýskal.)........2:51.61 (1:23.85/1:27.76) Franck Piccard (Frakkl.)..........2:51.86 (1:23.64/1:28.22) Fredrik Nyberg (Svíþjóð)..........2:52.07 Staðan Aamodt... Mader.... Tomba.... Girardelli (1:23.97/1:28.10) stig ..............674 ..............558 ............ 454 ..............411 Mayer...............................353 von Gruenigen.......................332 Finn-Christian Jagge (Noregi).......320 Jure Kosir (Slóvenfu)...............318 Piccard.............................314 Thomas Stangassinger (Austurr.).....305 Knattspyrna KORFUKNATTLEIKUR Thomas í „Draumaliðið" Isiah Thomas, leikmaður Detroit Pistons, var í gær valinn í bandaríska landsliðið, „draumalið-2“ sem tekur þátt í heimsmeistarakeppninni í Tor- onto í ágúst í sumar. Hann var kallaður inní liðið fyrir Tim Hardaway úr Golden State Warriors, sem hefur verið meiddur síðan í október. Tíu leikmenn af 12 voru valdir i október sl., en hinir tveir verða valdir í vor. Þessir tíu eru: Derrick Coleman, Joe Dumars, Larry Johnson, Shawn Kemp, Dan Majerle, Alonzo Mourning, Mark Price, Steve Smith, Dominique Wilkins og Isiah Thomas. Allt leikmenn úr NBA-deildinni. í kvöld Handknattleikur 1. deild karia: Selfoss: Selfoss - FH..........20 Seljaskóli: ÍR - Valur.........20 Strandgata: H aukar - Stjarnan.20 Vestm’eyjar: ÍBV - KA..........20 Víkin: Víkingur-KR.............20 Akureyri: Þór-UMFA..........20.30 Körfuknattleikur Úrvalsdeild: Stykkish.: Snæfell - Skallagr..20 England 8 liða úrslit deiidarbikarkeppninnar: Wimbledon - Sheffield Wednesday..1:2 Dean Holdsworth (78.) - Gordon Watsom«* (1.), Mark Bright (81.). 1. deild Notts County - Binningham 2:1 Oxford - Sunderland 0:3 Skotland Dundee - Aberdeen............0:1 Motherweli - Celtic.........2:1 ■Þriðja tap Celtic á árinu. Handknattleikur Evrópukeppni landsliða: Finnland - Búlgaría.......28:16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.