Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994 43 Hólmurum fjölgaði um 2,5 af hundraði í fyrra Stykkishólmi. ÞAÐ má fullyrða að margt hafi gengið Stykkishólmi og íbúum þess í vil á sl. ári og gefið ástæðu til aukinnar bjartsýni. Fréttaritari átti um þessi áramót tal af bæjarstjóranum, Ólafi Hiimari Sverrissyni, og spurði hann ýmissa spurninga þessu viðvikjandi. Ólafur sagði m.a.: „Það hefur orðið hér fólksfjölgun. Nú er Hólmarar 1.266 og hefur á | árinu fjölgað um 30 sem þýðir 2,5% ' fjölgun og mun það vera með mestri fjölgun á landinu. Þetta eru viss teikn um að við verðum að búa okkur undir að mæta þessari fjölgun með átökum í meiri uppbygginu því þetta sýnir að fólkið vill vera hér og vant- | ar húsnæði. Þá má geta þess að hér hafa á árinu verið stofnuð fyrirtæki, s.s. til vinnslu ígulkera, verslunar, iðnaðar og þá má nefna stofnun hlutafélags um rekstur prentsmiðju o.fl. Þá má ekki gleyma rótgrónum fyrirtækjum hér sem rekin hafa ver- ið af mikilli forsjá og áhuga og þau hafa gefið Hólminum svo margt sem hann býr að nú. Atvinnuleysi hefur ekki þjáð okkur hingað til, hvað sem þessi sjómanns- deila og afleiðingar hennar skapa sem óséð er. Ef lausn hennar dregst kemur það við okkur eins og aðra. A seinustu tveimur árum hefur bæjarstjórn tekist að lækka skuldir bæjarins án þess að draga úr þjón- ustu við bæjarbúa. Frekar hefur þjónustan verið aukin enda hefur Morgunblaðið/Árni Helgason Olafur Hilmar Sverrisson bæjar- stjóri. bærinn ekki ráðist í neinar stórfram- kvæmdir enda búinn að gera þar stórátak eins og verkin sýna. Heild- arskuldir bæjarins um þessi áramót eru nú rúmlega 200 milljónir króna og hafa á þessu tveggja ára tímabili lækkað um 100 milljónir. Þá má geta þess að bæjarstjórnin hefur gert sitt til að stuðla að fjölbreyttri atvinnustarfsemi og þeim einstakl- ingum fjölgar hér sem takast á við ýmis verkefni í atvinnurekstri og vekja upp ýmsar hugmyndir. Þessi áhugi virðist vera í sókn og er það gleðilegt og reynir bæjarstjórn eftir bestu getu að ýta þar undir bagga. Við hér í Hólminum höfum því ástæðu til að taka nýju ári með meiri bjartsýni en oft áður,“ sagði Ólafur. Bæjarstjóri vildi að lokum, um leið og hann óskaði landsmönnum og þá ekki síst Hólmurum árs og friðar, þakka öllum þeim sem ynnu hver á sinn hátt að uppbyggingu bæjarsins. — Arni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.