Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1994 25 Davíð Oddsson um NATO-fundinn Sterkur fundur fyrir baudalagið „MENN voru sammála um að þetta hafi verið sterkur fundur fyrir bandalagið. Það var mikill einhugur og vilji til samvinnu á fundinu og þar átti sér stað mikil árétting á stöðu bandalags- ins. Þrátt fyrir breytt viðhorf í veröldinni þá eru menn á einu máli um að bandalagsins sé ekki síður þörf nú en áður miðað við óvissuna sem menn horfa á,“ sagði Davíð Oddsson forsætis- ráðherra um niðurstöður leiðtogafundar Atlantshafsbandalags- ins (NATO sem lauk í Brussel í gær. „í annan stað gengu menn fram í því með mjög ákveðnum hætti að styrkja ákvarðanirnar varðandi Bosníu þar sem tekið var á tilteknum atriðum til viðbót- ar þeim sem áður hafði verið tek- ið á. Þessi mál voru rædd mjög ákveðið á einkafundi leiðtoga þjóðanna í gærkvöldi [mánudag] þar sem þeir voru einir saman ásamt með framkvæmdastjóra bandalagsins. Það er ekki vafi á því að sá fundur getur haft heil- mikla þýðingu um framhald mála í Bosníu. Það er alveg ljóst að það er meiri alvara á bakvið ályktanir bandalagsins um þessi efni nú en áður hefur verið. Bregðist stríðsaðilar ekki við með réttum hætti má búast við að þessum ályktunum verði fylgt eftir. Það er tekið fram að það er alls ekki verið að útiloka her- vald og þá sérstaklega að loftá- rásum verði beitt,“ sagði forsæt- isráðherra. Er Davíð Oddsson var spurður að því hvað hgeft væri í frétta- stofufregnum að snörp rimma hefði orðið um hugsanlega íhlut- un í málefnum Bosníu á kvöld- verðarfundi Ieiðtoganna svaraði hann: „Það er ekki venja að skýra frá því hvað fer fram á þessum fundum, enginn embættismaður er þar viðstaddur og engin fund- argerð rituð. En það urðu mjög málefnalegar umræður milli leið- toganna í kvöldverðarboðinu. Þetta var mjög alvöruþrunginn fundur þar sem Clinton gerði annars vegar grein fyrir ferðum sínum um fyrrum ríki Sovétríkj- anna og hvað fyrir honum vakir í þeim efnum. Fékk hann afstöðu manna um áhersluatriði í þeim efnum. Hins vegar fór lengstur tíminn í að ræða Bosníumálin." -Okkur skilst að þið Bill Clint- on Bandaríkjaforseti hafið tekið nokkrum sinnum spjall saman. Viltu segja hvað ykkur fór á milli? Clinton styrkti stöðu sína „Já við náðum því að spjalla nokkrum sinnum saman en mér finnst ekki efni til að skýra frá því þar sem þetta voru almenn samtöl á þessum fundum þar sem menn eru að talá saman í trún- aði. En mér fannst Clinton styrkja stöðu sína hér gagnvart Evrópuríkjunum. Hann kom fram sem öflugur forystumaður vest- rænna ríkja, það er ekki vafi á þvíT' Og vigt hans, ekki bara vegna embættisins heldur per- sónu hans í augum forystumanna Evrópuríkjanna óx á þessum fundi, það er ekki vafi í mínum huga. Hann styrkti stöðu sína gagnvart þeim og það er ljóst að það er mjög sterk hlið hjá honum að vera í tiltölulega fámennum hópi og ræða málin og fylgja sín- um sjónarmiðum eftir. Það gerði h*mn mjög vel að mínu mati,“ sagv' Davíð Oddsson. \ Reuter Slegið á létta strengi BILL Clinton Bandaríkjaforseti fer með gamanmál er hann hittir Helmut Kohl, kanslara Þýskalands, á leiðtogafundi NATO á mánudag. Á milli leiðtoganna standa utanríkisráðherrar landanna, Warren Christopher og Klaus Kinkel. Bill Clinton hendir gaman að ummáli Helmuts Kohls Brussel. The Daily Telegraph. HELMUT Kohl, kanslara Þýskalands, þótti lítið til kímnigáfu Bill Cint- ons, Bandaríkjaforseta, koma við upphaf leiðtogafundar NATO er forsetinn henti gaman að mittismáli kanslarans. „Mér varð hugsað til þín í gær, Helmut, þegar ég horfði á þátt um súmó-glímu,“ gall í Clinton þegar hann greip í handlegg Kohls. Lagði hann enn frekari áherslu á orð sín með því að líkja- eftir apa til að sýna hvert ummál súmóglímukappa er. Kohl, sem er 193 sm á hæð og 111 kíló á þyngd, brosti kurteis- lega en viðstöddum virtist sem hann hefði lítið gaman af athuga- semdinni. Hann á enda í baráttu við aukakílóin, fer á hveiju ári í strangan megrunarkúr á heilsu- hæli í Austurríki án teljandi árang- urs. Ummæli Clintons geta vart tal- ist háttvísleg, hann hefur aðeins hitt Kohl tvisvar sinnum. Clinton, sem er 187 sm á hæð og 95 kíló, reyndi þó að draga úr ummælum sínum, er hann bætti því við að þeir tveir væru stærstir manna á fundinum. Clinton er þó langt í frá þyngsti forseti Bandaríkjanna. Þann heið- ur á William Howard Taft, sem var forseti 1909-1913. Hann var jafnhár Clinton en vó um 150 kíló. DREGIÐ í DAG — __ 6 MILLJONIR ÓSKIPTAR Á EINNMIÐA Heppnin biður þín hér Hæsti vinningurinn í hverjum mánuði leggst við Ipann hæsta í næsta mánuði ef hann gengur ekki út. Þannig hleðst spennan upp koll afkolli par til sá heppni hreppir þann stóra... þú? i Tryggðu þér möguleika ... fyrir lífið sjálft UMBOÐ I REYKJAVIK 0G NAGRENNI: AÐALUMBOÐ Suðurgötu 10, sími 23130 ÚLFARSFELL Hagamel 67, sími 24960 VERSLUNIN GRETTISGÖTU 26 sími 13665 BÓKABÚÐIN HVERAFOLD 1-3 Grafarvogi, sími 677757 HAPPAHÚSIÐ Kringlunni, sími 689780 VERSLUNIN EITT OG ANNAÐ Hrísateigi 47, sími 30331 ERLENDUR HALLDÓRSSON, MYNDBANDALEIGA, Arnarbakka 2, sími 76611 VERSLUNIN SNOTRA Álfheimum 4, sími 35920 BENSÍNSALA HREYFILS Fellsmúla 24, sími 685632 BÓKABÚÐIN HUGBORG Grímsbæ, sími 686145 BÓKABÚÐ ÁRBÆJAR Hraunbæ 102, sími 813355 VERSLUNIN STRAUMNES Vesturbergi 76, sími 72800 MOSFELLSBÆR: SÍBS-DEILDIN, REYKJALUNDI sími666200 BÓKABÚÐIN ÁSFELL Háholti 14, sími 666620 BORGARBÚÐIN Hófgerði 30, sími 42630 VÍDEÓMARKAÐURINN Hamraborg 20A, sími46777 GARÐABÆR: EINA ÞAR SEM GENG SÍBS-DEILDIN, VÍFILSSTÖÐUM sími 602800 BÓKABÚÐIN GRÍMA Garðatorgi 3, sími656020 s riúh M 1 BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS j Vilborg Sigurjónsdóttir, sími 50045 i SIÓRHAPPORÆTTIÐ HÆSTI VINNINGURINN UR ÖRUGGLEGA ÚT. Verð miða er aðeins 600 kr. Upplýsingar um næsta umboðsmann i stina 91-22150 og 23130

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.