Morgunblaðið - 17.09.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.09.1995, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1995 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ 13 ára stúlka kom heim í gær frá Bandaríkjunum eftir aðra nýrnaígræðslu Oska þess heitast að hefj a eðlilegt líf Keflavík. Morgunblaðið. „ÉG er ákaflega fegin að vera loksins kornin heim og á þá ósk heitasta að hefja eðlilegt líf að nýju og að geta byijað í skólan- um aftur,“ sagði Ásta Kristín Árnadóttir, 13 ára nýrnaþegi, við komuna til landsins í gærmorg- un. Þetta er í annað sinn sem Ásta Kristín fer í nýrnaígræðslu. Arið 1984 var grætt í hana nýra úr föður hennar en síðan komu upp væg höfnunareinkenni og að lok- um var ljóst að Ásta Kristín þurfti að fá annað nýra og gaf móðuramma hennar, Ásta Steinsdóttir, þá annað nýra sitt. Nýrnaígræðslan var fram- kvæmd í sjúkrahúsi í Boston í Bandaríkjunum 20. júlí og tókst vel. Foreldrar Ástu Kristínar, þau Vilborg Benediktsdóttir og Guðmundur Árni Hjaltason, voru ytra allan timann en þau hafa bæði gefið bömum sínum annað nýra sitt. Þau eiga 4 börn, Ástu Kristínu, tvíburana Brynju og Örnu 9 ára og Benedikt Andrés 5 ára. Árið 1987 var grætt nýra í Brynju úr móður hennar. &ldu íbúð til að standa undir kostnaðinum Þessi veikindi hafa reynst fjölskyldunni erfið og þá sérstaklega fjárhagslega og seldu þau íbúð sína í Reykjavík til að geta staðið straum af kostnaði sem á þau hefur fallið. Vilborg,er ættuð úr Norðurfirði í Árneshreppi og hafa sveitungar hennar tekið saman höndum um fjársöfnun til styrktar fjölskyldunni. Ættingjar og sveitungar létu sig heldur ekki vanta og þeir Morgunblaðið/Bjöm Blöndal ÁSTA Kristín ásamt foreldmm sínum Vilborgu og Guðmundi. Sterk lyf hafa valdið breytingum á andliti Ástu. fjölménntu í Leifsstöð í bítið á laugardagsmorgun til að fagna heimkomu Ástu Kristínar. Nú hafa safnast alls rúmar 664 þúsund krónur og fengu foreldramir afhenta ávísun að upphæð 262 þúsund krónur við komuna til Keflavíkur- flugvallar í gærmorgun. Þeir sem vilja leggja þessari söfnun lið geta lagt peninga inn á ávísanareikning 1124-26-50 í Sparisjóði Árneshrepps. Hægt er að leggja inn á reikninginn í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum landsins. Röskva segir að útganga fulltrúa Vöku sé ástæðulaus „ÉG GET ekki séð neina gilda ástæðu fyrir því að þeir gangi út núna því framkvæmdin er sú sama og hún hefur alltaf verið. Ekkert hefur breyst að því undanskildu að nú hefur verið skotið lagastoðum undir að Háskólaráð afhendi stúdentaráði hluta innritunargjaldanna," segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, fulltrúi Röskvu í stúdentaráði og stjóm Lánasjóðs námsmanna, vegna útgöngu fulltrúa Vöku af stúdentaráðs- fundi á fimmtudag. - Ekki vegið að sjálfstæði stúdentaráðs Haft hefur verið eftir Gísla Marteini Baldurs- syni, oddvita Vöku í stúdentaráði, að með samn- ingi um að Háskólaráð greiði stúdentaráði hluta innritunargjalda sé vegið að sjálfstæði stúdenta- ráðs. Vilhjálmur neitar því. „Samningurinn gerir ekki annað en að festa í sessi áratuga framkvæmd og styrkja stúdentaráð í faglegri hagsmunabar- áttu. Stúdentaráð verður frjáls lýðræðislegur vett- Ödýrara að senda vél út en nota áætl- unarflug FLUGVÉL Flugmálastjórnar verður í dag send til Hammer- fest í Noregi að sækja slasaðan sjómann. Odýrara er að senda vélina eftir manninum en að flytja hann heim með almennu áætlunarflugi. Baldur Sigbjömsson, háseti á varðskipinu Oðni, sem brotn- aði á báðum fótum og rifbeins- brotnaði þegar dráttartaug slitnaði 7. þessa mánaðar, hefur nú legið á sjúkrahúsi í Hammer- fest í rúma viku. Að sögn Helga Hallvarðsson- ar, skipherra hjá Landhelgis- gæslunni, hefur 'Landhelgis- gæslan ákveðið að fá flugvél Flugmálastjórnar til að sækja Baldur enda er það bæði ódýr- ara og þægilegra fyrir Baldur. Fari hann í almennu farþega- flugi þarf að flytja hann þríveg- is milli flugvéla á leiðinni heim. Þar sem hann er rúmliggjandi þarf auk þess að kaupa fjögur sæti í flugvélunum, þrjú undir sjúklinginn og eitt undir norsk- an sjúkraliða að fylgja honum heim. vangur stúdenta eftir sem áður,“ segir hann. Vilhjálmur tók fram að Vaka hefði borið fram tvær ályktanir á fundinum. Fyrri tillagan hefði falist í því að stúdentaráð væri fijálst félag og hefði engu skipt í því sambandi að fyrir lægi að háskólaráð hefði ákveðið að innheimta 24.000 kr. innritunargjald og félagsgjald hefði þurft að bætast við það. „Mér finnst ótrúlegt að sú til- laga komi frá hópi stúdenta sem telur sig vera í hagsmunabaráttu að Háskólinn megi ekki láta hluta af þeim peningum sem stúdentar borga til Háskólans renna til hagsmunabaráttu stúd- enta,“ sagði hann og tók fram að hluti fjár- magns til stúdentaráðs rynni beint í að fjár- magna starfsemi deildarfélaga. Hin tillagan snerist að hans sögn um að stúd- entaráð yrði sjálfstætt og óháð. „Við vorum að sjálfsögðu tilbúnir að skrifa upp á það en komum með þá viðaukatillögu að hér eftir sem hingað til skyldi stúdentaráð vera lýðræðislegur vett- vangur allra skráðra stúdenta í Háskólanum sem hefðu þar kosningarétt og kjörgengi. Aðeins einn Vökumaður treysti sér til að samþykkja þetta. En hvort Vökumenn segi sig úr ráðinu er eitt- hvað sem þeir verða að eiga við sig og sína kjós- endur. Hins vegar get ég sagt að þeir sem treysta sér ekki til að styðja tillögu þar sem kveðið er á um kosningarétt og kjörgengi allra háskóla- stúdenta ættu að snúa sér að öðru,“ sagði hann. Hann sagði að gert væri ráð fyrir að Háskóla- ráð léti stúdentaráði í té 2.150 kr. á hvem nema eða samtals 11-12 milljónir. Gísli Marteinn hafði sambandi við Morgun- blaðið og sagði rangt eftir sér haft í laugardags- blaðinu að umboðsmaður Alþingis hefði komist að þeirri niðurstöðu að stúdentaráð væri fijáls félagasamtök. Umboðsmaður hefði aðeins lýst innheimtu gjalda af stúdentum ólögmæta. Hins vegar hafi menntamálaráðuneyti lýst því yfir að stúdentaráð væri frjáls félagasamtök. Kristínn í Skarði kaupir Loga Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson LOGI frá Skarði er einn hæstdæmdi skeiðlausi stóðhestur landsins. KRISTINN GUÐNASON, bóndi í Skarði, hefur keypt stóðhestinn Loga frá Skarði, sem var í eigu hjónanna Ólafíu Sveinsdóttur og Jóns Jóhannssonar. Logi, sem er einn hæstdæmdi skeiðlausi stóð- hestur landsins, var í fréttum fyrr í sumar þegar í ljós kom að hann hafði verið rangt feðraður, sagður undan Ljóra frá Kirkjubæ en reyndist vera undan Hrafni 802 frá Holtsmúla að öllum líkindum. Kristinn sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki væri ákveð- ið á þessari stundu hvort aðrir aðilar gengju inn í kaupin með honum síðar en það væri allt opið. Það eitt væri ljóst að hann hefði sjálfur fest kaup á hestinum og framhaldið skýrðist á næ*u dög- um. Kaupverð hestsins fékkst ekki gefið upp en kunnugir telja eðlilegt að hestur eins og Logi verðleggist á einar sex til sjö milljónir króna. í kynbótadómi í vor fékk Logi 8,24 í aðaleinkunn, 8,16 fyrir byggingu og 8,36 fyrir hæfileika. Einnig stóð hann efstur í B-flokki gæðinga á hvítasunnu- móti Fáks í vor og í fyrra og varð fjórði í B-flokki á landsmót- inu í fyrra. Vinsældir og frægðar- sól Loga, sem er sjö vetra, hefur farið stöðugt hækkandi allt frá því hann kom fyrst fram á sýn- ingu í reiðhöllinni í Víðidal fjög- urra vetra gamall og er hann nú einn eftirsóttasti kynbótahestur landsins. Gáski felldur Bjarkar Snorrason, formaður Hrossaræktarsambands Suður- lands, upplýsti að búið væri að fella heiðursverðlaunahestinn Gáska frá Hofstöðum, sem var 22 vetra gamall. Ástæðan mun vera lifrar- skemmdir, sem hijáð hafa hestinn um allnokkra tíð. Sagði Bjarkar að illa hefði gengið að láta hann halda holdum og hann fengið tíð hrossasóttarköst. Bjarkar tók aft- ur fram að vel hefði haldið við Gáska í sumar þannig að hann hafi staðið sig í stykkinu þrátt fyrir krankleikann. ► 1-52 Þetta er bardagf ►Ingibjörg Pálmadóttir hefur ver- ið heilbrigðisráðherra í 5 mánuði. Hér er rætt við hana um það sem efst er á baugi í þessu viðamikla og þurftafreka ráðuneyti../10 Rússneska virkið ►Rússneska borgin Kalínigrad, fyrrum þýska borgin Köningsberg, á sér sérkennilega sögu og tilveru sem hér er rakin./16 Kína opnuð ►Fyrir 15 árum tók kommúnista- flokkurinn í Kína upp þá stefnu að opna landið og leyfa m.a. er- lendar fjárfestingar. Sérstök svæði voru stofnsett til þess arna./20 Vilji, þor og kraftur er allt sem þarf ►í Viðskiptum og atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Sveinn Páls- son, Guðlaugu Pálsdóttur og Krist- ján Þór Sveinsson sem lögðu allt undir og stofnuðu skyndibitastað- inn Aktu-taktu./22 B ► 1-32 Galdrakarlinn í Oz ►Tölvufyrirtækið Oz er í fremstu röð í íslenskri hátækni og með fremstu fyrirtækjum heims á ýms- um sviðum í grafíkvinnslu og tölvutækni. Hér er rætt við Guðjón Má Guðjónsson eiganda fyrirtæk- isins./l-4 Höllin í kastala draumsins ►Á hinni árlegu óperuhátíð í Sa- vonlinna var m.a. frumflutt ný ópera eftir helsta núlifandi tón- skáld Finna, Aulis Sallinen. Sús- anna Svavarsdóttir var þar og seg- ir frá hátíðinni./6 íslenskir mormónar ►Guðspjallið um fyrirmyndar- þjóðfélag Mormóna í hinni endur- heimtu Síon ájörðu féll í kramið hjá fátæku fólki á íslandi sem þekkti fátt annað en basl, strit og volæði. Hér er saga þessa fólks rakin. /8 Á fortíðargöngu ►Þegar gengið er um gamla bæj- arhverfið á ísafirði er engu líkara en að horfið sé aftur til 19. ald- ar./16 Ferð sem ekki gleym- ist ►Hér segir frá sleðaferð yfir Vatnajökul./30 C BILAR ►l-4 Fjöldi nýrra bíla ► Sagt frá bílasýningunni miklu sem staðið hefur yfir í Frankfurt. /1 Reynsluakstur ►Gjörbreyttur Hyundai Elantra með ýmsum þægindum. /2 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Leiðari 26 Helgispjall 26 Reykjavíkurbréf 26 Minningar 30 Myndasögur 38 Bréf til blaðsins 38 ídag 40 Brids 40 Stjömuspá 40 Skák 40 Fðlkífréttum 42 Bíó/dans 44 íþróttir 48 Útvarp/sjónvarp 49 Dagbók/veður 51 Mannlífsstr. 5b Kvikmyndir lOb Dægurtónlist 12b INNLENDAR FRÉTTIR- 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.