Morgunblaðið - 17.09.1995, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 17.09.1995, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FHsetti svipá mestan mótið Morgunblaðið/Ásdís Fimmfaldur meistari! BJARNI Þór Traustason úr FH varð fimmfaldur slgurvegari á MeistaramÓtl íslands í frjálsíþróttum í flokkl 15 til 22 ára. Hér kemur hann fyrstur í mark í 200 metra hlauplnu en Jón- as Páll Jónsson úr ÍR fylgir fast á eftir. MEISTARAMÓT íslands í frjálsíþróttum 15-22 ára fór fram á Laugardalsvelli um síð- astliðna helgi og var keppni jöfn og spennandi í mörgum greinum. Mest bar á íþrótta- fólki frá FH og vann það til flestra verðlauna. Má þar nefna Bjarna ÞórTraustason sem sigraði í fimm greinum auk þess að vera f sigursveitum FH íbáðum boðhlaupunum. Lauf- ey Stefánsdóttir, FH, sigraði í þremur greinum svo og Magn- ús Aron Hallgrímsson HSK og Vigdís Guðjónsdóttir frá sama héraðssambandi sigruðu í þremur greinum hvert. ijú íslandsmet voru sett á mót- inu og eitt var jafnað. Sveinn Þórarinsson, FH, setti nýtt íslands- met í flokki sveina í 100 m grindahlaupi Benediktsson ^ann hljóp á skrifar 15,90 sek. og sigr- aði í greininni. Seinni daginn hljóp Sveinn 400 m grindahlaup á 58,04 sek. ogjafnaði þar með met Viggós Þ. Þórissonar, FH. Sigrún Össurardóttir bætti eig- ið met í þrístökki í meyjaflokki þeg- ar hún stökk 11,45 m. Þá bætti strákasveit FH íslandsmetið í 4x400 m boðhlaupi í strákaflokki, hljóp á 4:32,77 mín. „Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með árangurinn um helg- ina. Þetta er síðasta mótið sem ég keppi á í sumar og ég er orðinn mjög þreyttur. Reyndar ætla ég að hlaupa 300 m grindahlaup um næstu helgi til að freista þess að slá metið sem þar er, en að öðru leyti er ég hættur að keppa utan- húss í ár,“ sagði Sveinn Þórarinsson að mótslokum á laugardag. „Ég stefni ótrauður að þvi að æfa af krafti áfram og bæta mig, en mig langar að fara út í keppni í tug- þraut í framtíðinni. Ég tók þátt í Bikarkeppni FRÍ í tugþraut fyrir tveimur vikum og náði þar fimm þúsund sexhundruð þjátíu og sex stigum, sem er gott, og því er það freisting að hella sér út í tugþraut- ina,“ bætti þessi ungi afreksmaður við að lokum. Bjami Þór Traustason var án nokkurs vafa afreksmaður mótsins. Hann sigraði í 100 og 200 m hlaup- um, 110 m grindahlaupi auk lang- stökks og hástökks auk þess að vera í sigursveit FH í báðum boð- hlaupunum. „Ég hef verið meiddur í allt sumar og því hefur sumarið farið fyrir ofan garð og neðan,“ sagði Bjarni Þór í viðtali við Morg- unblaðið. „Nú er ég hins vegar að ná mér á strik og þá er sumarið búið. Annars kitlar það mig mest að ná lágmarkinu fyrir Norður- landamótið í tugþraut næsta sum- •ar. Mér tókst ágætlega upp í Bikar- keppninni í tugþraut um daginn og í framhaldi af því er lágmarkið ekki svo fjarlægur draumur," sagði Bjarni Þór ennfremur. „Sumarið hefur verið langt hjá mér og ég „toppaði" á Smáþjóða- leikunum í vor og þreyta er farin að segja til sín. Auk þess vantaði mig meiri keppni á mótinu og því var ég nokkuð fjarri mínu besta,“ sagði hin efnilega nítján ára gamla hlaupastúlka úr FH, Laufey Stef- ánsdóttir, en hún sigraði af miklu öryggi í 800, 1.500 og 3.000 m hlaupum á Meistaramótinu. En er Laufey farin að hugsa um að slá met þjálfara síns Ragnheiðar Ólafs- dóttur á þessum vegalengdum? „Nei, ég hugsa ekki um það,“ sagði hún stutt og laggott er hún var spurð að því í mótslok. Morgunblaðið/Ásdís RAKEL Tryggvadóttir úr FH vann tvenn gullverðlaun. Hér er hún í þrístökkskeppninni þar sem hún sigraði með yfirburð- um, stökk 11,93 metra. Hvers vegna tek- ur SSÍ ödruvísi á málum en adrir? BRÉF þetta er svar við bréfi frá Sundsam- bandi íslands (SSÍ) þann 22. júlí s.l. En þar svaraði SSÍ bréfi mínu frá 15. júh'. Mál málanna er að ég var rekin úr lands- liðinu vegna fjarveru minnar frá æfingabúð- um um páskana, 13.-16. apríl, og ófull- nægjandi mætingar á æfingar, að sögn SSÍ. SSÍ segir í bréfi sínu að þegar heyrðist að ég ætlaði að synda mig inn í Smáþjóðaleikahópinn hafi margir talið að ég ætti ekki að fá að komast inn burtséð frá því hvort ég næði tilskildum árangri, vegna ~~ þess hve lítið ég synti miðað við aðra sundmenn. Hins vegar segir SSÍ að landsliðsnefnd hafí ekki séð neinn meinbug á að ég færi svo framarlega sem ég stæði mig_ vel á íslandsmeistaramótinu (IMÍ) í mars. Þessu lýgur SSÍ því formað- ur landsliðsnefndar (Sævar Stef- - ánsson) hringdi heim til mín löngu fyrir IMÍ til þess að tilkynna mér að hann myndi mæla á móti því að ég færi út, burtséð frá þvi hvort ég synti mig inn í hópinn. Að missa af æfinga- búðum í sundi er ekk- ert stórmál, þar fer ekkert fram sem ekki er hægt að gera ann- arsstaðar. Það eina verklega sem hægt er' að gera í æfingabúð- um er að æfa boð- sundsskiptinguna, en það var ekki gert og hefur nánast aldrei verið gert á meðan ég hef verið í landsliðinu. Sundkonan Bryndís Ólafsdóttir, sem rekin var úr landsliðinu fyrr á árinu, svarar hér grein SSÍ frá því í sumar vegna málsins. Bryndís Ég hringdi í sambönd eins og Fimleikasamband íslands, Hand- knattleikssamband íslands og Knattspyrnusamband íslands, öll samböndin gefa skólafólki frí í landsliðsæfingabúðum eða ferðum ef um próflestur eða próf er að ræða. Hvers vegna SSÍ þarf að taka allt öðruvísi á málunum er mér og fleirum óskiljanlegt. í fyrra bréfi mínu kemur fram að SSÍ hafi ekki gert tilraun til að nálgast sund- og lyftingaæfingar mínar. SSÍ svarar því til að það hafi spurt þjálfara minn um æfing- ar mínar, þjálfari minn segir þeim að hann geti ekki staðfest neitt um það hvernig ég æfði. Auðvitað gat hann ekki staðfest neitt um það sem ég er að gera að Laugarvatni, maðurinn býr og þjálfar í Reykja: vík. Lyftingaæfingarnar hefur SSÍ svo sannarlega ekki séð. Að SSI skuli dæma árangurinn og þar með talið þjálfun mína verri, vegna þess að ég lyfti lóðum meira (en aðrir sundmenn á íslandi) og syndi minna, er hlægilegt. SSÍ heldur áfram og segir að ég hafi fengið tækifæri til að sanna æfingasókn mína, en hafi ekki gert það. í staðinn hafi komið fram mínar eigin fullyrðingar. SSÍ leggst svo sannarlega lágt. Ég æfði ein svotil allan veturinn og ef SSI gat ekki tekið við upplýsingum frá mér, hver var þá til frásagnar? Auðvitað vissi SSÍ að ég æfði ein og notfærði sér svo um mun- aði. Að vísu skýlir SSÍ sér á bak við þann skjöld að það hafi upplýs- ingar frá aðilum að Laugarvatni um að ég æfði illa. Enginn einstakl- ingur var staddur á hverri sund- og lyftingaæfingu að Laugarvatni og þessum sömu æfingum í Reykja- vík um helgar. Þess vegna eru þess- ir aðilar annaðhvort að segja meir en þeir vita eða þeir eru bara til í hugarfylgsnum SSÍ. I fyrra bréfi mínu held ég því fram að öðrum leyfist það sem mér leyfist ekki. Tók ég dæmi um tvo sundmenn í Bandaríkjunum sem komust ekki i æfingabúðir vegna skóla og tvo sundmenn frá Akur- eyri sem fóru degi fyrr úr æfinga- búðunum án ástæðu. SSÍ svarar því til að „það hefði verið mun óhag- stæðara fyrir piltana að koma heim og eyða þar með dýrmætum tíma í ferðalög og það að jafna sig vegna tímamismunar", og „sundmennirnir að norðan áttu að mæta í próf á þriðjudeginum eftir páska og vegna samgönguörðugleika urðu þeir að fara norður á laugardagskvöldið." Mér er það mikil ánægja að upplýsa formann SSI að piltarnir í Banda- ríkjunum hefðu alls ekki þurft að koma heim (til íslands), því SSÍ var með æfíngabúðir í Flórída. Þangað tekur þá 2 og 4 klst að fljúga frá heimilum sínum. Og tímamismun- urinn? Jú, hann er heilar 1 og 2 klukkustundir. SSI lýgur því að um samgönguörðugleika hafi verið að ræða fyrir krakkana að norðan, því samkvæmt Flugleiðum var flogið sex sinnum til Akureyrar mánudag- inn annan í páskum og samkvæmt Vegagerð ríkisins var mokað og fært frá Reykjavík til Akureyrar bæði páskadag og annan í páskum. í fyrra bréfi mínu segi ég frá því að ég hafi tekið próf í sundi að Laugarvatni og synt á tíma, í 50 m skriðsundi, sem nægt hefði til að vinna það sund á Smáþjóðaleikun- um. SSÍ svarar: „Allir sem þekkja til sundíþróttarinnar vita hins vegar að mun betri tímar nást í 25 m laug, eins og er á Laugarvatni, heldur en í 50 m laugum. Munurinn er allt að 1 sek. Einnig næst alltaf betri tími þegar um handtímatöku er að ræða. Munur á sjálfvirkri tímatöku og handtímatöku er '7m- Vio úr sek.“ Þama lýsir afstaða SSÍ til mín sér mjög vel. Sambandið lætur í veðri vaka að ég sé svo vitlaus að ég viti ekki muninn á 25 m og 50 m laugum. SSÍ vildi einnig meina að tími í 50 m skrið- sundi (sem er stysta keppnisgrein- in) segði lítið til um æfingaástand mitt. Eg spyr þá, hvers vegna er þá hægt að ná lágmarki á Heims- meistaramót, Ólympíuleika og Evr- ópumeistaramót í 50 m skriðsundi? Eftir að mér var vikið úr landslið- inu, barst SSÍ bréf þar sem brott: rekstri mínum var mótmælt. SSÍ svaraði þessu bréfi og sendi til við- komandi. SSÍ barst líka óundirritað bréf þar sem brottrekstri mínum var fagnað. Þetta bréf sendi SSÍ til allra sundfélaga á landinu. Eru þetta vinnubrögð sambands sem: er hlut- laust? hefur sjálfstraust? vinnur eft- ir málefnum en ekki mönnum? Af þessu ofantöldu að dæma: Nei. Höfundur er fyrrverandi sundkona.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.