Morgunblaðið - 17.09.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.09.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1995 17 ROSKNIR Prússar í pílagrímsferð skoða raffestar hjá götusala í Kalíníngrad. Öll nPHrJlALUAEM flOCETHTb j|J|| flOM-MV'3ER CKy/loflTOPA TEPMAHA BPAXEPTA B n OTPATHOM Y/1 TOKAPEBA. 7. W:R LAOíR W HíMUSH m m HfRMJNN SSACHfRT-MUSfUM ZU BESUCHÍN ; EDMÍÍW: OTMONOJf EFTIR stríð var sérhver þýzk áletrun í Kalíníngrad máð út — nú snýr þýzkan aftur, „nostalgíuferðamönnunum" til leiðbeiningar. ungir til Kalíníngrad. Spurningin hvor eigi ríkara tilkall til borgarinn- ar verður því áleitin. Þýzk stjórnvöld hafa marglýst því yfir að þau virði núverandi landamæri, en gömlu Prússamir í pílagrímsferðunum em ekki jafnánægðir með ástand mála. Flestir segjast þó vera orðnir svo gamlir að þeir hafi ekkert til Königs- berg að gera í framtíðinni, og yngri kynslóðir Þjóðveija líti sjálfsagt á hana sem rússneska borg. Undan- tekningarnar frá því eru hreyfingar nýnazista, sem hafa stundum komið í litlum hópum til „þýzku Königs- berg“ og efnt til kröfugöngu. Helztu leiðtogar þeirra eru þar af leiðandi í banni og fá ekki að koma til héraðs- ins. Á síðustu árum Sovétríkjanna sálugu var rætt um það að stofna sérstakt sjálfstjórnarlýðveldi sovét- borgara af þýzkum ættum í Kalín- íngrad-héraði. Hugmyndia varð aldrei að veruleika, en athyglisverð afleiðing umræðnanna er þó sú að um 5.000 Volgu-Þjóðveijar frá Kaz- akhstan hafa flutzt til héraðsins á undanförnum árum. „Sumt þetta fólk fer héðan til Þýzkalands, aðrir vilja vera. Við höfum enga sérstaka stefnu gagnvart þessu fólki. Hér búa um 60 manns á hveijum ferkíló- metra og við getum ekki tekið við mikið fleirum, af hvaða þjóðerni sem þeir eru,“ segir Júríj Rozhkov, upp- lýsingafulltrúi Kalíníngrad-héraðs. Þýzkir peningamenn hafa nú boð- izt til að rífa Hús sovétanna og end- urreisa Konungskastalann. Kalín- íngradbúar hafa enn ekki ákveðið hvort þeir taki boðinu, en þeir þáðu hins vegar nýja spíru á dómkirkju- turninn og gljáfægð klukka með þýzku gangverki, keypt fyrir þýzka peninga, var sett á turninn daginn sem ég kom til Kalíníngrad. Borg- arbúar hafa engin efni á að slá hend- inni á móti þýzkum peningum, sem þeir græða á „nostalgíuferða- mennsku" aldraðra Prússa. Þessa má víða sjá merki í borginni. Á skilt- um er nú sums staðar þýðing á þýzku neðanmáls og á Hótel Tourist eru leiðbeiningarnar um það hvernig skrúfa beri frá baðkrananum (!) á þýzku jafnt og rússnesku. Unga kynslóðin hefur lært nógu mikla þýzku til að bjóða sérhveijum útlend- ingi, sem hættir sér út fyrir dyr, „Bilder von den alten Königsberg, bitte, nur drei Mark“ til sölu. Það hefur ekki gengið sérstaklega vel að laða erlenda fjárfestingu að Kalíníngrad, en athygli þýzkra fjár- festa hefur beinzt að borginni — sennilega ekki vegna viðskiptasjón- armiða eingöngu. Margir Kalín- íngradbúar óttast að Þjóðveijar Íslandskíj! Björk! Debut! í KALÍNÍNGRAD hafa borg- aryfirvöld áhuga á sem víðtæk- ustum tengslum við Norðurlönd- in, meðal annars í gegnum Eystrasaltssamstarfið sem ný- lega hefur verið komið á fót. Júríj Rozhkov, upplýsingafulltúi Kalíníngrad-héraðs, lét í ljós þá frómu ósk við blaðamann Morg- unblaðsins að hann kæmi á framfæri áhuga Kalíníngrad á að eignast vinabæ á Islandi líkt og á hinum Norðurlöndunum. Hér með er orðið við þeirri beiðni. Unga fólkið í Kalíníngrad hef- ur scnnilega lítinn áhuga á vina- bæjamótum, en ekki fer á milli mála hver tenging þess við ísland er. Blaðamaður brá sér á gamla ríkisbarinn í Kalíningrad, þar sem unga fólkið ryðst um í svita- kófi og drekkur bjór og vodka. Samræður við nokkrar stúlkur hófust að sjálfsögðu á kynningu á þjóðerni og starfi. Þærgripu andann á lofti og æptu: „Is- landskíj! Björk! Debut!“ Það þarf enginn að fara í grafgötur um það hver sé frægasti Islendingur- inn í Kalíníngrad. hyggist hreinlega kaupa landið til baka, jafnvel þótt það yrði áfram rússneskt í orði kveðnu. Kant er enn lesinn í Kalíníngrad Á sovéttímanum þýddi ekkert að ræða það við sovézka ráðamenn að Kalíníngrad-hérað hefði einhvern tímann verið þýzkt landsvæði. Sú staðreynd var hvergi í sögubókum. Núverandi borgaryfirvöldum finnst málið augljóslega óþægilegt og svara spurningum stuttlega en kurt- eislega. í Kalíníngrad-háskóla kveð- ur hins vegar við annan tón. Þótt háskólinn hafi ekki verið stofnaður fyrr en árið 1967, segir G. Fjodorov rektor frá því með stolti að skólinn byggi á aldagamalli hefð hins fræga Königsberg-háskóla, sem hafi verið einn sá virtasti í Evrópu. Á síðasta ári hafi verið haldið upp á 450 ára afmæli Königsberg-háskóla og þar hafi verið viðstaddir 200 manns, sem útskrifuðust frá skólanum fyrir 1945. Kalíníngrad-háskóli nýtur nú auð- vitað ríkulegra þýzkra styrkja. Það kemur á óvart að rektorinn greinir frá því að jafnvel á sovéttímanum hafi nokkrir prófessorar við skólann stundað rannsóknir á verkum Kants, þótt þau hafi ekki verið í anda hinn- ar opinberu hugmyndafræði. „Við reynum að varðveita það bezta frá Königsberg-háskóla og þróa áfram hugmyndir þekktra fræðimanna,“ segir Fjodorov. „Hér er safn um Kant og von bráðar verður opnað safn um sögu skólans.“ Það gefur auga leið að eftir hrun kommúnismans hefur þurft að end- urmennta þá kennara, sem kenndu marx-lenínísk fræði við skólann. Fjodorov segir þá marga vera prýði- lega fræðimenn, sem ekki hafi trúað á bullið, sem þeir kenndu, og stolizt til að stunda sjálfstæðar rannsóknir í öðrum greinum. Slík neðanjarðar- starfsemi hafi raunar bjargað rúss- nesku fræðasamfélagi á sovéttíman- um. Hann nefnir Kant aftur til sögu — segir að það sé holl endurmenntun fyrir gamla prófessora í marx-lenín- isma að lesa heimspeki hans. HÆTTIÐ AÐ BOGRA VIÐ ÞRIFIN! m þar sem moppan er éinu handtaki án pess aó taka þurfi hana afskaftinu. Moppan fer alveg inn i horn og auðveldlega undir húsgögn. Einnig er hún tilvalin í veggjahreingemingar. Þetta þýðir auðveldari og betri þrif. IBESTAI Nýbýlavegi 18 mCMIEGA vítamín og kalk fæst í apótekinu I i 5% staðgreiðsluafsláttur af póstkröfum greiddum ________innan 7 daga._____ HSSHöl ÚTILÍF§ GLÆSIBÆ • SÍMI 581 2922 adidas Kuldaúlpa Verð kr. 11.060 Frá 18. september höfum við opið frá kl. 9-17 § Skandia Laugavegi 170, simi: 56 19 700 Akureyri, simi 461 22 22 LAGER- ÚTSALA Flísabúðarinnar á Dverghöfða 27 Allir afgangar eiga að seljast Ótrúlegt verð Höfum bætl við tegundum á útsöluna Fyrstur kemur - fyrstur fær Einnig er um að ræða sértilboð á nokkrum gerðum aí flísum, t.d. útiflísar á kr. 1.399 pr.m2 / í. / ii JULS i unncG JLLbi TT i f-nn i i i i Stórhöfða 17 við Gullinbrú, sími 567 48 44

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.