Morgunblaðið - 19.11.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.11.1995, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Þingkosningar í Egyptalandi Fjendur Mubaraks semja Þ ANN 29. þessa mánaðar verða kosningar til egypska þingsins. Kosn- ingar eru haldnar á fimm ára fresti, kjördæmi eru 222 og tveir kosnir í hveiju. Þingmenn eru því 444 talsins auk 10 sem forset- inn skipar. Þessar kosningar eru að því leyti eftirtektarverðar að allir helstu stjórnarandstöðuflokk- arnir bjóða fram en í þeim síðustu hundsuðu þeir flestir kosningar og staðhæfðu að þær væru ekki lýð- ræðislegar. Þingið nú -Maglis-el- Sjaab- er því að langmestu leyti setið þingmönnum Lýðræðislega þjóðarflokksins (LÞF) sem er vitan- lega flokkur forseta landsins, Hosni Mubarak. Það er ekki svo að skilja að kosningarnar núna flokkist undir það sem við köllum lýðræði - og raunar §arri því. Hvernig sem menn kjósa er ávallt tryggt að Lýðræðislegi þjóðarflokkurinn fái tvo þriðju þingmanna. Á hinn bóginn hafa stjómarandstöðu- flokkarnir nú ákveðið að stefna að því að ná þessum þriðjungi þingsæta sem er til skiptanna. Þeir segja að nái frambjóðendur þeirra 152 mönnum á þingið muni stjórnarflokkurinn gjöra svo vel og neyðast til að hlusta á raddir stjórnarandstöðunnar hvort sem honum líkar betur eða verr. Nokkrir talsmenn stjórnarand- stöðuflokka kröfðust þess að ábyrgir erlendir eftirlitsmenn fengju að fylgjast með kosningun- um til að sannreyna fullyrðingar LÞF að allt væri jafn lýðræðislegt og talsmenn hans vildu vera láta. Þessu var jafnskjótt hafnað af þinginu sem nú situr og kom stjórnarandstöðuflokkunum sjálf- sagt ekki á óvart. Samvinna af hagsýnisástæðum Helstu stjórnarandstöðuflokk- arnir eru Tagammuflokkurinn, el Wafdflokkurinn, Nasseristafiokk- ur, Verkamannaflokkurinn og Fijálslyndi flokkurinn. Þeir hafa ekki valið þá leið að gera opinber kosningabandalög, heldúr er samið bak við tjöldin, því enginn flokkur nema LÞF hefur bolmagn til að bjóða fram Þingkosningar fara fram í Egyptalandi um mánaðamótin. Jóhanna Krístjóns- dóttir segir áhuga lítinn á kosningunum, sem seint verði taldar lýræðislegar og gerir grein fyrir yfirburðastöðu flokks Mubaraks forseta. í öllum kjördæmum. Því reyna flokkarnir að semja um að tiltek- inn frambjóðandi þeirra í ein- hveiju kjördæmi hljóti einnig stuðning fieiri flokka en hans eig- in. Þar með aukist möguleikar á að ná inn hinum þingmanninum í kjördæminu því það velkist eng- inn í vafa um að frambjóðendur LÞF nái kosningu í hveiju kjör- dæmi. Menn sem ég hef talað við virð- ast sammála um að þessi sam- vinna flokkanna sé af hagsýnisá- stæðum en ekki hugsjónaástæð- um og sumir halda því fram að LÞF muni einnig taka þátt í þess- um leik þar sem fyrirsjáanlegt sé að mjög sterkir frambjóðendur stjórnarandstöðu kunni að vera einhver ógnun. Áhugaleysi meðal ungs fólks Stjórnarflokkurinn hefur verið gagnrýndur fyrir að kjörskrár séu úreltar og jafnvel falsaðar, þar séu löngu látnir og aðrir búi er- lendis og kjósi ekki. Ráðamenn hafa hummað fram af sér að láta endurskoða kjörskrár og bendir ekkert til að það verði gert héðan af. Auk þess vilja stjórnarand- stöðuflokkarnir að dómari sé á hveijum kjörstað til að fylgjast með að stuðningsmenn LÞF hrúgi ekki „réttum" atkvæðum í kjör- kassana. Þessu hefur verið svarað á þann veg að ekki séu í landinu nægilega margir dómarar til að MUBARAK gefur tóninn. Reuter vera á öllum kjörstöðunum. Allir sem eru orðnir 18 ára og hafa hreint sakavottorð mega kjósa. Samt eru ekki nema 16-18 milljónir kjósenda skráðar. Dr. Gehad Auda, aðstoðarfram- kvæmdastjóri A1 Ahram mið- stöðvarinnar í Stjórnmála- og her- fræðirannsóknum, segir að stjóm- arflokkurinn LÞF muni trúlega fá verulegt fylgi úti á landsbyggð- inni því fólk telji hann líklegri til að koma málum í höfn. Aftur á móti eigi stjórnarflokkurinn undir högg að sækja í borgunum og ekki síst Kairó. Kamil A1 Sayid, deildarstjóri við Kairó háskóla, segir að ekki séu nema um 54% þeirra á kjör- skrá sem lögum samkvæmt eiga rétt 'til að greiða atkvæði. Hann vitnaði til opinberra talna um kjör- sókn í síðustu þrennum kosning- um og sagði að upplýst hefði ver- ið að 44% skráðra hefðu kosið 1984, 50% 1987 og 43% 1990. Hann sagðist draga þessar tölur í efa og teldi að kjörsókn hefði verið enn minni. Aðskiljanlegir sérfræðingar segja að það sé ógemingur að sannreyna kjörsókn. Innanríkis- ráðuneytið eigi að sjá um skrán- ingu og fylgjast með og dóms- málaráðuneytið eigi að sjá um að allt fari nú fram samkvæmt regl- um og menn efast stórlega um heilindi þessara ráðuneyta. í blöðum og sjónvarpi hafa for- svarsmenn flestra flokka, ekki síst Mubarak forseti eindregið hvatt menn til að kjósa svo þingið verði sem lýðræðislegast skipað og endurspegli sannan vilja þjóð- arinnar. Ekki síst hefur Mubarak skorað á ungt fólk að flykkjast á kjörstaðina. Eftir því sem mér heyrist núna fær þessi málflutningur og hvatn- ingarorð ekki mikinn hljómgrunn meðal ungs fólks. Það lætur sér fátt um finnast og segir að það muni engu breyta þó það fari og kjósi því stjórnarflokkurinn muni hvort eð er geta hagrætt úrslitum. Innanlandsmál ber hæst I kosningabaráttunni hafa frambjóðendur lagt alla áherslu á innanlandsmál enda hafa kjósend- ur langflestir engan áhuga á öðru en því sem brennur á hveijum og einum. Atvinnuleysi er mjög mik- ið, umbætur í sorphirðingu brýn- ar, skolpræsikerfum er ábótavant, vatnsveitukerfi eru gölluð mjög víða og rafveitukerfi ófullkomin. Stöðugar verðhækkanir eru á nauðsynjum og þeir fátæku verða æ fátækari og þeir ríku ríkari svo bilið milli þeirra hefur breikkað ár frá ári. Forsetinn og ýmsir ráðherrar hafa líka verið önnum kafnir við að opna nýja og fullkomna spítala og skóla, skoða og amena nýja og aðlaðandi skipulagsuppdrætti, verðlauna skólabörn og svo fram- vegis og allt á þetta náttúrlega að sýna kjósendum fram á að það sé unnið af miklum krafti á stjórn- arheimilinu og verði ekki látið staðar numið. En unga fólkið kærir sig sem sagt kollótt. Marga dreymir um leiðtoga sem gæti, helst í einu vetfangi, gerbylt öllu, og nýtt þá möguleika sem þessi þjóð og land- ið búa yfir. Og sæi a.m.k. til að allir hefðu í sig og á. „Sá maður þyrfti að hafa persónutöfra Nass- ers, vitsmuni Sadats, iðjusemi Mubaraks og lýðræðisást Mo- hammeds Heykal (fyrrv. ritstj. Al Ahram),“ sagði hópur ung- menna við American University við mig um daginn. Slíkur leiðtogi er ekki í sjónmáli að því er ég best veit. Þó svo forsetanum sé e.t.v. hampað á alþjóðavettvangi fyrir merkilegt framlag til friðar í þess- um heimshluta deila menn ekki þeirri virðingu hér heima fyrir. Enda dettur mér einatt í hug þeg- ar ég fylgist með fréttum eða ræði við fólk að æði mörgum sé alveg sama hvort Clinton Banda- ríkjaforseti hringir til ráðslags í Mubarak eða erlendir áhrifamenn sem koma hér og segja blaða- mönrjum hvað hann sé stórgóður stjórnandi. Meðan milljónir og aftur milljónir eiga ekki fyrir brýnustu lífsnauðsynjum fyrir sig og fjölskylduna er varla við því að búast að menn falli í stafí yfir lofsöngvum erlendra ráðamanna sem þekkja lítið eða ekkert til mála innan lándsins. 45% hækkun á einu ári Komdu skattaaPslættinum a kortið Skandia býður hlutabréF með 10% útborgun og aFganginn á boðgreiðslum til 12 mánaða • Hjá Skandia geta hjón keypt hlutabréf í Almenna hlutabréfasjóðnum hf. fyrir 270 þúsund krónur - borgað aðeins 10% út og afganginn á boðgreiðslumVisa og Euro til 12 mánaða. • Með slíkum kaupum fá hjón u.þ.b. 90.000 króna skattaafslátt sem greiðist í ágúst á næsta ári. • Hlutabréf í Almenna hfutabréfasjóðnum hf. hafa hækkað um 45% síðustu 12 mánuðina. • Þú getur gengið írá kaupunum með einu ÆSMk símtali við Skandia í síma 5619 700. ÆSySs ^ | j^| j.j Fjárfestingarfélagið Skandia hf. • löggilt verðbréfafyrirtœki • Laugavegi 170 • sími 56 19 700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.