Morgunblaðið - 08.10.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.10.1996, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Geðsvið spari 2 milljónir af 80,5 milljóna króna sparnaði SHR til áramóta Tilraun gerð með rekstur áfangadeildar á Amarholti Stjórn Sjúkrahúss Reykjavíkur hefur til- kynnt að ætlunin sé að ná fram 80,5 milljóna króna spamaði í rekstr- inum fram til áramóta. Spamaðurinn dreifíst á öll svið sjúkrahússins og er geðsviði t.a.m. gert að spara 2 milljónir. Anna G. Ólafsdóttir komst að því að m.a. á að ná fram spamaðin- um með því að breyta deild 35 á Amarholti í áfangadeild til áramóta. STJÓRN Sjúkrahúss Reykjavíkur tók ákvörðun um aðgerðir tií að ná fram 80,5 milljóna króna sparnaði í rekstri SHR fram til áramóta á fundi sínum 4. október sl. Sparnaðurinn dreifist á öll svið sjúkrahússins. Geð- svið SHR á Arnarholti þarf t.a.m. að spara 2 milljónir króna. Guðný Anna Arnþórsdóttir, hjúkr- unarframkvæmdastjóri geðsviðs SHR, og Ásgeir Karlsson, yfirlækn- ir, segja að reynt verði að ná fram sparnaðinum með því að breyta deild 35 fyrir unga geðsjúklinga í áfanga- deild fyrir um helming sjúklinganna af deildinni og flytja hinn helminginn yfir á aðrar deildir innan geðsviðs sjúkrahússins fram til áramóta. Sig- ríður Snæbjörnsdóttir, hjúkrunarfor- stjóri, gerir ráð fyrir því að ef góð reynsla verði af rekstri áfangadeild- arinnar verði horft til þess þjónustu- forms í framtíðinni. Sigríður sagði að grípa hefði þurft til sérstakra ráðstafana því að rekst- urinn hefði verið kominn nokkuð fram úr kostnaðaráætlun ársins. „Við eigum ekki annars úrkosta en að horfast í augu við að sjúkrahúsið er að veita þjónustu fyrir meiri fjár- muni en eru til skiptanna. Okkar hlutverk hlýtur að vera að leita allra leiða til að ná endum saman fyrir áramót. Hér verður auðvitað að fara afar varlega í sakirnar enda hefur allur tilflutningur slæm áhrif á sjúkl- inga og starfsfólk," sagði Sigríður. Hún sagði að ná ætti fram sparn- aðinum með ýmsum hætti. „Aðgerð- irnar fela í sér að ná niður yfír- vinnu, fækka gæsluvöktum, færa til sjúklinga til hagræðis og skoða ný þjónustuform, t.d. meiri dag- og g-öngudeildarþjónustu. Enn einu sinni verður svo hugað að því hvort hægt verður að ná fram sparnaði með breyttri mönnun á vaktir. Hins vegar stendur ekki tii að ijölga út- skriftum og ógna með því öryggi sjúklinga," sagði Sigríður. Hún minnti á að samkomulag borgarstjóra, heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra hefði m.a. gert ráð fyrir að skurðstofur yrðu fluttar af Landakoti í Fossvog. „Einn liður sparnaðaráðgerðanna felur í sér að flýta flutningnum og ná með því fyrr fram sparnaði yegna sameining- ar skurðstofanna. Á sama tíma verð- ur að flytja aðrar deildir, sem fyigja skurðdeildunum, inn í Fossvog. Vegna flutninganna má gera ráð fyrir að um tímabundinn samdrátt í skurðaðgerðum verði að ræða,“ sagði hún. Miðað væri við að flutn- ingur starfseminnar hæfíst 15. októ- ber nk. m\ m «i Morgunblaðið/Ámi Sæberg ARNARHOLT, deild 35, er í öðru húsi frá hægri. ÁSGEIR Karlsson, yfirlæknir, Steinunn Agnarsdóttir, deild- arstjóri, og Guðný Anna Arnþórsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri. Rek9trn^ og vfðhaldsauið f| 15 milljónir kr. 10 Lyf- og endurhæfingarsvið 30 Almonnt viðhald 10 5 Öldrunarsvið 5 Námsferðir o c Myndgreining 0,0 og rannsóknasvið 2 Geðsvið Sjúkrahús Reykjavíkur: Sparnaðaraðgerðir til áramóta Röskun hefur óæskileg áhrif Ákvörðun stjórnarinnar hefur í för með sér að ná þarf 2 milljóna króna sparnaði innan geðsviðs SHR á Arnarholti. Guðný Anna Arnþórs- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri geðsviðs SHR, sagði að á Arnar- holti væru þijár deildir, 33, 34 og 35, á geðsviði SHR. Sparnaðurinn myndi ekki koma verulega niður á tveimur hinum fyrri fyrir eldri geð- sjúklinga. Hins vegar væri gert ráð fyrir að minnka þjónustu á deild 35 fyrir 12 geðsjúklinga á aldrinum 23 til 48 ára. „Hér verður ekki far- ið að með offorsi heldur er okkur treyst til að fara að með varúð og valda með því lágmarks raski á högum sjúklinganna. Við erum því mjög ánægð með að hafa nú í morg- un [mánudagsmorgun] fengið leyfi framkvæmdastjórnar sjúkrahússins til að breyta deildinni í áfangadeild fram að áramótum. Hugmyndin felst í því að 5 til 6 mest sjálfbjarga sjúklingarnir verði áfram á deiid- inni. Hópurinn sér að mestu um sig sjálfur en sækir mat og lyf yfir á aðrar deildir. Sjúkra- og iðjuþjálfun verður eins og áður sótt út fyrir deildina," sagði Guðný Anna og bætti því við að auðvitað yrði ákveð- ið eftirlit með sjúklingunum. Guðný Anna og Ásgeir Karlsson, yfirlæknir, segja að gert sé ráð fyr- ir því að 4 sjúklinganna af deild 35 flytjist yfir á deildir 33 og 34 fram til áramóta. Tveir fari hins vegar á deild A2, þ.e bráðageðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur í Fossvogi. Ekki er að því er fram kom hjá Ásgeiri fyrir hendi tímaáætlun vegna flutninganna og ekki gert ráð fyrir að allir sjúklingarnir flytjist endilega í vikunni. Ásgeir sagði að þótt sjúklingar af deild 35 þekktu aðstæður á nýju deildunum og því yrðu viðbrigðin við flutningana ekki eins mikil væri því ekki að neita að hvers kyns röskun hefði óæskileg áhrif á sjúklingana. Hann sagðist ekki hafa orðið var við að aðstandendur hefðu samband vegna sparnaðaraðgerðanna. „Ætli fólk sé ekki farið að venjast fréttum af samdrætti og niðurskurði í heil- brigðiskerfinu," sagði hann. Guðný Anna tók fram að geðsvið- ið hefði raunar ekki þurft að sæta sama niðurskurði og aðrar deildir að undanförnu. „Hér hefur rúmum t.a.m. ekki verið lokað endanlega enda væru slíkar aðgerðir þjóðhags- lega óhagkvæmar. Deildum hefur aðeins verið iokað tímabundið, t.d. var deild 35 lokað tímabundið eitt sumar. Ein dagdeild hefur verið lok- uð á sumrin frá árinu 1993 og dreg- ið hefur verið tímabundið úr inn- lögnum á bráðadeild." Sigríður tók fram að deild 35 væri ákaflega óhagstæð stjórnunarleg eining og í lélegu húsnæði. „Við teljum okkur geta náð nokkru hagræði með þvl að flytja sjúklinga í laus rúm á aðrar geðdeildir sjúkrahússins á Arnarholti. Með því er hægt að minnka stjórnunarlega yfirbygg- ingu og yfírvinnu. Ekki er heldur því að leyna að ákveðinn þrýstingur hefur verið á að reyna nútímalegri þjónustuform á borð við áfanga- deildir og áfangaheimili. Með að- gerðunum er verið að gera tilraun í þá átt fram til áramóta. Ef fyrir- komulagið gefst vel og skilar ár- angri geri ég ráð fyrir að horft verði til þess,“ sagði Sigríður. Afturkippur í meðferð hugsanlegur Guðný Anna, Ásgeir og Steinunn Agnarsdóttir, deildarstjóri á deildum 33 og 35 á Arnarholti, kynntu fyrir- hugaðar sparnaðaraðgerðir fyrir sjúklingum á deild 35 í gærmorgun. Steinunn tók fram að sjúklingarnir hefðu búið við langvarandi andlegt álag enda hefði lengi staðið til að loka deildinni. Og sjúklingarnir hafa margs að spyija um hvernig högum þeirra verður háttað. Sumir eru auð- vitað tilbúnir til að taka breyttum högum en aðrir eru afar ósáttir. „Viðbrigðin verða auðvitað minni vegna þess að fæstir fara af staðn- um. Sjúklingarnir þekkja deildirnar og starfsfólkið," sagði hún. Um hugsanlegar afleiðingar af væntanlegum sparnaðaraðgerðum sagðist Steinunn ekki undir neinum kringumstæðum ráðleggja hvers kyns röskun á högum geðsjúkra. Hún sagði að reynslan hefði sýnt að slík röskun gæti haft í för með sér tímabundinn afturkipp í meðferð sjúklinganna en væntanlega yrði ekki um varanlegan skaða að ræða. Geðvernd mótmælir Elísabet Árnadóttir Möller, fram- kvæmdastjóri Geðverndarfélags ís- lands, sagðist ekki hafa kynnt sér niðurskurðinn á Arnarholti sérstak- lega. „Almennt vil ég hins vegar segja að geðsjúkir þola alveg sér- staklega illa hvers konar röskun á högum sínum. Mér finnst í fram- haldi af því full ástæða til að spyija hvort ekki sé hægt að ná fram spam- aði með öðmm hætti en með tiiflutn- ingi sjúklinga, t.d. í yfirstjórn eins og heilbrigðisráðherra hefur reyndar talað um. Spurningin er svo auðvitað alltaf hvort sá sparnaður dugar,“ sagði Elísabet og lagði áherslu á að í starfi hennar sjálfrar við rekstur tveggja heimila og endurhæfingar- stöðvar fyrir geðsjúka væri augljóst hversu hvers kyns tilflutningur hefði slæm áhrif á bæði geðsjúklingana og aðstandendur þeirra. Hún sagðist ekki efast um að fyr- irhuguðum sparnaðaraðgerðum á Arnarholti yrði mótmælt af hálfu félagsins á næstunni. Djöflaeyjan Níu þúsund gestir um helgina TÆPLEGA níu þúsund manns sáu kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Djöflaeyjuna, fyrstu sýningarhelgina en hún var sýnd á tveimur tjöldum, í Stjörnubíói og Sambíóunum. Samkvæmt upplýsingum frá Kvikmyndasjóði Islands er ekki vitað til þess að íslensk kvik- mynd hafí í annan tíma fengið fleiri áhorfendur fyrstu sýning- arhelgina en þess ber þó að geta að fáar íslenskar kvik- myndir hafa verið frumsýndar á fleiri en einu tjaldi. „Þetta er í einu orði sagt stórkostlegt," segir Friðrik Þór en til samanburðar má nefna að tæplega sextán þúsund manns sáu bandarísku stór- myndina Independence Day fyrstu sýningarhelgina — hún var hins vegar sýnd á fimm tjöldum. Að sögn Friðriks Þórs ríkir mikil bjartsýni í herbúðum að- standenda Djöflaeyjunnar en 40.000 manns þurfa að sjá myndina til að endar náist sam- an. „Það orð hefur alltaf farið af íslenskum kvikmyndum að þær byiji hægt en þessar fyrstu tölur benda tvímælalaust til þess að við munum ná 40.000 áhorfendum, að minnsta kosti.“ Friðrik Þór segir að samn- ingar hafi nú tekist við Há- skólabíó um að taka Djöflaeyj- una til sýninga og vonast hann til að þær geti hafíst fyrir helgi. Þá sé fyrirhugað að sýna mynd- ina í Nýja bíói í Keflavík. Nefnd kannar hvort hefja á hvalveiðar áný ÞORSTEINN Pálsson sjávar- útvegsráðherra greindi í gær frá því á Alþingi að skipuð hefði verið nefnd, sem ynni nú að undirbúningi þingsályktunartil- lögu um það, hvort Islendingar ættu að taka aftur upp hval- veiðar. Hann sagði að til greina kæmi að ísland sækti aftur um aðiid að Alþjóðahvalveiðiráðinu. Þorsteinn greindi frá þessu í svari við fyrirspurn frá Svan- fríði Jónasdóttur, þingflokki jafnaðarmanna, um hvalveiðar. Ráðherrann sagði að ríkis- stjórnin myndi ekki taka neina ákvörðun um hvalveiðar nema Alþingi hefði fjallað um málið fyrst. Ef tekin yrði um það ákvörðun að hefla hvalveiðar að nýju yrði að kanna einnig, hvort það þjónaði hagsmunum okkar að sækja aftur um inn- göngu í Alþjóðahvalveiðiráðið. Eins og kunnugt er gekk Is- land úr ráðinu eftir að það hafði samþykkt núllkvóta á hvalveið- ar í heiminum, sem Alþingi mótmælti ekki á sínum tíma. Norðmenn völdu hins vegar þá leið, að mótmæla núllkvóta- ákvörðuninni en vera samt áfram innan ráðsins. Aðildar- þjóðir ráðsins hafa ennfremur gert með sér samkomulag um, að engin þeirra megi kaupa hvalafurðir af þjóð sem standi utan ráðsins. Þorsteinn sagði, að þegar þar að kæmi þyrfti að skoða hvort hagsmunum okkar í sambandi við hvalveiðar væri bezt borgið með því að ganga aftur í Aiþjóðahvalveiðir- áðið með fyrirvörum - þá þeim helztum, að við sættum okkur ekki við núllkvóta-samþykktina - eða með því að standa áfram utan ráðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.