Morgunblaðið - 08.10.1996, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.10.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996 17 LAIMDIÐ Ný loftmyndatækní Egilsstöðum - Loftmyndir ehf. er nýtt fyrirtæki sem stofnað var af Hönnun og ráðgjöf á Reyðarfirði og ísgraf í Reykjavík. Fyrirtækið sérhæfir sig í töku loftmynda úr flugvélum og sölu gagna sem byggja á þeim. Sl. sumar og nú í haust hefur verið á vegum fyrirtæk- isins Cessna 402 flugvél frá Kamp- sax-Geoplan í Danmörku með áhöfn og öllum búnaði til loftmyndatöku. Einnig var vélin með GPS búnaði sem tengdist jarðstöð sem komið var upp á Sprengisandi þannig að allar myndir sem teknar voru eru staðsettar í landskerfi íslands. Teknar voru um 1.500 myndir í ýmsum flughæðum af um 20 stöð- um á landinu samkvæmt verksamn- ingi við Vegagerð ríkisins og einnig voru um 20 þéttbýlisstaðir myndað- ir í lágflugi. Þar fyrir utan voru teknar myndir í háflugi af heilum landshlutum og má þar nefna Reykjanes, höfuðborgarsvæðið, Borgaríjörð, Fljótsdalshérað ög uppsveitir Suðurlands. Tæknin breytir vinnuaðferðum Markmið fyrirtækisins er að beita nýjustu tölvutækni við úrvinnslu myndanna og bjóða notendum líka tölvutæk gögn auk stækkaðra mynda. Þessi GPS tækni við mynda- tökur gerir mögulegt að staðsetja myndir í hinu nýja mælineti sem verið er að taka í notkun á Islandi. Landmælingar sem áður voru kostnaðarsamur verkþáttur við kortagerð eftir loftmyndum eru með þessarri tækni óþarfar. Nýtist víða Notendur sem geta verið sveitar- félög, tæknistofnanir og almennir landeigendur geta nú keypt loft- myndir sem búið er að fjarlægja úr alla bjögun vegna mishæða í landi. Þar með skapast möguleikar á því að búa til uppdrætti sem sýna rétt flatarmál lands og eru þar með fullnægjandi gögn vegna t.d. þing- lesninga landa og lóða. Einnig eru þessi gögn tilvalin þegar skipu- leggja á sumarbústaðalönd og jafn- vel heila landshluta. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir JÓHANNES Pálsson, Kurt Olesen flugmaður og Jens Bille Ijósmyndari og siglingafræðingur. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir HERMANN Valsson æskulýðs- og íþróttafulltrúi kynnti Iþróttaskólann. Iþróttaskóli barna á Héraði Egilsstöðum - íþróttafélagið Hött- ur á Egilsstöðum, Ungmennafélag- ið Huginn í Fellum og Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs hafa stofnað íþróttaskóla barna á Héraði. íþróttaskólinn býður íþrótta-, leikja- og hreyfiþjálfun fyrir börn á aldrinum 3ja til 9 ára. Haldinn var kynningarfundur um íþróttaskólann og mættu um 40 foreldrar til fundarins. Hermann Valsson æskulýðs- og íþróttafulltrúi Egilsstaðabæjar kynnti þá hug- mynd sem liggur að baki skólanum og því starfi sem honum er ætlað að vinna. íþróttaskólinn er nýjung í íþróttaþjálfun yngri barna á Hér- aði og byggist á því að veita þeim alhliða þjálfun og tækifæri til að kynnast flestum greinum íþrótta og um 10 ára aldur velji þau síðan greinar innan íþróttafélaganna til áframhaldandi íþróttastarfs. Formaður stjórnar íþróttaskólans er Ágústa Björnsdóttir og íþrótta- kennarar eru Árni Ólason, sem kennir 3ja til 5 ára börnum, Kristín Einarsdóttir og Jón Karlsson sem kenna 6 til 9 ára. Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson STURLA Guðbjarnarson við Grímsá með væna hrygnu og í baksýn má sjá son hans Sölva. Klaklax til hrognatöku Borgarfirði - Um þetta leyti árs lýkur laxveiði í ám og eigendur farnir að huga að því að taka klak- lax til að hjálpa náttúrunni að auka veiði næstu ára í ánum. Fyrir nokkru fór Sturla Guð- bjarnarson í Fossatúni með fríðu föruneyti að ármótunum við Odds- skarð í Grímsá til að draga á og verða sér úti um klaklax til hrognatöku. Vel gekk að ná laxin- um og var „snurpað" í tveimur hyljuin og var afraksturinn um fjörutíu laxar, þar af var helming- urinn mjög vænn til hrognatöku. „Þetta eru fínar hrygnur. Þessi er til dæmis af gamla Grímsár- stofninum, jafn þykkur alla leið aftur,“ sagði Sturla þar sem hann stóð yfir búrunum sem laxinn var settur í, minni hængnum var sleppt með þeim orðum að koma aftur að ári. Síðan var laxinum ekið heim að Fossatúni þar sem hann var settur í ker og bíður þess að rétti tíminn sé til að kreista hann. Sturla hefur verið með seiðaeldi mörg undanfarin ár og nú hefur honum borist liðsauki í fiskeldinu þar sem sonur hans Sölvi hefur lokið námi frá Bændaskólanum á Hólum í fiskeldi. Sölvi er kominn með bleikjueldi og er hann með nýjan stofn sem vex allt að helm- ingi hraðar en Hólastofninn sem hann er einnig með í eldi. LflUTflSmflRI 5 - KDPflUOGI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.