Morgunblaðið - 08.10.1996, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.10.1996, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR t Elsku litla dóttir okkar og barnabarn, ERNA KAREN HERMANNSDÓTTIR, andaðist á fæðingardeild Landspítalans þann 4. október sl. Bryndis Björk Másdóttir, Hermann Bjarki Rúnarsson, Jóhanna Gissurardóttir, Már Hinriksson, Bryndís Hanna Magnúsdóttir, Rúnar Hauksson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og mágur, INGÓLFUR HANNESSON, Skólastíg 14a, Stykkishólmi, andaðist föstudaginn 4. október. Maria Jónsdóttir, Ingveldur Ingólfsdóttir, Jens Óskarsson, Eva Rún Jensdóttir, Sigriður Jónsdóttir. t Móðir okkar og tengdamóðir, HREFNA SIGURJÓNSDÓTTIR, áðurtil heimilis á Ægisgötu 20, Akureyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 6. október. Jarðarförin ákveðin síðar. Anna Þorsteinsdóttir, Júlíus Bergsson, Árni Þorsteinsdóttir, Ásdi's Sigurpálsdóttir, Erlingur Þorsteinsson, Eygló Óladóttir, Sfmon Þorsteinsson, Ósk Pétursdóttir. t Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, KARL KRISTJÁN SVEINSSON, fyrrverandi kennari, andaðist á Heilsugæslustöð Reykjavíkur 5. október. Örn Karlsson, Hellen Gunnarsdóttir, Gunnar Örn Arnarson, Ellert Arnarson. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURJÓN EINARSSON skipasmíðameistari, áður á Garðstfg 1, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudag- inn 6. október. Katrín Sigurjónsdóttir Thorarensen, Vigdfs Sigurjónsdóttir, Haukur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t KETILL R. SIGFÚSSON, Háteigsvegi 22, Reykjavík, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtu- daginn 3. október. Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. október kl. 15.00. Vandamenn. Minningarathöfn um STURLU JÓNSSON fyrrv. hreppstjóra frá Súgandafirði, fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudag- inn 10. október kl. 10.30. Útför fer fram frá Suðureyrarkirkju laug- ardaginn 12. október kl. 14.00. Eva Sturiudóttir, Guðni Þ. Jónsson, Sigrún Sturludóttir, Þórhallur Halldórsson, Kristfn Sturludóttir, Guðbjörn Björnsson, Jón Sturluson, Sigurbjörg Björnsdóttir, Eðvarð Sturluson, Arnbjörg Bjarnadóttir. RAKEL BJÖRNSDÓTTIR + RakeI Bjöms- dóttir fæddist í Reykjavík 20. júní 1919. Hún lést á Landspítalanum 28. september síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar vora Guðrún Brynjólfsdóttir, f. 7.8. 1876, d. 1947, og Björa Sumarliði Jónsson, f. 20.10. 1881, d. 1961. Systk- ini hennar eru Elín Anna, f. 20.7. 1907, Kristín, f. 4.11. 1908, Jóna Rannveig, f. 25.6. 1911, Kristján, f. 1913, dó sama ár, Birna Guðrún, f. 27.3. 1914, d. 1973, Brynjólfur Krist- inn, f. 29.12.1917, d. 1975, Samú- el, f. 21.2. 1916, d. 14.2. 1991, og María, f. 3.12. 1920. Eftirlifandi eigin- maður Rakelar er Páll Þórðarson, f. 9.12. 1913. Böm þeirra eru Þórður Krislján, f. 22.10. 1943, maki Koibrún Anna Karlsdóttir, f. 1.2. 1946, börn þeirra Páll, Kristín og Edda; Birna Svala, f. 1.3. 1946, fyrri maki Garðar Andrésson, f. 28.4. 1934, d. 24.2. 1980, börn þeirra Rakel, Stefán og Ólöf; seinni maki Sigurmundur Har- aldsson, f. 2.5.1946, barn þeirra Guðrún Ösp. Útför Rakelar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku mamma okkar, við þökkum þér fyrir allt það góða sem þú gerð- ir fyrir okkur. Þú huggaðir okkur þegar eitthvað bjátaði á og gladdist með okkur á okkar góðu stundum. Megi góður Guð styrkja föður okkar á þessum erfiðu tímum. Einnig vilj- um við þakka starfsfólki deildar 11E á Landspítalanum fyrir góða umönn- um í þessum erfíðu veikindum. Hún er konan, sem kyrrlátust fer og kemur þá minnst þig varir og les úr andvaka augum þér hvert angur, sem til þín starir. Hún kemur og hlustar, er harmasár hjörtun í einveru kalla. Hún leitar upp hvert tregatár. Hún telur blöðin, sem falla. Og hún er þögul og ávallt ein og á ekki samleið með neinum. Því hún er sorgin, sem sefar hvert mein, og sífellt leitar að einum. (Tómas Guðmundsson, Sorgin.) Þín börn, Þórður og Birna. Elsku sæta amma mín. Nú er komið að kveðjustundu og ég kveð þig með trega í hjarta og tár á kinn. Ég veit að þú ert alltaf hjá mér og styrkir mig og strýkur með þinni mjúku hendi, eins og þú hefur ætíð gert er við hittumst. Þegar ég sat og kúrði hjá þér síðustu nóttina tal- aði ég mikið við þig og ég veit að þú skynjaðir mig því þegar ég kvaddi þig um morguninn með kossi opnað- ir þú augun. Þá vissi ég að þú varst Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR ÍIÓTEL LöFTLE IIIIH að kveðja mig í hinsta sinn. Ég er þér ævinlega þakklát fyrir það. Amma litla, þegar við hittumst aftur handan við hæðina, tökum við upp þráðinn á ný og ég fæ aftur að sjá þitt elskuiega bros. Það verða sko fagnaðarfundir. Elsku afi, ég bið Guð að styrkja þig og vernda á þessum erfiðu tíma- mótum. En mundu, að amma er aldr- ei lang^ undan. Ykkar einlæg, Edda. Með nokkrum orðum langar mig að minnast og kveðja ömmu mína. Amma var alltaf að pijóna lopapeys- ur, sokka og vettlinga og ef eitthvað þurfti að lagfæra var hún tilbúin til þess. Hún hafði alltaf tíma til að sinna barnabömunum sínum og síð- ar langömmubörnunum. Hún lék við þau, sýndi þeim myndaalbúmin sin og las fyrir þau bækur. Hún var glaðlynd og hafði gaman af að hitta fólk. Elsku amma mín, hafðu þökk fyr- ir allt og Guð geymi þig. Kristín Þórðardóttir. Elsku amma mín. Ég hefði ekki getað átt yndislegri ömmu, ég geymi allar stundir sem við áttum saman í hjarta mínu. Þegar þú greindist með krabba- mein vorum við öll slegin en þú sagð- ist ætla að ná þér aftur. Lyfjameð- ferðin gekk vel og allt leit vel út. En þá dattst þú niður og varst flutt á spítala. Það var erfitt að horfa upp á þig svona veika en þú hresstist við og allt gekk vel í smá tíma. En þú áttir ekki eftir að snúa heim aft- ur og síðustu dagana sem þú lifðir vissum við hvert stefndi. En ég hef reynt að sannfæra mig um að þetta væri þér fyrir bestu. Þá kom það mér samt á óvart þegar ég hringdi upp á Landspítala til að vita hvernig þér liði, það var kannski tilviljun, að ég hringdi sömu mínútuna sem þú skildir við eða þú hefur kannski verið að kalla á mig. Þú máttir aldrei neitt aumt sjá. Þó þú værir fárveik hafðir þú meiri áhyggjur af líðan annarra í kringum þig en af sjálfri þér. Þegar ég kom í heimsókn var einstaklega vel tekið á móti mér og helst bakaðar vöffl- ur. Þér fannst svo gaman að halda veislur. Það var haldið upp á öll af- mæli og þó þið væruð flutt í litlu íbúðina á Sléttuveginum vildirðu fá okkur öll í kaffi. Þú lést þig ekki vanta ef það var afmæli og fannst svo gaman að gefa gjafir. FALLEGIR OG LISTRÆNIR LEGSTEINAR JsíensÁ /lönnun 157o AFSLATTUR Á GRANÍTSTEINUM AFGREIÐSLAN OPIN KL. 13-18. - Nýbýlavegi 30, Dalbrekkumegin Kópavogi. Sími: 564 3555 Amma mín, þú varst svo barngóð að börn hændust að þér. Þegar ég var barn leið varla sá sunnudagur að við kæmum ekki til þín. Það var alltaf jafn gaman og iðulega þegar maður var að fara stakkstu ein- hveiju lítilræði að manni sem afi mátti ekki vita af. Ég veit að þú vildir ekki að ég yrði skírð í höfuðið á þér, því þér fannst nafnið ekki fallegt en ég fann það oft að þú varst ánægð með að eiga nöfnu. Þú varst hreykin af okk- ur barnabörnunum og langömmu- bömunum og þreyttist ekki á að segja hvað við værum mörg og end- aðir á að segja: Og ég sem átti bara tvö börn. Við eigum dýrmæta minningu um þig því síðasta afmælisgjöfin sem þú gafst okkur voru mjög fallegar lopapeysur sem þú pijónaðir. Þau ljós sem skærast lýsa þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Ég kveð þig nú, amma mín. Ég veit að þér líður vel þar sem þú ert núna og fylgist með okkur öllum. Elsku afi minn, Þórður, og mamma, megi guð styrkja ykkur. Rakel. Nú er langamma orðin að engli með hinum englunum. Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn, - augun spyija eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? Lítill sveinn á leyndardómum lífs og dauða kann ei skil: Hann vill bara eins og áður ömmu sinnar komast til. Hann vill fá að hjúfra sig að hennar bijósti sætt og rótt. Amma er dáin - amma fínnur augasteininn sinn í nótt. Lítill drengur leggst á koddann - lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá, amma brosir amma kyssir undurblitt á kollinn hans. Breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins litla manns. (Jóhannes úr Kötlum) Elsku amma, megi englarnir geyma þig fyrir okkur. Langömmubörnin Jón Þór, Þórður, Snæbjörn, Kolbrún og Edda. Mig langar að minnast í fáum orðum, heiðurskonunnar Rakelar Bjömsdóttur. Ég kynntist henni og Páli, þegar bróðir minn kvæntist inn í fjölskyldu þeirra. Það sem er svo minnisstætt eftir þessi kynni er hvað þeim var annt um alla í kringum sig og fylgdust vel með hvernig aðrir hefðu það. Rakel var alltaf hress og kát og lét sig ekki vanta þegar haldið var upp á afmæli langömmubarnanna og kom jafnvel eftir að hún var orð- in veik og hafði gengið í gegnum erfiða læknismeðferð. Það var að- dáunarvert að fylgjast með henni, alltaf hressust af öllum og hvers manns hugljúfi. Rakel gerði mikið af því að gleðja aðra, t.d. með handavinnu sinni eða skemmtilegum samræðum og góð- um ráðum, alltaf svo lífsglöð og skemmtileg. Hún var eins við alla, það skipti ekki máli hvort það var hennar nánasta fjölskylda eða fjöl- skylda mín sem tengdist henni ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.