Morgunblaðið - 18.03.1997, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997 B 5
INNANHÚSSMEISTARAMÓTIÐ í SUNDI
þá kemur í ljós hvort það nægir
til framfara.“
Á myndunum að ofan má sjá
Kolbrúnu á fleygiferð í 200 m
baksundinu á sunnudaginn en
þar var hún önnur um leið og
hún setti telpnamet og síðan með
silfurverðlaunin fyrir sundið.
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
Rosalega gaman
KOLBRÚN YR Kristjánsdóttir
sundstúlka frá Akranesi minnti
hressilega á sig á mótinu um
helgina og setti sjö telpnamet
og tvö stúlknamet, en stúlkna-
flokkur er næsti aldursflokkur
fyrir ofan. Tíunda metið hjá
henni kom er hún setti, ásamt
stöllum sinum, stúlknamet í
4x200 m skriðsundi. Kolbrún er
á 14. ári en hefur eigi að síður
skipað sér í fremstu röð hér á
landi í kvennaflokki og komið
Akranesi inn á sundkortið á ný,
en sikt hið sama gerði frænka
hennar, Ragnheiður Runólfs-
dóttir, fyrir hálfum öðrum ára-
tug eða svo.
„Þetta hefur verið einstaklega
skemmtileg helgi,“ sagði Kol-
brún í samtali við Morgunblaðið.
„Þessi árangur um helgina hefur
komið mér inn í A-landsliðið og
það er ég að sjálfsögðu mjög
ánægð með. Árangurinn hefur
verið góður og ég hef bætt mig
mikið." Aðspurð hvort frekari
framfarir væru væntanlegar
sagði hún. „Ég geri bara mitt
besta í hvert sinn sem ég keppi,
HJALTI Guðmundsson sem er til vinstri er hér
ásamt félaga sínum hjá SH, Þorvarðl Sveins-
syni, að loknu 200 m bringusundi.
Arnari Frey Ólafssyni og Ævari
Emi Jónssyni. Þess má til gamans
geta að þetta var síðasta metið sem
Eðvarð Þór setti áður en keppnis-
skýlan hans fór upp á hiliu. Stór-
sveit SH var að þessu sinni skipuð
Emi Amarsyni, Hjalta Guðmunds-
syni, Ómari Snævari Friðrikssyni
og Davíð Frey Þórunnarsyni. „Við
vomm nálægt metinu í bikarkeppn-
inni í haust og vissum að það yrði
ekki langt að bíða eftir að við næð-
um því, aðstæður þyrftu bara að
vera réttar og þær vom það svo
sannarlega að þessu sinni," sagði
Öm, einn liðsmanna, glaðbeittur.
Eftir glæsilega frammistöðu tvo
fyrstu dagana buðu sundmenn ekki
upp á neitt slor á lokadegi mótsins
og strax í fyrstu grein féll enn eitt
íslandsmetið og vafalítið var það
sund hápunktur mótsins. Öm og
Sigurgeir háðu hörkueinvigi í 400
m skriðsundi karla þar sem vart
mátti greina hvor var á undan þess-
ar tæpu ijórar mínútur sem sundið
stóð yfir. Eitthvað hiaut að gefa
sig og ekki vom það sundmennimir
heldur rótgróin met. Öm kom fyrst-
ur í mark á 3.58,29
pg setti sitt fyrsta
íslandsmet í full-
orðinsflokki upp á
eigin spýtur og
bætti 10 ára gam-
alt met Ragnars
Guðmundssonar,
Ægi, um hálfa
sekúndu. Um leið
féll 13 ára gamalt
piltamet Eðvarðs
Þórs, en það var
4.00,40 mín. Sig-
urgeir synti á sín-
um besta tíma til
þessa, 3.59,29
mín. Þar með hafa
íjórir íslenskir
sundmenn synt
þessa grein á
undir fjórum
mínútum. „Ég
vissi að þetta
sund yrði hníf-
jafnt og metið
félli, spumingin
var bara sú
hvor yrði á und-
an og það varð
Öm, en báðir
syntu þeir frá-
bærlega eins og
tíminn gefur til
kynna,“ sagði
Laine sund-
þjálfari Ægis.
Hjalti tvíbætti
Lára Hmnd og Sunna Dís Ingi-
bjargardóttir, Keflavík, háðu einnig
einvígi í sömu grein kvenna og
hafði Lára betur, en ekkert met
féll. En áhorfendur þurftu ekki að
bíða lengi eftir fleiri metum því í
næstu grein lét Hjalti til skarar
skríða í 200 m bringusundi og
bætti eigið met í greininni sem
hann hafði sett um morguninn. Þá
hafði hann synt
feikivel og komið í
mark á 2.17,76
sem var 28/100 úr
sekúndu betra en
gamla met hans.
En í úrslitunum
fékk hann góða
keppni frá Magn-
úsi Konráðssyni og
þá var ekki að sök-
um að spyija. Met-
ið féll aftur og nú
kom Hjalti fyrstur
í mark á 2.16,82
mínútum. Þriðja
íslandsmet hans á
mótinu var stað-
reynd. „Ég fann
það í morgun að
ég átti meira inni svo ég bætti í
seglin og gerði betur svo ég er nú
mjög sáttur við árangurinn. Þetta
getur ekki orðið betra í bili en ég
reikna með að geta gert enn betur
þegar líður fram á vorið," sagði
Hjalti og mátti vera stoltur með
árangurinn. „Ég fann fyrir þreytu
eftir laugardaginn en í dag var ég
mikið betri."
Annar sundmaður var ekki síður
ánægður er hann kom í mark í sinni
grein, en það var Halldóra Þorgeirs-
dóttir, Ægi, eftir öruggan sigur í
200 m bringusundi kvenna. Hún
kom í mark á 2.39,89 mín., sem
er reyndar ekki íslandsmet en mikil-
vægur áfangi hjá þessari ungu
sundkonu. „Eg bætti mig um tvær
sekundur og er þriðja konan hér á
landi sem kemst undir 2,40 mínútur
í greininni. Aðeins Ragga Run
(Ragnheiður Runólfsdóttir) og
Bima (Bjömsdóttir) eiga betri tíma.
Ég er því mjög ánægð, ekki bara
með árangurinn í þessu sundi held-
ur einnig helgina í heild."
Öm haféi ekki sagt sitt síðasta
orð, áður en yfír lauk hafði harni
bætt tveimur piltametum til viðbót-
ar í safnið. í 100 m baksundi sigr-
aði hann á 57,53 sekúndum og
bætti piltametið um 6/100 úr sek-
úndu. Þá synti hann sinn 100 m
sprett í 4x100 m skriðsundi á 53,27
sek., en gamla metið var 53,50 sek.
Kolbrún bætti safnið
Hin 13 ára gamla Kolbrún frá
Akranesi sló hedur ekki slöku við
á síðasta degi og setti tvö telpna-
met og það með skömmu millibili.
Fyrst hafnaði hún í 2. sæti í 100 m
baksundi á 1.06,43 mín., sem er
nýtt telpnamet. Fyrra metið var
1.07,73 mín. Loks var komin röðin
að henni í 100 m skriðsundi þar sem
hún kom fyrst í mark á 58,59 sek.
en gamla metið var 59,38. í þessu
sundi sigraði hún m.a. Elínu Sigurð-
ardóttur, SH. Elín varð önnur á
59,50 og Lára Hrund þriðja á 59,66.
Áttunda og síðasta íslandsmetið
sem sett var á mótinu kom met-
hafanum á óvart. Það var er Eydís
bætti eigið íslandsmet í 100 m
skriðsundi um 23 hundraðshluta úr
sekúndu, synti á 1.03,77. Metið
kom Eydísi á óvart, sem fyrr sagði,
enda hafði hún sagt að ekki væri
stefnt á íslandsmet að þessu sinni.
„Ég vissi að ég væri sterk og ætl-
aði að reyna að fara undir 1,05
mínútur, en þetta var góð uppbót
á helgina," sagði Eydís. „Það var
gott að bæta eigið met en það stóð
á sléttri 1,04 mínútum og það hefur
verið erfíður múr að komast yfir,
en metið er gott og gerir mér gott
upp á framhaldið að gera,“ bætti
hún við.
„Þetta mót hefur í heild verið
frábært og það hefur verið gaman
að fylgjast með hversu margir ung-
ir sundmenn eru að koma upp. Þá
á ég ekki eingöngu við þá sem sigra
og setja met heldur einnig alla hina
sem hafa bætt sig verulega í hverri
greininni á fastur annarri.“
Metnaður
og skipulag!
ÞRÁTT fyrir ungan aldur
hefur Eydís Konráðsdóttir
úr Keflavík verið í fremstu
röð sundkvenna hér á landi
i nokkur ár. Það hefur þýtt
að hún hefur þurft að leggja
mikla alúð og rækt við æfíng-
ar. Ekki hvað síst sl. vetur
erhún bjó sig undir þátttöku
á Ólympíuleikunum sem
fram fóru í Atlanta i fyrra-
sumar. Nú í vetur hefur Ey-
dís æft af krafti fyrir heims-
meistaramótið í sundi sem
fram fer i næsta mánuði í
Gautaborg. Þetta hefur ekki
komið niður á námi hennar
við Fjölbrautaskólann á Suð-
umesjum þvi hún hyggst
Ijúka þaðan stúdentsprófí á
náttúruf ræðibraut ári fyrr
en hefðbundið er því hún
verður 19 ára á þessu ári.
Er hún var spurð hvernig
þetta væri hægt sagði hún
stutt og laggott; „Með metn-
aði og sldpulagi." Geri aðrir
betur þvi auk þessa er hún
í tónlistarnámi.
■ HÓPUR keppenda gisti í hús-
næði Verkakvennafélagsins Snót-
ar sem ekki væri í frásögur fær-
andi nema sökum þess að í næsta
húsi er skemmtistaður og bæði á
föstudags-. og laugardagskvöldið
var dansleikur á skemmtistaðnum
þar sem rokkhljómsveit lék fyrir
dansi með tilheurandi gauragangi.
Fyrir vikið varð sundfólkinu ekki
svefnsamt fyrr en langt var liðið
á nóttina.
■ KAKLASVEIT SH setti glæsi-
legt íslandsmet í 4x100 m flór-
sundi á laugardaginn, 3.54,67 mín-
útur og bætti fyrra metið um rúma
hálfa sekúndu. Árangurinn er enn
betri þegar á það er litið að tveir
af fjórum liðsmönnum sveitarinnar
eru enn í piltaflokki, þeir Örn
Arnarson og Ómar Snævar Frið-
riksson. Öm og Ómar era þar á
ofan bræðrasynir.
■ ERNI ARNARSYNI tókst á
mótinu að verða fyrstur íslenskra
sundmanna til að ná lágmarki
fyrir Evrópumeistaramót fullorð-
inna sem fram fer í Sevilla á
Spáni í ágúst. Lágmarkinu náði
hann í 200 m baksundi er hann
kom fyrstur í mark á 2.01,13
mínútum um leið og hann setti
glæsilegt piltamet.
■ PETTERI Laine sem þjálfað
hefur hjá Sundfélaginu Ægi sl. 5
ár hætti sem þjálfari félagsins í
mótslok en hann hefur verið ráðinn
einn af þjálfurum finnska lands-
liðsins 5 sundi.
■ EKKI hefur verið ráðinn þjálf-
ari hjá Ægi í stað Laine en félag-
ið hefur verið í sambandi við þýsk-
an mann sem nú er einn þjálfara
hjá úrvalsliði Berlínarborgar. Er
Þjóðverjinn væntanlegur til fundar
við forráðamenn félagsins í næsta
mánuði og kemur þá í ljós hvort
af ráðningu verður.
■ ANNA Lára Ármannsdóttir
sundkona frá Akranesi var í móts-
lok valin efnilegasta sundkona
mótsins. Friðfínnur Kristinsson,
Selfossi varð fyrri valinu hjá
piltunum.
■ ÖRN Amarson sundmaður úr
SH fékk flest stig karla 891 stig
fyrir að synda 200 m baksund á
2.01,13 mínútum.
■ EYDIS Konráðsdóttir frá
Keflavík fékk flest stig kvenna 839
talsins fyrir að synda 100 m bak-
sund á 1.03,77 mínútum semjafn-
framt er nýtt íslandsmet.