Morgunblaðið - 18.03.1997, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997 B 7
HAIMDKIMATTLEIKUR
Stjarnan lagði KA
STJARNAN stendur vel að vígi
sem væntanlegur fulltrúi í und-
anúrslitum íslandsmótsins í
handknattleik eftir sigur á KA
á Akureyri í gær. Þessi fyrri eða
fyrsti leikur liðanna var annars
með ólíkindum og mætti skrifa
langt mál um allt annað en
handbolta, til dæmis dómar-
ana, áhorfendur eða bara
fróma ritgerð um lundarfar
fólks sem byggir þetta norð-
læga land. Jæja, handboltinn
verður ofan á og leikurinn end-
aði 14:17. Staðan þvíKA 0,
Stjarnan 1.
Hilmar Þórlindsson Stjörnumað-
ur skoraði fyrsta mark leiks-
ins eftir 29 sekúndur og bætti öðru
v’ð eft'r 3ja mínútna
Stefán Þór leik. Staðan því 0:2
Sæmundsson og Hilmar átti eftir
skrifar frá að skora 7 mörk
Akureyn áður en hann fór
meiddur út af þegar rúmar 11 mín.
voru til leiksloka. Hann var öflug-
asti sóknarmaðurinn í þessum leik.
KA-menn komust brátt á blað og
staðan var jöfn, 3:3, eftir 10 mín-
útna leik. Varnir liðanna voru sterk-
ar og Ingvar varði vel í marki
Stjömunnar. í stöðunni 3:5 kom
ótrúlegur leikkafli. Stjarnan skoraði
ekki mark í tæpar 13 mínútur og
KA þó ekki nema þijú og komst í
6:5. Á þessum kafla varði Ingvar
þrjú vítaskot. Björgvin, Jakob og
Duranona urðu allir að láta í minni
pokann fyrir þessum snjalla mark-
verði. Stjarnan gerði síðan tvö síð-
ustu mörkin í hálfleiknum og staðan
6:7.
Undir lokin á þessum strembna
hálfleik fékk Árni Stefánsson, liðs-
stjóri KAj aðvömn frá dómurum
leiksins. Árni lét sér ekki segjast
og hélt áfram að mótmæla uns
hann var rekinn út af með rautt
spjald. Dómararnir, Gísli Jóhanns-
son og Hafsteinn Ingibergsson, áttu
eftir að koma mikið við sögu, KA-
mönnum til hrellingar.
Sóknarnýtingin var aðeins skárri
í seinni hálfleik. Stjarnan breytti
stöðunni úr 6:7 í 6:11 á fyrstu sjö
mínútunum. Þar voru Hilmar og
Konráð að verki. KA-menn brenndu
enn af víti, Ziza skaut í þverslá.
Pyrsta mark KA kom eftir ríflega
8 mínútur. Skömmu síðar varð allt
vitlaust í KA-heimilinu, fyrst eftir
átölulaust brot á Sævari Árnasyni,
síðan þegar dæmt var mark af KA.
Áhorfandi rauk inn á völlinn og
Óli Ólsen eftirlitsdómari vísaði hon-
um úr húsi. Síðustu 20 mínúturnar
var allt á suðupunkti. KA minnkaði
muninn í 10:12 þegar Stjörnumenn
tóku sér tíu mínútna hlé í marka-
skorun. Þegar 4,34 mín. voru eftir
var staðan 12:15 og þá tóku KA-
menn tvo úr umferð. Sævar skoraði
tvö mörk í röð úr hraðaupphlaupi.
Það fyrra var sögulegt. Ingvar
markvörður lenti undir Sævari og
gaf honum kjaftshögg og uppskar
2ja mínútna brottvísun. Margir
vildu sjá rautt spjald þarna. Staðan
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
var nú 14:15 og 3 mínútur eftir en
Stjörnumenn skoruðu tvö síðustu
mörkin og sigruðu verðskuldað.
Maður leiksins var án efa Ingvar
Ragnarsson sem varði að minnsta
kosti 23 skot og þar af 3 vítaskot.
Hilmar var sterkur meðan hans
naut við og Konráð hélt uppi merki
hans í skyttustöðu í seinni hálfleik.
Hjá KA var varnarleikurinn góður.
Guðmundur Arnar varði þokkalega
í fyrri hálfleik. Sóknin brást hins
vegar eins og tölfræðin sýnir
glöggt; 14 mörk úr 42 sóknum.
Sagt eftir leikinn
„Við verðskuldum ekki að fara í
undarúrslit með því að leika eins
og við gerðum í kvöld. Sóknarleik-
urinn hjá okkur var skelfilegur, en
vörnin og markvarslan voru í lagi,“
sagði Alfreð Gíslason, þjáfari KA,
eftir leikinn og var þungur á brún.
„Ég á aðeins eitt orð yfír þennan
leik, ánægja,“ sagði Valdimar
Grímsson, þjálfari Stjörnunnar.
„Þetta var mjög erfíður leikur, en
lykillinn að velgenginni er góð liðs-
heild sem við sýndum í kvöld og
svo ekki sé minnst á stórkoslega
markvörslu Ingvars."
„Stóri bróðir" lagður að velli
Haukar komust í gærkvöldi yfir
fýrsta hjallann á leið sinni í
úrslitaleikina um íslandsmeistara-
titilinn, en þangað
ætlar Hafnarfjarð-
arliðið sér. Haukar
tóku í gær á móti
„stóra bróður úr
Reykjavík“, Val, og sigruðu, 27:22,
eftir jafnan og spennandi leik.
Haukar höfðu frumkvæðið lengst
af í fyrri hálfleik þrátt fyrir að
Guðmundur Hrafnkelsson, mark-
vörður Vals, væri í miklu stuði.
Aðrir leikmenn Hlíðarendaliðsins
voru á hálfum hraða, en hrukku í
gang eftir hálfleikinn og skoruðu
þá úr sex fyrstu sóknum sínum -
en þar með var allt loft úr Vals-
strákum; komust í 15:13 en náðu
ekki að fylgja því eftir.
Það vantaði nokkra leikmenn í
liðin. Hjá Haukum voru þeir
Baumruk og A.ron fjarri góðu gamni
en Þorvarður Tjörvi Ólafsson tók
stöðu leikstjórnanda og skilaði hlut-
verki sínu með mikilli prýði. Það
vantar hins vegar mikið í vörn
Hauka þegar Baumruk er ekki
með. Þorkell Magnússon byrjaði illa
en kom mjög sterkur til leiks þegar
tíu mínútur voru eftir og gerði þá
fimm mörk. Bjarni varði þokkalega
undir lokin, en „við vorum að hugsa
um það í hálfleik að skipta um
markvörð, en ákváðum að bíða,“
sagði Sigurður Gunnarsson, þjálfari
Hauka, eftir leikinn. Hann sagðist
ánægður með sigurinn og það hefði
tekist ágætlega að brúa það bil sem
fastamenn í liðinu skildu eftir sig.
Hjá Val vantaði Alsírbúann Aziz
Mihoubi og óvíst hvort hann getur
leikið meira með Val í vetur. „Þetta
verða víst að verða þrír leikir, við
getum ekki komist áfram með öðr-
um hætti úr því sem komið er,“
sagði Jón Kristjánsson, þjálfari
Vals, og var óhress með hvernig
botninn datt úr leik liðsins undir
lokin. Guðmundur var góður í mark-
inu, sérstaklega í fyrri hálfleik en
aðrir leikmenn geta allir gert bet-
ur. Það á raunar við um leikmenn
beggja liða; þeir gerðu allt of mikið
af mistökum í gærkvöldi.
Sigfús G.
Guðmundsson
skrifar
Þannig vörðu þeir
Varin skot (knötturinn aftur
til mótheija innan sviga).
Bergsveinn Bergsveinsson,
Aftureldingu, 14 (5): 6(3)
langskot, 3(1) úr horni, 2 eftir
gegnumbrot, 2(1) af línu, eitt
eftir hraðaupphlaup.
Suk Hyung Lee, FH, 20/1
(8): 9(5) langskot, 5(2) eftir
hraðaupphlaup, 3(1) eftir
gegnumbrot, 2 úr horni og eitt
vítakast.
Bjarni Frostason, Haukum,
10/3 (2): 4(1) langskot, 3 víta-
köst, 2(1) eftir gegnumbrot,
eitt úr horni.
Guðmundur Hrafnkelsson,
Val, 18/1 (4): 11(1) langskot,
2(1) úr homi, 2(2) eftir gegn-
umbrot, eitt vitakast, eitt af línu
og eitt eftir hraðaupphlaup.
Guðmundur A. Jónsson, KA,
10 (3): 6 (2) langskot, 3 (1)
úr homi, 1 af línu.
Hermann Karlsson, KA 4
(2): 1 (1) langskot, 2 (1) af
línu, 1 eftir gegnumbrot.
Ingvar Ragnarsson, Stjörn-
unni: 23/3 (7/3): 11 (1) lang-
skot, 3 (1) gegnumbrot, 2
hraðaupphlaup, 3 (1) horn, 1
(1) lína, 3 (3) víti. _
Sigmar Þröstur Óskarsson,
ÍBV, 12 (4): 10 (4) langskot,
2 úr horni.
Reynir Þ. Reynisson, Fram
11/1 (2): 5 (1) langskot, 2 (1)
úr horni, 1 gegnumbrot, 1 ví-
takast, 2 af línu.
„Fyrsta skrefið"
Þetta var fyrsta skrefið, en það
er erfið barátta framundan,"
sagði Þorbergur Aðalsteinsson,
þjálfari ÍBV, sem
lagði Fram að velli
20:18. „Bæði liðin
léku sterkan varnar-
leik, þannig að
menn áttu í erfiðleikum í sóknar-
leiknum. Við eigum vissulega
möguleika á að endurtaka leikinn,
leggja Framara að velli á heima-
velli þeirra - ef ekki, þá eigum við
heimaleik til góða.“
Guðmundur Guðmundsson, þjálf-
ari Fram, sagði að sínir menn hefðu
ekki leikið vel, ekki eins og lagt var
upp með. „Við vissum að við urðum
að ná toppleik til að fagna sigri.
Ég er ekki hræddur við næsta leik
- mig dauðlangar að koma hingað
aftur.“
Leikurinn var leikur hinna sterku
vama, heimamenn höfðu yfirhönd-
ina mest allan leikinn. Framarar
gengu vel út á móti heimamönnum
og Eyjamenn tóku ekki neinum
vettlingatökum á sóknarleikmönn-
um Fram - það var járn í jám.
Leikmenn Fram náðu aðeins að
skora eitt mark fyrstu fímmtán mín.
leiksins, þannig að heimamenn náðu
yfirhöndinni þó að munurinn hafí
aldrei verið mikill, 9:7, í leikhléi.
Framarar náðu að jafna 11:11
þegar tuttugu mín. voru til leiks-
loka, síðan aftur 14:14. Eyjamenn
svöruðu þá með þremur mörkum
og vom sterkari á lokasprettinum.
Varnarmenn ÍBV léku vel og
fyrir aftan þá var Sigmar Þröstur
Óskarsson góður í markinu. Fram-
arar léku einnig prýðisgóða vörn,
þar sem Reynir Þór Reynisson var
sterkur í markinu. Daði Hafþórsson
bar nánast uppi sóknarleik Fram,
skoraði tíu mörk. Leikmenn eins
og Oleg Titov og Magnús Arnar
Arngrímsson náðu aldrei að losna
úr strangri gæslu heimamanna.
Brann hefur
beðið Birki
og Jan Ove
afsökunar
„VIÐ ætluðum aldrei að lög-
síekja Brann, eins og hefur
komið fram í blððum hér og
háar peningakröfur sem hafa
verið nefndar, eru stórlega
ýktar,“ sagði Birkir Kristins-
son, landshðsmarkvörður, en
norsk blðð sögðu frá því um
helgina að hann og Jan Ove
Pedersen hefðu ákveðið óska
eftir skaðabótum vegna þess
að þeir geta ekki leikið í
Evrópukeppni bikarhafa
vegna mistaka Brann. „Við
höfum í langan tíma óskað
eftir afsökun frá Brann og
að forráðamenn Iiðsins viður-
kenndu mistök sín opinber-
lega. Sögusagnimar um lög-
sókn hófust eftir að við
sáumst ásamt lögfræðingi
frá Ósió á SAS-hótelinu hér
í Bergen á laugardaginn. Það
einkennilegasta við þetta mál
er að það voru forráðamenn
lýá Brann sem láku fréttum
í fjölmiðla og var það greini-
lega gert til að klekkja á
okkur. Það fór allt upp í háa-
loft og mikU fundarhöld hafa
verið vegna málsins, sem var
að ná farsæUi lausn. Brann
hefur beðið okkur afsökunar
opinberlega. Við erum
ánægðir með það, gerum
engar kröfur og höfnuðum
peningagreiðslum sem okkur
voru boðnar. Málið er komið
á hreint, sem betur fer - það
er ánægjulegt að sættir hafa
náðst fyrir seinni leikinn
gegn Liverpool," sagði Birk-
ir.
Þess má geta að fjölmiðlar
í Noregi sögðu frá því að
kröfur Birkis hafi verið sjö
miHj. ísl. kr. og Jans Oves
11,5 milU. kr.
Stórt skref hjá ÍR-ingum
Valur B.
lónatansson
skrifar
IR-ingar stigu mikilvægt skref í að
halda sæti sínu í 1. deild með því
að vinna Selfyssinga, 22:19, í Selja-
skóla í gær. ÍR þarf
aðeins einn sigur til
viðbótar til að halda
sæti sínu í deildinni
og fá til þess tvo
leiki. Það er hins vegar að duga eða
drepast fyrir Selfoss að vinna á
heimavelli á miðvikudagskvöld, ann-
ars verður hlutskipti liðsins að falla
í 2. deild.
ÍR-ingar léku vel í fyrri hálfleik
og lögðu þá grunninn að sigrinum.
Vörnin var sterk og sóknir þeirra vel
útfærðar af Ragnari sem leikstjórn-
anda. Á sama tíma stóð ekki steinn
yfir steini hjá Selfyssingum. Sóknar-
leikurinn í molum og markvarslan
nánast engin.
Breiðhyltingar héldu uppteknum
hætti í upphafi síðari hálfleiks og
voru komnir með átta marka for-
skot, 15:7, þegar rúmar tíu mínútur
voru liðnar. Þá héldu þeir að sigurinn
væri í höfn og einbeitingin hvarf.
Selfyssingar gengu á lagið með mik-
illi baráttu og góðum leik Björgvins
Rúnarssonar og Gísla Guðmundsson-
ar í markinu náðu þeir að minnka
muninn í tvö mörk, 20:18, þegar
fimm mín. voru eftir. Allt í einu var
komin spenna í leikinn. Selfoss fékk
síðan möguleika á að minnka muninn
í eitt mark en Hrafn varði vel frá
Björgvini úr horninu og þá var sigur-
inn í höfn.
„Sigurinn var auðvitað sætur. En
við lærum vonandi mikið á þessum
leik. Eftir að hafa náð öruggri for-
ystu var óþarfí að missa forskotið
niður í tvö mörk,“ sagði Matthías
Matthíasson, þjálfari ÍR. „Við verð-
um að halda einbeitingunni út allan
leikinn og við komum til með að
gera það í leiknum á Selfossi. Við
ætlum að vinna í tveimur leikjum."
„Við lékum mjög illa í fyrri hálf-
leik. ÍR-ingar voru betri og sigur
þeirra var sanngjam. Við emm orðn-
ir vanir að vera í þessari stöðu og
okkur gengur yfirleitt best undir
álagi,“ sagði Guðmundur Karlsson,
þjálfari Selfoss, eftir tapið. „Ég get
lofað því að það verður tekið vel á
móti IR á Selfossi þvi við ætlum að
koma hingað í Seljaskóla aftur á
fostudag. Eg vona að við fáum ekki
sömu dómara og í þessum leik, enda
vom þeir mjög slakir og ekkert sam-
ræmi í dómum þeirra. Þeir em ekki
hæfir til að dæma svona spennuleiki."
al með góða stöðu
ferðir eru eftir. Bad Schwartau
fylgir fast á eftir með 48 stig.
Hansa Rostock er í þriðja sæti
með 45 stig.
í 1. deild á Lemgo á meistara-
titilinn nokkuð vísan eftir 25:22
sigur á Hameln um helgina en
Daniel Stephan var í sérflokki
með 12 mörk. Liðið er nú með
44 stig og 7 umferðir eftir.
Flensburg, sem tapaði 29:18 fyr-
ir Magdeburg, er í öðru sæti
með 35 stig og síðan kemur Ni-
ederwiirzbach með 30 stig. Önn-
ur úrslit um helgina voru þau
að Grosswallstadt vann Minden
38:26 og var Sigurður Bjarnason
með þijú mörk fyrir Minden,
Wallau Massenheim vann Gum-
mersbach 28:19 og Nieder-
wiirsbach burstaði Héðin Gils-
son og félaga í Fredenback,
31:17, en Héðinn var með eitt
mark.
SOKNARNYTING
Fyrsti leikur liðanna í úrslitakeppni
íslandsmótsins, leikinn á Akureyri
mánudaginn 17. mars 1997.
Mörk Sóknlr %
6 21 29 F.h 7 21 33
8 21 38 S.h 10 21 48
14 42 33 Alls 17 42 40
4 Langskot 8
2 Gegnumbrot 1
4 Hraðaupphlaup 3
1 Horn 3
1 Lína 0
2 Víti 2
SOKNARNYTING
Fyrsti leikur liðanna í úrslitakeppni
(slandsmótsins, leikinn í Vestmanna-
eyjum mánudaginn 17. mars 1997.
ÍBV
Mörk Sóknir %
Fram
Mörk Sóknlr
9 20 45 F.h 7 20 35
11 22 50 S.h 11 23 48
20 42 48 Alls 18 43 42
6 Langskot 7
1 Gegnumbrot 2
1 Hraðaupphlaup 1
2 Horn 2
6 Lína 1
4 Víti 5
SOKNARNYTING
Fyrsti leikur liðanna í úrslitakeppni
(slandsmótsins, leikinn í Hafnarfirði
mánudaginn 17. mars 1997.
Haukar
Mörk Sóknir %
Valur
Mörk Sóknir %
11 26 42 F.h 9 25 36
16 30 53 S.h 13 31 42
27 56 48 Alls 22 56 39
5 Langskot 6
4 Gegnumbrot 5
6 Hraðaupphlaup 4
3 Hom 2
6 Lina 3
3 Vítí 2