Morgunblaðið - 24.04.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1997 23
ERLENT
■
Slysavarnafélag íslands
leitar eftir myndum og munum
í tilefni 70 ára afmæli félagsins árið 1998 auglýsir félagið eftir
gömlum Ijósmyndum úr sögu félagsins. Einnig munum sem
tengjast sögu þess. Eftirtökur yrðu teknar af myndunum og
Ijósmyndir teknar af mununum.
Öllum myndum og munum verður skilað aftur til eigenda
samkvæmt samkomulagi þar um.
Ef þú átt myndir eða muni í fórum þínum,
vinsamlegast hafðu samband við Einar S. Arnalds
hjá félaginu í síma 562 7000.
Slysavarnafélag íslands
Fiskimenn
hindra
flutninga
VÖRUBÍLAR sjást hér í biðröð,
sem myndaðist á M20-hraðbraut-
inni nærri Ashford syðst í Eng-
landi í gær eftir að franskir fiski-
menn gripu til þess ráðs að hindra
siglingar feija yfir Ermarsund.
Fiskimennirnir eru að mótmæla
nýjum reglum Evrópusambands-
ins (ESB) um stærri möskva í
netum sem má nota til veiða í fisk-
veiðilögsögu ESB.
----♦ ♦ «-
Raðmorðin í Belgíu
Kennsl bor-
in á eitt
fórnarlamb
Mons. Reuter.
LÖGREGLU í Belgíu hefur tekizt
að bera kennsl á eitt fórnarlamba
raðmorðingja, sem hefur fyllt bæj-
arbúa Mons skelfingu á undanförn-
um vikum með því að skilja eftir
plastpoka með líkamspörtum allt að
sex fómarlamba sinna á ýmsum
stöðum í bænum. Á blaðamanna-
fundi í gær bar aðstoðarsaksóknar-
inn í málinu, Didier Vanreusel, hins
vegar til baka fréttir sem birzt höfðu
í belgískum blöðum þess efnis, að
lögregla hefði handtekið mann grun-
aðan um að vera morðinginn.
Alls hafa fundizt 15 plastpokar
með líkamspörtum. í einum var búk-
ur eins fórnarlambsins, og í öðrum
höfuð. Höfuðið er af líki konunnar,
sem kennsl hafa verið borin á. Það
er af belgískri konu úr héraðinu.
Hennar hafði ekki verið formlega
saknað.
Gönguskór
Reuter