Morgunblaðið - 13.02.1999, Page 36

Morgunblaðið - 13.02.1999, Page 36
36 LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Tilboð um að eignast skuldir Fjármál fjölskyldunnar Njótið nú - greiðið síðar. Skilaboð sem þessi dynja á okkur alla daga og mörgum sinnum á dag. Elín Sigrún Jónsdóttir segir að þau efnislegu gæði sem við getum notið í dag séu nær takmarkalaus, óháð raunverulegri greiðslugetu. BIRST hafa auglýsingar sem segja eitthvað á þessa leið: Látum ekki áhyggjur af fjármálum íþyngja okkur að óþörfu. Skiptið jóla- greiðslukortareikningnum á 12 mánuði með einu símtali - hringdu núna! Látið drauminn um sumarleyfi verða að veruleika. Dreifið sumarleyfinu á 36 mán- uði! Notir þú greiðslukortið nógu oft eru auknar iíkur á að ein greiðsla falli út! Kaupið bíl núna, fyrsta afborgun er í september og þú greiðir lánið upp á 7 ár- um! Það er í raun áleitin spuming hvemig hægt er að aðstoða heimilin við það að standast þessi gylliboð. Hvemig geta þau metið það á sjálfstæðan hátt hvort tilboðið sé gott, hvort það henti nú, hvers virði kaup- in em, hver kostnaðurinn verði þegar upp er staðið og þá ekki síst hver sé fómar- kostnaður fjölskyldunnar? Að velja slíkan verslunarmáta hefur oft í fór með sér fjölg- un vinnustunda og auknar fjarvistir frá bömum og heimili svo ekld sé talað um and- vökunætumar. Við sem vinnum við ráðgjöf til skuld- settra heimila sjáum allt í kring um okkur að heimilin standast einfaldlega ekki þessi tilboð, án þess að hafa fjárhagslegt bol- magn til kaupanna sem era dýra verði keypt. I mörgum tilvikum er jafnvel heilsa og líf í veði. Það er mildlvægt að leitast við að svara spurningum um það hvernig bregðast megi við þessu flóði tilboða um að eignast skuldir. Breytingar á lánamarkaði Miklar breytingar hafa átt sér stað á lánamarkaðnum á allra síðustu árum. Það heyrir sögunni til að „höfuð“ fjölskyldunn- ar panti tíma hjá bankastjóra, fari í spari- fötin og sitji þar á bekk milli vonar og ótta um að fá lán. Stynji síðan upp beiðni um 600.000 kr. lán í von um að fá 300.000 kr. í stað skorts á fjármagni er framboð af lánsfé nú mikið og samkeppnin um að ná í lántakendur er hörð. I dag er hraðinn mikilvægastur. Nú skiptir máli að geta af- greitt lánið hjá bílasalanum eða þar sem viðskiptin fara fram. Lánsfjármarkaður hefur á örskömmum tíma breyst úr eftir- spurnarmarkaði í framboðsmarkað. Og lántökurnar hafa ekki látið á sér standa. I skýrslum Þjóðhagsstofnunar og Seðlabanka má lesa um ógnvænlega þróun. Heimilin era að auka skuldir sínar svo um munar. Hvar endar þessi þróun? Það er ekki hægt að loka augunum og segja að all- ir nýju bílarnir á götum Reykjavíkur séu dæmi um góðæri. Er það kannski dæmi um lífsgæði að kaupa sér jeppa á 3 milljónir á bílaláni til 7 ára? Lítil neytendafræðsla I þessu sambandi er mikilvægt að skoða það hvemig íslenskt samfélag hefur staðið vörð um sína neytendur. Hvaða fræðslu fá heimilin? Það er augljóst þegar við lítum til reynslu nágranna okkar á Norðurlöndum að við eram mörgum áram ef ekki mörgum áratugum á eftir á þessu sviði. Neytenda- fræðsla er nánast engin og flóð tilboða flæðir yfir heimilin án þess að þeim sé veitt aðstoð til vamar. Gylliboðin eru ekki einka- mál markaðsaflanna, það verður að sporna við, leitast við að jafnvægi ríki milli þekk- ingar kaupanda og seljanda og umfram allt þarf að veita heimilum stuðning til sjálf- stæðrar ákvarðanatöku. 0Framvegis mun Elfn Sigrún Jónsdóttir, forstöðunmður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, skrifa reglulega pistla á neytendasíðu STEFANIA Valdís Stefansdottir, aðjunkt í heimihsfræði við Kenn- araháskóla íslands, ásamt nemendum sínum Elísabetu Sigurðardótt- ur, Guðlaugu Sveinsdóttur, Júlíu Ágústsdóttur, Guðmundu Magnús- dóttur, Sigrúnu Eggertsdóttur og Ingu Hrönn Grétarsdóttur. Nemendur á lokaári í heimilisfræði Mikil sykurneysla grunnskólabarna GRUNNSKÓLABÖRN borða að meðaltali tæplega 2 dl af sykri á dag,“ segja verðandi heimilis- fræðikennarar í Kennaraháskóla íslands um leið og þeir benda á sykurmagn í ýmsum fæðutegund- um sem börn neyta oft daglega. I vikunni kynntu lokaársnemar í heimilisfræði greinina fyrir fyrstaársnemum og settu upp sýningu í sal skólans. Kennarinn þeirra, Stefanía Valdís Stefánsdóttir, segir að heimilisfræðin hafi veigamiklu hlutverki að gegna í grunnskól- um landsins, ekki síst með breytt- um aðstæðum í þjóðfélaginu. „Það eru ýmsar blikur á lofti hvað varðar breyttar matarvenj- ur barna og unglinga. Við búum í neysluhvetjandi samfélagi og freistingar sem bjóðast eru mis- hollar. Svo virðist sem þessi til- boð nái meira til barna og ung- linga en einnig virðast neyslu- hættir á heimilum vera að breyt- ast. Þessu til staðfestingar eru engar rannsóknir en við verðum vör við að börn hafa einhæfan matarsmekk sem er tengdur því sem mest er verið að ota að þeim í umhverfinu. Börn og unglingar vilja pítsur, pítur, kók, franskar kartöflur og kokteilsósu." - Er hefðbundni heimilismatur- inn á undanhaldi? „Ég hallast að því að svo sé. Það þarf ekki annað en að Ii'ta í frystikistur stórmarkaða. Úrvalið af hálftilbúnum réttum eykst sí- fellt, fólk vinnur mikið og hefur sennilega ekki orku til að elda þegar heim er komið.“ Stefanía Valdís segir að heim- ilisfræðikennarar leggi áherslu á að kenna börnum og ungling- um að búa til hollan og fljótleg- an heimilismat, sjóða til dæmis einfalda fisk- og kjötrétti, og leggi áherslu á grænmeti og ávexti og að dregið sé úr fitu og sykri. „Við reynum að kenna þeim að bjarga sér sjálf og velja sér holla fæðu í stað þess að panta pítsu eða kaupa hálftil- búna rétti." gcfur okkur '|L|Imflrorflr hli™- iugar? Veist þú hvað það er mikið áf jsykri í þessu góðgæti? 'Wt <Trif. ******'&* '■jfi'nnr i ÞAÐ er athyglisvert að sjá hversu mikil fita leynist í einni lítilli dós af kokkteilsósu. Morgunblaðið/Árni Sæberg í EINNI lítilli femu af Svala em næstum átján litlir sykurmolar (núorðið ávaxta- og þrúgusykur) og mörg börn drekka jafnvel tvo Svala í skólanum daglega. ÓYKURNEYSLA ÚT Á MORGUMRORU: 1 m&.'rfir dítí. gtfur IoSjr, pr.viku aj ST kq 'jfirór'iS\ ItJ* ')fir dik. qefW 3Sr. frviku aj lt k} -rtir M | ÞAÐ skiptir máli hvernig við smyrjum brauðsneiðina okkar. Ef við smyijum brauðið ríkulega er líklegt. að við inn- byrðum þetta magn af viðbiti á ári. AÐ meðaltali borðar grunn- skólabam sem samsvarar tæplega 2 dl af sykri á dag. EINS og sést á þessari mynd sem heimilis- fræðinemar út- bjuggu getur sykurmagnið í morgunkorninu leynt á sér. ÓYKUHlNNÍHALD NOKKURM AL6£n&Rí }i,\y (■*■■*#■» <í#r ■—i,y U, IrHj-o MfP Mok&unkorna , uaxo vm> /ptsK u »n st-y. : iwm« ■ «■*». Skf’ II i I I I i fri' 'ly ‘V.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.