Morgunblaðið - 13.02.1999, Síða 76

Morgunblaðið - 13.02.1999, Síða 76
SEXFALDUR 1. VINNINGUR flfamgtiftMfifeife MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍM16691100, SÍMBRÉF 569 1181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ(ri>MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Árni Sæberg LÖGREGLUMENN leiða ræningjann út úr húsinu við Kleppsveg skömmu fyrir klukkan 23 í gærkvöldi. Maður rændi versl- un vopnaður sveðju GRIMUKLÆDDUR síbrotamað- -^fSr vopnaður sveðju framdi rán í 11-11 verslun í Norðurbrún seint í gærkvöldi. Hann ógnaði tveimur starfsmönnum verslunarinnar, pilti og stúlku, með vopninu og neyddi þau til að afhenda honum um 100 þúsund krónur í pening- um. Tilkynnt var um ránið kl. 22.15 og var maðurinn handtekinn í íbúð á Kleppsvegi um 20 mínút- um síðar. Starfsmenn verslunarinnar urðu strax við kröfu mannsins og afhentu honum peningana. Við svo búið forðaði hann sér út úr versl- uninni á hlaupum í norðurátt. Lögregla var fljót á staðinn og p^dgdist sérstaklega með tveimur húsum í hverfmu þar sem vitað er að afbrotamenn venja komur sín- ar. Sáu lögreglumenn von bráðar mann sem lýsing starfsmannanna átti við inni í stigagangi húss við Kleppsveginn. Lögreglan réðst til inngöngu í íbúð í húsinu og fann LÖGREGLAN t.ekur skýrslur af afgreiðslufólkinu í verslun 11-11. þar manninn. Undir rúmi í íbúð- inni fannst gríman sem hann not- aði við ránið og vopnið auk pen- inganna. Maðurinn er síbrotamaður og hefur nýlega lokið við að afplána dóm vegna ráns. Hann hefur einnig værið dæmdur fyrir ofbeld- isverk. Þetta er fjórða ránið sem framið er i sölutumi eða matvöraverslun í Reykjavík á síðastliðnum þremur vikum. I öllum tilvikunum var af- greiðslufólki ógnað. Síðastliðið sunnudagskvöld rændi hettuklæddur maður rúm- lega 30 þúsund krónum úr sölu- turni við Eddufell. 3. febrúar sl. ógnaði maður, vopnaður dúka- hnífi, sautján ára gamalli af- greiðslustúlku í söluturni við Grundarstíg og rændi nokkrum þúsundum króna úr peningakassa. 28. janúar var framið rán í lítilli matvöruverslun við Stórholt. Ræninginn, sem huldi andlit sitt með hettu, ógnaði fímmtán ára gamalli afgreiðslustúlku og sló hana og hafði á brott með sér 7-8 þúsund krónur úr peningakassa verslunarinnar. A síðasta ári upplýsti lögreglan sextán af átján ránsmálum, sem til- kynnt vora til hennar, og þar af vora sjö mál upplýst í einu eftir hrinu rána. Lífeyrissjóður verzlunarmanna Sjdðfé- lagalán hækkuð í fjórar milljónir LÍFEYRISSJÓÐUR verzlun- armanna hefur ákveðið að tvö- falda lánsfjárhæð til félaga sjóðsins, úr tveimur í fjórar milljónir kr., auk þess sem sjóðfélögum gefst kostur á allt að 30 ára lánstíma. Vextir lán- anna, sem era breytilegir, miðast við vexti húsbréfa á Verðbréfaþingi með 75 punkta álagi og era því u.þ.b. 5,1% nú. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri sjóðsins, segir að lántökuskil- yrði hafi einnig verið rýmkuð og þarf sjóðfélaginn einungis að hafa greitt til lífeyrissjóðs í tvö ár í stað þriggja áður, auk þess sem tími milli lána hefur verið styttur úr 4 áram í 3 ár. „Lánað er gegn fasteignaveði allt að 55% af metnu markaðs- verði en þó ekki umfram 50% af branabótamati," segir Þor- geir. Hann segir að hugsunin á bak við hækkun lánveitinga til sjóðfélaga sé sú að bæta þjón- ustu sjóðsins við þá sem þang- að greiða. Þannig verði sjóðfé- lögunum sparaður milliliða- kostnaður lánastofnana en fasteignaveðtryggðar lánveit- ingar þeirra séu með frá 0,5% hærri vöxtum en lánveitingar lífeyrissjóðsins. Sjóðfélagar fengu 1,1 milljarð að láni í fyrra Á síðastliðnu ári lánaði Líf- eyrissjóður verzlunarmanna 1,1 milljarð til sjóðfélaga sinna, sem er 39% hærri fjár- hæð en á árinu 1997. Utistandandi lán til sjóðfélaga námu 7,2 milljörðum í árslok eða 12% af eignum lífeyris- sjóðsins sem þá vora 60,9 milljarðar. Félögum sjóðsins fjölgaði mikið á síðasta ári eða um 14% og hækkuðu móttekin iðgjöld um 21% og vora 3,8 milljarðar. „Mikil fjölgun sjóðfélaga stafar meðal annars af góðri raunávöxtun sjóðsins á liðnum áram, sem var 7,7% á síðasta ári og litlum kostnaði við rekstur sjóðsins, eða sem nemur 0,04% af eignum,“ seg- ir Þorgeir. Skemmdu þrjá bfla TVÆR stúlkur, fimmtán og sextán ára, voru handteknar í gærkvöldi eftir að hafa unnið skemmdaiverk á þremur bifreiðum við Skólavörðu- stíg. Voru bæði speglar og hurðir bíl- anna skemmdar. Lögi’eglan handtók stúlkurnar skömmu eftir verknaðinn og flutti á ^lSiigreglustöð þar sem foreldrar þeirra sóttu þær. Eignir íslendinga í erlendum verðbréfum hafa stóraukist á undanförnum misserum SIGURÐUR B. Stefánsson, fram- kvæmdastjóri VÍB, sagði á morgun- verðarfundi fyrirtækisins í gær, að margir lífeyrissjóðir væru komnir að því að nýta til fulls lagaheimildir um fjárfestingar og aðrir jafnvel rúmlega það. Sagði hann að eignir Islendinga í erlendum verðbréfum, og þá fyrst og fremst lífeyrissjóðanna, stefndu í að verða nálægt 100 milljörðum króna á næsta ári. Ef svo færi væru ekki nema tvö ár í það að ávöxtunin af þessum eignum yrði ámóta og nýir fjármunir til fjárfestinga á hverju ári. Nálgast 100 milljarða Nauðsynlegt þykir að rýmka tak- mörkun í lögum um 35% hámarks- fjárfestingu lífeyrissjóða í hlutabréf- um. Þetta kom fram í ávarpi fjár- málaráðherra sem flutt var af Ragn- heiði Árnadóttur, aðstoðarmanni fjármálaráðherra. Fram kom í ávarpinu að gera mætti ráð fyrir að lífeyrissjóðii1 og aðrar fjármálastofnanir ættu eftir að koma í auknum mæli inn í fjármögnun ým- issa mannvirkja sem hingað til hafa verið fjármögnuð af ríkissjóði, t.d. samgöngu- og orkumannvirkja. Þessi þróun væri eðlileg, og þá væri athygl- isverð sú þróun að lífeyrissjóðimir væru að hasla sér völl í fjármögnun íbúðarlána í samstai’fi við lánastofnan- ir án milligöngu ríkis og sveitarfélaga eða sjóða á þeirra vegum. ■ Þörf á/24

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.