Morgunblaðið - 09.04.1999, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999 54
Dos Hermanas 1999
Spánn 5.- 18. apr íl
Nr, Nafn Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Vinn. Röð
1 illescas Cordoba 2585 1 1 1 3.-7.
2 Boris Gelfand 2691 1 fr. 1/2+fr. 8.
3 Judit Polgar 2677 1 0 1 3.-7.
4 Michael Adams 2716 1 1 1.5 1.
5 Vladimir Kramnik 2751 1 1 1 3.-7.
6 Anatoly Karpov 2710 1 1 1 3.-7.
7 Peter Svidler 2713 0 1 0.5 9.-10.
8 Viswanathan Anand 2781 0 1 0.5 9.-10.
9 Viktor Korchnoi 2673 fr. 1 1+fr. 2.
10 Veselin Topalov 2700 1 1 1 3.-7.
Judit Polgar sigrar
Anand glæsilega
SKAK
Spánn
DOSHERMANAS
5.-18. apríl
ENN eitt stór-
mótið í skák er nú
hafið. Dos
Hermanas-skák-
mótið sem hófst á
Spáni hinn 5. apiíl
er nú haldið í tíunda
skiptið. Þetta er
lokað tíu manna
mót og meðalstig
keppenda em 2.700.
Indverski stór-
meistarinn Viswanathan Anand
er stigahæstur keppenda með
2.781 stig. Fyrirhugað var að
Morozevich tæki þátt í mótinu, en
hann varð að hætta við á síðustu
stundu vegna veikinda. Boris
Gelfand hljóp þá í skarðið.
Tveimur umferðum er nú lokið
á mótinu. Mesta athygli vakti
glæsilegur sigur Judit Polgar á
Anand strax í fyrstu umferð. Ju-
dit sigraði mjög örugglega í skák-
inni og leitun er að annarri eins
meðferð á jafn sterkum skák-
manni.
Hvítt: Judit Polgar (2.677)
Svart: Viswanathan Anand
(2.781)
Sikileyjarvörn [B81J
l.e4 c5 2.Rf3 d6 3.d4 cxd4
4.Rxd4 Rf6 5.Rc3 a6 6.Be3 e6
7.g4 Þessi leikur felur í sér
mannsfóm. 7...e5 Anand afræður
að taka áskorunni og framundan
eru miklar flækjur. Aðrir mögu-
leikar eru 7...h6 og 7... h5 8.Rf5
g6 9.g5 gxf5 10.exf5 d5 ll.Df3!?
Algengara hefur verið að leika
U.gxf6 d4 12.Bc4, en þannig hef-
ur fjöldi skáka teflst. Il...d4 12.0-
0-0 Rbd7 13.Bd2 dxc3
13.. .Dc7 14.Bd3 Rc5
15. Bc4 dxc3 16.Bxc3
Rfe4 17.Hhel Rxc3
18.Dxc3 Bg7 19.f6 0-0
og svörtum tókst að
bægja hættunni frá og
vann um síðir (Wed-
berg 2.465 - Novikov
2.545, Kaupmannahöfn
1991). 14.Bxc3 Bg7?!
Þetta mun vera nýr
leikur í stöðunni, en
sennilega ekki góður.
14.. .Dc7 15.Bd3 Bd6
16. Hhel með óljósri
stöðu (Ciburdanidze -
Cser, Pristina 1983).
15.Hgl! Það liggur
ekkert á að taka manninn. 15...0-0
16.gxf6 Dxf6 17.De3 Kh8 18.f4
Db6 Leiktap, en erfitt er að
benda á betri leiki. Ef 18...Dh6
19. Bc4! f6 20.Hg4 (undirbýr tvö-
földun hrókanna) 20...exf4 21.De7
með myljandi sókn. 19.Dg3 Dh6
20. Hd6! f6 21.Bd2 e4 22.Bc4
Hvítur hefur öll völd á borðinu.
22.. .b5 23.Be6! Ha7 Ef 23...Rc5
24.Be3 Rxe6 25.fxe6 (hótar f5)
25.. .Dg6 26.Dh3 Dh6 27.Dxh6
Bxh6 28.e7 He8 29.Hxf6 Bg7
30.HÍ8+! Hxfö 31.exföD+ Bxfö
32.Bd4+ Bg7 33.Hxg7 og vinnur.
24.Hc6
Svartm- er ótrúlega vamarlaus.
Það eina sem hann getur gert er
að hreyfa peðin! 24...a5 25.Be3
Hb7 26.Bd5 Hb8 27.Hc7 b4 28.b3!
Hvítur er ekkert að flýta sér.
28.. .Hb5 Ef 28...a4 29.bxa4 og við
hótuninni Ba7 er ekkert svar.
28.. .He8 29.Bc6 He7 30.Ba7 og
vinnur. 29.Bc6 Hxf5 30.Hxc8
Hxc8 31.Bxd7 Hcc5 32.Bxf5 Hxf5
33.Hdl Kg8 34.Dg2 Kfö og An-
and gafst upp eftir þennan leik
því eftir 35.Dxe4 blasir mátið við.
Hvílík meðferð! 1-0
Kasparov í Stanford
Gai-y Kasparov hefur verið
boðið að taka þátt í málþingi á
vegum Stanford-háskóla. Mál-
þingið er haldið á vegum hugvís-
indadeildar skólans og fjallar um
takmörk mannlegrar getu. Ka-
sparov tekur þátt í pallborðsum-
ræðum hinn 22. apríl. Það er
greinilegt að þátttaka Kasparov
vekur mikla athygli og er hann
eini þátttakandinn sem fær sér-
staka kynningu á vefsíðu mál-
þingsins.
Sævar teflir í Hampstead
Sævar Bjarnason, alþjóðlegur
meistari, tekur nú þátt í fimmtu
Hampstead-skákhátíðinni sem
hófst á miðvikudaginn. í fyrstu
umferð tapaði Sævar fyrir ensku
skákkonunni Jovanka Houska
(2.286). í annarri umferð teflir
Sævar við nýsjálenskan skák-
mann Alistair Compton (2.035).
Islandsmót grunnskólasveita
í stúlknaflokki
íslandsmót grunnskólasveita í
stúlknaflokki verður haldið
sunnudaginn 11. aprfl í húsa-
kynnum Skáksambands Islands
að Faxafeni 12, Reykjavík.
Hver skóli má senda fleira en
Judit
Polgar
eina sveit. Sveitirnar skipa fjórir
keppendur (auk varamanna).
Mótið hefst kl. 13 og tefldar
verða 7 umferðir, 2 x 15 mín. eftir
Monrad-kei-fi. Skráning fer fram
í síma Skáksambandsins 568 9141
kl. 10-13 virka daga og á skák-
stað.
Skólaskákmót Reykjavíkur,
einstaklingskeppni
Skólaskákmót Reykjavíkur
1999, einstaklingskeppni, hefst í
félagsheimili Taflfélags Reykja-
víkur að Faxafeni 12 mánudaginn
12. aprfl kl. 19. Tefldar verða níu
umferðir eftir Monrad-kerfí, ef
næg þátttaka fæst. Umhugsunar-
tími verður 30 mínútur á skák
fyrir hvern keppanda.
Keppnin skiptist í tvo aldurs-
flokka, eldri flokk fyrir nemendur
8.-10. bekkjar og yngri flokk fyr-
ir nemendur 1.-7. bekkjar.
Rétt til þátttöku eiga tveir
efstu menn í skákmótum grunn-
skóla í hvorum flokki fyrir sig,
alls fjórir. Ef forfóll verða, er
mögulegt, að fleiri en tveir kom-
ist að. Umferðataflan er sem hér
segir:
1.-3. umf. 12. apríl kl. 19-22
4.-6. umf. 13. aprfl kl. 19-22
7.-9. umf. 14. apríl kl. 19-22
Þrír efstu menn í hvorum
flokki þessara Reykjavíkurúrslita
fá rétt til þátttöku í Landsmóti
skólaskákar, sem fram fer um
mánaðamótin apríl-maí.
Þátttöku má tilkynna til Rík-
harðs Sveinssonar í síma 568
2990 eða 896 3969 eða til Ólafs H.
Olafssonar í síma 551 1971.
Atkvöld hjá Helli á mánudag
Taflfélagið Hellir heldur eitt af
sínum vinsælu atkvöldum mánu-
daginn 12. apríl og hefst mótið kl.
20. Mótið er haldið í Hellisheimil-
inu, Þönglabakka 1 í Mjódd.
Fyrst eru tefldar 3 hraðskákir
þar sem hvor keppandi hefur -5
mínútur til að ljúka skákinni og
síðan þrjár atskákir, með tuttugu
mínútna umhugsun.
Sigurvegarinn fær verðlaun,
mat fyrir tvo frá Pizzahúsinu. Þá
hefur einnig verið tekinn upp sá
siður að draga út af handahófi
annan keppanda sem einnig fær
máltíð fyrir tvo hjá Pizzahúsinu.
Þar eiga allir jafna möguleika, án
tillits til árangurs á mótinu.
Þátttökugjald er kr. 300 fyrir
félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára
og yngri) og kr. 500 fyrir aðra
(kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).
Allir eru velkomnir.
Síðasta atkvöld Hellis var hald-
ið í mars, en þá sigraði Þorvarður
F. Ólafsson. Þátttakendur vora
27.
Skákmót á næstunni
9.4. TR Helgarskákmót kl. 20
16.4. SI Islandsm. gunnskólasveita
19.4. Hellir. Fullorðinsmót.
23.4. Hellir. Klúbbakeppni.
25.4. Hellir. Kvennamót.
26.4. Hellir. Voratskákmót
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
INNLENT
Dagspítaladeild öldrun-
arsviðs SHR 20 ára
DAGSPÍTALADEILD öldranar-
sviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur hélt
upp á 20 ára afmæli sitt 20. mars sl.
Deildin var í upphafi og lengst af
ein af deildum Ríkisspítala með að-
setur í Hátúni 10, þar til um ára-
mótin 1996-97, en þá sameinaðist
öldrunarþjónusta Ríkisspítala og
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Markmið deildarinnar er að að-
stoða einstaklinginn við að auka og
viðhalda hæfni sinni til þess að
takast á við breytingar á heilsufari.
Reynt er að fá góða yfirsýn yfir að-
stæður hvers og eins og leita úr-
lausna í samvinnu við einstaklinginn.
Meðferðin er einstaklingsmiðuð.
Að endurhæfingu og meðferð
sjúklings koma ýmsir faghópar s.s.
hjúkrunarfæðingar, læknar, sjúkra-
þjálfarar, iðjuþjálfar og félagsráð-
gjafar.
Dagspítaladeildin þjónar fólki
sem býr heima en kemur til með-
ferðar ýmist tvisvar eða þrisvar
sinnum í viku og er meðferðartími
einstaklinga yfirleitt um 4-12 vikur.
Dagspítaladeildin er opin virka
daga frá kl 8-16 og koma um 30 ein-
staklingar á dag.
Lögð er áhersla á að stuðla að
andlegri, líkamlegri og félagslegri
færni og sem mestri sjálfsbjargar-
getu einstaklingsins.
LYNGHALS 3
Aukin þjónusta
Stóraukið vöruval
Afram lágt verð
Opnunartímar
kl. 8-18 virka daga
kl. 10 -14 laugardaga
MRbúöin
Lynghálsi 3
Sími: 5401125 *Fax: 5401120
Avallt í leiðinni ogferðarvirði
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Vorferð .
Víðistaða-
kirkju
VORFERÐ sunnudagaskóla Víði-
staðakirkju verður farin laugar-
daginn 10. apríl. Farið verður frá
Víðistaðakirkju kl. 13 og komið aft-
ur um klukkan 17.
Langholtskirkja. Opið hús kl.
11-13. Létt hreyfing og slökun.
Kyrrðar- og bænastund kl. 12.1(^..
Eftir stundina er súpa og brauð.
Laugarneskirkja. Mömmumorg-
unn kl. 10-12. Sjálfshjálparhópur
um sorg kl. 20.30.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía.
Unglingasamkoma kl. 20.30. Mikill
söngur. Allir velkomnir. Karlasam-
vera í neðri sal kirkjunnar kl.
20.30. Allir karlar velkomnir.
Sjöunda dags aðventistar á ís-
landi: A laugardag:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19:
Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjón-
usta kl. 11.15. Ræðumaður Kinst-
inn Ólafsson.
Safnaðarheimili aðventista, Bliká-.—
braut 2, Keflavík: Guðsþjónusta kl.
10.15. Biblíufræðsla að lokinni
guðsþjónustu. Ræðumaður Krist-
inn Ólafsson.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíurannsókn
kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17,
Vestmannaeyjum: Bibh'ufræðsla
kl. 10.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfirði: Samkoma kl. 11. Umsjóp.-
safnaðarfólk.
Samfélag aðventista, Sunnuhlíð
12, Akureyri. Biblíufræðsla kl.
10.30. Guðsþjónusta kl. 11.30.
Ræðumaður Finn F. Eckhoff.
Efni biblíufræðslu á öllum stöðum
er: Líkamlega eftir ímynd Guðs.
S úreímsvöri u*
Karin Herzog
Kynning
í dag frá kl. 14—18
í Selfoss Apóteki og
Vesturbæjar Apóteki.
- Kynningarafsláttur -
Ein vinsælasta
lækningajurt heimsl
Eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu, Akureyrj^