Morgunblaðið - 11.06.1999, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1999 29
Brottflutningur hersveita
Serbar verða að Ijúka brottflutningi hersveita sinna frá Kosovo til Serbíu
innan ellefu daga. NATO hefur ákveðið að fjórar leiðir verði notaðar við
liðsflutningana og munu nota njósnavélar og gervihnattamyndir til að
sannreyna brottflutninginn.
20 km
UTGONGULEIÐ
JUGOSLAVIA
UTGONGULEIÐ
Serbía
ÚTGÖNGULEIÐ
UTGONGULEIÐ
Tímaáætlun brottflutningsins
Gert er ráð fyrir að brottflutningur hersveita hefjist innan tveggja sólarhringa
eftir undirritun samkomulagsins.
Dagur 1 Dagur 6 Dagur 9 Dagur11
Svæði 3
Serbneskar her-
sveitir hefja brott-
flutning og sýna
fram á friðarvilja
sinn í verki
Svæði 1 Svædi 2 Svædi 3
I kjölfar brottflutn-
ings Serba mun
friðargæsluliðið
halda inn í Kosovo
og tryggja endur-
komu flóttamanna.
Næsta stig ein-
kennist af brott-
flutningi Serba frá
suður- og norður-
hluta Kosovo
Allar vopnaðar
sveitir Serba verðí
að hafa farið frá
Kosovo.
Al
Reuters
JÓHANNES Páll páfi hugleiðir við upphaf útimessu í pólska
bænum Siedlce í gær.
upp verði staðið. Hafa embættis-
menn NATO hins vegar lýst yfir
efasemdum um að rússneskar her-
sveitir verði með í fyrstu aðgerðum
fríðargæsluliðsins. Líklegra sé að
þær myndu taka þátt er hersveitir
Serba hafi yfirgefið Kosovo.
Bróðui-partur friðargæslusveit-
arinnar mun fara inn í Kosovo yfír
landamæri Makedóníu innan
nokkurra stunda eftir að sannað
hefur verið að Serbar hafi hafið
brottflutning hersveita. Er mark-
miðið að koma í veg fyrir að liðs-
menn UCK, sem heitið hafa því að
ráðast ekki á Serba á heimleið,
nýti sér tómarúmið sem kann að
myndast og nái völdum á hernað-
arlega mikilvægum svæðum. Ja-
mie Shea, talsmaður NATO, sagði
Tirana, Kukes. The Daily Telegraph, AFP.
ÓTTAST er að Frelsisher Kosovo
(UCK) búi sig nú undir að senda
þúsundir liðsmanna sinna frá Al-
baníu inn í Kosovo um leið og
serbnesku öryggissveitirnar fara
þaðan þótt yfirmenn uppreisnar-
hersins neiti því að hann hafi slíkt í
hyggju.
Vestrænir stjórnarerindrekar
óttast að hörð átök blossi upp í
vesturhluta Kosovo milli liðs-
manna UCK og vopnaðra hópa
serbneskra þjóðernissinna, sem
eru andvígir samkomulagi Jú-
góslavíuhers og NATO.
Pólitískur leiðtogi UCK, Hasim
Thaci, sem var tilnefndur forsætis-
ráðherra bráðabirgðastjómar
Kosovo fyrr á árinu, neitaði því í
gær að hreyfingin hygðist hefja
skæmhernað í héraðinu til að sölsa
undir sig svæði sem serbnesku ör-
yggissveitirnar fara af. •
Nokkrir foringjar í UCK sögð-
ust hins vegar vera að skipuleggja
liðsflutninga til borga í vesturhluta
héraðsins.
Bislim Zyrapi, „aðstoðarvarnar-
málaráðherra" UCK, sagði í gær
að liðsmenn UCK væru um 60.000
en vestrænir heimildannenn telja
það miklar ýkjur. Bandaríska
í vikunni að ekkert tómarúm yrði í
Kosovo, „sveitir NATO koma fast
á hæla sveitum Serba.“
Þá munu sérbúnar jarðsprengju-
leitarsveitir NATO fá upplýsingar
um hættumestu svæðin í Kosovo
og ryðja brautina. Talið er að
hættumesti hluti leiðar friðar-
gæsluliðsins frá Makedóníu verði í
Kacanik-fjallaskarðinu sem liggur
milli bæjarins Blace í Makedómu
og Kosovo. Skarðið sem er um 12
km langt, með tveimur jarðgöng-
um og 14 brúm, er talið vera fullt
af jarðsprengjum og munu sér-
sveitir NATO verða undir miklum
þrýstingi að hreinsa svæðið innan
nokkurra klst. A eftir sprengjuleit-
armönnum munu koma um 1.000
brynvarðir stórskotaliðssveita-
varnarmálaráðuneytið telur að
þeir séu um 15-17.000.
Hernaðarsérfræðingar segja að
margir ungir flóttamenn frá
Kosovo og Albanar, sem búið hafa
erlendis, hafi gengið í UCK. Þeir
hafi fengið litla þjálfun og skæru-
hernaður hreyfingarinnar hafi ver-
ið illa skipulagður.
Hernaðarmáttur UCK skertur
Frelsisher Kosovo undirritaði
ekki samning Júgóslavíuhers og
NATO og ekki er minnst á hann í
texta samningsins. Zyrapi og
Thaci sögðu þó að UCK hefði sam-
þykkt að draga úr hernaðarmætti
sínum.
Leiðtogar UCK segjast ætla að
hlíta anda samningsins og hafa lof-
að að ekki verði ráðist á serbnesku
öryggissveitirnar þegar þær fara
frá Kosovo. UCK er hins vegar
samsafn margra laustengdra hópa
skæruliða og ekki er víst að leið-
togar hans hafi hemil á þeim liðs-
mönnum hennar sem eru andvígir
markmiðum NATO þar sem
bandalagið ljær ekki máls á því að
Kosovo verði sjálfstætt ríki.
I friðarviðræðunum í Frakk-
landi fyrr á árinu var lagt til að
vagnar og skriðdrekar auk
Apache-þyrlna í lofti. Þá er talið að
flugsveitir fallhlífarhermanna
munu hafa loftleiðina rakleiðis til
Pristina. Er þessum áfanga hefur
verið náð munu hergagnasveitir K-
FOR íylgja í kjölfarið.
Ekki annað Austur-Þýskaland
Svæðaskipting Kosovo hefur
verið eitt helsta bitbein Rússa og
NATO. Þegar hefur verið ákveðið
að Bandaríkin, Bretland, Frakk-
land, Þýskaland og Ítalía, hernað-
arlega máttugustu ríki NATO,
muni stjóma sínu svæði í Kosovo
hvert. Hefur sú skipting verið sótt
til fyrirkomulags S-FOR, friðar-
gæslusveitarinnar í Bosníu og Her-
segóvínu. Samkvæmt þessu munu
Bretar sem hafa fyrir mestum
fjölda hermanna að ráða, stjórna
friðargæsluliðinu frá höfuðstöðvum
þess við flugvöllinn í Pristina.
Ekki er aðeins óljóst með fjölda
rússneskra hermanna í friðargæslu-
liðinu, enn á eftir að semja um hlut-
verk þeÚTa í fyrirkomulagi friðar-
gæslusveitanna, þ.e.a.s. hvemig
stjórn þeirra verði háttað. Rússar
hafa algerlega hafnað því að her-
sveitir þeirra lúti yfirstjóm NATO
og var reynt að komast að niður-
stöðu í því máli á löngum fundi hátt-
settra rússneskra og bandarískra
embættismanna í Moskvu í gær.
Rússar era sagðir vilja vera við
stjómvölinn á einu hinna þriggja
svæða í Kosovo og að þar verði ein-
göngu rússneskir hermenn sem
sinni friðargæslu. Bandaríkjastjóm
er alfarið á móti slíkum ráðahag þai-
eð slíkt myndi í raun þýða að
Kosovo-héraði væri formlega skipt
upp. Þar með væri Milosevic enn
nær upphaflegum mai-kmiðum sín-
um um „þjóðemishreinsanir". Ekki
væri óhugsandi að kröfur vöknuðu
um „eðlilegt" framhald slíks ráða-
hags, þ.e. að sameina yfirráðasvæði
NATO - þar sem íbúar yrðu flestir
Kosovo-Albanar - við Aibaníu og yf-
irráðasvæði Rússa, hugsanlega í
Norðaustur-Kosovo, við Serbíu. Þar
með væra markmið NATO með
hemaðaraðgerðunum á
Balkanskaga að engu orðin.
Nýverið sagði Robin Cook, utan-
ríkisráðherra Bretlands, að Kosovo-
hérað, undir stjóm NATO, yrði ekki
annað Austur-Þýskaland. Skipting
ríkisins væri óhugsandi. Markmið
NATO era ljós. Hitt er þó einnig
víst að lítið má bregða út af í þeirri
flóknu framkvæmd sem fram-
kvæmd friðargæslunnar í Kosovo
verður, svo neisti komi ekki að púð-
urtunnunni á Balkanskaga á ný.
hreyfingin yrði „afvopnuð" en
embættismenn NATO tala nú að-
eins um að skerða eigi hemaðar-
mátt hennar. Leiðtogar UCK og
NATO vonast til að ná samkomu-
lagi á næstu vikum um fjölda og
tegundir þeirra þungavopna sem
bandalagið vill að hreyfingin láti af
hendi, en vélbyssum og rifflum fær
hún að halda.
Embættismenn NATO vona að
kjarna UCK verði breytt í 3.000
manna lögreglusveit en Thaci
sagði í gær að hann vonaðist til
þess að ná samkomulagi við NATO
um að UCK yrði að „atvinnuher".
„Ég tel ekki að albönsk lögreglu-
sveit dugi í Kosovo,“ sagði hann.
Margir bandarískir embættis-
menn óttast að UCK reyni að
hefna sín á serbneskum íbúum
Kosovo, snúi sér að glæpastarf-
semi og valdi mikilli pólitískri tog-
streitu í Kosovo eftir að serbnesku
öryggissveitirnar fara þaðan.
„UCK mun halda öllum mögu-
leikum sínum opnum,“ sagði Ivo
Daalder, sérfræðingur í málefnum
Balkanskaga og fyrrverandi félagi
í Þjóðaröryggisráði Bandaríkj-
anna. „Það verður helsta vanda-
málið.“
Pólverjar
hvattir til að
halda trúnni
Siedlce. Reuters.
JÓHANNES Páll páfi ávarpaði í
gær 350.000 manns við útimessu
í pólska bænum Siedlce og skor-
aði á Pólverja að halda trú sinni
á Krist þótt þeir þyrftu ekki
lengur á kaþólsku kirkjunni að
halda til að veijast kommúnisma.
Áætlað er að 2,5 milljónir
manna hafi sótt útimessur páfa í
Póllandi frá því hann hóf þrettán
daga ferð um ættjörð sína á laug-
ardaginn var.
Kaþólska kirkjan gegndi
veigamiklu hlutverki í baráttunni
gegn alræðisstjórninni í Póllandi
eftir síðari heimsstytjöldina en
dregið hefur úr áhrifum hennar
meðal Pólverja á þeim áratug
sem liðin er frá hruni kommún-
ismans. Páfi hefur gefið til kynna
að hann hafi áhyggjur af þeirri
þróun og brýndi fyrir Pólverjum
að hafa alltaf trúna á Krist að
leiðarljósi í ávarpi sínu í gær.
„Á tímabilinu eftir stríð var
háð sérlega hörð barátta gegn
kirkjunni af hálfu alræðisstjórn-
ar,“ sagði páfi og minnti Pól-
verja, einkum unga fólkið, á
hvernig kommúnisiastjórnin
bannaði trúarfræðslu í skólum og
torveldaði kirkjunni að reisa ný
guðshús.
Páfi, sem er 79 ára að aldri,
virtist vel á sig kominn eftir að
hafa hvílt sig í einn dag í klaustri
í norðausturhluta landsins.
Iranar
handtaka
13 gyðinga
Teheran. Rcuters.
ÍRANSKA leyniþjónustan
segist hafa komið upp um
starfsemi njósnahrings „síon-
ista“, eða Israela, í suðurhluta
írans og hneppt í varðhald 13
menn, sem grunaðir eru um
njósnir, að því er háttsettur
embættismaður í leyniþjónust-
unni tjáði ríkisfréttastofunni
IRNA. „Þrettán njósnarar sí-
onista hafa verið handteknir,"
sagði embættismaðurinn í
gær.
Þetta var fyrsta opinbera yf-
irlýsing Irana um handtöku
meintra njósnara. Á þriðjudag
kröfðust Bandaríkin og Israel
þess að látnir yrðu lausir 13
íranskir gyðingar sem hefðu
verið fangelsaðir í íran, og gef-
ið að sök að hafa njósnað fyrir
Bandaríkin og Israel. Bæði
þau ríki neita þeim ásökunum.
Bandaríska utanríkisráðu-
neytið sagði handtökurnar „al-
varlegt merki“. Ráðuneytið
hefði vitað af þeim í apríl, en
ísraelar segja að fyrstu hand-
tökurnar hafi átt sér stað í jan-
úar.
IRNA hafði eftir fulltrúa
leyniþjónustunnar að rannsókn
stæði yfir og greint yi'ði opin-
berlega frá niðurstöðum henn-
ar „á næstunni". Iran hefur
ekki viðurkennt tilvist ísraels.
Eiturlyfjatekjur
í ríkisbókhaldið
STJÓRNVÖLD í Kólumbíu, sem nú
glíma við versta efnahagssamdrátt í
landinu í meira en fimmtíu ár, hafa
ákveðið að telja tekjur af hinum ólög-
lega en umfangsmikla eiturlyfjaiðnaði
í Kólumbíu með í útreikningum hins
opinbera á vergri landsframleiðslu.
Vilja stjórnvöld með þessu reyna að
tryggja hagstæðari niðurstöðu í út-
reikningum á ríkisfjármálunum.
Juan Camilo Restrepo fjármála-
ráðhen-a segir stjómvöld með þessu
ekki vera að „veita eiturlyfjaiðnaðin-
um blessun sína,“ en að ákvörðunin
ylli því líklega að verg landsfram-
leiðsla ykist „ofurlítið".
Yfirmaður hagstofunnai', Jafro Ur-
daneta, sagði aftur á móti að breyt-
ingin gæti orðið til þess að hagvöxtur
yxi um heilt prósent. Hvergi í heimin-
um er framleitt eins mikið kókaín og í
Kólumbíu.
Ottast sókn UCK