Morgunblaðið - 11.06.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1999 63f
V//1 CT^ ■H- 553 2075
IfM'
ALVÖRU BIÓ! mpolby
STflFRÆNT STffRSW TJALÐB ItiHI
HLJOÐKERFI í I uy7
ÖLLUM SÖLUM! \'
unnarlaus, ovænt og villt
Sýnd kl. 4.50, 6.55, 9 og 11.10.
B. i. 14
ATH ný uppfserslo á www.stgor»mbio.is
www.austinpowers.com
í GÆR ÞEKKTIHANN ENGINN • IDAG ER HANN STJARNA
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15.
Athugið mynd in er ótextuð. Miðaverð kr. 500
Sýnd ki. 5, 7, 9 og 11, b, i, 12 ára.
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15.
Afturhvarf í
fjórum fjórðu
I
Austin
Powers
aftur
á kreik
►MIKE Myers og Heather
Graham, stjörnur nýju
myndarinnar um njdsnar-
ann óviðjafnanlega Austin
Powers, bregða á leik á
frumsýningu myndarinnar
Austia Powers: Njósnar-
ina sem negldi mig í Los
Angeles 8. júní síðastlið-
inn. Líklegt er talið að
þetta verði ein af aðsókn-
armestu sumarmyndunum
í ár.
TDM.IST
Tónleikar DMX Krew og DJ
Mafphew á Kaffi Thomsen,
fósludags- og laugardagskvöld.
DMX Krew, öðru nafni Edward
Upton hefur síðastliðinn vetur notið
nokkurra vinsælda bæði hér á landi
og á Bretlandseyjum, hann lék sem
plötusnúður á Kaffi Thomsen á
hjartsláttarkvöldi um jólaleytið í
fyrra og kunni að því er virðist svo
vel við sig að hann kom aftur hingað
til lands nú um helgina en í þetta
sinnið vopnaður hljóðfæri og lék sín
eigin lög síðastliðna helgi.
DJ Mafphew var með honum í fór
en þeir eru báðir á mála hjá
REPHLEX útgáfufyrirækinu, m.a.
Aphex Twin, hávaðavaldurinn
þekkti, er einn af höfuðpaurum
þeirrar útgáfu. Mafphew hóf og end-
aði dagskrána bæði kvöldin, hann lék
gamaldags teknó af einlægni og hef-
ur nostalgían eflaust vaknað hjá ein-
hverjum. Það var þó DMX Krew
sem beðið var eftir og vaknaði
stemmningin hvorugt kvöldið fyrir
alvöru fyrr en hann sté í pontu.
Kjallari Thomsen er lágur, dimm-
ur og fylltur súlum, hann hentar afar
vel fyrir neðanjarðaruppákomur sem
þessar, búrið sem leikið er í er ofan í
áheyrendum og jafnfætis þeim svo
listamenn eru í góðri snertingu við
þá. Kannski varð þetta þó til þess að
salurinn var lengi af stað á föstu-
dagskvöldinu.
Fáir voru mættir þegar DMX hóf
leikinn á fóstudagskvöld og erfitt er
að komast í stuð þegar gólfið er hálf
tómt. Stemmningin var betri á efri
hæð staðarins framan af þar sem ís-
lenskir plötusnúðar léku. Hitinn
magnaðist þó fljótlega á meðan
áheyrendur og DMX Krew peppuðu
hverjir aðra upp og eftir því sem
fjölgaði á gólfinu. Pað er geislaplatan
Nu romantix með DMX Krew sem
hefur notið hvað mestra vinsælda
hér á landi, sú skífa er eins og nafnið
gefur til kynna í anda ný-rómantík-
urinnar sem tröllreið tónlistarheim-
inum fyrir um fimmtán árum. Það
var einmitt sá gállinn á Edward
Upton fyrra kvöldið og mátti stund-
um halda að horfið hefði verið aftur
um nokkur ár því sumir áhorfenda
voru mættir í fótum og með sólgler-
augu frá níunda áratugnum.
Merkilegt er
hvemig DMX
tekst að magna
upp tónlist sem
gæti verið af
ævafornum Ma-
donnu eða New Morgunblaðið/Jim Smart
Order plötum DMX og DJ Mafphews.
gerð með svipuð-
um tækjabúnaði,
þó án þess að hljóma gamaldags á
hallærislegan hátt. Einnig var at-
hyglivert að sjá hvemig hann leysti
tækjamál, að leika lifandi tölvutón-
list getur verið vandasamt, tækja- og
snúrahrúgur, endalaus vandamál
með tengingar og þeytingur með
tæki sem ekki era ætluð til ferðalaga
valda iðulega vandræðum, sumir
hafa tekið til þess bragðs að leika og
notast við segulbönd en slíkt er þó
hálfgert svindl.
DMX Krew hafði með sér AKAI
sampler/sequencer sem notast við
minidiska, fyrirferðalítið tæki sem
gefur möguleika á því að spila megn-
ið af fyrirfram gerðum upptökum en
hleypa svo af „sömplum“ eftir eigin
höfði til að gera tónlistina lifandi,
mjög sniðug tilhögun fyrir ferðalög.
Laugardagskvöldið var allt öðra-
vísi, mun fleiri mættu það kvöldið,
eða fyrr a.m.k. og tónlistin var harð-
ari. Stemmningin varð afbragð um
leið og tónleikarnir hófust og var
Bretinn í miklu stuði,
bassatrommutaktar í fjóram fjórðu
mynduðu þykkan hljóðmúr ásamt
hallærislegum hljóðgervlahljómum
og raddsömplum. I þetta sinnið var
horfið til seinni hluta níunda áratug-
arins og fyrri hluta þessa áratugar,
DMX baðaði út öllum skönkum,
rumdi í áfastan hljóðnema í þröngu
búrinu á milli laga og vakti mikla
ánægju hjá viðstöddum, ólíklegt er
að margir hafi farið svekktir af tón-
leikastaðnum. DJ Mafphew lauk svo
leiknum seint á laugardagsnótt með
áframhaldandi hávaða, enn í fjórum
fjórðu.
Gísli Árnason
□□
DIGITAL
I HX
mm