Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ ÞEGAR síðast fréttist af sumarbrids höfðu Gylfi Baldursson og ísak Örn Sigurðsson tekið hæstu skor sumarsins. Með þeim á myndinni eru Þórður Sigfússon og Torfi Ásgeirsson sem áttu hæstu skorina í andstæðar áttir. Þá má og geta þess að fsak er í eldlínunni þessa dagana en hann er fyrir- liði íslenzku sveitanna sem taka þátt f Norðurlandamótinu. SL og Strengur mætast í 3. umferð í bikarnum Brids Umsjón Arnór G. Ragnarsson ÞAU óvæntu úrslit urðu í 2. um- ferð að sveit Jóhannesar Sigurðs- sonar, Keflavík, sló út sveit Holta- kjúklinga sem er að mestu skipuð bikarmeisturum síðasta árs. Minnstu munaði að sveit Almennu verkfræðistofunnar, skipuð ung- lingalandsliðinu sem spilar á NM, sendi sveit ROCHE út í kuldann, eða aðeins 6 impar. Aðrar stórsveit- ir komust áfallalítið í 3. umferð en þar eigast við: notabene, Rvk - Jóhannes Sigurðs- son, Keflavík Hjálmar S. Pálsson, Rvk - Lands- bréf, Rvk Samvinnuferðir/Landsýn, Rvk - Strengur, Rvk ROCHE, Rvk-Jón Hjaltason, Rvk Stilling, Rvk - Guðlaugur Sveins- son/TVB16 Sig. Sigurjóns. Ari Már Arason, Rvk - Hjördís Sig- urjónsdóttir, Rvk Kristján B. Snorrason, Borgamesi- Olafur Steinason, Selfoss Bjöm Theódórsson, Rvk - Þórólfur Jónasson, S-Þing. Síðasti spiladagur 15. ágúst „Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn...“ Eins og oft vill verða í bikarkeppn- inni urðu óvænt úrslit í annarri um- ferð. Sveit Holtakjúklings heimsótti Suðurnesjamenn og urðu að játa sig sigraða en leikurinn fór fram í fé- lagsheimili bridsspOara á Suður- nesjum sl. föstudagskvöld. Er skemmst frá því að segja að heima- menn tipluðu á tánum allan leikinn og unnu allar lotumar og þar með leikinn með 113 punktum gegn 76. Eftirfarandi spil kom upp í þriðju lotu þar sem sveit Holtakjúklings hagnaðist um 18 punkta en hefði getað tapað 12 ef rétt vöm hefði fundist. Lesandinn situr í vestur með þessi spil og á út eftir þessar sagnir: norður austur suður vestur Guðl. Karl K. Örn Gunnl. 1 spaði Dobl 2 lauf 2 spaðar 6 lauf Pass Pass 6 hjörtu 7 lauf Pass Pass Dobl Vestur ♦ 43 ¥ ÁK10986 ♦ KDG5 ♦ 7 Gunnlaugur Sævarsson spilaði út tígulkóngi, sem hlýtur að vera nokkuð eðlilegt, en örskömmu síðar hafði Öm Amþórsson hirt alla slag- ina og skrifaði 2320 í sinn dálk á skorblaðinu en allt spilið var svona: Norður A ÁKG982 »3 ♦ - * G108432 Vestur Austur ♦ 43 ¥ ÁK10986 ♦ KDG5 *7 Suður ♦ D106 ¥ DG42 ♦ Á10763 ♦ 5 ♦ 75 ¥75 ♦ 9842 ♦ ÁKD96 Stígandi í sögnum var hægari á hinu borðinu en þar gengu sagnir þannig: norður austur suður vestur Arnór Ásm. Karl H. Anton 1 spaði pass 1 grand 2 hjörtu 3 lauf 3 hjörtu 5 lauf 5 hjörtu 6 lauf 6 hjörtu pass pass dobl - Umsjónarmanni þessa þáttar þótti vænlegra að eiga töluna í þessu pókerspili og tók 2 efstu í spaða, spilaði svo laufi og fékk svo fjórða slaginn í vöminni á hjartaþristinn eftir beiðni um tígul frá meðspilara. Þetta gaf 500 sem var lítið upp í stóru töluna hinum megin. Samt unnu Suðumesjamenn lotuna sem sýnir sigurvilja þeirra eftir góða byrjun í leiknum. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Mánudaginn 12. júlí var spilaður tví- menningur í Ásgarði, Glæsibæ, 22 pör mættu. N/S Rafn Kristjánss. - Júlíus Guðmundss. 261 Albert Þorsteinss. - Auðunn Guðmundss. 233 Sigurleifur Guðjónss. - Hjálmar Gíslason 232 A/V Eysteinn Einarss. - Magnús Halldórss. 275 Bergljót Rafnar - Soffía Theodórsdóttir 235 Jón Andréss. - Guðm. Á. Guðmundss. 230 Miðlungur 216 Bridsfélagið Muninn, Sandgerði Muninn hefur verið með eins kvölds tvímenning hálfsmánaðar- lega síðan um miðjan júní og hefur mætingin verið heldur dræm og skomm við á áhugasama spilara að mæta og reyna að fá nýtt fólk með sér. Úrslit efstu para miðvikudaginn 30. júní urðu þessi. Heiðar Sigurjónsson - Vignir Sigursveinsson Einar Júlíusson 62 - Ævar Jónasson 60 Miðlungur var 60 Úrslit efstu para miðvikudaginn 14. júlí urðu þessi: Trausti Þórðarson - Guðjón Óskarsson Einar Júlíusson 81 - Ævar Jónasson 61 Lilja Guðjónsdóttir - Þórir 57 Miðlungur var 60 Næsta spilakvöld verður haldið miðvikudaginn 28. júlí. Ps. Það er alltaf heitt á könnunni. Norðurlandamót yngri spilara ÁHUGAMÖNNUM skal bent á að allar upplýsingar um mótið verða á netinu, slóðin er: http://www.is- landia.is/~isbridge/Nordur- landamot. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-13 frá mánudegi til föstudags Aflatölur í lax- veiðiám gefa ranga mynd GAMAN er að lesa fréttir af veiði hér og þar um landið, ekki er verra ef ein og ein fluguveiðisaga fylg- ir með. Fáránlegir þykja mér hinsvegar þeir sam- anburðartilburðir sem stöðugt er verið að gera á laxveiðinni í einstökum ám landsins. Þar er fjöldi laxa úr hverri á oftast tí- undaður á síðum blað- anna. Sá samanburður á að mínu mati ekki rétt á sér einn og sér, en hann mætti hinsvegar gjarnan fljóta með betri upplýs- ingum. Ekki er hugað að því hve langt er síðan veiði hófst og á hve marg- ar stangir er veitt! Einu upplýsingarnar sem mér finnst heiðarlegt að bera saman milli áa er lax veiddur á hvern stang- ardag! Að bera saman heildarveiðitölur úr ám eins og t.d Rangánum og Reykjadalsá í Borgarfjarð- arsveit er eins vitlaust og að bera saman fjölda ung- linga sem fá hátt á sam- ræmdum prófum í Reykja- vík og í Borgarfjarðarsveit og telja svo þá í höfuðborg- inni miklu betur menntaða af því að fleiri unglingar finnast þar með hærri ein- kunnir! Eg tel að of margar stangir séu í notkun á hverjum tíma í mörgum ánna okkar. Margar stang- ir veiða marga laxa en hver og einn veiðimaður hefur htið pláss og fær fáa fiska. Eg sem veiðimaður er ekki síður að sækjast eftir rólegheitum og næði heldur en mörgum löxum, en það er sá fylgifiskur veiðimennskunnar sem ekki verður soðinn en jafn- ast á við ómældan afla. Að tala um veiddan lax á hvern stangardag hvetur til fækkunar stanga í ánum og hóflegra veiðiálags sem er jákvætt gagnvart þeim sem veiða, jafnt og lífríki ánna. Nei, þið sem skrifið um þessi málefni í blöðin verð- ið að velja ykkur annan hátt á samanburði. Annað er ekki skynsamlegt og beinlínis ærumeiðandi gagnvart minni vatnakerf- um, glæsilegum laxveiði- perlum sem skila færri veiðimönnum, jafn mikilli ef ekki meiri ánægju en hinar stóru skila þeim mörgu! Með flugukveðju til veiðimanna. Sverrir Heiðar Júlíusson, Grenitúni, Hvanneyri. Þakkir fyrir góða þjónustu ÉG undirrituð fer stund- um með dóttur mína 10 ára á pizza 67 í Tryggva- götu. Ég vil þakka fyrir frábæra þjónustu, sér- staklega varðandi dóttur mína. Ég hef verið mjög heppin með þjónustufólk sem stjanar við hana, samanber hvað þau komu henni á óvart með skreyt- ingu á kókglasi og þess háttar. Ég held ég fari rétt með að þau sem hafa þjónað okkur heita Betty og Kristján K. og vil ég þakka þeim fyrir frábæra þjónustu. Hulda Vatnsdal. Hjóna leitað Á ÁRUNUM 1970-’75 komst ég í samband við hjón sem bjuggu í Kópa- vogi. Hún seldi flosmyndir og hann teiknaði á mynd- imar. Hjá þeim varð inn- lyksa mynd af dóttur minni þar sem hún var með puddlehund í fanginu. Vil ég biðja þessi hjón um að hafa samband við mig í síma 566 7074, Edda. Þakkir fyrir góða þjónustu ÉG VIL senda stúlkunni sem afgreiddi mig í Elko kærar þakkir. Var hún ein- staklega elskuleg og hringdi fyrir mig í allar áttir og vildi fyrir mig allt gera. Ég hef aldrei fengið svona góða þjónustu áður. Kærar þakkir. Ein 82 ára. Tapað/fundið Myndavél týndist í Grímsnesi MYNDAVÉL týndist í Grímsnesi við veitinga- staðinn í Þrastalundi. Vél- in var uppi á bílnum þegar ekið var af stað og hefur því dottið fljótlega af. Þeir sem hafa orðið varir við vélina hafi samband í síma 564 3141. Ferðaútvarpstæki fannst á Jökuldal LÍTIÐ ferðaútvarpstæki fannst á Jökuldal 12. júlí sl. Nánari upplýsingar í síma 898 1721. Dýrahald Kettlingar óska eftir heimili TVEIR 3ja mánaða fresskettlingar fást gefins. Upplýsingar í síma 564 2697 og 869 4035. SKAK tveimur hrókum vann hvít- ur auðveldlega. Svartur gafst upp eftir 31. - Kxg3 32. Dd3+ - Kf4 33. Dxd5 - Had8 34. Df7+ - Ke3 35. Dxa7+ - Kd2 36. Df2+ - He2 37. Bcl+ - Kdl 38. Dfl+ - Hel 39. Df3+ - He2 40. Bg5 - Hd4 41. Dc3! Umsjón Margeir Pétnrsson STAÐAN kom upp á Politi- ken Cup-mótinu í Kaup- mannahöfn sem var að Ijúka. Dagur Arn- grímsson (1.725) hafði hvítt og átti leik, en Daninn Ar- ne Karlsen (2.020) var með svart. 24. Rxd5!! - cxd5 25. Hxh7! - Kxh7 26. Dxf7+ - Kh6 27. Dg7 - Kh5 28. Bf3+ - Dg4 29. Bxg4+ - Kxg4 30. Dxg6+ - Kf3 31. Dxa6 og með drottningu og biskup gegn COSPER NEI, framkvæmdastjórinn er í skíðaferðalagi í Sviss. Víkverji skrifar... EKKI stóð á svari frá Lands- síma íslands þegar Víkverji greindi frá hægfara skeyti frá Norðurlandi tO Suðurlands í síðustu viku og barst það samdægurs. Fer svar hins árvökula upplýsingafull- trúa Landssímans hér á eftir og skal þakkað fyrir skjót viðbrögð: „Víkverji fjallar í pistli sínum miðvikudaginn 14. júlí um sím- skeyti, sem var hálfan mánuð að berast tO viðtakanda. Maðurinn, sem staddur var í Reykholti, fékk ekki skeytið þar heldur var það sent heim tO hans í Reykjavík. Landssíminn harmar að sjálf- sögðu hversu slysalega tókst tO með fyrmefnt skeyti. Símskeytið var sent frá Akureyri tO gests á Hótel Reyk- holti að morgni 23. júní sl. Farið er daglega frá Borgamesi í Reykholt með skeyti og póst en hvort tveggja er sett í pósthólf einstaklinga og fyr- irtækja. Þegar tæmt var úr hólfi hót- elsins næsta eða þamæsta dag var gesturinn farinn. Því miður var starfsfólk ritsímans hjá Landssíman- um ekki látið vita hvemig komið var, en þess í stað lá skeytið í einhvem tíma hjá Islandspósti í Reykholti þangað tO það var póstsent tO við- takanda í Reykjarík. Hefði verið haft samband við ritsímann í Reykjavík vegna málsins hefði verið hægt í samráði við sendanda að ákveða hvað gera skyldi, t.d. að bera skeytið út í Reykjavík. Brýnt hefur verið fyrir starfsfólki ritsímans að benda sendendum skeyta tO fólks, sem er t.d. gestir á hótelum eða viðlíka, að ekki þurfi mikið út af að bera tO að afhending takist ekki. Ævinlega er þó leitað leiða tO að koma skeytum til skOa á réttum tíma og það er rétt hjá Vik- verja að atvik af þessu tagi heyra tO undantekninga. I þessu tOfelli gat Landssíminn Ola gert að því hvem- ig fór. M_eð kveðju, Ólafur Þ. Stephensen forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála Landssíma íslands." XXX EGAR er byijað að greina frá ýmsu því sem gert verður í tO- efni kristnihátíðar á næsta ári og er raunar hafin. Vflcverji er á því að hátíð sem þessi nái vel tOgangi sín- um þegar margir aðOar koma við sögu. Hvert og eitt hérað, byggð eða prófastsdæmi finnur eitt og annað tOefni í byggðinni til að draga fram og tengja við kristni og búa til dagskrá, sýningu eða einhverja samkomu í héraðinu. Finnst Vík- verja slíkar staðarhátíðir mun áhugaverðari en stórhátíðin á Þing- völlum sem ráðgerð er en vitaskuld mega allir sem vilja skunda á Þing- völl hans vegna. Sjálfur mun hann reyna að stefna annað. xxx HUGMYNDIR J. Ingimars Hanssonar um stækkun sveit- arfélaga og samgöngubætur, sem birtust hér í blaðinu sl. sunnudag, eru athyglisverðar. Einkum stækk- un sveitarfélaga. Er ekki lfldegt að ná megi margs konar einfóldun með þessu skipulagi og best væri að ganga hreint tO verks og láta þessi umrædd átta sveitarfélög falla að kjördæmum landsins. Annað athyglisvert við tOlögur hans eru hin mörgu jarðgöng gegn- um heiðar eða undir firði og aðrar styttingar í vegakerfinu. Næsta skref er að fá álit fleiri á þessum hugmyndum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.