Morgunblaðið - 17.11.1999, Blaðsíða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
IM IM
Verkefnisstjóri í barnavernd
- félagsráðgjafi
Félagsráðgjafi óskast til að veita börnum og fjölskyldum
þeirra aðstoð á grundvelli laga um vernd barna og
ungmenna.
Helstu verkefni:
* Móttaka og greining barnaverndartilkynninga
■ Könnun mála og áætlanagerð
■ Ráögjöf og umsjón meö stuðningi á heimilum
» Umsóknir um vistanir og/eða meðferð á stofnunum
Kröfur til umsækjenda:
* Félagsráögjafamenntun eða önnur menntun
á sviði félagsvísinda
■ Reynsla af ráðgjafastarfi
* Lipurð í mannlegum samskiptum
« Skipulagshæfileikar
« Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
Verkefnisstjóri -
heimaþjónusta og liðveisla
Verkefnisstjóri óskast í afleysingarstarf í níu mánuðí
frá 1. janúar til að hafa umsjón með heimaþjónustu
og liðveislu fyrir Ibúa Grafarvogs.
Helstu verkefni:
» Umsjón með starfsmannahaldi
* Skipulag og þróun
* Þjónustumat á umsóknum
■ Ráðgjöf
Kröfur til umsækjenda:
» Menntun á sviði heilbrigðis- og félagsvísinda, t.d.
iðjuþjálfun, hjúkrunarfræði eða félagsráðgjöf
» Reynsla af verkefnastjórnun
» Lipurð í mannlegum samskiptum
» Skipulagshæfileikar
« Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
Heimaþjónusta
Vegna aukinna verkefna þurfum við á starfsmönnum
aö halda í félagslega heimaþjónustu.
Við bjóðum upp á:
» Sveigianlegan vinnutíma, 4-40 klst. vinnuviku
» Græna kortið í strætó fyrir starfsfólk með
20 - 40 klst. vinnuviku
» Gott starfsumhverfi
» Starfsþjálfunarnámskeið
» Reglulega fræðslufundi
» Starfsmannaráðgjöf
Viö leggjum áherslu á áreiðanleika, stundvísi og
reglusemi og viljum gjarnan ráöa fólk meö langa og
farsæla starfsævi að baki í félagslega heimaþjónustu.
Laun samkvæmt kjarasamningi Eflingar.
Nánari upplýsingar um stöður verkefnastjóra veitir
Regína Ásvaldsdóttir og um laus störf í heimaþjónustu
þær Oddrún Lilja Birgisdóttir og Jórunn Sigurðardóttir
í síma 587 9400.
Umsóknum um starf verkefnisstjóra skal skila með
nákvæmri lýsingu á menntun og starfsreynslu í Miðgarð,
Langarima 21,112 Reykjavík. Umsóknarfrestur hefur
verið framlengdur til 25. nóvember nk.
Viö vekjum athygli á heimasíöu Miðgarðs,
www.midgardur.is, þar sem nánari upplýsingar um
starfsemi okkar og Grafarvogshverfiö er að finna.
Ruby Tuesday veitingahúsakeðjan er ein
sú allra fremsta á sínu sviði. Keðjan
starfrækir yfir 500 staði í heimalandi
sínu, Bandaríkjunum, og fer ört stækk-
andi. Utan Bandaríkjanna eru starfræktir
20 staðir og verður opnun Ruby Tues-
day á Islandi sú fyrsta í Evrópu.
Ruby Tuesday Islandi
óskar eftir starfsfólki
í eftirfarandi stöður:
• Þjónustu í sal.
• Gestamóttöku.
• Á bar.
• í eldhús.
Ef þú ert að leita að starfi hjá spennandi
fyrirtæki, þar sem möguleikar á starfs-
frama eru góðir, er Ruby Tuesday rétti
staðurinn fyrir þig.
Öllum umsóknum svarað.
Hægt er að nálgast umsóknareydu-
blöð í Skipholti 19, 3. hæð.
Hafrannsóknastofnunin
Ritari/fulltrúi
Hafrannsóknastofnunin óskar eftir að ráða rit-
ara/fulltrúa forstjóra. Auk almennra starfa rit-
ara forstjóra hefur ritari/fulltrúi umsjón með
skjalavörslu aðalskrifstofu stofnunarinnar.
Leitað er eftir áhugasömum starfsmanni sem
getur unnið sjálfstætt, hefur lokið háskólaprófi
og/eða býr yfir góðri kunnáttu í íslensku, ensku
og Norðurlandamáli.
Umsækjendur þurfa að hafa góða tölvukunn-
áttu og nokkra reynslu af skjalavörslu.
Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráð-
herra og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun,
aldur og fyrri störf, sendist Hafrannsóknastofn-
uninni fyrir 1. desember nk.
Hafrannsóknastofnunin er stærsta rannsóknastofnun landsins á
sviði haf- og fiskirannsókna og gegnir auk þess ráðgjafahlutverki
varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafsins. Mikill
hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrann-
sóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur 5 útibú, tilraunaeldisstöð
i eldi sjávarlífvera, þrjú rannsóknaskip og hefur að jafnaði 160 starfs-
menn í þjónustu sinni.
Hafrannsókastofnunin,
Skúlagötu 4,
101 Reykjavík,
sími 552 0240.
-Símbréf: 455 4010 - pósthótf:20
Umsjónarmaður
endurhæfingarhúss
Laus er til umsóknar staða umsjónarmanns
Endurhæfingarhúss við Heilbrigðisstofnunina
Sauðárkróki. Um er að ræða 100% starf.
Starfið felst m.a. í umsjón og eftirliti með dag-
legum rekstri húsnæðis ásamt afgreiðslu og
ræstingu.
Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf
sundstaða. Launakjör eru samkvæmt kjara-
samningi Samflots bæjarstarfsmanna við ríkið.
Umsóknarfrestur er til 1. desember nk. og
skulu umsóknir sendast til Birgis Gunnarsson-
ar, framkvæmdastjóra. Ráðningartími erfrá
nk. áramótum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðningu hefur verið tekin.
Frekari upplýsingar veita framkvæmdastjóri
eða hjúkrunarforstjóri í síma 455 4000.
— Reyklaus vinnustaður —
Fiæðslumiðstöð
Reykjavíkur
Laus störf í grunn-
skólum Reykjavíkur
Starfsfólk til að sinna ýmsum störfum,
s.s. gangavörslu, þrifum o.fl.
Engjaskóli, sími 510 1300.
50-100% störf.
Langholtsskóli, sími 553 3188.
50-100% störf.
Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðar-
skólastjórar.
Umsóknir ber að senda í skólana.
Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar
við viðkomandi stéttarfélög.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
11-11 búðirnar óska eftir starfsfólki við afgreiðslu- og
sölustörf ásamt framsetningu og áfyllingu vöru í
verslunum sínum.
Um er að ræða framtíðarstörf bæði hálfan eða allan
daginn þ.e. frá kl. 9:00 -18:00 eða frá kl.13:00 -18:00
fimm daga vikunnar.
, Smart
Vegna mikilla anna þurfum við að bæta við
góðum starfskrafti í fullt starf. Vaktavinna.
Skilyrði er að viðkomandi sé þjónustulundað-
ur, samstarfsfús og stutt í brosið. Tekið verður
við skriflegum umsóknum á staðnum.
Sólbaðstofan Smart,
Grensásvegi 7.
Trésmiðir —
byggingaverkamenn
Óskum eftir að ráða trésmidi til starfa
strax. Næg vinna framundan.
Einnig vantar verkamenn til starfa.
Upplýsingar í símum 511 1522 og 892 5605.
Eykt ehf
Byggingaverktakar
Leitað er að duglegum og reglusömum einstaklingum
sem hafa jákvætt viðmót, hafa næmt auga fyrir fallegri
framsetningu vöru og eru reiðubúnir til að veita
viðskiptavinum 11-11 búðanna góða þjónustu.
( boði eru fjölbreytt og krefjandi framtíðarstörf hjá
framsæknu þjónustufyrirtæki þarsem
jákvætt og notarlegt andrúmsloft
ríkir. Ágæt laun og ýmsir A
möguleikar á starfsframa. Störf
þessi eru laus nú þegar. ÉMWt jf §g 1
Allar nánari upplýsingar um
störf þessi veitir Sigurður
Teitsson á skrifstofu 11-11
Mörkinni 3 sími 533 3011, þar
fást einnig umsóknareyðubiöð.