Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 52
'MÖRGUNBLAÐTÐ °S2 FIMMTUUAGTjR 6.APTÖL 2ÓÖ0 MINNINGAR t Hjartkær eiginmaður minn, ÞORFINNUR SÆVAR ÞORFINNSSON, Kirkjubraut 14, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 7. apríl kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Jónsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HELGIBJARNASON prentari, Glæsibæ 5, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn 29. mars, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstudaginn 7. apríl kl. 13.30. Sigrún Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Helgason, Helga María Arnarsdóttir, Bjarni Helgason, Sigríður Helga Jónsdóttir, Berglind Helgadóttir, Halla Helgadóttir, Styrmir Bragason og barnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓSK JÓHANNA KRISTJÁNSSON, Unnarstíg 6, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 7. apríl kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Parkinsonsamtökin á islandi. Kristján Ólafsson, Ólafur T. Kristjánsson, Ann Kristjánsson, Guðný Kristjánsdóttir, Gísli Kristjánsson, Þorvaldur Kristjánsson, Jóna Ólafsdóttir, Flosi Kristjánsson, Ragna Þórhallsdóttir, Sævar Kristjánsson, Pétur Kristjánsson, Ólafur G. Kristjánsson, íris Arnardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móð- ur okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, ÁSU BJÖRNSDÓTTUR, Krummahólum 8. Guðrún Pálsdóttir, Guðbjörn Jensson, Björn M. Pálsson, Kristjana Karlsdóttir, Stella Pálsdóttir, Sigmundur Hermundsson, Alda Pálsdóttir, Ólafur Atlason, Hólmar Á. Pálsson, Gunnhildur Ágústsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, sam- býlismanns, afa og langafa, JÓNS G. ARNÓRSSONAR, Krókahrauni 12, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 4B á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Hallgrímur Jónsson, Margrét Dóra Jónsdóttir, Sveinn Friðfinnsson, Guðmundur Jónsson, Ruth Árnadóttir, Sigurður J. Jónsson, Dagný Guðjónsdóttir, Gunnar Jónsson, Þórunn Kristín Sverrisdóttir, Kristín Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. SIGURBORG HAFS TEINSDÓTTIR + Sigurborg Haf- stcinsdóttir fæddist í Keflavík 20. september 1962. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja 29. mars siðastliðinn. Foreldrar hennar eru hjdnin Hjördís Gréta Traustadóttir leikskólakennari, f. 17. júlí 1943, og Haf- steinn Ingvarsson innheimtusljóri, f. 25. september 1936. Systkini Sigurborgar eru 1) Trausti Már Hafsteinsson málara-meistari, f. 6. apríl 1967, maki Una Kristín Stefánsdóttir, þeirra synir eru Arnór Ingvi og Samúel Þór. 2) Brynja Hafsteinsdóttir röntgen- tæknir, f. 26. nóvember 1973, maki Svanur Már Skarphéðins- son. Sigurborg giftist Rúnari Sig- urðssyni 1983. Þau skildu. Börn þeirra eru Bryndís Jóna, f. 2. júlí 1980, og Hafsteinn Ingvar, f. 15. októ- ber 1983. Árið 1988 giftist Sigurborg Kevin Lynn Price. Þau skildu. Þeirra sonur er Stefán Lynn Price, f. 3. maí 1989. Hún giftist Kjartani Kjarhms- syni árið 1994. Þau slitu samvistum. Sigurborg vann hin ýmsu störf og var mikil áhuga- manneskja um íþróttir, lék hand- bolta á yngri árum og var stuðn- ingsmaður Knattspyrnufélags Keflavíkur og studdi syni sína í þeirri íþrótt. Hún vann til verð- launa í keilu og hlaut fleiri viður- kenningar í þeirri íþrótt. Sigur- borg varð fyrir heilsubresti fyrir 3 árum. Utför Sigurborgar fer fram frá Ytri-Njarðvíkukirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mínverivömínótt. Æ, virst mig að þér taka, méryfirláttuvaka þinn engil, svo ég sofi rótt (Þýð. S. Egilsson) Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, þvínúerkominnótL Um ljósið lát mig dreyma ogljúfaenglageyma öll bömin þín, svo blundi rótt. (M. Joch.) Hinsta kveðja til móður okkar. Bryndís Jóna, Hafsteinn og Stefán. Elskuleg frænka mín, Sigurborg, sólargeisli minn og fyrsta bamabarn foreldra minna í fimm ár, er látin. Hún var sérstaklega glatt og geðgott bam. Hún átti einstaklega góða for- eldra og heimili, bjó við mikið öryggi á uppvaxtarárum sínum. Eg gerði þá kröfu á systur mína að fá Sillu litlu, en það var hún kölluð, einstaka sinn- um lánaða um helgar okkur hjónun- um til ánægju. Þá sagði sú stutta að SÖLSTEINAR við Nýbýlaveg, Kópavogi Sími 564 4566 GARÐHEIMAR BLOMABÚÐ • STLKKJARBAKKA <y SÍMI 540 3320 " hún væri í fríi. Eftirminnilegar em ferðirnar niður á Tjöm að gefa önd- unum brauð en hún var ansi hrædd við þær í fyrstu. Einnig var vinsælt hjá okkur að fara í ísbúðina og í bíl- túra. Einstaklega skemmtilegt fannst okkur hjónunum af gefa henni leikföng og föt, sérstaklega frá út- löndum, þar sem hún ljómaði eins og börnum er einum lagið yfir því sem hún fékk og sýndi þakklæti sitt á svo einlægan hátt. Silla var mikil félagsvera og fór nokkur sumur í Vindáshlíð, þar sem hún naut sín vel, kynntist mörgum stúlkum og sagði skemmtilega frá þegar hún kom heim. Þegar hún varð eldri hafði hún gaman af að ferðast og sem unglingur fór hún með mér, dætrum mínum og foreldr- um til Italíu. Okkur mæðgum fannst mjög gaman að hafa hana með þar sem hún var alltaf svo fjörug og lífs- glöð. Silla frænka stofnaði snemma fjöl- skyldu og var ung þegar hún fór að búa. Heimili hennar var fallegt, allt hreint og pússað. Gaman var að sækja hana heim þar sem hún var einstaklega glaðvær og hafði gott skopskyn, tók ávallt vel á móti gest- um, sama hvort um óvæntar heim- sóknir eða boð var að ræða. Hún bakaði fínar kökur, matreiddi alveg frábæran mat og hafði gaman af. Silla hafði ætíð mikinn áhuga á íþróttum, hún lék lengi handbolta með góðum árangri, var afbragðsgóð í keilu og vann þar til margra verð- launa og viðurkenninga. Hún var stuðningsmaður Knattspymufélags Keflavíkur, þar sem synir hennar spila, og fylgdi drengjum sínum í keppnisferðum víða og studdi þá dyggilega. Frá fyrstu tíð áttum við Silla vin- áttu og trúnað hvor annarrar. Það er dýrmætt. Eg og dætur mínar heim- sóttum hana á Borgarspítalann hinn 27. mars síðastliðinn, en þar hafði hún dvalist af og til í liðlega þrjú ár og barist fyrir lífi sínu við illvígan sjúkdóm. Þegar við höfðum kysst hana og vorum að fara sagði hún: „Við sjáumst," eins og hún hafði svo oft gert. Nú hefur Silla mín kvatt þetta líf, svona ung frá börnum sín- um, og þau flutt á æskuheimili henn- ar í Baugholtið til ömmu og afa. Elsku Silla mín, þú ert í huga og Þegar andlát ber að höndum — ■ Utfararstofan annast meginhluta allra útfara d höfuðborgarsvæðinu. Þar starfa nú 15 manns við útfararþjónustu og kistuframleiðslu. Alúíleg þjónusta sem byggir ó langri reynslu * Utfararstofa Kirkjugarðanna ehf. \ $ Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími 551 1266 hjarta mér. Drottinn blessi þig. Eg votta bömum hennar, foreldr- um, systkinum, ömmu og öðram aðstandendum einlæga samúð mína. Guð styrki ykkur í sorginni. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótL þig umvefji blessun og bænir, égbióaðþúsofirrótt Þótt svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þínverölderbjörtáný. Eg þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þótt þú sért horfin úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir oglýsirumókomnatíð. (Þórunn Sig.) Þín frænka, Hanna. Hvort sem við eram einmana, sjúk eða ráðvillt fáum við umborið það allt, ef við aðeins vitum að við eigum vini, jafnvel þótt þeir geti ekki hjálp- að okkur. Það nægir að þeir eru til. Hvorki fjarlægð né tími, stríð, þjáning eða þögn megnar að slá fölskva á vinátt- una. Við þær aðstæður festir hún einmitt dýpstar rætur. Upp af þeim vex hún og blómstrar. Hvort sem við hugsum lengur eða skemur um leyndardóma lífsins fá- um við ekki ráðið gátuna miklu og líf- ið heldur áfram. Það er mikið áfall þegar náin og kær vinkona kveður, missir bama og foreldra er mikill, en það er þeim huggun harmi gegn að eiga minningar um góða móður og dóttur. Guð verið með Sillu vinkonu minni, vermi hana og leiði á hinni ókunnu strönd. Eg og fjölskylda mín sendum bömunum Bryndísis, Hafsteini og Stefáni, foreldrum, systkinum og ömmu hugheiiar samúðarkveðjur. Ég sendi þér kæra kveðju, núkominerlífsinsnótL þig umvefji blessun og bænir, égbiðaðþúsofirrótL Þó svíði sorg mitt hjarta, þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Þín vinkona alltaf. Sesselja. Ég sá þig hverfa í sólarátt sólskinsdag. Og sólin vermdi veginn þinn, þá var svo bjart um himininn, en svo kom sólarlag. Og húmið skyggði huga minn harmadag. Og hjartað finnur söknuð sinn, þótt sólin gylli himininn, er sífellt sólarlag. (Jörundur Gestsson) Elsku Bryndís, Hafsteinn, Stefán, foreldrar og systkini, guð styrki ykk- ur og blessi á þessari sorgarstundu. Kveðja frá Keilusystram. Ólafía, Dagmar, Karítas, Krístín Bauer og Halldóra. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.