Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 59 UMRÆÐAN Fækkum slysum og- byltum FJÖLGUN aldraðra, aukin þörf fyrir heilbrigðisþjónustu og hækkun á slysatíðni hjá öldruðum er heil- brigðisyfirvöldum margra landa áhyggjuefni. Morgunblaðið birti nýverið tölur frá Slysadeild SHR en þar kom í ljós að slysum í heimahúsum hefur fjölgað um 17%, en mest hjá fólki á aldrinum 75-79 ára eða um 47% á milli áranna 1998-1999. Þetta er áhyggjuefni, þó mest íyrir þá sem verða fyrir þessum slysum. Slys eru kostnaðarsöm fyrir þjóðfélagið og þess má geta að eitt lærbrot er talið kosta u.þ.b. 1,5 milij- ónir króna. Er hægt að fækka eða koma í veg fyrir mörg þessara slysa? Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar verða áþreifanlega varir við hinar slæmu af- leiðingar byltna í daglegum störfum sínum við endurhæfingu, en fá sjaldn- ar tækifæri til að vinna að forvömum gegn þeim. í fjölmörgum löndum hafa þessar stéttir í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir hafið forvamarstarf í formi „fyrirbyggjandi heimsókna“ til aldraðra. Markmiðið er að örva það heilbrigða og styrkja, til að viðhalda fæmi, virkni og hreyfingu og að mynda tengsl við heilsugæsluna. Hjálp til sjálfshjálpar Með því að vekja fólk til umhugsun- ar um hvað það getur sjálft gert til að fækka áhættuþáttum, s.s. líkamleg- um og þeim sem kunna að finnast í umhverfinu, er fólk virkjað til sjálfs- hjálpar. í þessum heimsóknum er m.a. veitt fræðsla um hvað hægt er að gera til að bæta hreyfifæmi og hæfni í daglegum störfum. Einnig era veittar upplýsingar um hjálpartæki sem að gagni geta komið og hvaða þjónusta er í boði til að auðvelda fólki að lifa sjálfstæðu lífi og forðast byltur. Ai'angur þessara heimsókna felst í að fólki er gert kleift að bæta úr sín- um málum og getur búið lengur heima. Byltum, beinbrotum og sjúkrahúslegum hefur fækkað, þörf fyrir heimahjúkran og heimilisþjón- ustu hefur minnkað svo og álag á ætt- ingja og vini. Síðast en ekki síst hefur vellíðan og öryggi þeirra sem heima búa aukist. Fyrirbyggjandi heimsóknir hafa verið stundaðar í Danmörku, Banda- ríkjunum, Astralíu, Englandi og víð- ar. Þess má geta að á Akureyri er ver- ið að undirbúa fyrirbyggjandi heimsóknir til aldraðra. Niðurstöður erlendi-a rannsókna sýna góðan ár- angur þótt frámkvæmdin hafi verið mismunandi. Þar sem áhersla var lögð á líkamsþjálfun tengda heim- sóknum hefur árangur verið einna bestur. Þar hefur verið sýnt fram á að með fyrirbyggjandi aðgerðum í heimahúsum er hægt að fækka bylt- um um allt að 60%. Markmiðið er ekki bara að útvega hjálpartæki og þjón- ustu, heldur er verið að gn'pa inn í byrjandi vandamál áður en þau verða það mikil að fólk þarf að leita á náðir stofnana. Ella B. Bjarnarson Ágústa Guðmarsdúttir Guðrún K. Hafsteinsdóttir Aldraðir Með fyrirbyggjandi aðgerðum í heimahús- um, segja Ágústa Guðmarsdóttir, Ella B. Bjarnarson og Guðrún K. Hafsteinsdóttir, er hægt að fækka byltum um allt að 60%. Á að þjóna eða þjálfa? í sveitarfélaginu Greve í Dan- mörku hefur verið valin sú leið að í staðinn fyrir að spyrja hvort þörf sé fyrir heimilisþjónustu er spurt hvort þörf sé fyrir þjálfun. í fyrirbyggjandi heimsóknum er heilbrigðu fólki 75 til 80 ára og eldra veitt þjónusta sem miðar að því að gera því kleift að lifa sem lengst öraggu og sjálfstæðu lífi. Þessar heimsóknir vora lögbundnar í Danmörku 1995. Þar er fólki boðin heimsókn fagaðila úr heilbrigðiskerf- inu tvisvai’ á ári og ekki er litið á þess- ar heimsóknir sem sjúkravitjanir. Þegar hreyfing fólks minnkar, t.d. eftir hreyfingarleysi vetrarins eða rúmlegu, era afleiðingamar oft þær að liðir hafa stirðnað, vöðvastyrkm’ minnkað og jafnvægi skerst, og fólk lendii’ í vítahring hreyfingarleysis. Þá á fólk oft erfitt um vík að sinna verk- um sem áður voru auðveld. Þegar þannig er komið er bragðið á það ráð að útvega heimilisþjónustu, sem verð- ur til þess að enn dregur úr virkni fólks og það hreyfir sig minna. Með líkamsþjálfun, s.s. að styrkja og liðka vöðva, auka úthald og snerpu og þjálfa jafnvægi og hæfni í daglegu lífi, er hægt að gera mörgum kleift að tak- ast aftur á við hin ýmsu verkefni. Það er árangursríkt fyrir alla aldurshópa að þjálfa sig, ekld bara þá sem ungir era. Ekki má bíða þar til allt er komið í óefni og leita þarf aðstoðar stofnana. Fækkum slysum - fækkum byltum I ljósi þess hve mörg rúm sjúkra- húsanna era teppt vegna afleiðinga byltna og hreyfingarleysis, er mikil- vægt að leggja áherslu á að finna leið- ir til að fækka þessum slysum. Þetta kemur áþreifanlega fram í 47% fjölg- un slysa hjá aldurshópnum 75-79 ára á s.l. ári. Það er ekki bara áhyggjuefni heilbrigðisyfirvalda, heldur ekki síður þeirra sem eiga eftir að brotna á þessu og næstu árum. Því telja iðju- þjálfar og sjúkraþjálfarar í heilsu- gæslu að forvamarstarfsemi eins og fyrirbyggjandi heimsóknir til aldr- aðra þurfi að hefjast hið fyi’sta. Að- laga þarf þá miklu og góðu reynslu sem aðrar þjóðir hafa af þessum heimsóknum íslenskum aðstæðum. Með þessu móti er hægt að gera fólki kleift í samvinnu við fagaðila innan heilbrigðisstétta að fækka byltum og lifa öraggara lífi heima. Höfundar starfa íheilsugæslunni í Reykjavík. Hippatískan í algleymingi hjá okkur. Gallaefni, skrautbönd og perluefni. VIRKA Mörkin 3, sími 568 7477. Opið Mánud.-föstud. kl. 10-18, laugard. kl. 10-14. tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi. sími 561 1680. Opið daglega kl. 10—18, laugardag kl.10—14. Stökktu til Costa del Sol 24. apríl í 4 vikur 39.955 frá kr. Nú seljum við síðustu sætin til Costa del Sol í ferðina 24. apríl. Þú getur nú nýtt þér einstakt tilboð okkar til að komast í sólina á þennan vinsæla áfangastað á hreint ffábærum kjörum. I lok apríl er komið ffábært veður á suðurströnd Spánar og þú dvelur í 25-28 stiga hita alla daga. Þú bókar núna og staðfestir ferðina, og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir. Bókaðu strax, þetta eru síðustu sætin í vor. Verðkr.39»955 M.v. hjón mcð 2 böm, 2-11 ára, 24. apríl, 4 vikur. Verð kr. 49»990 M.v. 2 í stúdíó, 4 vikur, 24. apríi. Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Þýsk gæði, ótrúleg fjölhæfni. Schaeff HML 41 Schœff SMB 2041 Drif á öltum Drif á öllum Stýrl á öllum Stýri á öllum Flottxirðar Skotbóma Þrfeklpt bakkó Vökva servó Vökva servó Liáur við hús Llður við hús Heilsnúnlngur Hellsnúningur Oprtanleg framskófla Ca, 11 tonn Ca. 8,5 tonn Istraktor i? >
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.