Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 70
70 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN KIRKJUSTARF TUbodsverd Fallegir borðdúkar og servíettur í gjafakössum Lppse tinnyab úði n Ennþá „góðæri“? * UM ÞESSAR mund- ir eru fyrirtæki lands- ins sem óðast að fá í hendumar og birta árs- reikninga síðasta árs. Það er athyglisvert að bankar, fjármálafyrir- tæki og hin stóru ein- okunarfyrirtæki sýna flest vaxandi hagnað á meðan fyrirtækin í framleiðslugreinunum eru sýnilega með versnandi rekstrar- afkomu. í sjálfu sér kemur þetta fáum á óvart, nema þá helst þeim sem stunda hvað mest dansinn í kring- um gullkálfinn á suðvesturhorni landsins. Bankastjórar koma fram í fjölmiðlum og lýsa því hátíðlegir í bragði hvernig þeim hefur tekist með frábærri stjómun og hagræð- ingu að auka hagnaðinn. Einn þátt- urinn í þessari „hagræðingu“ er t.d. það að Seðlabankinn gefur þeim grænt Ijós á stöðugt hækkandi vexti, vexti sem hefðu varðað við lög fyrir fáum ámm. Einnig er það augljós hagræðing að láta kúnnann vinna í sjálf- boðavinnu fyrir bank- ann sinn með því að annast sem mest af eig- in peningaútréttingum í gegnum bankalínurn- ar. Enda ekki siður þessara eða annarra einokunaríyrirtælqa að láta viðskiptavini sína Þórir N. njóta neins af góðri af- Kjartansson komu. Ríkiseinokun er slæm, einkarekin einokun er verri en samráðseinokun stórfyrirtækja er sýnu verst. Þetta afbrigði einokunar er í hröð- um vexti á Islandi í dag. Eina ráðið við henni er að koma á virkri sam- keppni í öllum atvinnugreinum við umheiminn. Og nú er gamla verð- tryggingarsvikamyllan farin að láta að sér kveða á ný. I gegnum hana hefur sennilega farið fram stærsti lögvemdaði þjófnaður Islandssög- unnar. Orðhákurinn Jónas Kiást- jánsson, ritstjóri DV; sagði í forystu- grein í vetur að meginhluti íslend- inga leggi ennþá stund á atvinnuvegi nítjándu og tuttugustu aldarinnar. Það er nokkuð mikið til í þessu, en á hitt ber að líta að hinum lærðu há- tæknigreinum hefur ekki enn tekist að afla landinu gjaldeyristekna svo nokkm nemi. Margir íslendingar gengu með stjömur í augum vegna þeirrar frægðar og frama sem okkur myndi hlotnast í hugbúnaðargerð og öðm í kringum upplýsingaiðnaðinn. Sannleikurinn er hinsvegar sá að þar emm við í stómm mínus ef tekjur af Samkeppni Ríkiseinokun er slæm, einkarekin einokun er verri, en að mati Þóris N. Kjartanssonar er samráðseinokun stórfyrirtækja sýnu verst. þessum iðnaði væra lagður á móti þeim óhemjulega kostnaði sem orðið hefur til við tölvuvæðingu landsins. Langflest hálaunastörfin sem þessi atvinnugrein skapar em seld út til ís- lenskra fyrirtækja og neytenda og sannar enn og aftur að þau fyrirtæki sem em í aðstöðu til að okra á land- anum blómstra á meðan hin sem keppa við alla heimsbyggðina verða að bjóða sínu starfsliði umsamin lágmarkslaun. Ferðaþjónustan ásamt stóriðjunni er í raun einu at- vinnugreinamar sem em að auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar svo nokkra nemi. Þó geri ég ráð fyrir að samkvæmt skilgreiningu Jónasar til- heyri þessar greinar báðar tuttug- ustu öldinni. Það er eðlilegt og sjálf- sagt að huga sem best að atvinnuvegum tuttugustu og fyrstu aldarinnar. Vemm samt ekki of fljót að snúa baki við því sem við höfum og lifum á. Það skyldi nú ekki vera að lífið sé ennþá saltfiskur. Höfundur er framkvæmdastjóri, Vik í Mýrdal. Safnaðarstarf Samverustund safnaðanna í Hafnarfírði SAMVERUSTUND safnaðanna þriggja í Hafnarfirði, Fríkirkjunnar, Hafnarfjarðarkirkju og Víðistaða- kirkju, verður í safnaðarheimili Fríkirkjunnar í dag kl. 14-16. Dag- skrá: Föstukynning, flautuleikur, saga, kaffi og helgistund í kirkjunni. Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 14-17. Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Æskulýðsfélagið fyrir unglinga í 8. bekk í kvöld kl. 19.30 í félagsmiðstöðinni Bústöðum. Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14-16 í safnaðarheim- ilinu. Æskulýðsfélag Neskirlq'u og Dómkirkju. Sameiginlegur fundur í safnaðarheimili Neskirkju kl. 20. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, lestur passíus- álma. Léttur málsverður í safnaðar- heimilinu að stund lokinni. Háteigskirkja. Ljós lífsins, þagn- aríhugun kl. 20. Taize-messa kl. 21. Fyrirbæn með handayfirlagningu og smurning. Tómas Sveinsson. Langholtskirkja. Foreldra- og bamamorgunn kl. 10-12. Söngstund með Jóni Stefánssyni kl. 11. Svala djákni les fyrir eldri böm. Langholt- skirkja er opin til bænagjörðar í há- deginu. Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur til kl. 12.10. Að stundinni lokinni er léttur málsverð- ur á vægu verði í safnaðarheimilinu. Neskirkja. Félagsstarf eldri borg- ara nk. laugardag kl. 13. Æskulýðs- félag Neskirkju og Dómkirkju. Sam- eiginlegur fundur í safnaðarheimili Neskirkju kl. 20. Óháði söfnuðurinn. Föstumessa kl. 20.30. Gunnar Jóhannesson guð- Askur Birki Ótrúlegt vöruúrval. Allt á að seljast. Frábœr verð. • Útivistarfatnaður • Vinnufatnaður • Barnafatnaður 66N SEXTÍU OG SEX NORÐUR | 66 N verslunin Skúlagötu 51 sími: 552 7425 fræðinemi predikar. Biblíulestur út frá 34. passíusálmi. Kaffi. Selijamameskirkja. Starf fyrir 6-8 ára börn kl. 16-16. Starf fyrir 9- 10 ára börn kl. 17-18.15. Árbæjarkirkja. TTT-starf fyrir 10- 12 ára í Ártúnsskóla kl. 16.30- 17.30. Breiðholtskirkja. Mömmumorg- unn á föstudögum kl. 10-12. Digraneskirkja. Foreldramorgn- ar kl. 10-12 í umsjá Fjólu Grímsdótt- ur og Bjargar Geirdal. Kl. 11.15 leik- fimi aldraðra. Kl. 18 bænastund. Fyrirbænaefnum má koma til prests eða kirkjuvarðar í síma 554-1620, skriflega í þar til gerðan bænakassa í anddyri kirkjunnar eða með tölv- upósti (Digraneskirkja@simnet.is). Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11- 12 ára drengi kl.17-18. Grafarvogskirkja. Foreldra- morgnar kl. 10-12. Fræðandi og skemmtilegar samvemstundir, heymrn guðs orð og syngjum með bömunum. Kaffisopi og spjall. Alltaf djús og brauð fyrir bömin. Æsk- ulýðsstarf fyrir unglinga kl. 20-22. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9 ára kl. 16.30. Kópavogskirkja. Samvera aldr- aðra í safnaðarheimilinu Borgum kl. 14-16. Seljakirkja. Strákastarf fyrir 9-12 ára á vegum kirkjunnar og KFUM kl. 17.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra kl. 10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Op- ið hús fyrir 8-9 ára börn í Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrð- arstund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Biblíulestur kl. 21. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30. Víðistaðakirkja. Foreldramorgn- ar kl.10-12. Opið hús fyrir 10-12 ára böm kl. 17-18.30. Keflavíkurkirkja. Lokaæfing fermingarbarna. Kl. 16 fyrir þau sem fermast 9. apríl kl. 10.30 og kl. 17 fyr- ir þau sem fermast 9. apríl kl. 14. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 10 foreldramorgunn. Sr. Bára Friðriksdóttir er aftur mætt til leiks. KI. 17 TTT-starf tíu til tólf ára krakka. Lokaundirbúningur fyrir mótsferðina í Vatnaskóg 7.-8. apríl. Kl. 18 kyrrðar- og bænastund, næstsíðasta bænastund vetrarins. Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 sam- koma í umsjón Hallelújakórsins. All- ir hjartanlega velkomnir. Lágafellskirkja. TTT-starf fyrir 10-12 ára böm frá kl. 17-18. Um- sjón: Hreiðar og Sólveig. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. Hvammstangakirkja. Kapella Sjúkrahúss Hvammstanga. Helgi- og bænastund í dag kl. 17. Fyrir- bænaefnum má koma til sóknar- prests. Boðunarkirkjan. í kvöld kl. 20 verður bænastund í kirkjunni að Hlíðarsmára 9. Allir hjartanlega vel- komnir. t^ematita/iúöid Urval fermingargjafa DEMANTAHÚSIÐ Nýju Kringlunni, sími 588 9944
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.