Morgunblaðið - 12.09.2000, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000
MORGUNB LAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000 37
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
EVROPA FRAMTÍÐARINNAR
Breski fræðimaðurinn Christ-
opher Coker dregur upp at-
hyglisverða mynd af framtíð-
arþróun Evrópu í viðtali í
Morgunblaðinu síðastliðinn laugar-
dag. Coker, sem er fyrirlesari við
London School of Economics, telur
ljóst að á næstu árum verði nauðsyn-
legt að leyfa innflutning á fólki frá
framandi menningarsvæðum, m.a.
Norður-Afríku.
I viðtalinu segir Coker m.a.: „Um
40% af íbúum Norður-Afríku eru fólk
undir fimmtán ára aldri. Unglingarn-
ir eru óþolinmóðir, uppreisnargjarn-
ir, ekki reiðubúnir að sætta sig við ör-
lögin og reyna því að komast til
Evrópu. Þeir vilja fá vinnu sem ekki
er fyrir hendi á heimaslóðum, kjör og
lífsstíl sem ekki bjóðast þar heldur.
Þjóðarvitund er veik í þessum lönd-
um, einkum Marokkó, Alsír og Túnis
en trúin, íslam, veitir mótvægi í þeim
efnum. Innflytjandi verður að hafa
öfluga, menningarlega vitund til að
fyllast ekki tilfinningum einangrunar
og útskúfunar í framandi landi og
menningu.
Evrópumenn verða að takast á við
þessa áskorun og hún verður ekki
auðveldari viðfangs með tímanum. Ef
ekki verður breyting á lýðfræðilegri
þróun verða Evrópumenn 100 millj-
ónum færri eftir hálfa öld ... En ef
gildin og menningin eru varðveitt
þarf ekki að halda við ákveðnu
munstri kynþátta. Bandaríkin eru af-
ar gott dæmi um það. Kóreumaður
sem flyst til Bandaríkjanna er ekki
lengur kóreskur, hann er asísk-amer-
ískur að uppruna en hann er Banda-
ríkjamaður eins og hinir, ekki Asíu-
maður lengur.“
Líftækniiðnaðurinn er að verða
blómleg atvinnugrein á íslandi.
íslenzk erfðagreining er stórveldið á
því sviði. Deilur, sem staðið hafa um
einstaka þætti í starfsemi fyrirtækis-
ins og þá fyrst og fremst áform um
uppbyggingu miðlægs gagnagrunns
með upplýsingum úr heilbrigðiskerf-
inu, hafa beint athyglinni frá því stór-
afreki, sem dr. Kári Stefánsson hefur
unnið á örfáum árum með uppbygg-
ingu þessa fyrirtækis.
Islenzk erfðagreining er komin á
það stig, að starfsemi fyrirtækisins
skiptir verulegu máli í samfélagi okk-
ar. Þjóðfélagsleg áhrif af starfsemi
þess eru margvísleg og margslungin.
En ekki sízt skiptir máli sá mikli
fjöldi hámenntaðra íslendinga og út-
lendinga, sem ráðizt hafa til starfa
hjá Islenzkri erfðagreiningu.
Augljóst er, að markvisst er unnið
að uppbyggingu annars fyrirtækis,
Urðar, Verðandi, Skuldar, þótt um-
svif þess séu, enn sem komið er
a.m.k., ekkert nálægt því, sem er hjá
Islenzkri erfðagreiningu.
í Morgunblaðinu um helgina var
skýrt frá þriðja líftæknifyrirtækinu,
sem er að hazla sér völl hér. Það nefn-
ist Procaria og starfar á öðru sviði en
hin fyrirtækin tvö. Tekizt hefur að
byggja upp sterkan fjárhagslegan
grundvöll fyrir starfsemi þess fyrir-
Coker segir að ef Evrópa eigi að
lifa verði hún að verða fjölþjóðleg, en
vissulega verði sú þróun varla sárs-
aukalaus.
„Nú sættum við okkur við að jafn-
vel þótt svo fari að helmingur
Evrópumanna verði ekki hvítur á
hörund muni álfan eftir sem áður
verða evrópsk. En fasisminn var
evrópsk uppfinning og á sér tæpast
hliðstæðu utan Evrópu og er ekki
dauður. Deila um Austurríki í
Evrópusambandinu er því aðeins
upphafið að mörgum slíkum málum
og spurningum sem sambandið mun
verða að fást við í framtíðinni, sem
allir Evrópumenn verða að horfast í
augu við. Verður hægt að tryggja við-
gang lýðræðisins?"
Vafalítið er mikið til í þessu hjá
Coker. Þá andstæðu þróun er sjá má í
fólksfjölgun í hinum þróaða hluta
Evrópu og fátæku ríkjunum í kring
er að mörgu leyti tímasprengja ef
ekki verður rétt haldið á málum. Sú
spenna er innflytjendamál valda í
nágrannaríkjunum gæti þá verið for-
boði þess sem koma skal, jafnvel hér
á landi. Stjórnmál Evrópu hafa verið
á forsendum þjóðríkisins í rúmlega
öld og hugmyndir um fjölþjóðlega
menningu yfirleitt fallið í grýttan
jarðveg. Ef grannt er skoðað má þó
sjá að flest ríki Evrópu hafa þegar
tekið stór menningarleg skref í átt til
hins fjölþjóðlega samfélags.
Ef þróunin verður sú sem Coker
spáir er þó vart við öðru að búast en
að gífurleg þjóðfélagsleg átök séu
framundan á næstu áratugum, þar
sem ríki Evrópu verða að svara erfið-
um grundvallarspurningum um fram-
tíðarþróun sína.
tækis með íslenzku áhættufjármagni.
Raunar er ljóst, að ný þekking og
tækni ungra fjármálamanna gerir
kleift að byggja upp ný fyrirtæki á
nýjum sviðum með allt öðrum hætti
en menn gátu gert sér í hugarlund
fyrir aðeins rúmum áratug.
Procaria er byggt á grunni þekk-
ingar og rannsókna íslenzkra vísinda-
manna og þá fyrst og fremst Jakobs
K. Kristjánssonar á hveraörverum.
Margt bendir til þess, að fyrirtækið
eigi sér mikla framtíð.
Hér er að fæðast ný atvinnugrein,
sem getur átt eftir að hafa byltingar-
kennd áhrif í okkar litla samfélagi.
Um þessa framtíð segir Jakob K.
Kristjánsson í samtali við Morgun-
blaðið í fyrradag: „Framtíðin er mjög
spennandi. Ég er sannfærður um, að
hún lofar góðu. Líftæknin hefur þan-
izt hratt út. Þetta hófst allt fyrir um
það bil 25 árum og hefur svo átt sinn
meðgöngutíma en við vorum það
heppnir íslendingar að komast
snemma inn í þetta ferli. Það var
óskaplega þýðingarmikið að við
skyldum hafa byrjað á undirbúningi
að þessu á svipuðum tíma og aðrar
þjóðir. Það er raunhæft að þetta hafi
tekið svona langan tíma en það þýðir
líka, að nú er tæknin orðin það þrosk-
uð að núna eru hlutirnir farnir að ger-
ast.“
Hann bjó um sig
í Drangey samtímans
INDRIÐI G. Þorsteinsson lifði margar
ævir. Hann var rithöfundur, fram-
kvæmdastjóri, ritstjóri; hvarvetna í
fremstu víglínu. Styrkur hans sú ís-
lenzka þjóðmenning og þúsund ára arf-
leifð sem setti mark sitt á æskuumhverfíð
í Skagafirði. Þessi arfleifð var umgjörð
fræknustu afreka Indriða G. Þorsteins-
sonar, skáldsagna sem spruttu úr um-
hverfí hans sjálfs. Deiglan þjóðfélags-
breytingar stríðsáranna. Þessi skáldverk
voru sérstæð og mörkuðu tímamót í ís-
lenzkri bókmenntasögu. Samt átti Indriði
við andróður að stríða enda var skaplyndi
hans með þeim hætti sem einkenndi þjóð-
félagstákn eins og Gretti Ásmundarson.
Undir lokin bjó hann um sig í Drangey
samtímans. Þar varðist hann ef að honum
var sótt og hafði engar áhyggjur af örlög-
um sínum að öðru leyti. Féll að lokum fyr-
ir þeim eina vígamanni sem allt hefur í
hendi sér, þessum með ljáinn. En hann
kallar á andstöðu sína, upprisuna. Nú er
upprisa Indriða G. Þorsteinssonar hafin
þarna á bökkum þess mikla fljóts sem við
köllum tíma og hverfur í hafið án þess
hugsa um bakka sína:
Spegill er vatnið og vökul er nóttin við ána
og vaxandi tunglið er glitrandi daggir við ljána,
þannig er dauðinn og dregur sinn slóða við stráin
unz deyjandi sólin hún hnígur við grasið og ljáinn.
En spegillinn gárast og vatnið er söngfugl í sárum
og síðustu ljósbrotin ýfast sem vindur í gárum,
svo dagar að morgni og gustar við glitrandi ána
og grasrótin styrkist og upprisan hefst nú við Ijána.
Indriði G. tók mikinn þátt í þjóðmálum
og gegndi reyndar einskonar forystuhlut-
verki í þeim efnum, meðan hann var rit-
stjóri Tímans. Þá gekk á ýmsu. Stundum
kenndi hann áreiðanlega til í stormum
sinna tíða eins og klisjan hermir. Stund-
um minnti hann á að illt er að egna
óbilgjarnan. Hann var ritstjóri Tímans
þegar blaðið gerði harða hríð að okkur
Jóni úr Vör. Þá hóf Rithöfundasambandið
málssókn vegna ritlauna og tapaði! En við
Jón úr Vör stóðum uppi sem fórnardýr
einhvers konar íslenzkrar þjóðmála-
heimsku. Slíkt erfir maður ekki, það
hverfur með fljótinu eins og morið. Þetta
var að vísu skemmtilegur tími en harður
og illskeyttur. Hann fór ekki vel með
Indriða enda átti hann það sjálfur til að
vera óbilgjarn og minnti á suma þá víga-
menn sem eru helzt nefndir í Skagafirði á
dögum sturlunga eða Gretti, sem gat ekki
einu sinni látið gæsfugla foreldra sinna í
friði! En hann var sanngjarn og ræktaði
með sér réttlætiskennd. Þegar að honum
var sótt gat hann verið langrækinn. Ég
minnist hans ekki sízt í baráttunni um
Fjaðrafok, þá tók hann upp hanzkann fyr-
ir þetta óvelkomna leikrit og varði rit-
stjóra Morgunblaðsins sem var óvígur á
heimavígstöðvum. Hann hafði sannfær-
ingu og hún gilti. Hann átti í erjum við
allskyns vinstri menn sem töldu sig af ein-
hverjum óskiljanlegum ástæðum andstæð-
inga hans, sóttu að verkum hans en
nefndu þau þó helzt ekki á opinberum
vettvangi. Indriði lét sér fátt um finnast.
Hann bjó um sig í Drangey og varðist
eins og honum einum var lagið. Þar ein-
angraðist hann æ meir og í síðasta samtali
okkar heyrði ég ekki betur en hann væri
sáttur við þessa einangrun og trúði því
áreiðanlega innra með sér að verk hans
stæðust þetta próf, þegar til lengdar léti.
Á því er ekki heldur neinn vafi. Það hafa
ekki verið rituð betri skáldverk um þessa
umbrotatíma og þessar tvísýnu uppákom-
ur sem hafa verið eins og Ionescu hafi
skrifað þær. Indriði tók ríkan þátt í þessu
íslenzka fjarstæðuleikriti. Hann lifði og
hrærðist í alls kyns kenningum og póli-
tískum vafningum sem ég botnaði ekkert
í. Hættu að berjast við þessar vindmyllur,
sagði ég við hann í sumar, komdu og láttu
Eddu gefa út verkin þín. Vindmyllur eru
óverðugir andstæðingar, segir bók-
menntasagan. En Indriði lagði kollhúfur.
Hann vitnaði í reynsluna. Ég talaði um
fyrir honum þegar Rithöfundasambandið
var sameinað, en hann þóttist síðar illa
svikinn. Hann nærðist á þessari baráttu
við þá sem að honum sóttu, vildi einhvern
veginn ekki missa af henni. Rússnesku
andófsskáldin nærðust á illsku kommún-
ismans. Þá voru þau í tízku um allan
heim, nú að mestu gleymd á óseðjandi
markaðnum sem allt gleypir og engu skil-
ar; jafnvel Solzhenitsyn!
Það er alltaf verið að fjalla um ein-
hverja pólitík, einhverja uppákomu, eitt-
hvað sem skiptir listir og bókmenntir í
raun og veru litlu sem engu. Sjaldan um
kjarnann; verðmætin; listina; handbragðið
sjálft sem öllu skiptir. Ef skáldsaga er
skrifuð um fólk er fjallað um hana sem
þjóðfélagssögu. Og þá helzt sem einhvers
konar dæmisögu. Blikktromma Grass
fjallar fyrst og síðast um fólk, um það er
sjaldnast talað. Hún á að fjalla um Þjóðfé-
lagið. Menn eru alltaf að tala um það sem
stendur ekki í bókum, sagði Halldór Lax-
ness.
Ég hef einhvern tíma haldið því fram að
13. öldin sé höfundur Njáls sögu. Það
mætti til sanns vegar færa, þó að margt
sé þar af arfsögulegu ívafi. Hún fjallar að
sjálfsögðu um fólk, en þó ekki fólkið á
söguöld, heldur fólkið á 13. öld, sturl-
ungualdarfólkið, hvernig það lifði í mót-
sögnum sínum eins og sagt hefur verið
um Njál; og hvernig það dó. En ekki um
Þjóðfélagið sem slíkt. Þannig fjallaði
Indriði einnig um tímamótin í 20. aldar
sögu samtímans. Hann skrifaði um fólk,
að vísu í samfélagsumhverfi sínu, en um-
fram allt fólk. Og það lifir í fáguðum stíl,
eða eins og Jóhann Hjálmarsson sagði svo
ágætlega hér í blaðinu þegar hann minnt-
ist Indriða, „Sögur hans gerast í stílnum
og andrúminu með sérkennilegum hætti“.
Indriði skrifaði eins og skáldi er lagið,
en ekki leiðarahöfundi. Féll þannig ekki
að formúlunni um pólitíska gagnsemi
skáldverka. Hann vissi að markaðurinn er
samtímalegt tízkuok, olnbogaskot þeirra
sem lifa og hrærast í fjölmiðlatóminu
mikla. En það er mýflugnalíf, sjaldnast
reist á mikilvægri eða frumlegri listrænni
sköpun, og raunar með ólíkindum hvað
þessi hávaði getur gert mikið úr litlu.
Indriði G. Þorsteinsson reyndi að
vernda skáldið í brjósti sínu og gerði sér
grettisbæli þar sem enginn náði til hans.
Þar er hann minnisstæðastur, þar er hann
allur. Eins og fjall úr fjarlægð. Við sjáum
það allt, kalblettirnir horfnir og aurskrið-
urnar.
Indriði G. var framkvæmdastjóri þjóð-
hátíðarnefndar 1974. Það var engin tilvilj-
un að hann var valinn í þetta erfiða starf
sem hann gegndi af miklum sóma og
stakri samvizkusemi. Sem slíkur var hann
framkvæmdastjóri fjölmennustu samkomu
í sögu íslenzku þjóðarinnar og ekki þarf
að tíunda, hvernig til tókst. Samstarf okk-
ar var framúrskarandi. Ég hef aldrei
kynnzt duglegri manni eða útsjónarsam-
ari, ef því var að skipta. Hann komst jafn-
vel í samband við veðurguðina og það lék
ítalskur lognblær um Þingvöll á þjóðhátíð-
inni. Allt eftirminnilegt. Og niðurstaðan
heiðblá minning og þríefldur þjóðarmetn-
aður eftir váleg tíðindi Vestmannaeyja-
goss. Það var mikið gos og þjóðhátíðin
mikilvæg uppörvandi hátíð. Ég er enn að
hitta þakklátt fólk sem býr að henni. Það
er ekki hægt að minnast hennar án þess í
hugann komi nafn skáldsins úr Skagafírði,
Indriða G. Þorsteinssonar.
Það er inní þennan bláma sem minning
hans mun vaxa, nú þegar upprisan er haf-
in.
Matthías Johannessen.
Nefnd á vegum forsætisráðherra vill að landsbyggðarþingmenn fái aðstoðarmenn
Aðstoðarmenn verði með
skrifstofu á landsbyggðinni
ITILLÖGUM nefndar, sem
forsætisráðherra skipaði til að
bregðast við breyttri kjör-
dæmaskipan, er gert ráð fyrir
að fyrsti þingmaður hvers flokks fái
einn aðstoðarmann og hálf staða að-
stoðarmanns bætist við hvem þing-
mann sem kjörinn er til viðbótar.
Gert er ráð fyrir að aðstoðarmenn-
irnir verði með skrifstofur á lands-
byggðinni.
Nefndin var skipuð af forsætis-
ráðherra í tengslum við kjördæma-
breytinguna. Nefndin sldlaði áliti
fyrir síðustu kosningar, en í henni
sátu fulltrúar allra þingflokka sem
þá áttu sæti á Alþingi. Nefndina
skipuðu Einar K. Guðfinnsson for-
maður, Tómas Ingi Olrich, Magnús
Stefánsson, Svavar Gestsson, Krist-
ján Möller, Jóna Valgerður Krist-
jánsdóttir og Steingrímur J. Sigfús-
son. Nefndin hafði tvíþætt hlutverk,
annars vegar að móta aðgerðir í
byggðamálum og hins vegar að móta
reglur um aðstoð við þingmenn í nýj-
um kjördæmum þar sem þingmönn-
um fækkar og svæði þeirra stækkar.
„Markmiðið var að reyna að
tryggja eftir fóngum að þetta sam-
band þingmanns og kjósenda rofn-
aði ekki,“ sagði Einar K. Guðftnns-
son.
Einar sagði að tillaga nefndarinn-
ar, sem skilaði sameiginlegu áliti,
væri að hver flokkur, sem fengi kjör-
inn þingmann í kjördæmunum, fengi
einn aðstoðarmann og hálfur starfs-
maður bættist við hvern þingmann
sem kjörinn væri til viðbótar. Með
öðrum orðum fengi flokkur sem
næði tveimur þingmönnum eina og
hálfa stöðu, en flokkur sem fengi
þrjá þingmenn tvær stöður aðstoð-
armanna.
Ráðnir verði um það bil
20 aðstoðarmenn
„Það var lögð á það mikil áhersla
af okkar hálfu að þessir aðstoðar-
menn störfuðu úti í kjördæmunum.
Það var rætt sérstaklega um hvort
aðstoðarmaður ætti að starfa við hlið
þingmanns á skrifstofu hans á Al-
þingi, en niðurstaðan var sú að þar
sem meginmarkmiðið væri að auð-
velda samband þingmanna og kjós-
enda væri eðlilegt að þessir aðstoð-
armenn störfuðu úti í
kjördæmunum. Það væri síðan á
valdi þingmannanna að kveða nánar
á um það.
Við leituðum upplýsinga um þessa
starfsemi í löndunum í kringum okk-
ur. Þar fer þetta fram með ýmsum
hætti. Víða njóta þingmenn aðstoðar
á skrifstofum sínum, en okkar nið-
urstaða var sú að það væri mjög
mikilvægt að þessir menn væru
starfandi í kjördæmunum sjálfum.
Þetta gæti þá um leið létt á þing-
málaskrifstofu Alþingis, sem m.a.
aðstoðar þingmenn við undirbúning
mála,“ sagði Einar.
Einar sagði ljóst að þetta kallaði
eftir viðbótarkostnaði, en hann liti
svo á að þetta væri herkostnaðurinn
við þessa kjördæmabreytingu.
Nefndin lagði til að tillögur nefndar-
innar kæmu til framkvæmda í áföng-
um og fyrsti áfangi yrði stiginn með
fjárveitingu í fjárlögum árið 2001. Þá
yrðu u.þ.b. 10 aðstoðarmenn ráðnir,
en þegar tillögumar yrðu komnar að
fullu til framkvæmda eftir næstu al-
þingiskosningar yrðu aðstoðar-
mennimir u.þ.b. 20. Þingmenn í
landsbyggðarkjördæmunum verða
eftir kjördæmabreytinguna alls 30.
Einar sagði að nefndin hefði ekki
talið ástæðu til að gera breytingu á
aðstoð við þingmenn á höfuðborgar-
svæðinu. „Verið er að bregðast við
þeim aðstæðum sem skapast þegar
kjördæmin á landsbyggðinni eru
stækkuð og þingmönnunum þar
fækkar. Hið gagnstæða gerist á höf-
uðborgarsvæðinu. Kjördæmin,
hvert um sig, minnka og þingmönn-
um fjölgar."
Skýrsla um samkeppnishæfni þjóða
Staða Islands
batnar en horf-
urnar versna
Island er í fremstu röð þjóða hvað varðar
lítið atvinnuleysi, mikla notkun á Netinu,
jöfnuð í heilbrigðis- og menntakerfínu og
stofnun nýrra fyrirtækja. Skattheimta á
Islandi er hins vegar mikil, litlu fjármagni
varið í rannsóknir og þróun og þjóðhags-
legur sparnaður er lítill.
ALÞJÓÐLEGA efnahags-
stofnunin (The World
Economic Forum) í
Davos í Sviss hefur
undanfarin ár lagt mat á sam-
keppnishæfni þjóða með því að
bera saman margvíslega þætti í
efnahagsstarfsemi þeirra. Ný
skýrsla stofnunarinnar er komin
út, en samkvæmt henni er Island í
24. sæti, en var í 18. sæti í fyrra.
Skýrslan byggist á þróun ýmissa
efnahagsstærða og huglægu mati
stjórnenda fyrirtækja. Samtök at-
vinnulífsins aðstoðuðu við gerð
skýrslunnar fyrir íslands hönd.
Skýrslan í ár felur í sér þá ný-
breytni að niðurstöður eru settar
fram á tveimur mælikvörðum í
stað eins líkt og áður var gert.
Annars vegar er skoðaður grund-
völlur verðmætasköpunai’ og hins
vegar er lagt mat á forsendur
framtíðarhagvaxtar. Báðir þessir
mælikvarðar eru settir saman úr
fjölda ólíkra þátta.
FyiTÍ mælikvarði skýrslunnar
byggist á þáttum sem leggja
grunn að framtíðarhagvexti og er
sá mælikvarði sambærilegur við
þann mælikvarða sem notast hef-
ur verið við í eldri skýrslum. Þess
ber þó að geta að nú er tekið mun
meira tillit til tækni og þróunar og
þátta er leggja grunninn að upp-
lýsingasamfélaginu og hinni nýju
efnahagsskipan en áður var gert.
Á þessum kvarða lendir Island í
24. sæti, en var í 18. sæti fyrir ári.
Hinn kvarðinn segir til um sam-
keppnishæfni ríkjanna núna. Á
þessum lista eru Islendingar í 17.
sæti.
Minnst atvinnuleysi
á Islandi
Samkeppnis-
hæfni ríkjanna
2000 RÍKI (RÖÐ 99)
1. Bandaríkin (2.)
2. Singapore (1.)
3. Lúxemborg (7.)
Holland (9.)
frland (10.)
Finnland (11.)
Kanada (5.)
Hong Kong (3.)
Bretland (8.)
Sviss (6.)
Taiwan (4.)
12. Ástralía (12.)
13. Svíþjóð (19.)
Danmörk (17.)
Þýskaland (25.)
Noregur (15.)
Belgía (24.)
Austuríki (20.)
ísrael (28.)
Nýja-Sjáland (13.)
Japan (14.)
Frakkland (23.)
Portúgal (27.)
ÍSLAND (18.)
Malasía (16.)
Ungverjaland (38.)
Spánn (26.)
Chile (21.)
Kórea (22.)
italía (35.)
Thailand (30.)
32. Tékkland (39.)
33. SuðurAfríka (47.)
34. Grikkland (41.)
35. Pólland (43.)
36. Máritíus (29.)
37. Filippseyjar (33.)
38. KostaRíka (34.)
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
21.
22.
23.
24.
25.
26.
27.
28.
29.
30.
31.
í skýrslunni eru bornir saman
margvíslegir efnahagslegir þættir
í 59 löndum um allan heim. Ágætt
er að hafa í huga að sé ríkjunum
raðað eftir stærð efnahagskerfa
landanna lendir Island í neðsta
sæti. Hagvöxtur á íslandi árið
1999 var 4,33% sem setur landið í
sjötta sæti. Sé hins vegar litið til
hagvaxtar landanna frá 1990-1999
lendir ísland í 27. sæti með 1,77%
árlega hagvöxt að meðaltali. Kína
er þar á toppinum með 8,75% hag-
vöxt á ári að meðaltali.
Ekkert land í skýrslunni er með
jafnlítið atvinnuleysi og ísland eða
2% árið 1999. ísland er einnig efst
á lista yfir lönd sem gera minnsta
mun á heilbrigðisþjónustu eftir
efnahag íbúanna. Kína og Banda-
ríkin eru þar í 31. og 32. sæti.
Sama á við um jafnrétti innan
skólakerfisins með tilliti til efna-
hags. Þar er Island í öðru sæti
næst á eftir Finnlandi. í saman-
burði á gæðum heilbrigðisþjónust-
unnar er ísland í 6. sæti
I skýrslunni er löndum raðað
með tilliti til þess hvað lágmar-
kslaun hafa mikil áhrif. Efst á list-
anum eru lönd sem eru annað-
hvort með mjög lág lágmarkslaun
eða ekki er farið eftir reglum um
lágmarkslaun. Þar lendir Island í
12. sæti. Lægst á þessum lista er
Danmörk og Frakkland. Island er
í 3. sæti yfir lönd þar sem ráðn-
ingarréttindi starfsfólks eru hvað
rúmust, þ.e.a.s. auðvelt er fyrir
vinnuveitendur að ráða starfsfólk
og segja því upp störfum. Dan-
mörk er í 9. sæti en Svíþjóð í
neðsta sæti. Finnland og Svíþjóð
eru í efstu sætum yfir þjóðir þar
sem vald verkalýðsfélaga er
sterkast, en Island er þar í 17.
sæti. Island er hins vegar í 44.
sæti yfir ríki þar sem fyrirtæki
ráða hvað mestu um laun starfs-
manna.
Háir skattar á Islandi
Island kemur vel út þegar borið
er saman það sem kalla má reglu-
gerðarbákn í ríkjunum. Þar er ís-
land í 5. sæti. ísland er 21. sæti á
lista yfir lönd þar sem minnst er
svikið undan skatti. Útgjöld ís-
lenska ríkisins voru um 36,5% af
landsframleiðslu árið 1998, sem
setur ísland í 33. sæti, en ríki með
mest útgjöld eru Svíþjóð og Dan-
mörk. ísland er í 9. sæti yfir þjóð-
ir sem skila mestum afgangi á rík-
issjóði.
ísland kemur illa út í saman-^
burði á skattheimtu. Aðeins þrjú
samanburðarlönd eru með hærri
virðisaukaskatt en ísland. Noreg-
ur, Svíþjóð og Danmörk eru
reyndar á svipuðum stað og Is-
land hvað þetta varðar. Skattar á
meðaltekjur eru með því mesta
sem þekkist ef marka má skýrsl-
una.
Þar sem fjallað er um dómstóla
í skýrslunni er ísland í efstu sæt-
um. Kostnaður við málaferli er
mjög lítill miðað við samanburðar-
ríkin, mjög lítið er um skipulagða
glæpi, spilling er lítil og traust á
lögreglunni er gott. Á lista yfir
traust almennings á heiðarleik
stjórnmálamanna lendir Island í ..
8. sæti.
Mikil notkun á
síma og Netinu
I kafla skýrslunnar þar sem
fjallað er um innviði samfélagsins
lendir ísland í 15. sæti. Þar er átt
við ástand vega, flugvalla, hafna,
símakerfis. o.s.frv. Island er í 7.
sæti yfir þjóðir þar sem farsíma-
notkun er útbreiddust og 8. sæti á
lista þar sem fjallað er um ódýr-
ustu innanlandssímtölin. ísland er
í 3. sæti yfir lönd sem hafa mest-j
an aðgang að Netinu og 7. sæti
þegar fjallað er um notkun á
tölvupósti.
í kafla skýrslunnar um tækni
og rannsóknir er ísland frekar
aftarlega. íslensk fyrirtæki eru í
43. sæti á lista þar sem fjallað er
um rannsóknir og þróun. Dönsk
fyrirtæki eru einu sæti fyrir ofan
Island. ísland er í 22. sæti þegar
kemur að útgjöldum til rannsókna
og þróunar sem hlutfall af lands-
framleiðslu. Hugverkaréttindi eru
einnig illa varin á íslandi ef
marka má skýrsluna.
Þjóðhagslegur
sparnaður er lítill
ísland er í 3. sæti á lista yfir
lönd sem eru með hvað auðveld-
astan aðgang að fjármagni. Þegar
löndunum er raðað upp eftir muni
á innláns- og útlánsvöxtum lendii’
Island hins vegar í 38. sæti. Á
lista yfir lönd þar sem auðvelt er
að afla fjár á hlutabréfamarkaði
er Island í 17. sæti. Innherjavið-
skipti eru aftur á móti mjög al-
geng hér á landi því að þar lendir
Island í 54. sæti. Þjóðhagslegur
sparnaður er einnig lítill á Islandi
því þar lendir landið í 52. sæti.
Island lendir hins vegar efst yfir
lönd þar sem hlutafjáreign al-
mennings í bankakerfinu er al-
mennust. ísland er í 24. sæti þeg-
ar löndunum er raðað upp eftir'
lánstrausti.
Island lendir frekar aftarlega í
kafla skýrslunnar um utanríkis-
viðskipti og fjármagnsflutninga.
ísland er í 50. sæti yfir lönd þar
sem gengi er hagstæðast útflutn-
ingsatvinnuvegum. Island er í 52.
sæti yfir lönd þar sem aðgangur
erlends fjármagns er hvað frjáls-
astur. Tollar virðast hins vegar
vera lágir á íslandi því þar er
landið í 6. sæti yfir lönd sem eru
með lægstu tollana.
Samkeppnishæfni íslands er
góð þegar kemur að stofnun nýrra
fyrirtækja, en þar er ísland í öðru
sæti. Þetta á við um almennt um-
hverfi fyrir stofnun nýrra fyrir-
tækja og sama má segja um
stjórnkerfið og lagaumhverfið.
Hvort tveggja styður stofnun
nýrra fyrirtækja á íslandi ef
marka má skýrsluna.