Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 33 LISTIR DJASS Geisladiskar TÓMAS R. & EINAR MÁR: I' DRAUMUM VAR ÞETTA HELST Einar Már Guðmundsson: rödd, Óskar Guðjónsson: sópran- og ten- órsaxófónn, Eyþór Gunnarsson: píanó og slagverk, Tómas R. Ein- arsson: bassi og Matthías M. D. Hemstock: trommur. Hljóðritað f Reykjavík 3. janúar 2000. Mál og menning (MM-021) 2000. Ljóðadjass ítoppklassa LÖNG hefð er fyrir samvinnu djassleikara og Ijóðskálda. Allan Ginsberg og Langstone Huges hljóðrituðu með djössurum og hér á landi hafa ljóðskáld á borð við Jó- hann Hjálmarsson og Matthías Johannessen verið iðin við að lesa ljóð með Carh Möller, Guðmundi Steingrímssyni og félögum. En það er munur á lestri ljóð- skálda með djassundirleik og þegar djassmeistarar samtvinna eigin ljóð- lestur tónlist sinni. Mér koma strax í hug meistaraverk á borð við „Pretty and the Wolf“ eftir Duke Ellington, „Freedom" eftir Charles Mingus og „Malcolm, Malcolm, Sempre Malcolm" eftir Archie Shepp. Þeh- þremenningar voru vel skáldmæltir og bjuggu yfir glæstri rödd. Norska skáldið Jan Erik Vold hefur verið flestum öðrum iðnari að túlka ljóð sín við djassleik. Chet Baker, Philip Catherine, Red Mitchelle og Doug Raney auk fjölmargra frábærra norskra djassleikara hafa leikið á skífum hans. Jan Erik les póhtísk ljóð sín af mikilli djasstilfinningu og nær syngur á stundum. Tónlistin er oft andstæða ljóðanna og skerpir það jafnvel boðskapinn. A nýjum diski Tómasar R. Einars- sonar bassaleikara og tónskálds og Einars Más Guðmundssonar skálds og rithöfundar er önnur leið farin. Ljóð Einars eru ekki síður pólitísk en Jan Eriks, en ekki eins opin og skáld- skaparmálið markvissara. Tómas semur tónlist sína í anda ljóðanna og jafnt lög sem spuni efla áhrif þeirra, eru samstæður þeirra. Einar upphef- ur skífuna á lágstemmdari nótum en við erum vön að heyra hann: „Vor- kvöld í Reykjavík". Tónhstin blúsuð í takt við snarkandi sjónvai’psmynd um löggur og glæpona frá bíóáiunum „þegar réttlætið sigraði að lokum“. Oskar, Tómas og sér í lagi Eyþór, magna stemmninguna í sólóum sín- um að Ijóðalestri loknum. Samban rennur síðan ljúf með „Sagnaþulnum Hómer“, slagverkið er príma og Ey- þór ekki síðri sagnaþulur en Hómer. Peter Gunn-bragur er á tónlistinni við „Dansaðu, fíflið þitt, dansaðu" og þótt lestur Einars væri fulleintóna í sífellu ákafans magnaði tónlistin hann vel, blástur Óskars á nótum Shepps fyrir sjötíu og Eyþór með Domino í fingrunum. Ballaðan „Ræðupúlt öreiganna" var ljúf og þarna tókst Einari vel að samtvinna lesturinn tónlistinni. Karabískur roll- inismi ríkti í „Styttum", þar sem ým- is fræg smákvæði Einars fléttuðust saman, s.s. „Gefðu mér sjúss / en vertu ekkert að hafa fyrir því / að segja mér ævisögu þína“. Til varnar sauðkindinni er ekta norræn Tómasarballaða og impressjónískir hljómar Eyþórs gefa tóninn. Tómas magnar lestur Einars og sóló Óskars í lokin í takti við augu sauðkindarinnar „full af þjáningu“. „Stelpan sem þú elskaðir“ er að sjálf- sögðu blús og svo er komið að „Bein- unum á bjargbrúninni“ þar sem þungur bassinn og rödd skáldsins fallast í faðma og Óskari tekst sér- lega vel að móta persónulegan tón á Sýning á Skriðuklaustri í Fljótsdal Hönnun og handverk Egilsstöðum. Morgunblaðið. SÝNINGIN Nytjalist úr náttúiunni var opnuð í Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri sl. föstudagskvöld. Tuttugu og sex listamenn eiga verk á sýningunni og hafa þau verið valin sem þverskurður af bestu íslensku nytjalist samtímans. Þema verkanna er vatn og efniviðurinn allur náttúru- legur og afar fjölbreyttur. Sjá mátti á sýningunni ílíkur og fylgihluti, skartgripi, töskur, út- skurðarmuni, borðbúnað og ýmsa húsmuni, auk sértækra hönnunar- verka. Athygli vakti hversu sýning- unni er haganlega fyrir komið í glæsilegum húsakynnum Skriðu- klausturs, en áhersla var lögð á ein- faldleika og vítt rými í allri framsetn- ingu verkanna. Þess má geta að Signý Ormars- dóttir, fatahönnuður á Egilsstöðum, er meðal þeirra sem eiga verk á sýn- ingunni. Sýningin, sem fyrst var sett upp í Ráðhúsi Reykjavíkur í ágúst sl., er framlag þróunarverkefnisins Hand- Skúli Björn Gunnarsson, for- stöðumaður Gunnarsstofnunar, og Sunneva Hafsteinsdóttir, verkefnissljóri Hönnunar og handverks. verks og hönnunar til Reykjavíkur - menningarborgar Evrópu árið 2000. Sýningin á Skriðuklaustri stendur til 22. október en verður eftir það áfram á faraldsfæti og flyst næst til Stykk- ishólms. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Verk eftir Margréti Jónsdóttur og Margréti Guðnadóttur. Sótt og dauði ís- lensk- unnar FLUTT verður dagskrá úr bókinni Upplýsingaröldin - úrval úr bókmenntum 18. ala- ar sem ber yfirskriftina „Sótt og dauði íslenskunnar", á Súfistanum annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Þar mun Þorfinnur Skúla- son, annar ritstjóri bókarinn- ar, kynna hana og lesið verð- ur valið efni. Meðal þeirra texta sem lesið verður úr má nefna „Arnbjörgu" eftir Björn Halldórsson í Sauð- lauksdal, en þar er að finna ýmsar leiðbeiningar fyrir verðandi húsfreyjur; „Stutt en einföld ávísun um að fá drukknaða og helfrosna til lífs aftur“ eftir Jón Eiríksson en sá titill skýrir sig sjálfur og „Sótt og dauði íslenskunn- ar“ eftir Eggert Ólafsson. Dagskráin var fyrst flutt í vor. Aðgangur er ókeypis. Höggmyndasýning í Sparisjóði Garðabæjar SÝNING á verkum Péturs Bjarnasonar myndhöggvara verð- ur opnuð í Spari- sjóði Garðabæjar, Garðatorgi 1, á morgun, fimmtudag, kl. 17. Ilöggmyndirnar voru á sýningu sl. sumar á norrænu vinabæjarmóti í Birkerod, Dan- mörku, vinabæ Garðabæjar. Pétur Bjarnason er fæddur í Reykja- vík 20. september 1955. Hann útskrif- aðist úr skúlptúr- deild MHÍ 1982, árin 1985-1988 var hann í skúlptúrnámi við Nationaal Hoger Instituut voor Schone Kunsten, Antwerpen, Belgíu. Fjöldi höggmynda eftir Pétur er í einkaeign og eign opinberra aðila hér á landi og erlendis. Pét- ur hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum á Islandi, Birkerod, Eitt verka Péturs á sýningunni. Antwerpen, Brussel og New York. Sýningin verður opin á af- greiðslutíma sparisjóðsins kl. 8.30-16 alla virka daga til 9. nóv- ember. tenórinn í seiðandi millispili. „Róbin- son Krúsó snýr aftur“ og „Skærulið- arnir hafa umkringt Vatnaskóg“ eru leikin í frjálsum stíl og Adams/Pull- en-kvartettinn kemur upp í hugann. Diskinum lýkur svo á einu besta ljóði Einars: „Ég hugsa um þig“ þar sem gamalkunnugt Tómasarstef hljómar undir. Þarna má heyra andstæður ljóðs og lags magna hvor aðra upp eins og Jan Erik Vold tíðkar títt og lestur og hljóðfæraleikur fallast 1 faðma í minningunni sem Einar hef- ur grafið: „Með ljósbáan miða milli fingranna á leiðinni þangað sem / notuðu smokkarnir / niðurbrotnu skipin / og geðveikrahælið gult bíða þín enn / á sextán snúninga hraða gegnum líf / sem safnar baugum í svefni." Það er ekki hægt að segja annað en vel hafi tekist til við að bræða djass og ljóð saman á þessum diski þótt upplifunin sé ekki eins sterk og á tónleikunum í fyrra. Einar Már flaskar stundum á áherslum og hefur tæpt vald á tungunni þegar hraðinn er sem mestur. Það kom lítt að sök á tónleikunum þar sem galdur lífsins ríkti - geislinn er kaldari. En ljóðin eru frábær og tónlistin gæðir þau enn magnaðra lífi og bestu sólóar Eyþórs Gunnarssonar eru tær list sem seint gleymast. Tómas R. Einarsson er eitt fremsta djasstónskáld sem við höfum eignast. Þessi diskur, eins og diskar hans þrír á undan, er fjær hinum harða djassi sem einkenndi fyrstu diska hans fjóra, en brátt er von á einum slíkum, hljóðritunum hans með kvintettinum þar sem Jens Winther blæs í trompetinn, og ef marka má tónleika þeirra félaga á Jazzhátíð Reykjavíkur verður mikil veisla að hlusta á þann disk, en það er líka veisla að hlusta á í draumum var þetta helst - bara öðruvísi. Vernharður Linnet Foreldrar, kennarar, SKÓLASTJÓRAR og RÁÐGJAFAR í SKÓLAÞJÓNUSTU Á barniö erfitt með heimanámið? Eru agavandamál í bekknum? Þarf að bæta félagsleg samskipti? Fer mikill tími í viðbrögð vegna agabrota? Eru margir einstaklingar með sérþarfir? Hvað er til ráða? Lesefni „Gríptu til góðra ráða. Handbók í atferlisstjórnun.” Umbun, samningar, mótun hegðunar, félagastuðningur og viðbrögð við vanda. Bekkjarstjórnun, ótækt orðbragð einstaklingsnámskrá, einelti, samskipti heimilis og skóla. Bókin er til í flestum skólum landsins, hjá félagsþjónustu og heilsugæslu. Eina bókin af þessu tagi á íslensku. Örfá eintök eftir til sölu hjá höfundi. Námskeið bæta hegðun, líðan og námsárangur • „Gríptu til góðra ráða” 20 tímar Atferlisgreining, stjórnun og hvatning. Raunhæf verkefni og hagnýt fræðsla. Efni samnefndrar bókar. • „Morningside - kennslulíkanið I” 30 tímar Kennslu- og matsaðferðir. Beitt er sömu aðferðum og kenndar eru. Verkleg þjálfun. Færni tvöfaldast í viku hverri uns markmið nást. Fyrirlestrar, kynningarerindi Sérsniðin þjálfun og ráðgjöf á vettvangi Aimenn atferlis- og kennsluráðgjöf Svara einnig fyrirspumum á síðunni http:// netdoktor.is Þjónusta í heimabyggð Pantanir og nánari upplýsingar: Talsími & bréfsími: 562 14 67. Netfang: adda@ismennt.is Guðríður Adda Ragnarsdóttir, atferlisfræðingur og kennari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.