Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 48
£8 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 MORGUNB LAÐIÐ MINNINGAR + Jón S. Guðmunds- son biíVélavirki fæddist í Reykjavík 5. maí 1922. Hann lést á heimili súiu Ljósvalla- götu 22, laugardag- inn 7. október síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Kristín Margrét Jónsdóttir, f. 8. nóv- ember 1900 í Reykja- vík, d. 20. maí 1927, ^og Guðmundur Jóns- * son verslunarmaður, f. að Kirkjubóli í borgarfírði 14. októ- ber 1893, d. 31. des- ember 1947. Þau eignuðust (jögur böm og var Jón elstur þeirra. Hin era: 1) Eysteinn, f. 5.8. 1923, kvæntur Valgerði Þ. Guðleifsdótt- ur, þau eiga fjögur börn. 2) Ásgeir, f. 19.2. 1926, kvæntur Jóhönnu Þorsteinsdóttur, þau eiga þrjú böra. 3) Kristín Margrét, f. 29.4. 1927, gift Pétri Jóhannssyni, þau eiga þijú böra. Systkini samfeðra. 4) Sigríður Ósk, f. 1.10. 1930, gift Mikael Gabríelsyni, þau eiga þijú böra. 5) Ólafur, f. 16.10. 1931, d. Það var óvænt frétt sem ég heyrði frá móður minni á laugardeginum 7. október að hann Jonni væri dáinn. Hann hafði kvartað yfir magaverkj- um dagana á undan en samt ekki þannig að hann vildi láta lækni skoða sig og var að eigin sögn að lagast deg- inum áður en hann lést. Jonni var ekki mikið fyrir það að láta aðra hafa fyrir sér þá frekar en á öðrum tíma. Jonni er mér og okkur systkinun- um mjög minnisstæður. Hann bjó alla sína tíð á Ljósvallagötu 22 í húsi því sem faðir hans og þeir bræður byggðu á sínum tíma meðan að móðir mín og systir þeirra sá um heimilið. Mamma og pabbi bjuggu síðan á neðstu hæðinni þangað til þau fluttu þaðan 1964. Það var alltaf mikið tál- hlökkunarefni hjá okkur systkinun- um þegar farið var í heimsókn á Ljós- vallagötuna til Jonna. Maður vissi sem var að alltaf var til nammi hjá Jonna og það brást aldrei að vel væri tekið á móti okkur. Jonni var mikill 4.2. 1978, hann var ókvæntur. 6) Árai, f. 20.11. 1933, d. 4.6. 1999, fyrri kona hans var Katrín Kristjáns- dóttir, d. 1987, þau eignuðsut fimm böm. Seinni kona Árna er Ruth Woodward. 7) Ólína, f. 21.5. 1938, gift Einari Sigur- bergssyni, þau eiga sex böm. 8) Sigurð- ur, f. 7.2. 1940, d. 13.8.1971. Jón lauk gagn- fræðaprófi frá Gagn- fræðaskóla Ingimars og fékk sveinsréttindi í bifvélavirkjun árið 1956. Hann vann lengi á bifreiða- verkstæði Sambandsins en stofn- aði sjálfur bifreiðaverkstæðið Drif í Súðavogi ásamt tveimur félögum si'num og ráku þeir það í nokkur ár. Síðustu árin fram til starfsloka vann Jón við bflaréttingar í Bfla- skálanum hf. Útför Jóns fer fram frá Fríkirkj- unni í dag og hefst athöfnin klukk- an 15. áhugamaður um skák og ég var ekki hár í loftinu þegar að hann byijaði að kenna mér mannganginn. Síðan voru yfirleitt alltaf tefldar nokkrar skákir í hverri heimsókn. Við fórum síðan saman á ýmis merk skákmót sem haldin voru hér á landi. Sérstaklega var minnisstætt þegar að við fórum á heimsmeistaraeinvígið milli Fischers og Spasskys sem haldið var í Laugar- dalshöllinni 1972 og Jonni leiddi mann í allan sannleikann um kepp- endur og þá ekki síst Fischer sem greinilega var í uppáhaldi hjá honum. Hin seinni ár sáumst við Jonni ekki oft enda var ég fluttur til Vestmanna- eyja. Skákkunnáttunni hirti ég h'tt um að halda við enda ekki við neinn Jonna að tefla. A seinni árum byijaði Jonni að æfa pútt með eldri borgun- um og það var þá aðeins að ég gæti endurgoldið honum skákkennsluna með því að sýna honum hvemig best væri að bera sig að í púttinu. Það verður fátæklegra núna um jólin að hitta ekki Jonna á jóladag eins og undanfarin ár en minningin um hann verður ekki langt undan. Um góðan dreng sem alltaf hafði tíma til að ræða málin. Systkinum hans votta ég samúð mína og bið góðan guð að geyma Jonnavel. Jóhann Pétursson. Elsku frændi. Það er nú hálfskrítið að setjast nið- ur og skrifa fáein kveðjuorð því lát þitt bar mjög óvænt að. Það er svo margt sem kemur upp í hugann. Eins og þegar ég var lítil hvað það var allt- af gaman að fara í heimsókn til þín á Ljósvallagötuna, alltaf áttir þú eitt- hvert gott í skál, sama hvenær við komum. Eins eru mér alltaf svo minn- isstæð jólin þegar ég var 10 ára. Það var alltaf svo spennandi að opna jóla- pakkann frá þér, Óla og Dóru. Nema þegar styttist í pakkana verð ég þess áskynja að pakkinn til mín var bara pínulítill. Mamma sá sem betur fer hvað verða vildi og sagði hughreyst- andi að það væri yfirleitt fallegast í litlu pökkunum. Og eins og mér fannst þetta líta illa út, tók ég nú held- ur betur gleði mína, því í litla pakkan- um var minn fyrsti gullhringur. Ég veit að það verður vel tekið á móti þér á nýjum stað, Guð veri með þér. Þín systurdóttir, Auður Pétursdóttir. Við fráfall frænda okkar, Jonna, eins og hann var alitaf kallaður, er margs að minnast. Húmor og gal- skapur kemur upp í hugann, ásamt elsku til lesturs og skáldskapar. Sem dæmi um það er vísa eftir uppáhalds- skáld hans, Kristján Jónsson Fjalla- skáld, sem Jonni fór löngum með um sjálfan sig: Þú ert sá mestí maður, Jón, makalaus bæði í raun og sjón. En furðuleg er flónska sú að fáir vita það - nema þú! Þegar við systkinin ólumst upp var hann Jonni frændi alltaf til staðar. Ótal sinnum bönkuðum við uppá hjá honum og fengum Nóakonfekt ásamt leiðsögn í sögu, skák eða landafræði og nutum nærveru hans. Staðamöfn og kennileiti á Islandi voru sérstakt áhugaefni hans og var hvergi sá hóll sem hann kunni ekki að nefna og segja sögu af. Þótt Jonni eignaðist ekki böm sjálfur voram við öll bömin hans. Hann elskaði böm og hafði á þeim einstakt lag. Aðfangadagskvöld- in vora sérstök. Þegar við systkinin voram búin að taka upp okkar pakka heima hjá okkur var farið niður og þar biðu Jonni og Dóra með sína pakka óopnaða. Þar sátum við og nut- um þess að fá að taka upp pakkana með þeim. Þetta breyttist við fráfall Dóra en alltaf höfum við „átt“ Jonna á aðfangadagskvöld. Það var eins og tíminn stæði í stað þegar Jonni var heimsóttur. Áratug- irnir höfðu markað hverjum hlut sinn stað og það var eins og því gæti ekk- ert breytt. Yfir öllu hvíldi ró og æðra- leysi; amstur dagsins átti hér ekkert erindi. Hjá honum var eins og opnuð- ust dyr inn í fortíðina, á vit æskuár- anna og þeirra daga þegar fimmtu- dagar vora sjónvarpslausir og útvarpsrásin ein. Nú þegar þessar dyr falla að stöfum lýkur mikilvægum kafla í lífi okkar systkinanna sem mun ávallt vera okkur kær. Við höfum nú misst góðan frænda og vin, en eram rík af minningum um sérstakan mann sem á sinn stað í hjörtum okkar um ókomna tíð. Kristján Fjallaskáld yrkir við lát vinar síns: Nú samvist þinni ég sviptur er; —ég sé þig aldrei meir! Astvinirnir, sem ann ég hér, svoallirfaraþeir. Ég felli tár, en hví ég græt? Þvíheimskingiéger! Þín minning hún er sæl og sæt, ogsömuleiðégfer. Já, sömu leið! En hvert ferð þú? Þig hylja sé ég gröf; þar mun ég eitt sinn eiga bú, umævisvifinnhöf. Enerþínsálasigrikætt ogsælabúinþér? Eg veit það ekki! - sofðu sætt! -ensömuleiðégfer. Anna, Stefán og Elísabet. Hann Jonni frændi okkar er látinn. Við frændsystkinin urðum þess að- njótandi að hafa þó nokkur kynni af þessum föðurbróður og afabróður okkar. í bamæsku okkar var það föst venja að fara til Jonna frænda á sunnudagsmorgnum með Eysteini bróður Jóns, sem er faðir undirritað- rar en afi undirritaðs. Þótti okkar al- veg ómissandi að koma við á Ljós- vallagötunni eftir að búið var að fara niður að Tjöm til að gefa öndunum og skoða skipin á höfninni. Alltaf þótti okkur jafn gaman að þessum reglulegu heimsóknum okkar enda Jonni einstaklega ljúfur heim að sækja og með eindæmum bamgóður. Tók hann okkur ætíð opnum örmum og bar í okkur kræsingar sem jafnan saman stóðu af Nóakonfekti og app- elsíni og vakti alltaf jafn mikla lukku. Kom Jonni okkur ætíð til að finnast við vera aufúsugestir og þótti okkur sem hann hefði ekki síður gaman af þessum heimsóknum en við. Jonni átti forláta rafmagnsspil sem hann geymdi uppi í skáp og dró fram með mikilli viðhöfn er okkur krakk- ana bar að garði. Þótti okkur mikið til þessa undratækis koma og eyddum ófáum stundum í að reyna að velja réttu svörin til að fá ljósið til að blikka. En þetta var ekki það eina sem gerði þessar heimsóknir sérstak- ar. Jonni var mikill skákáhugamaður og kenndi okkur krökkunum mann- ganginn. Var taflinu jafnan stillt upp á sófaborðinu og var Jonni óþreytandi við að tefla við okkur ef svo bar undir. Það var þó frekar annað okkar, þ.e. Arnar Már, sem smitaðist af þessum skákáhuga Jonna frænda og átti það til á seinni áram að fara einsamall til Jonna á Ljósvallagötuna til þess að tefla þó ekki væri nema eina og eina skák. Átti þetta sinn þátt í því að þeir frændur voru hinir mestu mátar og höfðu mikið dálæti hvor á öðrum. Fyrir utan þessar reglulegu sunnu- dagsheimsóknir var alltaf farið á Ljósvalíagötuna á Þorláksmessu, eft- ir að komið var úr kirkjugarðinum, og var slík heimsókn órjúfanlegur hluti af jólastemmningunni í okkar huga. Er árin liðu tók sunnudagsheim- sóknunum að fækka smám saman þar tO þær hættu alveg er við krakkamir komumst á ákveðið aldursskeið. Jonna frænda hittum við þó reglulega í matarboðum í Fossvoginum og var hann þar fastur gestur í jóla- og páskaboðum. Var það okkur mikils virði að fá að halda tengslum við Jonna með þessum hætti. Með þessum fáu orðum vijjum við minnast frænda okkar og um leið þakka honum fyrir þær stundir sem hann svo fúslega gaf okkur. Guðrún Margrét Eysteins- dóttir, Arnar Már Kristinsson. JÓNS. , GUÐMUNDSSON jS.UA R OSWALDS simi 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN ADAI SHUn i 41$ • 101 RI VKJAVÍK Díivic) higer Óhifur Útfdrdrstj. Útfmtrstj. Útfmtrstj. I ÍKKLSTUVINNIJSTOI A HYVINDAR ÁRNASONAR + Sveinn Ólafur Sveinsson húsa- smíðameistari fædd- ist að Nýlendu undir Austur-Eyjafjöllum 24. júní 1924. Hann lést á Landspftalan- um í Fossvogi 4. oktdber síðastliðinn og fór útför hans fram frá Víðistaða- kirkju 13. október. Sveinn Ólafur Sveinsson, mágur minn, er látinn. Það átti sér nokkum aðdrag- anda en sem betur fer án þjáninga að séð varð. Ég heimsótti hann á gjör- gæsludeild fyrr í haust og sá þá að hverju dró. En ég átti eftir að sjá hann aftur þegar ég lagðist sjálf inn á Borgarspítalann 22. september. Ég var ekki fyrr búin að jafna mig eftir svæfingu þegar ég mundi eftir að spyrja hvort hann væri ennþá lifandi. Mér fannst ég þurfa að kveðja hann áður en ég yfirgæfi spítalann. Svo ég fór upp á fimmtu hæð þar sem hann lá einn á stofu. Þetta var undurfalleg- ur dagur, sólin skein skært inn um gluggann á þennan næstum lífvana líkama. Þegar ég var búin að litast um á vistlegri stofunni leit ég út um gluggann á fagurt útsýnið yfir Foss- voginn. Eg settist síðan í stólinn og lét hug- ann reika. Þama átti ég stund sem var einstök. Þarna fann ég hve bilið er stutt milli lífs og dauða og hve dauðinn getur líka verið kærkominn ef ekkert annað er framundan. Ég fann einhvem innri frið við að sitja þama. Það var eins og stofan væri full afkærleikaogró. Svenni, eins og hann var alltaf kallaður, var fríður maður með bjart yfirbragð á sínum yngri áram, yfirvegaður og rólegur. En stríðinn og fastur fyrir ef því var að skipta, næstum ósveigj- anlegur. Hann hækkaði þá bara röddina gegn viðmælanda og sagði; ég held nú bara ekki og hló svo sínum sérstaka hlátri þegar hann hafði bet- ur í samræðunum. Hann þurfti snemma að þola mikið mótlæti, hann var innan við fermingu þegar barna- hópurinn missti mömmu sína og þurfti að fara til vandalausra. Heimili þeirra á Nýlendu undir Eyjafjöllum leystist upp eins og algengt var á þeim tíma. Þetta er nokkuð sem mót- ar fólk til frambúðar. Öll komust þessi böm upp og urðu myndar- og dugnaðarfólk. Svenni fór til séra Jóns M. Guðjónssonar í Holti undir Eyja- fjöllum, síðar prests á Akranesi, og þaðan fermdist hann. Séra Jón gifti líka Svenna og Rebekku, konu hans, og skírði einhver af bömum þeirra, svo af því má ráða að hjá þessu fólki hafi Svenna liðið vel. Rebekka, systir mín, og Svenni kynntust ung að áram og þau kynni hafa dugað rúm fimmtíu ár. Þeim hefur famast vel og eignast fimm mannvænleg böm og mörg bamaböm. Rebekka og Svenni hafa alla tíð verið miklar fjölskyldumann- eskjur, alltaf að hugsa um að bömun- um og barnabömunum liði sem best. Það vora mörg handtökin að hlúa að þeim. Þá era ótalin handtökin að hlúa að þeim sem til þeirra hafa leitað, bæði skylt og óskylt fólk. Má þar nefna Guðjón Einarsson og fleiri. Rebekka og Svenni hafa alla tíð verið fyrirhyggju- og ráðdeildarmanneskj- ur. Við Svenni unnum saman í fleiri vertíðir. Þá bjó ég hjá þeim á Merk- urgötu 8 í Hafnarfirði en þar áttu þau heima í mörg ár en fluttu seinna á Sævang. Svenni stundaði sjó í nokkur ár, síðan var hann leigubílstjóri í Hafnarfirði. Þá réðst hann í fiskvinnu hjá Jóni Gíslasyni og það var þá sem ég kynntist Svenna. Við unnum í frystihúsinu Frosti hf. Það var á margan hátt erfiður en skemmtilegur tími. Eldsnemma á morgnana löbbuðum við frá Merkurgötunni upp alla Norðurbraut í hvaða veðri sem var. Það átti ekki við Svenna að mæta of seint svo heldur var farið í fyrra lagi. Þá þekktist það ekki að venju- legt verkafólk væri með bíl undir rassinum. Sömu leið löbbuðum við til baka oft að löngum og ströngum vinnudegi loknum. Sérstaklega var erfitt þegar maður var að koma skreiðarfiskinum í hjallana. Þá var ekki í tísku að svíkjast um og það veit ég að Svenni kunni ekki. Honum þótti vænt um sína vinnuveitendur og vann þeim vel. Seinna settist Svenni á skólabekk. Hann fór í Iðnskólann til að læra smíðar þó að þau væra komin með stóra fjölskyldu. Hann útskrifaðist þaðan og fór síðan í meistaraskóla og þaðan útskrifaðist hann með fyrstu einkunn þrátt fyrir litla undirstöðu- menntun. Eftir það vann hann við smíðar við hinar ýmsu byggingar. Hann vann um áraraðir við að bæta og breyta húsakynnum á Hrafnistu í Reykjavík og keyrði þá á milli. Svenni var einkar laghentur og snot- urvirkur við allt sem hann gerði. Hann bjó yfir einstakri þrautseigju og gafst aldrei upp þrátt fyrir mikinn mótbyr. Hann lenti í tveimur alvar- legum slysum sem ég man eftir. Ann- að skiptið datt hann ofan af vörabíls- palli og mjaðmarbrotnaði. Hitt skiptið fór hann í vélsög og missti framan af fjóram fingrum annarrar handar. Það hefðu margir gefist upp við öll þessi áföll en það var ekki inn í myndinni hjá Svenna. Hann hélt ótrauður áfram eftir margra mánaða þjáningar í bæði skiptin. Þegar hann var svo kominn á aldur, sem kallað er, fóra þau, hann og Rebekka, að búa til alls konar smáhluti af miklum hagleik. Þau gerðu listafallega barna- kofa og vora með einn slíkan í smíð- um þegar tímaglasið rann út. Ég sá hjá þeim sveitabæi og kirkjur sem hann smíðaði og hún málaði. Þau hafa verið sívinnandi allt sitt líf. Rebekka og Svenni hafa alltaf verið mikil nátt- úrabörn. Þau hafa ræktað skógar- lund fyrir sunnan Hafnarfjörð. Þau hafa lagt einstaka alúð við húsið sitt og umhverfi. Þeirra unaðsstundir vora að fara í sumarhús og losna við skarkala þéttbýlisins. Gunnar, sonur þeirra, var þeim mjög náinn og fór oftast með þeim í lengri og styttri ferðir. Nú er þessu öllu lokið. En eftir sitja minningamar um góðan föður, afa og lífsföranaut. Ég veit að Svenna er sárt saknað af allri fjölskyldunni, ekki síst af litlu barnabömunum sem elskuðu ömmu og afa svo mjög. Ég sendi Rebekku, systur minni, og öllum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Ragna Aðalsteins. SVEINN ÓLAFUR SVEINSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.