Skírnir - 01.01.1871, Blaðsíða 171
DANMÖRK.
171
jólí 1781). Hann stundaSi lögfræSi í æskn, en hvarf skjótt til
sagnafræöi og sögurannsókna — einkum ab því snerti sögu Nor8-
urlanda í ýmsum greinum (t. d. mála, bókfræÖi). Frá 1829 til
1861 var hann bókavörÖur „konungsbókasafnsins mikla“ í Kaup-
mannahöfn, og eitt af ritum hans er saga þessarar bókhlöÖu.
1812 varö hann prófessor viÖ háskólann, en af jþví hann var
elztur allra háskólakennaranna (senior universitatis) var hann
leystur af fyrirlestraskyldu 1852. Asamt B. Thorlacius lauk hann
viÖ útgáfuna miklu á Heimskringlu. Enn fremur hefir hann ásamt
L. Engelstoft gengiö frá 8. bindi af Langebeks „scriptores rerum
danicarum“. — Geta skal og enn tveggja manna, er ljetust í
byrjun jóní mánaÖar; annar var Gram, prófessor í lögvísi og
„prófastur11 stódentagarösins, er Regenz heitir, en hinn var Th.
Hoppe, kammerherra og amtmaöur í Sóreyjaramti, er fyrrum var
stiptamtmaöur á íslandi.
Svíþjóð og Noregur.
Oss þykir skylt, að herma fyrst þann atburð, er báðum þjóðun-
um hefir fundizt mest um og komið sáran við margs manns hjarta,
en það er lát Lovísu drottníngar. |>að er eðlilegt, að konunga og
drottninga sje eigi miður getið í kotunga hósum en híbýlum ríkra
manna, og svo var um Lovísu drottningu, en hón var á alþýðu orði
eigi tignarinnar vegna, eða fyrir það eina, er tignu fólki er innan
handar að láta í tje við nauðstadda og hjálparþurfandi, heldur og
miklu fremur fyrir hjartalag sitt, hógværð og beztu kvenndyggðir.
þegar hjer á bætist hyggindi, menntun og margskonar kunnátta, er
prýðir konur sem karla, þá er hægt að sjá, að Lovísa drottning heíir
miður þegið sæmd af konunglegri tign og konunglegu hásæti, en
hvorttveggja heíir haft sóma af mannkostum hennar. Hún var frá
Hollandi og af enni frægu Óraníuætt (en systurdóttir Vilhjálms keis-
ara). og hafði í vetur vitjað móður sinnar, er lá banaleguna. Nokkru
síðar en hón kom heim aptur, varð Karl konungur veikur af fótar-
meini, og var lengi allþungt haldinn. Drottningin var allajafna sjálf
yíir honum, og sú áreynzla með sorg og andvökum bakaði henni