Skírnir - 01.01.1907, Blaðsíða 56
56
Eftir kristnitökuna.
hefndir en bætur. Með miklum skarpleik sýnir B. M. Ó.
að lögtaka kristninnar hafi að miklu leyti komist á sakir
stjórnlegra vandræða. Þó virðist höf. hafa skoðað þann
atburð fremur frá hans stjórnsögulegu iilið, en frá kristn-
innar, enda fylgir sú niðurlagsályktun í ritinu, að eftir að
jafnvægi hins gamla goðavalds hafi verið endurreist við
lagauppsögu Þorgeirs Ljósvetningagoða hafi fiokkur hinna
nýju goða á skömmum tíma dottið úr sögunni. Það er
hvorttveggja, að hin fróðlega ritgjörð prófessorsins nær
ekki lengra, enda skortir hér bersýnilega skýringu, er
sýni hvaða afl það hafi verið, er svo skjótt fekk blásið
burt af jörðunni þeim flokki, sem höf. hafði gert svo
geigvænlegan. Höf. bendir á að alt muni hafa jafnast vi&
það, að hið gamla goðavald heiðna flokksins vann hinn
mikla pólitíska sigur, því þá haíi jafnvægið komist á aft-
ur. En kraftar hverfa ekki, heldur breytast*). Betri er
hin röksemd höfundarins, er hann segir: »Hin kristna
trú safnaði öllum landslýð undir vængi sína«. En einnig
þar vantar skýring við skýringu.
Engum getur dulist, að töluverður rigur hafi verið
fyrir kristnitökuna milli höfðingja út af ruglingi hinnar
upprunalegu goðorða- og þingaskipunar, en hins vegar
dylst ekki heldur ef farið er eftir heimildarritunum:
Islendingabók Ara, Kristnisögunni, Njálu, sögum Ólafanna
og öðru, að það hafi verið afl kristninnar sjálfrar og guð-
móður þeirra, sem trúna íluttu, sem úrslitunum réð á al-
þingi árið 1000. Hinn nýi siður var svo voldugt alls-
herjarmál, að alt annað málafylgi varð bláber liégómi.
Og þegar þannig er skoðað, breytist, að mér finst, öll af-
staða málsins. Hinir kristnu menn eru h r i f n i r, þeir
gleyma lögum og sekt, lífi og dauða, vaða inn á vígðan,
þingstað og stefna beiiil til lögbergis í prósessíu, með
róðukrossa og reykelsi; þeir tala nýjum tungum, en heið-
ingjum vefst tunga- um tönn. Þeirra Halls og Þorgeirs
gætir mest sem spektar- og ráðagerðarmanna, en áræðið,.
*) Ekki var það jafnvægi komið 1015, þegar barist var á alþingi.