Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1907, Side 79

Skírnir - 01.01.1907, Side 79
Korraakur og Steingerður. 79 Þetta fer sem Kormakur gat til að Steitigerði líkar illa er þeir höfðu baugnum lógað. Ekki hélzt Kormaki lengi á hringnum. Um vorið ætluðu þeir bræður utan. Þá er þeir voru búnir fer Kormakur að finna Stein-. gerði og áður @n þau skilja kyssir Kormakur Stéingerði tvo kossa heldur óhrapallega. Verður hann að láta af hendi hringinn í bæt*. ur. — Nú fer Kormakur utan og með honum Þorgils bróöir hans- og komu til hirðar konuugs ; var þ»r vel við þeim tekið.—Þess er getið að Steingerður biðttr Þorvald tintein að þati skyldi utan. Hann kvað það eigi ráðlegt, en má þó eigi synja henni. Ráðast þau til ferðar og komu um haf og settu vikingar að þeim og vildu. ræna þau og taka í brott Steingerði. Þess verður Kormakur vís. og fer til og veitir þeim lið svo að þau héldu ötlu fé sínu. Komu,. þau síðan til konungshirðar og einn dag var það er Kormakttr gekk um stræti; sá hann Steingerði sitja í skemmu einni og gekk þar að og sat hjá henni og talaði við hana og kysti hana fjóra, kossa. Þorvaldur varð var við það og brá sverði; síðan hlupu konur 1 milli og var setn eftú Haraldi konungi. Hann kvað vant munu til að gæta með þeim — »en gera mun eg sætt með ykktir«. Þeir játtu því. Konungur mælti : »Einn koss skal vera fyrir það er Kormakur veitti þér lið í landtöku, en fyrir annan það er Kor- makur sótti Steingerði, en fyrir tvo kossa tvo aura guils«. Einn dag er Kormakut' gekk á stræti sá hann Steingerði, vikur til hennar og biður hana ganga með sér; hún neitar því; þá kippir Kormakur henni að sér; hún kallar til liðs sér; konungur var nær staddur og gengur til og þótti ftndarleg þessi för og tók hana af honum og mælti til hans stuttlega. Konungur gerði sig reiðan, en Kormakur er þó með hirð hans og kemst brátt í vináttu við konung og var kyrt um veturinn. Eftir um vorið byrjar Haraldur konungur ferð síti?, til Bjarma- lands með miklu liði. Kormakur var skipstjórnarraaður 1 þeirri ferð og á öðru skipi var Þorvaldur. Og er þeir sigldu nær í sundi einu lanst Kormakur hjálmvelinum við eyra Þorvaldi og féll hann frá styrinu í rot; skip Kormaks rendi við er það misti hjálmvalar. Steingerður sat áður hjá Þorvaldi og tók til styris og styrði á flatt skip Kormaks. Skipinu hvelfir undir Kormaki og haus mönnum varð skjótt borgið er margt manu.a var við. Þorvaldur rétti við og snúa áleiðis ferðinni; byður konungur sína gerð á málinu og því játtu þeir báðir. Konungur lét jafnt högg Þorvalds og hrakning Kormaks. Þeir komu um kveldið við land; sat konungur og menn

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.