Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1907, Side 28

Skírnir - 01.04.1907, Side 28
124 Frá Eóm til Napoli. votninu upp í brekkuna, og þá aftur 2 garðar, annar úti í vatn- inu og hinn uppi í brekkunni til að samtengja þá til endanna, svo fornvirkið yrði ekki séð nema gengið væri ittn um dyr nokkrar, er á voru múrnum með læstri hurð fyrir. Þessar dyr eru ætlaðar að draga þeim pettiuga, er lyklana hafa í vörzlu sinni mann eftir mann; en rnúrinn sjálfur var farinn að fyrnast, svo að eg gat kiifrast upp á einum stað og sá nú hversu gangurinn er höggvinu jafnt vatninu inn undir fjallið; er hann að hæð svo sem 3 álnirr en á vídd ekki fullar 2, og er meira en 1200faðma langur, og nær hattn í gegnunt það vestur úr. Er það verk ærið mikið og þykir undrum gegna að því varð komið af á einu ári, þótt trautt gætu nema svo sem tveir i senn að því staðið. Eg lét fylgdarmanninn sjá mig heldur hróðugan uppi á múrnum og gaf honum í skyn, að betra væri að gera dálítið að múrnunt, svo ekki væri hægt að kom- ast upp á hann, og fór nú í skyttdingu skemstu leið til Albano* því að ekki fysti raig að fara sömu leið aftur og eg var komimi, er eg gat hjá því komist, því vel gat svo til tekist, [að] eg ætti þar ekki vinum að mæta eftir að svo var mikið að gert. Yaguinn var þá að búast til ferða og fór eg ásamt nokkrumt af samferðamönnunum gangandi á undan, því kvöld þetta og veg- urinn var hvorttveggja hið fegursta. Vegurinn liggur altaf í miðjum hlíðum fyrir ofan stærstu jarðföllin og ymist olívu- eða eikarskógar og margs konar tré önnur og runnar eður akrar og aldin- garðar umhverfis. Við mættum meðal annars urtdir sólarlagið vinnukonunum frá Albatto, sem fóru inn í bæinn að loknu dags- erfiðittu á ökrunum; voru þær til samans — eg held ■— möig huttdruð. En aldrei hefi eg séð blómlegri almúgastúlkur og rak mig í stanz að fintta þar ekki nokkra eina, sem ekki mætti heita frt'ð og vel útlítandi og [vav] eins og væri með þeim [óllum] ættar- mót. Það er líka gert orð á því ltvað frítt sé kvenfólkið í Alharto. — Albaniska fjallið er, eins og önttur eldfjöll, líkt á alla vegu og beygist nú yegurinn sniátt og smátt meir til lattdsuður svo róm- verski dalurinn fer að ganga fyrir og Rómaborg er horfin undir útnorðurenda fjallsins, en slétturnar vestur til sjávar og pontisku forirnar, er taka við næst sjónum, breikka að sama skapi sem dal- urittn blasir bettir við, er liggur inn nteð fjallinu að sunttan upp undir Appennítta fjöll. Hann er áþekkur róntverska dalttum, sem liggur upp með Tíberfljótinu og gengur honum nærfelt jafnsíðisr en allur er liantt, þó miiini og styttri. Það er breitt bygðarlag og fagurt hérað, og heldur að því að norðan albaniska fjallið og t'or-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.