Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1907, Page 77

Skírnir - 01.04.1907, Page 77
Barnsmæður. 173 þingi til dauða fyrir að hafa fleygt barni sínu í Skjálf- andafljót »og var henni að þeirrar aldarsið strax réttað«. Feður þessara mvrtu barna eru aldrei nefndir á nafn. Lögin leggja þeim enga ábyrgð á herðar. Almennings- álitið sýknar þá. Og þess eru hvergi dæmi, nema í skáld- sögum, að þeir hafi sjálflr geflð sig fram og játað að ó- rækt þeirra við móður og barn væri eigi hvað sizt orsök til glæpsins. Þess var getið hér að ofan að almenningsálitið og löggjöfin ætti mestan og beztan þátt í barnsmorðunum. Almenningsálitið er öllnm kunnugt, það er álitin skömm fyrir ógifta stúlku, að eignast barn. Um réttmæti þessa álits skal engum orðum farið hér, það mundi vera með öllu gagnslaust. Almenningsáliti verður eigi breytt nema með löngum tíma. En löggjöflnni má breyta, ef þörf krefur. Væri því ef til vill ekki úr vegi að athuga nán- ara lagaákvæði vor íslendinga um óskilgetin börn og mæður þeirra. Reynsla allra alda heflr borið vitni um það, að föð- urástin er sjaldan svo heit frá upphafl, að óhætt sé að reiða sig á, að feðurnir sjái afkvæmi sínu borgið, ef þeir eru ekki knúðir til þess af öðrum ástæðum — ást á barns- móðurinni, hjónabandi o. s. frv. — Þess vegna eru til fyrirskipanir bæði í gamalli og nýrri löggjöf, er ákveða, að hve miklu leyti faðirinn sé skyldur að annast uppeldi barns síns. — Og engum getur dulist það, að þó að for- feður vorir væru víkingar og ribbaldar í aði'a röndina, hafa þeir þó átt talsvert af réttsýni og mannúð í fórum sínum. Að minsta kosti eru ákvæðin í Grágás og Jónsbók um óskilgetin börn og mæður þeirra bæði mannúðlegri og réttlátari en núgildandi lög. Þar með er þó ekkisagt að þeim sé í engu ábótavant. I Grágás (ómagabálki) segir svo: »Sitt barn skal hver maður framfæra á landi hér. Faðir skal framfæra bai'n sitt að tveim hlutum, móðir að þriðjungi. En ef þau hafa félag sitt gert, þá skulu þau að slíkum hlutum hvort framfæra ómagana, sem þau hafa te til............að

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.