Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1907, Side 91

Skírnir - 01.04.1907, Side 91
Hitt og þetta. 187 Jón SigurSsson; hann gerir svo vel að skrifamérum allt hið merki- legásta sem ferr framm, og sendir mér þar að auki alþingistíðind- in. Enu fremur em eg einn af kaupendum Þjóðólfs, svo að eg má heita vel byrgur að íslenzkum fréttum. En því miður get eg varla skrifast á með vinum mínum úti á Islandi, nema með þeim fáum sem skilja þ/zkuna, svo að eg geti skrifað þeim á þ/zku, en þeir svari mér á íslenzku; það er óvinnandi, að tala eða skrifa útleuzkt mál þar sem maður á ekkert tækifæri til þess að iðka það svo að árum skiptir. Eg voua mér fyrirgefningar hjá Yður alls þess er mér mistókst í þessu bréfi; það er fornt orö, að enginn kveður betur enn hann kann. Loksins leyfi eg mér að biðja Yður að bera kveðju mína konu Yðvarri og börnum, samt nábúum Yðvarum, Jóni Þórðarsyni í Eyvindarmúla og Páli Sigurðssyni á Arkvörn, þar að auki séra Skúla Gíslasyni, ef Yður gefst færi til þess, og óska eg Yður og öllum YSar ástvinum allra heilla. YSar skuldbundinn trúr vinur Konráð Maurer. Gömul þjóðtrú. I. 1. »Ef heiðbjart er og himinn klár á helga Pálusmessu, mun þá verða mjög gott ár, mark skalt hafa á þessu. 2. Ef að þokan Óðinskvon y á þeim degi byrgir, fjármissi og fellisvon forsjáll bóndinn syrgir.« Frá 1840 til 1900 (60 ár) var hér á suðurlandi »heiöbjart veður og himininn klár á Pálsmessu 8 sinnum. Þar af vóru 5 góöæri og 3 meðal ár, ekkert harðæri.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.