Skírnir - 01.12.1912, Blaðsíða 76
364
Arnarhreiðrið.
En sumir af þessum ísalda-gosstöðum eru þau furðu-
verk náttúrunnar, að óvíða á jörðunni mun sjá slík, og
má telja víst, að einhvern tíma muni margir, útlendir og
innlendir, fara að skoða önnur eins rósaverk úr blágrýtis-
súlum, eins og sjást í Ketubjörgum eða Þórðarhöfða við
Skagafjörð; og dálítið líkt því, en þó svipminna hafði eg
þá um sumarið fundið uppi í fjallgarðinum fyrir ofan
Eyrarbotn. Hefir þar grafist ofan af alt eldvarpið, svo
að komið er ofan á sjálfan grjótnaglann, sem varð í upp-
gönguauga eldleðjunnar, þegar alt kólnaði og storknaði
eftir gosið. Má um þetta og fleira lesa í því yfirliti yfir
jarðfræði Islands, sem eg hefi samið fyrir hið mikla rit-
verk Handbuch der regionalen Geologie, 1910;1)
14. sept. 1912.
Heigi Pjeturss.
‘) Handbuch der regionalen Greologie heransgegeben von Prof. Dr.
Gr. Steinmann nnd Prof. Dr. 0. Wilckens. Heidelberg. IY, 1: Island von
Dr. Helgi Pjeturss; kostar sérstakt 1, 20 Mk.