Ný sumargjöf - 01.01.1865, Blaðsíða 71
71
að bein þessi voru úr stórurn ferfættum dýrurn, en ekki
mönnutn. Aptur á móti hefir opt gefizt kostur á að grand-
skoða lík og beinagrindur manna, sem lifað höfðu fyrir
mörgum öldum og enda fyrir tveim þúsundum ára, og
hefir allt rekið að hinu sama, að menn hafi hvorki verið
stærri né rninni en nú á dögum. A Egyptalandi var það
siður að smvrja lík, og var það gjört með slíkri snild, að
þau gátu haldið sér, hversu lengi sem vera skyldi. Var
það ymist, að ættingjar hinna framliðnu geymdu þessi
smurðu lík, einsog helga dóma, eða þau voru sett í stórar
og ramgjörvar byggingar eða hvelfingar, er höggnar voru
í klelta. Hefir allt fram á þessa tíma fundizt fjöldi af
likum þessum, er menn kalla „múmíur“. — J>egar vér nú
skoðum múiuíur þessar, þá er engan stærðarmun að sjá
á inönuum þeim, er uppi voru fyrir tveim þúsundum ára
og þeim er nú lifa, og sá sem ekki gætir þess, að líkin
rýrna nokkuð og skorpna saman er þau þorna, mælti
jafnvel halda áð þeir liefði verið minni; en þegar gáð er
að beinunum, þá hlýtur hver einn að komast til þeirrar
niðurstöðu, að Egyplalandsmenn hafi í þá daga hvorki
verið stærri né minni en þeir eru nú. En fólkið þar í
landi er að öllum jafnaði nokkru smávaxnara en á Norð-
urlöndum.
I mörguin öðrum löndum finnast beinagrindur og
bein á sundrungu, sem auðsjáanlega eru úr hkum manna,
sein dánir eru fyrir mörgum öldum eða tveiin þúsundum
ára, og hvervetna hafa nákvæmar og ítarlegar ransóknir
fullsannað það, að líkainsstærð mannkynsins sé óbreytl frá
fyrri tíðum.
það er og sannfæring sumra, að menn hafi í fyrndinni