Ný sumargjöf - 01.01.1865, Blaðsíða 77
skynseminni, og þar að auki er séð fyrir því meðítarlegum
lagaboðum og vilurlegum ráðstöfunum, að sált og friðsemd
haldist innanlands. — Við aðrar þjóðir byrja menn sjaldan
hernað fyr en í seinuslu lög, og þykir það mikill ábyrgðar-
hluti, þar sem líf og velferð svo margra er í veði. En
hvað hreyslina sjálfa snerlir, þá mundi mega sanna það
með mörgum dæmum, að engu minni afreksverk hafa
unnin verið á seinni öldunum en hinum fyrri.
Menn hafa einnig Iofað hinar fyrri kynslóðir fyrir
hreinlyndi og orðheldni, en það er á jafnveikum ástæðum
bygt og hitt. Vér sjáum víða af fornsögunum, að heitrof
og meinsæri hafa opl átt sér stað, og frændur svikið
hverjir aðra í trygðum. þegar einn smákonungurinn sat
að veizlu með köppum sínum, þá veitti annar honum atför
og brendi þá inni. Svo var í heiðni og svo var í nokkrar
aldir eptir að kristni var lögtekin. þessarar aldar menn
standa því enganveginn á baki hinna fyrri kynslóða, hvað
ráðvendni og sannsögli snertir, en hitt er vonandi, að hinar
ókomnu aldir beri af þeim bæði í því og öðru. það væri
og ætlandi að krislileg trú fengi innrætt játendum sínum
viðbjóð fyrir öllum löstum, og hjá því getur heldur eigi
farið, ef menn aðh.vllast hana af hjarta, en hinsvegar er
mannleg náttúra að mörgu leyli svo ófullkomin, að oss
veilir erfilt að skilja sannindi Irúarinnar skýrt og Ijóst, og
komast að hinni réttu meiningu þeirra. Upplýsingin er
bezta meðalið til að uppræta hið dýrslega i eðli mannsins,
sem gefur girndum og fýsnum lausan tauminn og leiðist
einatt afvega af marklausum hugarburðum. Skoði menn
vegu guðlegrar forsjónar í útbreiðslu hinnar kristilegu
trúar, þá má aðdáanlegt virðasl, hversu allt miðar að því,