Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 14
GRÖP í ÖRÆPUM
17
Skáli (II), séð austur eftir. — The hall, view from the passage.
skipt í reiti með trémilligerðum og síðan borið grjót í reitina.
Vestasti reiturinn er 1,60 m breiður, grjótlaus vestast, en upp við
vegginn er stór, flatur steinn austast, sem gæti verið undan stoð.
Fram við setbrúnina austast eru reistar upp þunnar hellur, og
virðist hafa verið kveiktur þar eldur. I grjótlausa hluta reitsins,
vestur við þilið var eitthvað, sem líktist smágerðu limi, birkiberki
og torfi og má vera, að þar hafi verið geymdur eldiviður, en þó
gæti þetta verið úr rúmbotni. Annar reitur er 1,05 m breiður,
fullur af grjóti og æði ósléttur að ofan og nokkru hærri en fyrsti
(vestasti) reitur. Þriðji reitur er 1,15 m breiður, og er einnig mikið
grjót í honum. I suðausturhorni hans er stór steinn, 40x50 sm að
grunnfleti, og ofan á honum annar flatur steinn, og er steinahlaði
þessi 50 sm hár yfir setið. Austan þessa reits voru leifar af tré-
milligerð eða þili, sem náði allt að 40 sm upp í vikurinn. Fjórði
reitur er aðeins 90 sm breiður. Hann er hærri en hinir reitirnir
2