Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 34
36
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
eldganginum ofan á eldgrófinni, og er ekki sjáanlegt hvers vegna
hann var þar. Annar laus steinn lá innst í innri dyrum eins og
þröskuldur. Ekki er víst hvers vegna hann var þar, en með honum
mátti að mestu loka fyrir eldganginn að innan.
Innra húsið var miklu minna en það fremra. Það var kringlótt,
um 1,4 m í þvermál niður við gólf, en víkkaði nokkuð uppeftir.
(Þvermál 1,8 m í 1 m hæð yfir gólf). Gólfinu hallaði nokkuð fram
að eldganginum. I því lágu fáeinar litlar hellur, og frammi fyrir
dyrum stóð einn steinn upp úr gólfskáninni, en hún var frekar
þunn, og í henni voru einkum kol og brennt korn. Þetta er án nokk-
urs efa sofnhús, þó óvanaleg gerð sé og annars háttar en tíðkazt
hefur á síðari tímum hér á landi.
*
Fjós og hlaóa. Tæpum 50 m fyrir austan bæinn stóðu fjós og
hlaða hvort af annars enda. Sneru húsin undan brekkunni svo sem
vænta mátti. Hæðarmunur frá hellu fyrir fjósdyrum til hlöðugólfs
inn við gafl er um 2 m eða 1:13. Hallinn utan húss er þó öllu
meiri, þar eð hlaðan er talsvert grafin í jörð.
Fjósið er innan veggja 8,3—8,8 m langt, lengra að vestan og
3,5—3,8 m breitt, litlu mjóst innst, en breiðast um miðju. Vestur-
veggurinn er sveigður út, mest 35 sm framan við miðju, en austur-
veggur er sveigður inn nær 20 sm innan við miðju. Er því líkast
að fjóstóftin sé örlítið bjúg til vesturs. Vegghæð er 1,0—1,20 m,
og er ekki víst að neitt að ráði vanti ofan á veggina, þar sem þeir
eru hæstir. Hleðslugrjótið er misjafnt eins og víðast hvar í hús-
unum á þessum bæ, þvermál flestra steina frá 10—40 sm. Dyr eru
beint fram úr fjósinu, beinar að mestu, 1 m víðar innst, en aðeins
um 70 sm fremst. Dyrakampar eru nokkuð misþykkir. Hinn vestri
er 2,20 m þykkur, en hinn eystri 2,60 m. Skagar hann því 40 sm
lengra fram, og má vera að það hafi verið gert svo til þess að
mynda skjól fyrir austanátt, en hún er þrálátust og hörðust vind-
átt þar á staðnum. 50 sm inni í dyrum, miðað við vestri kamp,
standa steinar, sem virðast vera undan stoðum, og er trúlegast að
þar hafi verið hurð. Á milli þessara steina eru aðeins 50 sm, en
dyravídd gæti þó hafa verið allt að 70 sm, og er það víst hæfilegt.
Rétt við innri brún vesturkamps stendur steinn í dyrum, sem sýnist
vera undan stoð, en ekki er neinn steinn á hæfilegum stað austan