Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 42
44
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Borgartún með uppgröfnum rústunum (á miðri mynd), séð úr hlíðinni innan
við Grafargilslælc. Handan við rústirnar sést Skriðulækur. — View from the
mountain side above the ruins at Gröf (centre).
Árið 1362 gaus Öræfajökull, sem þá mun raunar hafa heitið
Knappafellsjökull, með þeim býsnum, að öll byggðin gjöreyddist.
f annálsbroti frá Skálholti, sem efalítið er samtímaheimild, en ritað
á Norðurlandi, segir svo um árið 13627): „Eldur uppi í þrem stöðum
fyrir sunnan, og hélzt það frá fardögum til hausts með svo miklum
býsnum, að eyddi allt Litlahérað og mikið af Hornafirði og Lóns-
hverfi, svo að eyddi 5 þingmannaleiðir. Hér með hljóp Knappafells-
jökull fram í sjó, þar sem var þrítugt djúp, með grjótfalli,
aur og saur, að þar urðu síðan sléttir sandar. Tók og af tvær
kirkjusóknir með öllu, að Hofi og Rauðalæk. Sandurinn tók í miðjan
legg á sléttu, en rak saman í skafla svo að varla sá húsin“. f Gott-
skálksannál segir við árið 1362, en frumheimild annálsins mun vera
rituð skömmu síðar8) : „Vetur harður upp frá jólum, komu smáir
regnblotar og þar í milli útsynningar með hörðum og stórum snjó-
komum. Jókust svo jarðbönn víða á íslandi, að menn fengu stóran
skaða í fjártjónum hrossa og sauða. Urðu margir öreigar af fjár-
tjóni, var og nautfellir nokkur. Eldsuppkoma í sex stöðum á fslandi.
í Austfjörðum sprakk í sundur Knappafellsjökull og hljóp ofan á