Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Blaðsíða 127

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Blaðsíða 127
LESANDABRÉF 133 II. V erndarklukka. Það er vafalaust mjög hæpið að verið hafi í fornöld helgur steinn í Vesturdal þar sem nú er Hraunþúfuklaustur, og Kristján Eldjárn hafnar þeirri munnmælasögu gjörsamlega. Hann álítur eins og fleiri að nafnliðurinn klaustur hafi kveikt þrálátan orðróm um múklífi þar til fjalla frammi, þó eigi að marki fyrr en komst í sagnir að kirkju- klukka í Goðdölum hefði fundizt þar í jörð „að yfirhvolfdu kjaraldi" og með þeirri áletrun að hún gæti burtrekið djöfulinn með sinni bamba-rödd. Seinna urðu kirkjugripirnir þrír sem áttu að hafa fundizt á Hraunþúfuklaustri, klukka, kaleikur og hurðarhringur. Höfundur aftekur að nokkur þeirra geti verið þaðan og vísar til mýmargra dæma um sams konar alþýðukvis í þjóðsögum. Eg er ekki trúaður á helgisetur við Hraunþúfuá, þótt þar kunni að hafa verið kjörinn reitur einsetumönnum þegar hæstur er sólar- gangur, en lakari á vetrartíma, nema þeim væri kappsmál að lesa bænir sínar undir snjó. Eg er hins vegar trúaður á að þar hafi fund- izt vígð klukka, þó svo hún héngi aldrei þar fremra innan klaustur- veggja né að heilögu húsi af neinni gerð. Frá Hraunþúfuklaustri sér ekki til byggða, þar eru hamrahlíðar og dimm gljúfur opin, tröll- heimur eigi lítill, og öræfin sjálf hið næsta. Að trú miðaldamanna — og áletrun þeirrar klukku sem sagt er að fyndist á Hraunþúfuklaustri bendir til 15. eða 16. aldar segir Kristján Eldjárn — var fjallheimur landsins albyggður tröllum, forynjum og öðrum andskotum guðs- kristni, en það er margsagt í þjóðsögum að ekkert biti á þessi kvik- indi betur en hringing vígðra klukkna, þá hrukku þau undan er á þeim skall hinn helgi hljómur. Nú er gefið mál að það hindurvitna- fólk sem átti dvöl í Hraunþúfuklaustri á miðöldum, ýmist við selja- búskap sem þar má hafa verið eins og áður segir eða í haustleitum, kenndi beygs af fjöllum í óbyggð og gapandi gljúfrum. Þessu fólki var full þörf á verndargrip og enginn ákjósanlegri en vígð klukka, livað þá klukka sem sagðist berum orðum geta burtrekið sjálfan djöfulinn. Slíkt hjálpargagn í Hraunþúfuklaustri er sízt ótrúlegra en þau krossmörk er nú gnæfa í Njarðvíkurskriðum og á Óshlíð við Djúp til fulltingis ferðamönnum eða sú tafla með Faðirvori sem fest hefur verið á Gvendaraltari í Drangey til þess að blíðka guð á þeim hrikastað í hjálparskyni. Litlar klukkur, vígðar, gætu á páp- ískum tíma og jafnvel eitthvað lengur hafa verið niður komnar hér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.