Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Síða 92

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Síða 92
96 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS í síðum kufli, snýr hún t.v., krýpur á kné, og sveiflar reykelsiskeri fyrir framan sig með vinstri hendinni. Gafl helgiskríns með lagi kirkju sést lengst til vinstri, þarna gerður helmingur kirkjuskips og annað hliðarskip- anna, en mynd þessi þakin hrufum í skáhöllum þéttum röðum. Þuríður Jónsdóttir Arasonar dvaldist í klaustrinu að Stað í Reynisnesi. Virðist lík- legt að henni sér hér lýst við helgiathöfn. Það var siður þegar heilögum Andrési var haldin hátíð, og reyndar oftar, að bera reykelsi um híbýli og peningshús, að reykja, eins og það nefndist. Er hér um að ræða fjarlæging- arathöfn, en reykingin telst auk þess vera í tengslum við baksturssiði og anda uppskerunnar. Má hér vísa til áður nefndrar handbókar um þýska þjóðtrú. Mynd konu í ormslíki að neðan er í kringlunni sem liggur lengst til vinstri á fjöl. Kona þessi ber liljukórónu á höfði og er klædd nærskor- inni flík. Hún veit til hægri, seilist með vinstri hendi til trés fyrir framan sig, og tré þetta sporður. Við mittisstað umlykur hana ormsbolurinn, er hann ekki ósvipaður belti, og konan heldur með hægri hendi um hann. Bak við þessa veru, sem er sennilega ein dætra Jóns Arasonar, rís tré sem líkist stafnum s, öfugum. Á ysta rimlinum til hægri er mannshöfuð með lágri kollu, sbr. konuna á öðrum bakrimli til vinstri. Hinar tvær lágu koll- ur virðast helst geta verið kórónur af gerð sem þekkist í Miklagarði og Austur-Evrópu. Sést gerð þessi í býsönskum tíglamyndum. Á öðrum rimli frá hægri kemur í ljós mannshöfuð með liljukórónu, kóróna þessi nokkuð frábrugðin þeirri sem sést í myndkringlunni lengst til vinstri. 1 annarri kringlu frá vinstri er svo skorin út kyrtilbúin kona, hún minnir á skjald- mey eða valkyrju, og virðist þetta kunna að vera þriðja dóttirin. Fornar myndir af sigurgyðjum eru hér ef til vill fyrirmynd. Þessi kona snýr til vinstri, krýpur á kné, blæs í horn, sem hún heldur í vinstri hendi, höndin ekki vel eðlileg, eins og kemur fyrir víðar, en gamallegur sporðskjöldur er fyrir framan hana, og heldur hún honum uppréttum með hægri hendi. Bak við hana sjást hrufur í þremur samhliða, örlítið sveigðum röðum, nær því lóðréttum, ekki er vel ljóst hvað atriði þetta merkir, þó getur verið að þarna sé vængur. Vinstra megin hins miðlæga fangamarks Ara Jónssonar á stólkistli að framan, í jafn stórum kringlureit, og með sams konar umgerð í kring, er gerður tvöfaldur grískur kross. Hann er eins og átta spela hjól, og þarna haft gróðurskraut, liggja báðir krossarnir hvor yfir annan á ská og hallar til hægri. Þetta merki kallast vindarós. í jafn stóru kringluatriði til hægri á framhlið er grískur kross sem hallar eins, og hér einnig gróðurskraut. Þann- ig vill til að bæði ofantalin merki, einfaldi krossinn og hinn tvöfaldi, sjást saman í upphleyptu skrauti höggnu í stein utan á kirkju heilags Markúsar í Feneyjum. Annars staðar í kirkjunni, í sams konar skrauti, getur að líta
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.